Vísir - 28.02.1953, Side 7
Laugardaginn 28.
1953.
VÍSIR
á þeim hefur verið gífurleg. Eg vona, að þú hafir verið hagsýn
í samningum við útgefendur þína.“
,,Eg hefi venð kröfúhörð," sagði hún og kinkaði kolli. „Eg
er svo vei efnuð nu,. að eg'veit ekki hvað eg á við peningana að
gera. Og mér'^^r^éhtKum. að stjúpdætur mínar, en þær eru.
tvær, þurfa .p^í3S%t^rSÍ#:íleiimliskennslukonur. Það mun eg
sjá um. Og eg legg minn sjóð til baráttunnar fyrir umbótum í
fangahúsum landsins."
„En sú hjálp, sem okkur kæmi bezt frá þér, er að þú skrifaðir
vekjandi greinar. Kona, sem er jafnvel ritfær og þú, getur gert
kraftaverk.“
Þegar hann leiddi hana til dyra klukkustundu síðar sagði
hún:
„Og þú, Francis, hefur þú verið hamingjusamur?"
„Eins hamingjusamur og nokkur maður gæti verið. Eg hefi
verið heppinn. Mér er ailt kært, heimili mitt, starf mitt —“
„Þú hefur lifað fremur viðburðaríku lífi. Þú hafðir jafnvel
áhrif á gang sögunnar um nokkurt skeið. Eg hefi fylgst með
gerðum þínum.“
„Eg hefi aldrei leikið nema smáhlutverk, Laura.“
. „Konan þín er yndisleg,“ sagði hún af mikilli hlýju. „Eg hefi
oft séð hana, í óperunni og leikhúsunum. Eg skrepp stundum
til London til þess að njóta „syndugra skemmtana“, eins óg mað-
urinn minn mundi orða það.“
„Þar sem við erum nú orðnir samherjar, munum við hittast
oft,“ sagði Frank. „Eins og við Yeltes forðum daga.“
„Já, en við berjumst nú fyrir betri málstað, en samt — eg á
góðar minningar frá þeim dögum.“
Þegar þeir Frank og Sir Robert Wilson höfðu neytt miðdegis
verðar saman héldu þeir í áttina til Apsley House. — Þrátt
fyrir glæsilegar spár Copes fyrrum um Sir Robert Wilson var
hann farinn að láta allmjög á sjá. Hann var orðinn silfurgrár
og mjög magur. Meðan þeir mötuðust hafði hann verið mjög
fámáll en heldur fór að losna um málbeinið á honum, er hann
hafði drukkið nokkur glös af víni.
„Eg hefi aldrei verið samur síðan eg fékk skotið í mjöðmina
’03 á Spáni, og stundum þegar eg sit á þingi, og hlusta á allan
vaðalinn, segi eg við sjálfan mig: „Farðu héðan, þetta er ekki
staður fyrir þig. Þú ert hermaður". Nei, eg á þar ekki heima
frekara en her.toginn. Auðvitað á hann sæti í efri málstofunni,
og þar eru þeir kurteisari, en heimskari flestir, með heiðar-
legum undantekningum þó. Jæja, það er líklega ekki hægt að
nota okkur til neins annars, eins og komið er.“
„Það hefur glatt mig mjög, að þið urðuð vinir, þú og her-
toginn,“ sagði Frank.
„Hann er gull af manni. Og hann er svo vinsámlégur og hlý-
legur í minn garð, að furðu gegnir.“
„Eg hefi ekki rætt við hann síðan eg var á dansleik þeim,
sem hann efndi til í París.“
„Jæja, þú skalt vera við öllu búirm.“
---------Það var ekki mikið um skrautið í herberginu, sem
þeim var boðið inn í Apsley House. Þetta var setustofa her-
togans.
„Hæ, Wilson, þorparinn þinn,“ sagði hertoginn. og spratt á
fætur. „Gleður mig að sjá þig, og yður líka, heira Ellery. Mér
þótti vænt um það, þegar Wilson hafði orð á að koma með yður
hingað. Það er orðið langt síðan við höfum sézt.“
„Fimmtán ár, hertogi. Eg var á dansleikntmi, sem þér buðuð
til, eftir orustuna við Waterloo.“
„Herra trúr, er svo langt síðan, er eg að verða svona gamall.
