Vísir - 25.06.1953, Qupperneq 8
..............—--------■■■--------------
Þcii iem gerast baupendur VÍSIS eftir
10. hver* mánaSar fá blaðið ókeypis til
mánaðamóta. — Sími 1660.
WXSX:R
VÍSHv er ódýrasta blaðið og þó það fjol-
breyttasta. — Hringio í síma 1660 og gerlst
áskrifendur.
Fimmtudaginn 25. júní 1953
Hluthafar Iðnaðarbanka ís-
lands eru samtals 1200.
Bankinu tók ti5 síari’a í morgun.
Iðnaðarbanki íslands tók til
starfa í morgun í Lækjargötu 2.
Hlutafé bankans nemur 6%
millj., en hluthafar eru um 1200
Lög um stofnun bankans voru
samþykkt á Alþingi 19. desem-
ber 1951. Var þar svo ráð fyrir
gert ,að iðnaðarsamtökin leggi
fram 3 millj. í hlutafé, ríkið 3
millj. og Vz milljón fáist með al
mennu útboði. Að fengnum
hlutafj árloforðum var bankinn
stöfnaður í október s.l., honum
settar samþykktir og bankaráð
kosið. Þetta fyrsta bankaráð
skipa Páll S. Pálsson, lögm.,
formaður, Einar Gíslason, mál-
arameistari, varform., Helgi
Bergs, verkfræðingur, Kristján
Jóh. Kristjánsson, framkv.stjóri
og Guðmundur H. Guðmunds-
son, húsgagnasmíðameistari. í
fjarveru Helga Bergs hefur
Vilhjálmur Árnason lögm gegnt
störfum í ráðinu.
Ríkisstjórnin féllst á að greiða
tilskilið framlag ríkissjóðs — 3
milljónir króna — að fullu, þótt
aðrir hluthafar greiddu aðeins
V4 hlutafjárloforðs. Þá var á
síðasta þingi samþykkt að veita
ríkisstjórninni 15 millj. króna
lán og endurlána Iðnaðarbank-
anum og standa allar vonir til
að þess verði ekki langt að bíða.
Bankanum tókst að fá- hús-
næði í Lækjargötu 2 með samn-
ingum við Loftleiðir h.f. og
Nýja Bíó h.f., og sýndu þessir
aðilar mikinn skilning á mál-
inu. Bankastjóri og bankaráð
hefur aðsetur sitt á 1. hæð húss-
ins, í kjallara eru tvö skrifstofu
herbergi og geymsluhvelfing,
en afgreiðslusalur er á götu-
hæð. Smíði innréttinga í af-
greiðslusal annaðist Þorsteinn
Sigurðson, húsgagnasmíðameist
ari, en húsgögn eru frá Hús-
gagnaverzlun Reykjavíkur.
Sveinlaugur Björnsson, for-
írtöðumaður sparisjóðsdeildar
Útvegsbanka íslands, hefur ver
ið ráðunautur við stofnun bank-
ans.
Samkvæmt reglugerð bank-
ans rekur hann alla venjuiega
bankastarfsemi, en miðar sér-
staklega að því að styðja iðnað
í landinu.________
Skatteskrá Ve.
lögð fram.
Frá fréttaritara Vísis.
Vestmannaeyjum í gær.
Skattskráin var lögð fram í
morgun.
Hæsta skatta einstaklinga
bera Anna Gunnlaugsson kaup-
kona kr. 22.479, Ingrid Sigfús-
son kaupk. 13.296, Aage Sig-
fússon lyfsali kr. 12.045, Gísli
Þorsteinsson útgm. kr. 10.421
og Pálmi Sigurðsson stýrim.
kr. 10.306.
Hæsta skatta félaga ber Fisk-
iðjan h.f. kr. 33.358, þar næst
Vélsmiðjan Magni h.f. 25.220,
Netagerð Vestmannaeyja h.f.
24.556, Ófeigur h.f. 14.801.
Skattgreiðendur eru alls
.1873. Skattleysingjar eru taldir
137. — 52 félög eru skattlögð.
Skattar nema samtals 1.6 millj.
Síld er nog á
miðunum.
Akranesbátar voru á sjó í
gær, en komu inn í gærkveldi
vegna storms.
Veður var orðið gptt í morg-
un og fóru bátarnir út um og
upp úr hádeginu. Síld virðist
nóg á miðunum.
Hér mun nú búið að frysta
um 6—700 lestir af hvalkjöti.
— B.v. Bjarni Ólafsson er á
saltfiskveiðum. Akui'eyin er í
slipp í Rvík.
Burma á að komast
í 1. sæti.
London (AP). — Burma-
stjórn tilkynnir, að hrísgrjóna-
útflutningur muni aukast á
þessu ári.
