Vísir - 20.02.1953, Blaðsíða 1
s *
c. - ¦ - - . .
, ,8
42. tbl.
43. árg.
Föstudaginn 20. febrúar 1953
I^eikfélag fteykfavifi.it i*:
„Vesalingar" Hugos næsta
verkefni félagslns.
Saiiisiar R. HaBtsen hefis- samið ielkrii
efiir þessu fræga verki.
Leikfclag Reykjavíkur mun í
næsta mánuði ráðas.t í veiga-
mesta verkefni, sem það hefur
nokkru sinni tekið sér fyrir
hendur.
Svo er mál með vexti, að
Gunnar R. Hansen hefur samið
leikrit eftir heimsfrægri skáld-
sögu Victors Hugos, Vesaling-
'unum, en textann hefur Tómas
Guðmundsson þýtt.
Vesalingarnir verða vænt-
anlega frumsýndir um miðjan
næsta mánuð, og mun allur
undirbúningur ganga að óskum,
að því er Vísir hefur frétt.
Mun.þetta verða leikhúsgestum
mikið tilhlökkunarefni, og
sannar enn betur, hver snill-
ingur Gimnar E. Hansen er, og
íslehzkri' leiklist mikill fengur
að starfáemi' hans hér. Hann
verður ¦ sjálfur. leikstjóri, eins
og að*líkunv;lætur, en um að-
alhlutverk er.Vísi ókunnugt að
öðru leyti en því, að Brynjólfur
Jóhannesson mun f ára með
hlutverk ¦-Javerts lögreglufor-
ingjajen fiorsteinn Ö. Stephen-
sen leikur Jean Valjean gal-
eiðuþræl. r Aðrir leikendur
verða, f jölrnargir en efnið allt
er hið stórbrotnasta, svo sem
kunnugt eraf sögu Hugos og
alkunna»er. •., -
AJIt selt til
órsioka 1957.
London (AP). — Brezkum
fiugvéíasmiðjuni hafa borizt
svo margar pantanir á flugvél-
um með Iþrýstihreyflum, að
Verkefni eru fyrir hendi næstu
fjögur ár.
Er hér aðeins átt við pant-
anir þær, sem borizt hafa f rá
kaupendum utan Bretlands. Á
síðasta ári nam flugvélaút-
flutningurinn tvöfalt hærri
upphæð en árið 1947, og nam
alls um tveim milljörðum
króna. í desember nam útflutn-
ingurinn 200 millj. kr., og var
það met.
Kosiö í kirkjuráð.
í f yrradag voru talin atkvæði
í skrifstofu biskups eftir kosn-
ingar í kirkjuráð.
Skyldi kjósa tvo guðfræðinga
og hlutu þeir kosningu próf.
Ásmundur Guðmundsson og
síra Þorgrímur Sigurðsson Stað
arstað. í vor og sumar verða
svo kjörnir tveir fulltrúar af
hálfu leikmanna, en það gerir
héraðsfundur, sem prestar,
prófastar og safnaðarfulltrúar
sitja. Fimmti maður kirkjuráðs
ins er biskup, sem-er sjálfkjör
inn ög forseti ráðsins.
Þrír Jénasar
og Alþýðublaiíð
Alþýðublaðið birtir frétt
um það í morgun, áS „þrír
Jónasar" ætli að stofna flokk
með Vavðbergsmömium. —r.
Lætur Alþbl. í það skiiia, að
gera eigi Varðberg að dag-
blaði, en Vísir eigi jafnframt
að hætta að koma út.:
Þótt Vísir taki sjaldan al-
varlega rosafréttir Alþýðu-
blaðsins, skal þó í þetta
skipti tekið fram, að Vísir
er ekki og hefir aldrei verið
í neinu sambandi við Varð-;
berg og er með öllu ókunn-
ugt um b.yað hinír „3 Jónas-
ar" Alþbl. hafa fyrir stafni.
Vísir getur glatt Alþl.
með því, að hann mim halða
áfram að koma út hér eftir
sem hingað iil, og er AlþbL,
þairf ara að hugsa um sín eig-
in heimilismál í stað þess að
dreifa Gróusögum um önnur
btöð.
