Vísir - 24.04.1953, Side 1
43. árg.
Föstudaginn 24. apríl 1953.
91. tbl.
Brenfoatapið á synoudag.
Fjórtán drengir frá
5 félögum.
Nýlega sökk tyrkneskur kafbátur skammt frá Dardanelíasund
eftir árekstur við sænska kaupí'ariö Naboland. Skipverjum
af sænska skipinu tókst að bjarga 6 mönnum, sem voru ofan-
þilja á kafbátnum, sem var að búa sig undir að kafa. AIls
voru 100 menn á kafbátnum og drukkmiðu 94. Mynáin er af
kafbátnum á siglingu á svipuðum slóðum og slysið skeði.
Hátíðahöld Sumargjafar
í gær með meiri glæsibrag
en nokkru sinni.
púsM3M& snanns íók
þekít é skrúðejöngpnntt.L
Barnaskrúðgangan í gær var
tvímælalaust hin voldugasta,
sem hér hefur sézt á sumardag-
inn fyrsta, en auk barnanna
tóku þúsundir hinna eldri borg-
ara þátt í göngunni, og er ó-
hætt að fullyrða, að í henni og
við Austurvöll hafi verið allt að
15 þúsund manns.
Er það mál manna, að hátíða-
höldin hafi tekizt sérlega vel,
þegar frá er talin ónauðsynleg
umferðarteppa á Fríkirkjuvegi,
sem síðar verður getið.
Forráðamenn Sumargjafar g
aðrir velunnarar barnanna
höfðu sýnilega gert sér far um
að vanda .sem bezt til barna-
dagsins. Að þessu sinni hafði
skrúðfylking barnanna verið
skipulögð í tvennu lagi. Önnur
fylkingin lagði upp frá Austur--
bæjarskóla, gekk síðan vestur
Barónsstíg, yfir á Hringbraut
norður Sóleyjargötu og inn á
Fríkirkjuveg, við Hljómskál-
ann. Hin fylkingín kom frá
Melaskóla, staðnæmdist síðan
við Tjarnarbrúna,- og lét Aust-
urbæjarfylkingunn fara á und-
an norður Fríkirkjuveg.
Skemmtiíeg nýbreytni.
Það var mjög án'ægjuleg til-
breytni að hafa skrautvagna í
fylkingunum, geysistóra vöru-
bíla, sem voru skemmtilega
prýddir fánum og öðru, en á,
þeim voru svo táknrænar per-
sónur. A Austurbæjarvögnun-
úm voru „Sumarið" og fylgdar-
lið, Rauðhítta, úlfurinn, veiði-
maður o. fl., en Vesturbæjar-
vagnar fluttu „Vetur konung“
og fylgdarlið hans, þ.á m. ísbirni
og kolsvai-ta fugla, sem börðu
vængjunum framan í áhorf-
endur, sem stóðu alit í kring á
götunum. Var þetta mjög á-
nægjulegt og.vakti mikla kát-
ínu barnanna og annarra. Þau
Hildur Kalman, Fétur Péturs-
son þulur og E. B. Malmquist
munu hafa séð. um skreytingu
á vögnunum og annað fyrir-
komulag á þeim, og tekizt mjög
vel.
Mistök lögregiu.
En á Fríkirkjuvegi gerðust
fáránleg mistök í umferðar-
stjórn. Þegar fylkingin ætlaði
að þokast norður götuna, reynd
ist það ógerlegt, vegna þess, að
bílaröð kom á móti henni, en
lögregiunni hafði láðzt að loka
götunni fyrir umferð meðan á
þessu stóð. Þá var það og óhæfa,
að bílum hafði verið iagt við
báðar gangstéttir götunnar, og
varð af þessu háskaleg þröng.
Verður að 'sjá um, að slíkt end-
urtaki sig ekki.
Síðan var gengið til Austur-
vallar, en lúðrasveitir voru með
Framh. á 7. síðu.
