Vísir - 28.02.1953, Blaðsíða 1

Vísir - 28.02.1953, Blaðsíða 1
43. árg. Laugardaginn 28. febrúar 1953. 49. tb!. ISTISI Löndun á ísfiski í Bretlandi stöðugt til athugunar. Ekki munu veraHéinár horf- ur á því, að nokkur b'reyting verði að svo stöddu, að því er varðar landanir á ísvörðum fiski íslenzkra togara í Bret- landi. Er nú langt liðið á þann tíma árs, sem íslenzkir togarar eru vanir að leggja leið sína á til brezkra fiskibæja með ísfisk, og jafnvel þótt viðhorfið breytt- ist að því er landanir vaiðar/ virðist útilokað, að um landan- ir á ísfiski geti. orðið að ræða að sinni. Þess má geta að venju- lega hafá íslehzkir togarar ekki byrjað að sigla til. Bretlands með ísfisk fyrr en síðari hluta sumars (ágúst) óg lykur slík- uni ferðum snemrna vors. En engu verður um það spáð hvað gerast kann í þessum mál- um fyrir uppháf venjulegs ís- fisksölutíma. Félag íslenzkra þotrivörpu- skipa hefir að sjálfsögðu til at~ hugunar sem hingað til allá möguleika til löndunar á ís- fiski í Bretlandi. Þar sem minnzt hefir verið á fiskibæinn Milford Haven í þessu sambandi í blaði hér, má geta þess, að Milford Haven ef lítill bær, þar sem flést murj hafa verið í aftúrför að undan- förnu, m. a. vegna ofveiði á miðum, sem þaðan hafa verio sótt, og ef til vill vegna fléiri atvinu- og efnáhagseffiðieika. ] Þessi bær gæti ekki tekið við miklu fiskmagni, en menn þar hafa m. a. fengið áhuga fyrir ' að athuga möguleika á, að ís- lenzkur togarafiskur væri landaður þar. Kom hingað til lands fyrir nokkru maður frái Milford Haven til þess að ræða við fulltrúa íslenzkra togara- eigenda, en ekkert ákveðið mun hafa geírzt i þessu máli. Ríkisstjórnir íslands og Bret- lands hafa að sjálfsö^ðu stöð- Ugt til meðferðar ági'eíhinginn út af útvíkkun landhélginriar. Að því er Vísir bezt veit, er ástand pg horíur nú sem að ofan segir'. (Jngverjar bjóða Bretum óvenjuieg faugaskipti. §aklausnm Hrda verði sleppt lír Eialdi fti*íi* seka kínverska stúlku á Malakkaiskaga. Óðni bætast 32 félagar. 32 nýir félágar gengu í mál- fundafélagið Óðin, sem hélt fjöí sóttan fund í fyrrakvöld. Sveinbjörn Hannesson stjórn aði fundinum, en Friðleifur Frikriksson var fundarvitari. UmræðUr snerust einkum urn kosningar þær, sem framundan eru, og voru menn einhuga um að vinna sem bézt að sigri Sjálf stæðisflokksins. Starfsemi Óðins stendur með miklum blóma, en félagið vinn- ur að hagsmunamálum verka- marina og annarra launþega. Þessir menn tóku til máls á fundinum: Axel Guðmundsson, Lúther Hróbjartsson, Guðm. H. Guðmundsson, Ingimundur Guðmundsson, Hannes Jónsson, Guðjón Hansson og Sveinbjörn Hannesson, formaður félagsins. Æfi Farouks á kvikmynd. Róm. (AJP.). — Kvik- myndafélag eitt hér í borg, sem Errol Flynn á og stjórnar, hefir í hyggju að gera kvikmynd um ævi Faro uks konungs. Þeim, sem leikur aðalhiutverkið — Farouk konung — verður að vera vcl í skinn komið, og er talað um, að Orson Welles hafi verið boðið það. Dans- meyjar verða og að vera með, til Jþess að allí sé sem líkast veruleíkanum, og hefir Hollywood-dans- meynni Ann Miller verið boðið hlutverkið. Þetta er Juiius Mayer, forseti sambands austur-þýzkra Gyð- inga. seni ásamt nokkruin öðr- um kimnum þýzkum Gyðingum flýði yfir mörkin til Vestur- Berlínar fyrir nokkrum dögum. Varð 126 ára. Lissabn (AP). — Elzti borg- ari Portúgals andaðist í vik- unni sem leið. Var þetta Florinda de Jesus Exposta, sem talið var að væri oröin 126 ára gömul. Hershöfðingi Eátinn Saiss. Bon (AP). — Von Kiichler herhöfðingi hefur verið látinn laus úr Landsbergfangelsi. Hershöfðinginn stjórnaði inn- rásinni í Pólland að nokkru leyti, og var dæmdur fyrir stríðsglæpi. Sakir elli og las- leika var honum sleppt 11 mán- uðum áður en dómurinn var á enda. Sendífierraskjpti Bandaríkjanna. Washington (AP). — Banda- ríkjastjórn er riú að skipta úm sendiherra í ýmsum höfuðborg- um. Hún hefur skipað sendi- herra hjá þjóðernissinnástjórn- inni á Forinósu. Þar verður maður að nafni Rankin sqndiherra, en þarna háfa Band.aríkin haft aðalræð- isriiann, — Dunn, sem var sendiherra í París, fer tjl Mad- rid, en Dillon yerður sendi- herra í París o. s, frv. Emkáskeyti frá A.P. — London í morgún. tJrigverska stjórnin hefur boðizt til þess að sleppá úr Eden til Rómar í apríl. Róm (AP). — Ákveðinn hef- ur verið fundur Edens Utanrík- isráðherra og de Gasperis for- Sætis- og utanríkisráðhérra bráðlegá. Mun Eden koma fil Róma- borgar í apríl-mánuði að öllu