Vísir - 07.05.1953, Blaðsíða 8

Vísir - 07.05.1953, Blaðsíða 8
Mt vtm serait kanpendur VlSIS Eftlr q— vawi OHB QHM| VlSlK er ódýrasta blaSiS mg þó þaS fjSI- U, fctvera mánaðar fá blaSiS ókeypis til breyttast*. — Hringið 1 aíma 1SS0 •% gerlat tnánaSamóta. — Síml ÍSSI. .W tm ö áskrifendur. Fimmtudaginn 7. maí 1953. Bjarne Lingás sýndi mikla fimi og kunnáttu í gær, vék sér dansandi undan höggum Jens Þór'ðarsonar, og notaði kaðlana til að spyrna sér langt inn á pallinn. Norðmaðurinn er hér við kaðlana. (Ljósm.: R. Vignir). Hnefaleikamódð í gær: Liitgas snjallasti hnefaleikamaiar, sem hér hefir sézL IVfótið fér pruðniannlega fram. Hvaða íslenzkur smásagna- höfundur vinnur 80 þús. kr? \en York Ifrraíd Tribune gengst ÍTrif’ alþjóða-sniásagitasainlieppni. Um bessar mundir stendur; yfir alþjóða-smásagnakeppni, og héfur tímaritið „Eimreiðin“ tekið að sér milligöngu um keppnina, að því er varðar ís- lenzka höfunda. Það er stórblaðið ,.New York Herald Tribune“, sem gengst fyrir samkeppninni, og er heit- ið 5000 dollara verðlaunum tyr- ir beztu smásöguna, eða um 80.000 krónum. Gert er láð fyrir, að smásagan skuli vera 1200—14000 orð, og mega þær ekki hafa birzt á prenti áður. íslenzkir höfundar, sem taka vilja þátt í keppninni, skulu haf a sent sögur sínar undir dul- nefni fyrir 1. nóvember n. k. Að lokinni rannsókn á inn- sendum sögum, verða altt að fjórar sögur valdar úr í'rá hverju landi, þýddar á ensku, og sendar í alþjóðakeppnina. New York Herald Tribune hefur áður efnt til slíkrar sam- keppni, og bárust þá 100 þús- und smásögur til umboðsmanna í 23 löndum, og komust 59 í alþjóðasamkeppnina. Um þess- ar 59 sögur fór svo samkeppnin fram. ísendingar tóku ekki þátt í þeirri keppni (1950), en vit- anlega ættu íslenzkir smásagna höfundar að vera hlutgengir í slíkri keppni. Nú þegar hafa Eimreiðinni borízt nokkrar sögur, en frestur er til 1. nóv. í haust, eins og fyrr segir. Áætíimarferðir Loftíeiða í sumar. Loftíeiðir halda uppi áætl- unarflugi í sumar tnilli íslands og annarra landa, nieð svipuð- um hætti og verið hefur í vetur. Er hér um að ræða vikulegar ferðir milli íslands og megin- lands Evrópu, og íslands og Ameríku. Þó hefur sú breyting verið gerð á áætluninni, að í sumar verður flogið héðan til Stafang- urs, Kaupmannahafnar og loks Hamborgar, en ekki til Ham- borg'ar, Kaupmannahafnar og Stafangurs. Þessar áætlunarferðir Loft- leiða hafa náð miklum vinsæld- um, eins og alkunna er, en les- endum Vísis skal bent á aug- lýsingu frá Loftleiðum um þess- ar áætlunarferðir, sem birtast mun í blaðjnu á morgun, föstu- dag. Tveim Íslenzkííin sfúlk- om boðið fii iiáms r *- * a la 1 í fvrrahaust var tvehnur ís- lenzkum stúlkum boðið á þýzk- an iýðskóla í Norður-Þýzka- landi og enn hefur sami skóli boðið tveimur íslenzkum stúlk- um til dvalar og náms á kom- andi hausti. Skóli þessi heitir Dithmars- cher Landes-schule og er í Lunden. Námstímir.n er 5 mán- uðir. Á s.l. hausti fóru tvær ungar stúlkur héðan á skóla þenna og hafa látið vel af dvölinni þar. í lok námstímans fóru þær í skemmti- og kynnisför til Salz- borgar. Skólastjórinn leggur áherzlu á að þær stúlkur, sem sækjá vilja skólann, hafi góða þýzku- kunnáttu til að bera svo þær geti fvlgzt með náminu og æski legast telur hann að þær geti flutt erindi um ísland, land og þjóð, menningu, sögu, siði og háttu, m. a. í landkynningar- skyni, en líka til að auka fjöl- 1200—4000 orð, og mega þær Virðist þarna vera um tilval- ið tækifæri fyrir kvenstúdenta eða aðrar stúlkur, sem nokkra