Er gert ráð fyrir, að Burma
geti flutt út 1,6 millj. smál. af
hrísgrjónum og yrði þá mesti
útflytjandi á þessu sviði í
heiminum eins og' fyrir stríð,
er útflutningurinn komst upp
í 3 millj. smálesta.
Getraunarseðill:
1. spurning: 2. spurning:
Atkvæðamagn flokkanna í Reykjavík: Atkvæðamagn flokkanna á öllu landinu:
A,- A,-
B,- B,-
C.- C,-
D,- D,-
E,- E.
F,- F.-
Nafn:
Heimili:
Sendið seðilinn útfylltan til Vísis fyrir kl. 12 á hádegi laugardaginn 27. þ.m.. Vinningar eru þessir:
1. Ritsafn Jóns Trausta. 2. Ritsafn Einars Kvarans. 3 . Kventaska. 4. Vöfflujárn. 5. Rafmagnsvindlakveikjari.; 6. Ársáskrift að Vísi.
Franskt ferðamannaskip
kemur hingað í sumar.
Islenrkar kvikknyndir sýndar
ferðaf römuðtim á Norður-
londum, Bretlandi og
Frakklandi.
Prófkosningasvindlið.
Vonlausu flokkamir byggja alla sína
von á fölsuðum prófkosningum.
Nýju flokkarnir tveir, sem alveg eru vonlausir í þessum
kosningum, reyna að rétta hlut sinn hjá almenningi og
breiða yfir fylgisleysi sitt með fölsuðum prófkosningum.
Hafa þeir dreift út prentuðum eyðublöðum hingað og þangað
og látið kosningasmala sína koma af stað „prófkosningum“
í ýmsum stofnunum, eftirlitslausí af annara hálfu. Hefur
svindlið gengið svo langt, að „kjósendurnir“ hafa fengið
eins marga seðla og- þeir hafa óskað, þannig að sami mað-
urinn heftir krossað á marga kosningaseðla. Ekkert eftirlit
hefur verið með tölu seðlanna, og hafa smalarnir venjulega
sjálfir framkvæmt „eftirlitið“.
Menn ættu því ekki að taka alvarlega fréttir af slíkum
„prófkosnmgum“. Þær eru framkvæmdar eingöngu til að
bleltkja almenning og eru því einhver viðbjóðslegasti
pólitíski hráskinnaleikur, sem hér hefur lengi sést, enda
byggður á ófyrirleitnu svindilbraski óvandaðra kosninga-
smala.
Hingað til lands er von á
frönsku ferðamannaskipi, er
stendur við dagana 15. og 16.
ágúst í sumar.
Skip þetta „Batoria“ er
14300 tonn að stærð og tekur
600 farþega. Á meðan það
dvelur hér fara farþegarnir í
skemmtiferðir um nágrenni
Reykjavíkur til Þingvalla,
Gullfoss, Geysis, Krýsuvíkur,
Hafnarfjarðar og e. t. v. upp í
Hvalfjörð.
Að því er Þorleifur Þórðar-
son forstjóri Ferðaskrifstofu
ríkisins hefur tjáð Vísi, ríkir nú
mikill áhugi meðal franskra
ferðafrömuða fyrir ferðum til
íslands. Er það meðfram vegna
þess að sjálfir hafa Frakkar
gnægð sólar og sumars, og vilja
af þeim sökum gjarna leita
norður á bóginn og til kaldari
landa. Aftur á móti er minni á-
hugi meðal Breta fyrir Islands-
ferðum, og er það að nokkru
leyti skiljanlegt þar sem þeir
vilja fremur leita til sólskins-
ins og suðlægari landa, enda
hægara um vik fyrir þá að kom-
ast þangað.
Þorleifur Þórðarson er ný-
kominn úr ferðalagi um Norð-
urlönd, Frakkland, Skotland og
England. En þar sýndi hann,
með aðstoð íslenzku sendiráð-
anna, ferðafrömuðum þessara
landa íslenzkar kvikmyndir í
litum.
Kvikmyndir þær, er Þorleifur
sýndi í ferð sinni, voru annars
vegar kvikmynd, aðallega af
ferðaleiðum hér á Suðvestur-
landi, Vestmannaeyjum og Rvík
en lika frá ýmsum stöðum norð
anlands og sýnir jafnt atvinnu-
háttu og þjóðlíf sem landslag.
Kvikmynd þessa tóku þeir Þor-
varður Jónsson starfsmaður
. Ferðaskrifstofunnar og brezkur
kvikmyndatökumaður, Frank
Micklethwaith, er dvaldist hér
í fyrrasumar. Hins vegar sýndi
Þorleifur kvikmynd úr óbyggð-
um íslands, sem þeir Magnús
Jóhannesson og Sveibnjörn £g-
ilsson hafa tekið.