Ðrengjahlaup Ármanns fer
frain á Suanudaginn kemur og
verða 14 keppendur frá 5 félög-
um.
Ármann sendir flesta kepp-
endur eða 5 tal|ns. Fra K R.
er 1, frá Ungmennasambandi
Kjalarnesþings 3, frá Ung-
mennafélagi Keflavíkur 2 og
frá Ungmennafélagi Reykj.avik
ur 3.
Hlaupið hefst kl. 10 árdegis
frá Tðnskólanum. Veröui: hlaup
ið suður Tjarnargötu, suð.ur fyr
ir háskólann, síðan novður
Vatnsmýrina, jdir Hljómskéla-
garðinn og endað á Frikirkju-
veginum framan við Bindindis-
höllina,
Ármann er handhafi beggja
verðiaunagripanna fyrir sveita
keppní 3ja og 5 manna.
Þetta er 31. drengjamót Ar-
manns.
Brezki herinn á bnrt. — Pdestmu-
vandamálið tekið ti! umræðu á ný.
Á morgun verða birt úr-
slit í verðlaunagetraun Vísis:
Hver er maðurinn?
Frestur til þess að skila
getraunaseðlunum var út-
runinn kl. 6 á miðvikudags-
kvöld, en tími hefir ekki
unnizt til þess að vinna úr
þeirn. Það skal þó sagt, að
Iþátttakendur vonx furðu vel
heima í útlendum fréttum,
en getraunin var erfið. —
Úrslitin verða sem sag birt
á raorgun.
Módirin siökkfi
eidinn.
f gærmorgun kveikti barn af
óvitaskap í gluggatjöldum en
móðir þess slökkti eldinn og af-
stýrði méð snarræði sínu, að
eldurinn breiddist út.
Þetta var að Hæðargarði 44
kl. rúmlega 11 í gærmorgun.
Nokkurt tjón varð, áður en móð
ur barnsins tækist að slökkva
eldinn, m. a. brunnu glugg'a-
tjöld, borðdúkur og eitthvað
fleira, en rúða sprakk af hitan-
um. Síðan hringdi móðir barns
ins á slökkviliðið og tilkynnti,
hvað gerzt hafði, en menn voru
sendir á staðinn, til öryggis.
Hríiarveiur á
Akureyrí.
Akureyri í morgun.
Á Akureyri var í morgun hríð
arveður af norðri og fannst bæj
arbúum sumarið byrja heidur
kuldalega.
í gær var einnig kaldrana-
legt veður, en þó úrkomulaust.
í tilefni dagsins gengu börn í
skrúðgöngu frá kirkjunni og
um aðalgötur bæjarins. Inni-
skemmtanir voru í samkomu-
húsum um kvöldið.
Mokfiskerí er nú í öllum ver-
stöðvum nyrðra og togarar hafa
fyllt sig á sex sólarhringum.
iu Nor
Lögregíufrétt.
í fyrradag var lögreglunni
gert aðvart um stuld í verzlun
Helga Benediktssonar við
Breiðholtsveg. Hafði verið stol-
ið pyngju úr tösku sem lá á af-
greiðsluborðinu.
Einlsaskeyti til Vísis.
London í morgun.
Á fundi Arabaríkjanna hefur
verið gert samkomulag um af-
stöðuna til tillagnanna um sam
eiginlegar varnir Suezskurðar
og nálægra landa.
Að þessum tillögum standa
sem kunnugt er Bretar, Banda-
ríkjamenn, Frakkar og Tyrkir,
og hefur örlað á vonum um, að
Bretar og Egyptar gætu leyst
Suezvandamálið, ef samkomu-
lag næst um varnarbandalagið.
Kunnugt er, að J. Foster Dull-
es ætlar að ræða þessi mál við
stjórnmálaleiðtoga Araba í fyr-
irhugaðri ferð sinni austur
þangað.
Samtökin treyst.