undirbúningsmenntun hafa hlot ið í þýzku, en vildu fá meiri æfingu í að tala og rita málið. Þess skal getið, að þetta höfð- inglega boð hefur fengizt fyrir milligöngu ágæts íslandsvinar í Norður-Þýzkalandi, ungfrú Regine Dinse í St. Peter, sem sjálf hefur oft haft íslendinga til langdvalar og reynzt þeim hin mesta hjálparhella. Happdrætti Sjálfstæðisflokksins Fjórii* dagar eru nú þar til dregið verður £ hinu glæsilega liappdrætti Sjálfstæðisflokks- ins. — Sjálfstæðismenn, gerið skil á seldum happdrætismið- um sem allra fyrst. — Nokkrir vinninganna eru til sýnis í skemmugiugga Haralds í Aust- urstrætL „Vorflan" er í Ölfusá - - náS komiti í mýrar eystra. Rauðliðar stefna norSur eftir Laos. Einkaskeyti frá AP. — París í morgun. Vieth-Min-liðið sem virtist nlbúið til árása á Luang Pra- bang fyrir skemmstu, heldur nú norður eftir Laos, að því er lcönnunarflugmenn segja. Styður þetta mjög þá tilgátu, sem fram kom í gærmorgun, að þeir væru hættir við árásina .á Luang Prabang. Tvennt er talið geta verið orsök þessa og þó helzt að flutningakerfi upp- Teistarmanna hafa bilað — þeir ihafi sótt of langt fram, til þess Æð geta haldið uppi birgða- flutningum. ---«—---- Sýningar hefjast aftur á „Ævintýrinu." (■uðniu iid ii i* .Iwns- son koininn laeim frá Höfn. Leikfélag Reykjavíkur byrjar aiú aftur sýningar á „Ævintýri á gönguför“, en 'þær urðu að :falla niður við brottför Guð- anundar Jónssonar óperusöngv- ara af landinu. Nú kom Guðmundur hingað -til landsins aftur loftleiðis í .gærkveldi frá Danmörku, þar sem hann vann svo eftirminni- legan söngsigur í Rigoletto á sviði Kgl. leikhússins, eins og Vísir greindi frá. „Ævintýrið“ hefir nú verið sýnt 47 sinnum á þessu leikári, jafnan fyrir troðfullu húsi, en mú standa vonir til að unnt yerði að hafa 3—4 sýningar í yiðbót. Þarf varla að efa, að Uæjarbúar fjölmenni í Iðnó til l>ess að sjá þenna vinsæla söng- leik Hostrups, en jafnframt liylla Guðmund fyrir frammi- stöðuna í Kapmannahöfn. Næsta sýning á „Ævintýr- inu“ verður á föstudag. Góðir gestir komu í gær. Góðir gestir komu hingað til lands loftleiðis í gærkveldi, ■éperusöngflokkurinn finnski, -og Guðmundur Jónsson óperu- söngvari. Myndarlegur mannfjöldi var samankominn á flugvellinum í gærkveldi, er Gullfaxi renndi sér léttilega niður á brautina. Var Finnunum fagnað með söng, og guldu þeir í sömu xnynt. Söngmenn fögnuðu einn- ig Guðmundi Jónssyni, sem hingað er kominn til þess að Tiefja æfingar á óperunni La Traviata, sem flutt verður eftir tváer vikur eða svo. --- — ♦--- Var hátt uppi! f gær varð lögreglan að elta drukkinn mann sem tók að æfa Mifur í kolakrananum við höfnina, Varð lögreglan mannsins var þegar hann var að klifra upp kolakranann, og þar eð han.i -vildi ekki koma niður varð lög- reglan að elta hann og náði honum loks hátt uppi í kranan- um. Að því búnu var maðurinn fluttur heim til sín. íþróttahúsið að Hálogalandi mátti heita þéttskipað áhorf- endum, er hnefaleikameistara- mót Islands hófst þar í gær- kveldi, en þar mátti sjá mörg vel úti látin högg, eins og vera ber við slík tækifæri. Hins vegar verður ekki ann- að sagt en að leikirnir hafi yf- irleitt farið prúðmannlega fiam — enginn maður var sleginn í óvit og_ enginn blóðgaður,. og minna bar á hrópum áhorfenda og kröfum um að rota viðkom- andi hnefaleikamenn eða jafn- vel stytta þeim aldur, eins og stundum hefur heyrzt. Er þetta mjög til bóta, og eiga íorraða- menn hnefaleikahreyfingarinn- ar þakkir skildar fyrir að hafa valdið slíkri húgarfarsbreyt- ingu. Fyrstu