Óhætt er að fullyrða, að kvik
myndir þessar hafi í ýmsum
atriðum gjörbreytt hugmynd-
um hinna erlendu ferðafrömuða
um fsland, landið og þjóðina.
Héldu margir þeirra að ísland
væri allt annað en það er, létu
og flestir mikla hrifningu í Ijós
yfir því, sem augun bar á kvik-
myndunum.
Þorleifur telur yfirleitt áhuga
fyrir íslandi sem ferðamanna-
landi, en þó misjafnlega mikinn,
enda ísland í mikilli fjarlægð
frá öðrum löndum, verðlag hér
hátt og ýmsir erfiðleikar í sam-
bandi við móttöku gesta. Á
Norðurlöndunum hvað forstjór-
inn hvað mestan áhuga fvrir
íslandi í Svíþjóð.
Saltfiskvisindi
Alþý5ubEaðsíns.
Hagfræði-vitringar AS-
þýðublaðsins halda, að þa<$
sé góð kosningabeita að ráð-
ast á ríkisstjórnina fyrir það
að komið hefur til tals, a®
Norðmenn kaupi hér tölu-
vert af saltfiski, einkum
Grænlandsfiski, sem nijtig
erfitt er að selja. í fyrra var
selt mikið af Grænlandsfiski
til, Danmerkur og bjargaði
það útgerð togaraflotans í
fyrra sumar. Um þetta er
það fyrst að segja, að ríkis-
stjórnin selur ekki saltfisk
heldur fisksölusambandið.
Þetta veit Alþbl. að sjálf-
sögðu ekki. Og í öðru lagi
má segja, að það mætti telj-
ast mikið happ, ef við gæt-
um selt Norðmönnum fisk
til að selja til Brazilíu. Við-
skiptin við það land era
bundin við jafnvirðiskaup á
báða bóga. Við getum mi
selt þangað fisk fyrir 27 miilj.
króna á ári og það er hið
allra mesta sem hægt væri
að hugsa sér, að við gætum
keypt vörur fyrir á einu ári,
aðallega kaffi. Markaðurinn
er því mjög takmarkaður
fyrir fisksölu héðan, vegna
þess hvað lítið við getum
keypt þaðan. Norðmenn geta
keypt miklu meira frá Brazi-
Iíu, og því er þcirra fisk-
markaður þar miklu stærri.
Það væri því ekki tap íyrir
okkur eins og sakir standa,
þótt þeir seldu þangað ís-
lenzkan fisk til að nota á
sinn markað. Við ættum erf-
itt með að auka okkar fisk-
sölu frá því sem nú er, með -
an Brazilía setur þá við-
skiptaskilmála, að við kaup-
um af þeirra fábreyttu út-
flutningsvöru fyrir jafnmik-
ið og við seljum þeim.
Fáfræði Alþýðublaðsins í
framleiðslu- og efnahags-
málum þjóðarinnar jafnast
aðeins á við fum og yfir-
borðsmennsku leiðtoga
þeirra.
Lítill drengur verð-
ur fyrir bíl.
í fyrradag varð þriggja ára
drengur fyrir bifreið á gatna-
mótum Njálsgötu og Frakka-
stígs.
Var bifreiðinni ekið aftur á
bak, en drengurinn litli var
fyrir aftan hana og meiddist
nokkuð, en þó aninna en búist
var við i fyrstu. Drengur þessi
heitir Sigurður Ingi Svavars-
son, Frakkastíg 13.
Skarst á rúðubrotum.
Lögreglan var í fyrrinótt
kvödd vestur á Hagamel vegna
ölvaðs manns, sem hafði brot-
ið rúðu í húsi og skorið sig illa
á glerbrotunum. Varð að flytja
hann til læknis.
Skóli fyrir útflutnings-
söiumenn í Svíþjóð.
St.hólmi. — I haust verður
opnaður hér nýr skóli, sem á
að kenna sölumönnum á sviðr-
útflútningsins.
Þótt verzlunarskólar veiti
mönnum fræðslu um þetta,
nægir hún ekki vegna vaxandi
örðugleika á ýmsum sviðum
milliríkjaviðskipta. Eru það
samband útflytjenda og fleiri
aðilar, sem að skólanum standa.
(SIP).
Rússaa* neita
enn.
London (AP). — Ráðstjórnin
hefur enn neitað kröfum brezku
stjórnarinnar um að rússnesk-
um eiginkonum brezkra manna
verði left að fara úr landi til
manna sinna.
Ráðstjórnin hefur æ ofan i æ
neitað að verða við öUum kröí-
um í þessu efni, en. meiri líkur
þóttu fyrir því en áður, að af-
staða þeirra yrði önnur, eftir að
svipuðum kröfum varðandi eig-
inkonur bandarískra manna
hafði verið sinnt, og voru því
fyrri kröfur endurteknar.