Vísir - 28.02.1953, Síða 5
VÍ5IR
5
Laugardaginn 28. febrúar 1953.
Upphafið var uppsögn
tónlisfarráðunautar.
Tonlistarfélagíð stemltir ekki að detlunni.
Að undanförnu hefur verið talsvert deilt um tónlistarmál í
sambandi við Þjóðleikhúsið, og sýnist sitt hyerjum í þeim efnum
eins og við er að búast. í fyrradag átti Vísir stutt tal við
Guðlaug Rósinkranz Þjóðleikhússstjóra um þetta mál, en í gær
átti blaðið viðtal við Ragnar Jónsson forstjóra, og lagði fyrir
hann nokkrar spurningar viðvíkjandi máli þessu.
. „Hver-t er up.phaf deilu. þeirr-
ar,ar, sem upp er komin milli
þín .og Þjóðleikhússins?“ spurði
tíðindamaðurinn.
„Uppha.f þessarar deilu —
enda þó það sé fyrst að verða
Ijóst nú — er sú ákvörðun Þjóð-
leikhússtjóra að hafná s.l. vor,
án minnsta tilefnis frá hendi
tónlistarmanna, allri samvinnu
yið þá, og segja upp. tónlistar-
ráðunaut Þjóðleikhússins, sem
var ráðinn á sínum tíma eftir,
ábendingu Páls ísólfssonar pg
ýmsra annarra, þeirra, er þekk-
ingu hafa á tónlist.
Þjóðleikhússtjóri mun þá hafa
talið svi orðinn svo forframaðan
í tónlist, að ráðuneytis væri;
ekki lengur þörf í þeim mál-;
um, því ekki hefur verið ráð-
inn maður í hans stað. Forystu-
meím tónlistarmála okkar eru.
liins vegar ekki svo rúnir allri,
ábyrgðartilfinningu, þó illa óri;
,að ýmsu leyti i andlegum mál-;
um hér, að þeir horfi sljóum
augum á það, að dillettantism-
inn ríði hér húsum að ráði
manna, sem treysta því að þeiin
sé allt fært í skjóli aðstand-
enda.
Mér er kunnugt um, .að þeir
hafa farið þess á leit við mennta
málaráðherra, aö hann skipaði
tónlistarnefnd til ráðuneytis;
Þj óðleikhússt j óra. ‘1
„Getur það ekki samrímst,
að Þjóðleikhúsið sé í senn há-
borg leiklistar og tónlistar?“
„Eg tel, að það eigi að vera.
Konunglega leikhúsið í Kaup-
mannahöfn er t. d. jafnframt
ipperuhús. En óperan þar er ekki
í höndum „sveitamanna".
Með lítilli breytingu má sýna
1 Þjóðleikhúsinu nærri hvaða
óperu sem er.“
„Ráðning hljómsveitarstjóra
Þ j óðleikhússins hefur vakið
deilur. Hver er ástæðan fyrir
því?“
„Enginn ábyrgur tónlistar-
maður stóð að ráðningu dr.
Urbancic ' og mér er kunnugt
um, að þeir hefðu yf-irleitt ekki
stutt þá veitingu — og það mun
Þjóðleikhússtjóri hafa vitað. Dr.
Urbancic var ráðinn hingað er
tónlistarmál okkar voru á frum
stigi. Hann er duglegur starfs-
maður en fremúr þróttlítill
stjórnandi. Er Symfóníuhljóm-
sveitin var stofnuð, kom hann
ekki til greina sem stjórnandi
hennar, nema til aðstoðar öðr-
um. Staða hljómsveitarstjóra
er svo þýðingarmikil, að ekki
er leyfilegt að hrapa að ráðn-
ingu slíks manps. Lágmarks-
krafa er að staðan sé auglýst,
Og að ráðnipg' hans sé fram-
kvæmd af mönnúm með tón-
listarþekkingu. .. .