bardagarniI•. Hér skal farið fljótt yfir sögu að því er snertir hina léttustu flokka. í bantamvigt képptu tveir unglingar (börn), Garðar Steinarsson og Halldór Frið- riksson, báðir úr KR. Leikstjóri gat þess, að þeir væru byrjend- ur, en leiknum lyktaði með því, að Garðar var úrskurðaður ís- landsmeistari, en flestir munu hafa talið þann úrskurð mjög hæpinn. í léttvigt börðust tveir KR-ingar og sigraði Sigurður Þorvaldsson Birgi Sigurgeirs- son með talsverðum yfirburð- um. Þá tóku til óspilltra mál- anna þeir Bragi Stefánsson og' Sigurður Jóhannsson, báðir úr Ármanni. Sigurður barðist í undarlegum og óhugnanlegum stíl, en virtist hinn færasti bar- dagamaður, enda sigraði hann og var vel að sigrinum kominn. Leikurinn milli Hubners og Jóns Norðfjörðs féll niður (létt- millivigt), og olli þetta nokk- urru háreysti á pöllunum. Harkaleg meðferð. Þá börðust tveir seig'ir, þeir Björn Eyþórson, Á, og Páll Valdimarsson, KR. Páll var kraftalegri og stæðilegri mað- ur en Björn sýndi fljótlega, að hann var illvígur og kann sitt fag. Björn sigraði með nokkr- um yfirburðum. í léttþungavigt sigraði Þor- kell Magnússon, Á. Friðrik Clausen, KR. Fékk Clausen all- harkalega meðferð, enda virðist Þorkell véra æfðari og reyndari bardagamaáur, en Clausen hms vegar óragur, en það kom 'ekki að haldi. Kennslustund hjá Lingás. Þá var komið að aðalkeppni kvöldsins, leiknum mjlli Bjarne Lingás og Jens Þórðarsonar úr Ármanni. Bjarne Lingás er vafalítið snjallasti hnefaleikari, sem hér hefur sézt. Hann er eldfljótur, og sýndi svo mikla kunnóttu og leikni, að þetta var líkast kennslustund í hnefa- leikum, írekar en keppni, og skal þetta ekki sagt Jens til lasts, sem barðist frækilega. Lingás notar „hringinn“ út í æsar, dansar umhverfis and- stæðinginn, skellir sér á kaðl- ana og' þeytist af þeim langt inn á gólf, áður en andstæðing- urinn veit, hvað um er að vera. Lingás mun hafa verið 10—12 kg. léttari en Jens, enda miklu fimári. Lingás kemur mjög vel fyrir á hnefaleikapallinum og ekki örlaði á ruddaskap eða fólsku í leik hans. Frammistaða Jens var nijög sæmileg. Fjárfesting? Það voru fleiri en unglingar og hnefaleikagantar, sem lögðu leið sína að Hálogalandi í gær. Fjárhagsráðsmenn fjölmenntu til leiksins, hvernig sem á því kann að standa, Pi'óf. Magnús Jónsson var þar hinn áhuga- samasti, og hafði meira að segja með sér kíki í ól um hálsinn, til þess að missa ekki af neinu, en á næstu grösum voru þeir dr. Oddur Guðjónsson og Bragi Kristjánsson, skrifstofustjóri ráðsins. ThS. Frá fréttaritara Vísis Selfossi í morgun. Mikill vöxtur er nú í Ölfusó og stafar hann af því, að snjó hefur leyst ört í uppsveitiim og til fjalla undangengna sólar- og hlýindadaga. Slíkur vöxtur í ám er ekki óvanalegur um þetta leyti og var það kallað ,,vorflan“ hér í sveitum fyrrum, þegar mikið leysingavatn hljóp í árnar. Hvarvetna er komin nál í mýrar og gras farið að spretta. Klaki var lítill í jörð og mun víða horfinn. Vegir eru að byrja að þorna og orðnir sæmiiegir yfirferðar. Menn eru í undir- búningi með að sinna görðum sínum. í fyrra var mikið byggt hér á Selfossi, eða 30—40 íveru- hús og væri kannske réttara að segja, að byrjað hafi verið á það mörgum húsum, enda eru mörg þeirra ekki fullgerð, þótt menn hafi flutt í þau. Verður unnið við að fullgera þessi hús áfram, en miklu minna mun verða um það í sumar en í fyrra að menn ráðist í húsabyggingar. Sýslufundur Árnessýslu hófst hér sl. þriðjudag og mun standa til helgar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.