forfallalausu, og hafa þar nokkra viðdvöl, meðan rædd verða sameiginleg hagsmuna- mál ríkjanna. Haustkosningar í Bredandi? Einkaskeyti frá A.P. London, í gær. Ýmsir gera ráð fyrir því, að efnt muni verða til kosn- inga í Bretlandi á hausti komanda, og eru það einkurn menn úr verkamannaflokkn- um, sem fullyrða þetta. Hef* ir Heetor McNeiI, sem var um skeið Skotlandsmála- ráðherra, spáð þessu m. a. í ræðu í kjördæriii sínu í Greenock. Lét hann svö um msélt, að íhaldsflokkurinn mundi ekki þora að fresta kosningum fram á næsta ár, því að þá niundu afleiðing- ar hinnar „glæfralegu stefnu stjórnarinnar í efna- hagsmáíum14 verða orðnar allt of greinilegar. Getspekín gaf 109 þús. punda arð. London (AP). — Skrifstofú- maður í City — 41 árs.að aldri — græddi í síðustu viku 109,000 sterlingspund í getraun um úr- slit knattspyrnuleikja, Hafði hann sent tveim get- raunafyrirtækjum sömu svör- in, og greiddi annað 75,000 punda vinning en hitt 34,000 pund. Maður þéssi heitir Coul- ton, kvæntur og á eitt barn. Hefur hann 15 pund í vikulaun og ætlar að halda starfi sínu í City áfram fyrst um sinn. Daginn eftir að hann fékk vinningana greidda, sendi hann slösuðum knattspyrnu manni 3000 pund að gjöf. 47 íarast haldi brezkum manni, Edgár Saunders, sem dæmdur var í 13 ára ára fangelsi 1950, fyrir njósnir, ásamt bandarískum manni, Robcrt A. Vogeler, er dæmdur var í 15 ára fangelsi, en síðar sleppt. En ungverska stjórnin. set- ur það skilyrði fyrir tiiboði sínu, að sleppt sé úr þaldi ungri, kínverskri stúlku, sem dæmd var til lífláts á Malakkaskaga. Stúlkan hafði handsprengju í fórum sínum, er hún var tekin höndum. Hún var dæmd af her- rétti, leitáð var náðunar fyrir hana á Sírium tíma, en synjað um hana. — Tilboð sem það, er ungvérska stjó'rnin hefur hér lagt fram, er óvenjulegt, en hitt er áíls ekki óaigengt, að ríkisstjórnir geri með sér sám- komulag um skipti á förigum, seni eru þeirra eigin þegnar. Éftir að kommúnistar komust til valda í Ungverjalandi, lögðu þeir hald á bandarískar eignir og hafa haft ýmiss konar móðg- anir í frammi við bandaríska menn þar í landi. Greip Banda- ríkjastjórn þá til gagnráðstaf- ana og lét loka ungverskum ræðismannsskrifstofum. í febrúar 1950 játuðu þeir Saunders og Vogeler á sig njósnir ásamt mörgum öðrum. Ungverska stjórnin sleppti Vogeler árið eftir, eftir að ut- anríkisráðuneyti Bandaríkjanna hafði fallizt á enduropnun ræð- ismannsskrifstofanna og gert fleiri tilslakanir. Vogeler hélt því fram, að játning hans hefði verið afleiðing „andlegra pynd- inga“. — Brezka stjórnin hefur gert margar tilraunir til þess að fá Saunders lausan úr haldi, án árangurs. Mex. City (AP). — Á sunnu- öaginn biðu 47 manns í bifreiða slysi utarlega í borginni. Var fólk þetta allt að koma úr skemmtiför, er tveir almenn- ingsvagnar, sem það var í, rák- ust á. Níutíu manns slösuðust, því að troðið hafði verið í vagn- ana eins og hægt var. Logsuðutækin unnu ekki á hurðinni. Tilraun gerð til innbrots hjá Fiskifélagí íslands í nótt. I nótt var gerð tilraun til meiri háttar innbrots í húsi Fiskifélags íslands við Ingólfs- stræti. Farið hafði verið inn um glugga á bakhlið hússins, en í verkstæðisherbergi sem er niðri í húsinu hafði þjófurinn fund- ið logsuðutæki, sem hann hefur borið með sér upp á miðhæðina. Á miðhæðinni er rambyggi- Ieg skjalavarzla sem innbrots- þjófnum hefur þótt girnileg og likleg til þess að geyma verð- mæti sem slagur væri í. Réðist hann með logsuðutækjun- um á hurðina og náði að skera gat á yztu plötuna fyrir læs- ingunni. En vegna þess hversu hurðin var ramger komst þjóf- urinn ekki lengra og varð að gefast upp að svo búnu. Þegar þjófurinn varð að gef- ast upp við skjalavörzluna, hef- ur hann skeytt skapi sínu á skrifborðum og brotið upp aíl- margar skúffur í þeim. En þar var ekkert fémætt geymt, enda engu stolið. Herstjórnin í hondlfim eins mannsö New York (AP). — Ridgway yfirhershöfðingi hefur lagt til, að einurn manni verði falin yf- irstjórn herafla A.-bandalags- ins í Mið-Evrópu. Fastaráð það í Washington, sem fer með þessi mál, hefur nú tillögu Ridgways til athug- unar. Eins og stendur er yfirmaður hverrar greinar landvarnanna um sig' — landhersveita, flug- hers og sjóliðs — ábyrgur gagnvart Ridgway. Á þessu tel- ur hann miklá nauðsyn að gera breytingu. — Þessi mál hafa verið þrætuefni, einkanlega milli Breta og Bandaríkja- manna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.