Nú hefur það hins vegar
gerzt, að Arabaríkin hafa — áð
ur en Duiles kemur þangað —
treyst samtök sín gegn þessum
fyrirætlunum, og hefur utan-
ríkisráðherra Libanons verið
falið að ganga frá formlegri orð
sendingu, þess efnis, að
Arabaríkin vilji ekki ræða
fyrirhugað varnarbandalag
fyrr en samkomulag hcfur
náðst um brottflutning
brezka herliðsins frá Suez-
eiði og Palestínuvandamálið
hefur verið til lykta leitt.
«
Horfur um samkomulag
ekki góðar.
Haldi Arabaríkin fast við
þessa ákvörðun horfir sízt bet-
ur en áður um samvinnuna milli
Arabaríkjanna og hinna vest-
ænu lýðræðisríkja. — í fregnum
um þetta kemur þó fram, að Ar-
abaríkin treystast ekki til að
verjast árásum, ef til styrjaldar
kæmi — upp á eigin spýtur, því
að tekið er fram, að þau treyst-
ist til að veriast árásum, svo
fremi að þau fái næg hergögn
frá hinum vestrænu þjóðunum.
igunnn i
mkm
Fregnir frá Indókína herma,'
að uppreistarmenn haldi áfram
sókn sinní á sléttunum í Laos, i
norðan höfuðborgarinnar, og
vofir sú hætta yfir herliði
Frakka þar, að uppreisiarmenn
umkringi það,
Aðrar hersveitir uppreistar-
manna sækja fram til höfuð-
borgarinnar úr annarri átt.
Eftir seinustu fregmtm að
dæma er öllu Norður-Indó-
kína nú ógnað a£ framsókn
uppreistarmanna.
Konungurinn í Laos hefur
símað Auriol Frakklandsfor-
seta og beðið um skjóta og
aukna aðstoð Frakklands.
Duilés ræðir
sóknina.
John Foster Dulles hefur
minnst á þessa nýju sókn upp-
reístarm.anna, og segir að það
sé litið að byggja á auknum
friðarvilja leiðtoga, sem um leið
og þeir« virðast samningalipr-
ari í einu landi (Kóreu) sé.haf-
in storsókn með tilstyrk þeivra
anhars staðar. Dulles >fevað
Bandaríkjastjórn því fylgjándi,
að þegar samið væri vopnahlé í
Kóreu, væri gengið; svo frá
hnútunum, að ekki væri hægt
að leika sama leikinn annars
staðar.
mm
NA-ráöiö síakar ekki á vgrnarsamtökunuoi.
í Norður-Atlan.tshafsráðinu,
sem nú situr á fundi í París,
hafa menn ágreiningslaust kom
ist að niðursíöðu um, að engin
grundvallas:-stefnubreyting
hafi orðið hjá valdhöfum Ráð-
stjórnarríkjanna.
Hins vegar sé Ijóst af því, er
gerzt hefur í seirmi tíð og sýnir
meiri samningalipurð af hálfu
Rússa, ao þeir hafi tekið vpp
aðrar starfs- og baráttuaðferð-
ir.
Jolin Foster Dulles hefur l ætt
við blaðamenn um þær skoðan-
ir, sem fram komu á fundi ráðs
j ins í gær, og kvað mikla nauð-
syn bera til, að haldið væri á-
fram að treysta varnarsamtökin
Þetta skildi Bandaríkjastjórn,
og vildi stuðla að traustari varn
arsamtökum með auknum fram
lögum, m. a. með því að fela
þjóðum í vesturhluta álfunnar
hergagnasmíð í þágu varnar-
samtakanna, og kæmi það efna-
hag þeirra og atvinnulífi þá
jafnframt að notum. Dulles
kvað Bandaríkjastjórn þó því
aðeins geta komið fram tillög-
um sínum á þingi, að: í Ijós
kæmi samheldni og einlægur
viiji Vestur-Evrópuþjóðanna til
yarnarsamstarfsins.