Fyrst fundum okkar bar sam-
an, langar mig að biðja þig að
leiðrétta þann misskilning, að
Tónlistarfélagið standi að þess-,
ári deilu. Hún er þýí óvþðkom'-
andi með öllu og meðlimir þess
félags hafa engan þátt tekið í
opinberum umræðum um þessi
mál og munu ekki gera sem
slíkir. Það, sem ég hef persónu-
lega lagt til málanna, hefur
ekki verið borið undir félaga
mína þar, enda tekið, fram áð-
ur. Hins vegar tel ég mig hafa
leyfi til að hafa persónulega
skoðun á þessum málum og til-
lögurétt, þótt það sé ekki vel
séð hjá öllum.“
gep
hyltlngum skipað.
íþróttakeppni Vals að Há-
logalandi hefst annað kvöld kl.
8,30 og eru ferðir bæð* með
strætisvögnum og frá Ferða-
skrifstofunni.
Sérstök athygli skal vakin á
inniknattspyrnunni, sem nú
verður sýnd í fyrsta sinn hér
á landi.
í sambandi við keppnina
verður efnt.til 2ja krónu happ-
drættis um 10 góða vinninga
svo sem stóra konfektkassa,
nylonsokka, eigulegar bækur
o. fl.
Allur ágóði af keppninni
rennur til lamaða íþrótta-
mannsins og skulu Reykvík-
ingar hvattir til að styrkja gott
málefni.
BEZT Afl AUGLYSAIVISI
Heiðtirspeningur til minningar
um fyrsta forseta fslands.
Sexlán menn sæmdir honum.
er sa
Svar til Lúðvígs
, sm varar
Guðmundssonar.
Mætur maður, velvirður
kennari minn, Lúðvíg Guð-
mundsson, skólastjóri, íýtar
grein í Vísi 26. febrúar sl. Læt-
,ur hann uppi gremju sína .yfir
ummælum.Ole Hallesbys, guð-
fræðiprófessors, í norska út-
varpið 25. jan. sl. um afdrif
manna, sem deyja án hjálp-
ræðis. Hér skulu gerðar nokkr-
ar atnhugasemdir við greinina|
í allri vinsemd.
1. Kenningin um eilífa refs-
ingu er ekki einkamál Halles-.
bys heldur kenning kristinnar'
kirkju frá öndverðu, bæði ka
þólskra og evangeliskra kirkna.
2. Kirkjan hefir kenningu;
þessa frá höfundi og fullkomn-
ara trúarinar sjálfum (Matt.;
25, 31—46).
3. Orð þau, sem höfð eru eftir;
Hallesby, eru ekki huggunar-j
orð, ætluð syi-gjendum, helduri1
vakningarorð, ætluð þeim, sem
hafa ekki leitað á náðir frelsar-1
ans með syndir sínar.
4. Eigi ber að lasta bersögli'
Hallesbys, því að vitað er, að
gott eitt gengur honum til og
enginn getur flutt þessa aðvör-
un án þess að sverð nisti sálu-
hjálp hans. Svo hefir Hallesby
að orði komizt um þetta: „Eg
játa það hreinskilnislega, að
svo kvalafull er mér engin
hugsun sem hugsúnin um eilífa
glötun, og megna eg ekki að
hugsa hana til lengdar í einu.
En sá tími er liðinn í ævi minni,
þegar tilfinningar mínar og
hugsanir réðu því, hvað sé
sannleikur. Jesús er úrskurðar-
vald mitt. Eg trúi á Jesúm
Krist, einnig þegar hann talar
um eilífa glötun. „En,“ segir
einhver, „það samræmist þó
ékki miskunnsemi Guðs.“
Stattu við, hugreifi maður, áð-.
ur en þú sakar Jesúm um
miskunarleysi. .Þegar þú hefip
gengið hans veg í miskunnar-
sömum kærleika, getur þú far-
ið að leggja til málanna. um
miskunnsemi.“ Þessi orð eru
tekin úr bók Hallesbys, „Daglig
fornyelse“, hugleiðing 16. sept-
ember.