Myndin er af frú Clare Booth
Luce, nýskipuðum sendi'ieira
Bandaríkjanna á ítalíu.
Flóðin. á dagskrá:
Beint tjón Breta er áætlað
40—50 miUj. stpd.
Skörð mynduðust i varnar-
fjarfla á 12110 stöðum.
Einkaskeyti frá AP. —
London í morgun.
Neðri málstofan ræddi í gær
tjónið af völdum flóðanna á
austurströnd Englands.
Beint tjón er talið nema 40
—50 millj. stpd. Sprungur
pg skörð mynduðust í varnar-
garða á 1200 stöðum, 307 manns
biðu bana og 32.000 manns
flýðu heimili sín.
Handknattleikur:
Ármann vann Vík-
ing, KR FH.
Á handknattleiksmeistara-
móti fslands í gærkvöldi fóru
leikar syo, að K.K, vann F.H.
í B-deild 21:8 og Ármann vann
Víking í A-deiíd 16:15.
Sex Ísbndsffnet voru sett á
skautalaiulsmótíiHi.
Edda Indríðadottir og Bjöi'ii
Baldurssíoii skiptn þeim á milli sín
Skautalandsmótinu lauk á
Akureyri í gaer, en alls voru
sett sex ný fslandsmet báða
dagana.
í gær var keppt í eftirf arandi
greinum:
KMKÍ rcu hlaupi kvenna:
mín.
1. Edda Indriðadóttir 2:08.3
2. Hólmfr. Ólafsdóttir 2:20.5
1500 m. hlaup karla:
1. Hjalti Þorsteinsson 2:45.1
2. Björn Baldursson 2:45.2
3. Óskar Ingimarsson 2:49.1
3000 m. hlaup kvenna:
1. Eddá Indriðadóttir 7:12.4
2. Hólmfríðúr Ólafsdóttir 7:56.9
Tími Eddu á vegarlengdinni
er nýtt glæsilegt íslandsmet.
5000 m. hlaup karla:
1. Björn Baldursson 9:58.3
2. Jón O. Ármannsson 10:05.4
3. Hjalti Þorsteinsson 10:06.5
Þarna var tvöfalt íslands-
met sett, fyrst hljóp Jón O.
Ármannsson undir gamla met-
inu í sínum riðli, en rétt á eftir
hnekkti Björn meti Jóns.
Á milli keppnisgreina hljóp
Reiðar Liahlev 3000 metra á
skautum og sýndi áhorfendum
hvernig bæri að hlaupa. Vakti
sýning þessi mikla athygli og
hrifningu áhorfenda.
Eeiknuð hafet verið út stig
karla í skautamótinu og hlaut
Björn Baldursson lægsta stiga-
tölu, eða 223,280, næstur varð
Hjalti Þorsteinsson með
226.450 stig og þriðji Jón O.
Ármannsson með 230.957 stig.
Björn varð íslandsmeistari í
fyrsta sinn á þessu mótjj en
Edda Indriðadóttir í þriðja sinn.
Sum þessi skörð eru tugir
metra á breidd. Um 500 hús
eyðilögðust gersamlega, en 300
munu tæplega viðgerðarhæf.
Verksmiðjur — þeirra meðal
cementverksmiðjur — er ekkii
hægt að starfrækja um sinn
vegna skemmda. Víðáttumikil
ræktarlönd spilltust af aurburði
og sjávarseltu, yfir 1000 stór-
gripir drukknuðu, 800 sauð-
kindur og nokkur hundruð svín
og mergð alifugla.
McMillan húsnæðismálaráð-
herra kvað það meginhlutverk
nú að aðstoða fólk á flóðasvæð-
unum eftir megni, auk stöðugs
eftirlits og viðgerðarstarfa, lögð
var rík áherzla á það af mörg-
um, að öll hætta væri ekki. úr
sögunni.
Margir tala.