Jæja, drengir, setjist niður, eg læt sækja eina flösku.“
Talið barst að liðnum dögum og afrekum, sem þeir höfðu
unnið, og hertoginn sagði eitthvað um það, að Wilson mundi
hafa betur farnast, ef hann hefði ekki alltaf viljað fara sínar
eigin götur.
„Eg hefi. ávallt gert það, sem eg taldi rétt. Og sagt það, sem
eg taldi þörf að segja.“
„Já, og stundum var eg kominn á fremsta hlunn með að
læsa þig ir.ni, en þrátt fyrir allt varstu allt.af afburða hermað-
ur. Það vissi eg alltaf. Og í seinni tíð er mér blátt áfram farið
að þykja vænt um þig, þorparinn þinn.“
„Kraftaverk gerast, hertogi — stundum.“
,,Já, stundurn — og það kemur líka fyrir, að maður verður
að taka í hönd forsjónarinnar og beina henni í rétta átt. Og
oft hefi eg hugsað um, að þú ættir ekki að vera í neðri málstof-
unni, heldur í hernixni. Og saifta máli er að gegna með mig. Og
svo tók .eg ákvörðun um að kippa þessu í lag. Þú héfur verið
tekinn aftur í heri&u, og þa'ð er væntanleg opinber tílltynning
um, að þú fáir aftur hershöfðingjatitil. Hans hátign úndirritaði
plöggin í dag. Já, og þú hefur hækkað í tign — um eina gráðu,
drengur minn.“
„Hækkaður í tign?“ sagði Wilson hrærður.
„Já, og svo eru launin, maður. Þú ættir að geta notað þau.“
Rafmagnstakmörkun
Álagstakmörkun dagana 1. til 8. marz
frá kl. 10,45 tU 12,30:
Sunnudag 1. marz
Mánudag 2. —
Þriðjudag 3. —
Miðvikuclag 4. —
Fimmtudag 5. —
' t 7. _
1. hverfi
2. og 4. hverfi
3. og 5. hverfi
4. og 1. hverfi
5. og 2. hverfi
1. og 3. hverfi
2.. og 4. hverfi
ij Álagstakmörkuh að kvöldi frá kl. 18,15—19,15:
Suhnudag 1. marz Engin
Mánudag • 2. — 5. hverfi
Þriðjudag 3. — 1. hverfi
Miðvikudag 4. — 2. hverfi.
Fimmtudag 5. — 3. hverfi
Föstudag" 6. — 4. hverfi
Laugardag 7. -- 5. hverfi
Straumurinn verður rofinn skv. þessu þegar og að svo
miklu leyti sem þörf krefur.
SOGSVIRKJUNIN.
BRIDIÍEÞATTlin
VÍSIS
RÁÐNING:
A
¥ G-10-9-7-5
♦ 10-9-8-6-4
* D-4-3
*
A 6-S-4-3-2
¥ K-4-3
♦ 3
* 9-8-7-ð
A A-K-G-10
¥ Á-D
♦ Á-K-G
4» Á-K-G-10
Suður spilar 6 grönd og vinn-
ur hvernig sem andstæðingarn-
ir fara að.
Suður tekur fyrsta slag
heima, og þar sem innkoman
er aðeins ein í borði er um að
gera að fá aukaslagi á annað
hvort ♦ eða V. Suður spilar
því út ¥ D. Sé hún tekin með
K er spilið unnið, en sé hún
gefin verður næst að spila ♦
ás og því næst ♦ G. — Á ♦
má ekki byrja, því sé G tekinn
tapast líka slagur á ¥ eða A.
A kvöMvökiinni.
Hamr hefði ekki átt að vera
þar, en var þar þó samt, því að
hann var friðill hennar. Svo
hringdi síminn skyndilega, og
hún svaraði:
„Já, elskan .... jæja, ertu
þar, elskan .... nei, það er á-
gætt, elskan .... Ljúktu bara
við rúbertuna, vinur minn.