Hér verður ekki rætt um
réttmæti orða Drottins um
tvenns konar afdrif eða löng-
,un manna til að losa hann við
öli orð um það efpi. En þess
skal getið, að meira er rætt um
fvrirgefningu en fyrirdæmingu
í Heilagti ritningu. Svo er og
,um boðskap Hallesbys. Það er
Jiátlur mannvina, að þeir vara
við hættunum.
Magnús Runólfsson.
Pappírspokagerðin h.f.
| Pitastig 3. Állsk. papplrspokarj
mmmmsmimmmmmimamamc
Forseti Islands hefir hinn 26
þ. m., eftir tillögu ríkisstjórn-
arinnar, gefið út forsetabréf um
beiðurspening til minningar
um herra Svein Björnsson
fyrsta forseta íslands, sem
sæma má nokkra þá menn, er
unnu með forsetanum og fyrir
hann.
Vejtir forseti íslands heiðurs-
peninginn og einungis í eitt
skipti — á afmælisdegi herra
Sveins Björnssonar hinn 27.
febrúar 1953, eftir tillögu
þriggja manna nefndar, sem í
eru: Formaður orðunefndar,
Dr. Matthías Þórðarson, pró-
fessor, formaður, skrifstofu-
stjórinn í forsætisráðuneytinu,
Birgir Thorlacius, og ritari for-
seta íslands, Henrik Sv.
Björnsson. — Heiðurspeningur-
inn er úr silfri. Á framhlið hans
er mótuð mynd herra Sveins
;Björnssonar, en á bakhlið er
skjaldarmerki íslands.
Forseti hefir í dag sæmt þessa
menn heiðurspeningnum:
1) Fyrrverandi f orsetaf rú
Georgíu Björnsson.
2) Steingrím Steinþórsson,
forsætisráðherra.
3) Stefán Jóh. Stefánsson,
fyrrv. forsætisráðherra.
4) Ólaf ráðherra Thors,
fyrrv. forsætisráðherra.
5) Dr. juris Björn Þórðarson,
fyrrv. forsætisráðherra.
6) Hermann ráðherra Jónas-
son, fyrrv. forsætisráðherra.
7) ,Jón Pálmason, forseta
sameinaðs Alþingis.
8) Jón Ásbjörnsson,. hæsta-
réttardómara, fyrrv. , forseta
Hæstaréttar.
9) . Vilhjálm Þór, fprstjóra.
10) Guðmund Vilhjálmsson,
framkvæmdastjóra.
11) Dr. med. J.óhann Sæ-
mundsson, prófessor, lækni
forsetans.
12) Gunnlaugj^HalIdórsson,
húsameistara Bessastaða.
13) Kristjón Kristjánsson,
bifreiðastjóra forsetans frá
öndverðu.
14) Jón Krabbe, sendifull-
trúa.
15) Tryggva Sveinbjörnsson,
sendiherraritara.
16) Önnu Stephensen, ritara
í sendiráði íslands í Kaup-
mannahöfn.
Samkvæmt tilmælum nefd-
arinnar ber forseti íslands,
herra Ásgeir Ásgeirsson, einnig
heiðurspeninginn.
27. febrúar 1953.
Forsetaskrifstofan.
SU'maífúiiH
GARÐIJR
Garðastræti 2. — Simi 7299.
óka markaðurinn
í Listamannaskálanum
er opmn
til klukkan
tíu í kvöld
1500 úrvalsbækur með
30—80% afslætti.
Barnaspítalasjóður Hrings-
ins fær 10% af allri sölu og
Hringkonur leiðbeina í Lista-
mannaskálanum í dag.
Athugið, að opið er til klukkan
10 í kvöld