Meðal ræðumanna voru Chur-
chill, Attlee, Sir David Max-»
well Fyfe innanríkisráðherra,
McMillan o. fl. — Skipuð verð-
ur rannsóknarnefnd, sem á að
kynna sér allt, sem læra má
af, til þess að forðast slíkt tjón
í framtíðinni.
Churcill og Attlee minntust
báðir á hinar miklu byrðar, sem
hollenzka þjóðin yrði að þera
vegna tjóns af flóðunum þar.
Kváðu þeir þær hlutfallslega
miklu þyngri en byrðar Breta
og báru lof á Hollendinga fyrir
þrek þeirra, hugprýði og still-
ingu á þessum reynslutíma.
Belgar snúa reiði sinni gegn stjúpmóður
konungs — de Rehy prinsessu.
Saka hana um létttli 09 líkja bnni við Mariu Antoinettu.
Einkaskeyti frá AP. —
Briissel í gær.
Gremja sú, sem brauzt út
gegn Baudouin konungi Belgíu,
meðan flóðin voru £•¦ ahnættí
sínu, beinist nú aðallega að
stjúpmóður hans — de Reíhy
prinsessu.
Konungur v.ar í S.-Frakk-
landi, er náttúruhamfarirnar
skullu yfir, og kom aðeins heim
sem snöggvast, en hvarf síðan
suður í sólina aftur. Varð,
gremja Belga þá svo megn, að
van Houtte, forsætisráðherra,
fór - sem skjótast á fund kop-
ungs. Er hann kom heim aftur,-
tilkynnti hann, að konungur
væri svo slæmur til heilsunnar,
að hann yrði að vera í S.-Frakk
landi um nokkurra vikna skeið.
Eeiði manna hefur vaxið
víð það, að fullyrt er, að
konungur hafi kallað van
Houtte á fund sinn, til þess
að krefjast þess af honum,
að hann stöðvaði gagnrýni
blaða á honum — konung-
inum.
Hafa biöð stjórnarandstöðunn
ar.krafizt þess, að sett verði lög,
er kveði óvéfengjanlega á um
réttarsíöðu einstaklinga innan
konungsfjölskyidunnar, en
fyrst og fremst de Rethy prins-
essu, sem konungur /giftist til
vinstri, en stjórnarskrá lands-
ins viðurkennir ekki slíkan-hjú-
skap konungs.
Lögum samkvæmt er óheim-
ilt að gagnrýna konungsfjöl-
skylduna opinberlega og menn
hafa Iengi deilt um það, hvort
þetta ákvæði nái til konu Leo-
polds, þóað hann hafi hafnað
öllum konunglegum réttindum
fyrir hennar hönd, er hann
gekk að eiga hana.
Sósíalistablaðið Le Peuple
hefur sagt: „Það ér kominn
tími til þess, að tekin sé af öll
tvímæli — í eitt skipti fyrir
öll — að þvi er hana varðar."
María Antoinetta.
Vikublað nokkurt, sem cr
mjög útbreitt, hefur líkt henni
við Maríu Antoinettu, „vegna
Frh. á 5. siðu.
Skák:
2 lotur ef tir.
Níunda umferð Skákþings
Reykjavíkur var tefld í gær-
kveldi.
í þeirri umferð vann Þórir
Ólafsson Ólaf Einarsson, Lárus
Johnsen vann Gunnar Ólafsson,
Óli Valdimarsson vann Ingi-
mund Guðmundsson, en Ingi
R. Jóhannsson og Jón Einars-
son gerðu jafntefli.
Nú eru aðeins tvær umferðir
ef tir í. Skákþinginu og f er sú.
fyrri þeirra fram á sunnudag-
inn kemur kl. 1.30 e.h.
!OfffS¥@il
ii* <ger&
Bombay (AP). — í vikuhní
kom til uppþota í hæli fyrii?
holdsveika menn hér í borg.
Kröfðust þeir betra viður-
Væris og fatnaðar, og réðust 'á.
starf sf ólk hælisins, svo að vopn-
uð lögregla varð að skakka
leikinn. Tólf sjúklingar meidd-
ust.