.... Vertu sæll, hjartað mitt.“
Svo hringdi hún af og sneri
sér að elskhuga sínum: „Það
var maðurinn, minn — hann er
að spila bridge við þig!“
@
Kaupmaðurinn hafði fengið
nýjan viðskiptavin — ungan
|lækni., sem hafði sáralítið að
gera, svo að honum gekk illa
1 að greiða reikninga sína. Loks
tók kaupmaður það ráð, að hann
fékk lögfærðng til þess að inn-
heimtá réikningana og fór hann
! á fund læknisins, í stað þess að
j skrifa honurn eða boða hann á
fund sinn. En lögfræðingurinn
var harla framlágur, er hann
kom aftur.
| „Jæja, hvað sagði læknir-
inn?“ spurði kaupmaðurinn.
„Hann skoðaði mig hátt og
Iágt,“ svaraði lögfærðingurinn.
„Svo sagði liann, að eg væri
með svo miltla hálsbólgu, að eg
mætti ekki fara út fyrir húsdyr
í fjórar vikur.“
úftíí j/m/
Eftirfarandi smáauglýsingc
mátti lesa 1 Vísi hinn 28. feb
1918:
Tapað — Fundið.
Tapazt hafa af snúru nor-
malnærföt. Finnandi vinsam-
lega beðinn að skila þeim á
.... • • • ..stíg 1.
Fundizt hefir brak af
pramma rekið af sjó. Vitjist að
Miðhúsum við Lindargötu.
Tapazt hefir lítil bók,
,,Regnekpnsten“, frá Vatnsstíg
og upp á Njálsgötu. Finnandi
vinsamelga beðinn að skila á
afgr.
Kaupskapur.
Fótbolti óslcast
A. v. á.
kevptur.
7
Sþ efna til rít-
gerðasamkeppni.
Sameinuðu þjóðimar efna til
ritgerðarsamkeppni, og geta
keppendur valið um þessi við-
fangsefni:
1) Tækniaðstoð Sameinuðu.
þjóðanna og friður. Skyldur
einstakra þjóða og skyldur
samfélags þjóðanna.
2) Hverju geta frjáls félags-
samtök orkað til framkvæmdar
á hugsjónum Sameinuðu þjóð-
anna?
Þátttaka í keppninni er bund-
in við 20 til 35 ára aldur. Veitt
verða 10 verðlaun, en þau eru.
mánaðardvöl í aðalstöðvum..
Sameinuðu þjóðarma í Nev.'
York, 12,50 dollarar á dag þamx
tíma, og enn fremur far til New
York og heim aftur. Miðað er
við það, að dvölin í New York
verði frá 3. sept. til 1. okt £
haust eða þar um bil. Ekki
hljóta fleiri en einn af hverju
landi verðlaun. Félag Samein-
uðu þjóðanna hér á landi hef-
ur skipað nefnd til að dæma um
ritgerðirnar, sem hér kunna að
berast, og verður tveimur þeim,
sem beztar eru að dómi nefnd-
arinnar, snúið á ensku og þær
síðan sendar upplýsingadeild
Sameinuðu þjóðanna í New
York, en þar verður endanlega
um það dæmt, hverjir verð-
launin skuli hljóta. Dónmefnd-
ina skipa þeir Ólafur Jóhann-
esson prófessor, Hans G. And-
ersen þjóðréttarfræðingur og
Jón Magnússon fréttastjóri út-
varpsins, og skulu þátttakend-
ur senda einhverjum þeirra rit-
gerðir sínar fyrir 15. april n. k.
Ritgerð skal ekki vera lengri
en 2500 orð.
Brezkír ráðherrar
fara til USA.
London (AP). — Breæku ráð-
herramir Eden og Butler
leggja af stað í dag frá Sout-
hampton til Bandaríkjanna til
viðræðna við stjómina í Was-
hington.
Þeir fara með hafskipinu
Queen Elisabeth. í Washington.
verða rædd mál, sem varða allar
hinar frjálsu þjóðir, efnahag
þeirra og varnarsamtök.
Gegn
afborgunum
getum við nú selt:
Ryksugur
sem kosta kr. 760,00 til
1285.00.
Bónvélar
sem kosta kr. 1274,00.
Strauvélar
sem kosta kr. 1985,00.
Gerið svo vel að líta á vör-
urnar og kynnið yður
greiðsluskilmála.
VÉLA- OG
RAFTÆKJAVERZLUNIN
Bankastræti 10. Sími 2852.
Tryggvagötu 23, sími 81279.