Vísir - 26.08.1953, Page 8
Þeir tem gerast kaupendur VtSIS eftir
10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypís til
mánaðamóta. — Simi 1660.
VISIR
Miðvikudagmn 26. ágúst 1953.
VlSIB er ódýrasta blaðið og þó það fjöl-
breyttasta. — Hringið í síma 1660 ðg gerist
áskrifendur.
Spjöll unnin í
Seyðisfjarðar-
kirkju.
Það uppgötvaðist, að lýður
bafði farið inn í kirkjuna í Seyð
isfirði og unnið þar ýmis spjöll.
Fréttaritari Vísis á staðnum
hringdi til blaðsins, og skýrði
frá því, að ýmsir gripir í kirkj-
unni hefðu verið brotnir eða
skemmdir á annan hátt af skríl
þeim, sem þarna hafði verið að
verki. Liggja mörg skip í höfn-
inni, og slark mikið, svo að
ætlað er, að einhverjir sjómenn
hafi farið inn í kirkjuna og
saurgað hana með þessu móti.
Grotewohl þakk-
látur Rússuui.
Einkaskeyti frá AP. —
Berlín í morgun.
Otto Grotewohl, forsætisráð-
herra kommúnistastjórnar A.-
Þýzkalands, flutti ræðu á þing-
fundi í gær, og lofaði ákaft
höfðingsskap Bússa í garð A.-
Þjóðverja.
Var hann að skýra frá því,
sem fram. hefði farið á fundum
austur-þýzku sendinefndavir.n-
ar og Rússa fyrir skemmstu.
Skýrði hann meðal annars fram
á, að framvegis mynau Rússar
og Austur-Þjóðverjar reka í
sameiningu uranium-námur A."
Þýzkalands, sem Rússar hefðu
rekið einir til þessa. Þá sagði
hann, að frá áramótum mvndu
Rússar geta séð her sínum í
Austur-Þýzkalandi fyrir %
hluta þeirra matvæla, er hann
þarfnaðist. Með þessu móti yrði
skammtur Austur-Þjóðverja
þeim mun ríflegri, einkum að
því er vaðrar kornvöru, sykur
og fisk.
Útileguköttiir
kont * gildruBia.
Um tíma óttuðust menn, að
jminkur væri kominn í Tjörn-
ina, og væri fuglalífi þar þvi
hætta búin.
Var Carlsen minkabani því
fenginn til þess að sitja um
minkinn, sem átti að hafa sézt
fram undan ísbirninum, og
vinna hann. Síðan sagði Vísir
frá því á sínum tíma, að Carl-
sen teldi, að minkur gæti ekki
verið á þessum slóðum, og þyk-
ir nú sannað, að hann hafi haft
rétt fyrir sér.
Snemma í gærmorgun var
komið fyrir tveim gildrum
(dýrabogum) hjá ísbirninum,
■eða í skúr í portinu þar. Fyrir
hádegi var kominn útilegukött-
ur í gildruna. Var lögreglan
fengin til þess að skjóta kött-
inn, en sennilegsst þykir, að
menn hafi á sínum tíma séð
kött þenna þarna og talið í
flýtinum vera mink.
KettliiigarBBÍr vorss
rófulausir.
Það telst ekki til tíðinda, þótt
Ikettir gjóti.
Hitt er óvenjulegra, að af-
kvæmin sé öll rófulaus. Það
<kom nýlega fyrir að Vorsabæ,
t að heimilskötturinn gaut, og
'voru kettlingarnir rófulausir
með öllu, að sagt er.
Nýstárleg hrað-
keppni í kvöld.
í kvöld kl. 7.30 hefst á íþrótta-
vellinum knattspyrnumót með
óvenjulegu sniði, hraðkeppni-
mót Víkings.
Atta lið taka þátt í mótinu,
og eru 5 menn í hverju þeirra.
Leikið verður á öllum knatt-
spyrnuleikvanginum, og auk
hinna venjulegu marka, eru
„aukamörk“ við hliðina á þeim,
183 cm. breið. Lendi knötturinn
í „auka“- eða „hliðarmörkun-
um“, fær það lið stig, sem kem-
ur knettinum í það. Hvor hálf-
leikur er fimm mínútur, en
verði jafntefli, verður fram-
lengt um 2x2% mínútu. Rang-
stæðisreglur gilda ekki í þess-
ari keppni, og markvörður má
aðeins snerta knöttinn með
höndunum innan markteigs. |
K.R. sendir tvö lið til keppn-
innar, en þessi félög senda eitt'
lið hvert: Fram, Hafnfirðingar, j
Víkingur, Þróttur, Valur og:
Keflvíkingar.
Alls verða leikirnir sjö, og er
fyrirkomulagið þanníg:
K.R. 1 Fram 1. 5.
Hafnarfj. Víkingur 2.
Þróttur K.R. 2 3. 6. ,
Valur Keflavík 4.
Dómarar verða Haraldur
Gíslason, Ingi Eyvindsson og
Haukur Óskarsson.
0-36 hefír orustu-
flugvél innanborðs.
Einkaskeyti frá AP. —
N. York í morgun.
Flugmálaráðuneyti Banda-
ríkjanna hefur tilkynnt, að nú
hafi sprengjuflugvélinni B-36
verið breytt, og geti hún nú
haft hraðfleyga orrustuflugvél
meðferðis. .
Er hægt að sleppa orrustu-
vélinni svo að hún grípi flug-
ið, meðan stóra flugvélin er á
lofti, og jafnframt hægt að inn-
byrða hana á flugi. Mun orrustu
flugvélin geta afarið með 12—
1300 km. hraða á klst.
Þjóðverjar hefja far-
þegaflutninga á ný.
Einkaskeyti frá AP. —
London í morgun.
Það var tilkynnt í Bonn í
morgun, að Þjóðverjar mytid.u
bráðlega hefja áætlunarferðir
hafskipa á norðanverðu Aílants
hafi.
Áður tóku Þjóðverjar raik-
inn þátt í siglingum milli Banda
ríkjanna og Evrópu, en í síyrj-
öldinni og eftir hana misstu þeir
stærstu hafskip, sem sum voru
heimskunn, eins og t. d. Europa,
Bremen og Columbus.
Nú ætla þeir að taka upp þi áð
inn þar sem frá var horfið, og
eru það skipafélögin Nordde-
utscher Lloyd í Bremen og Ham
borgar-Ameríku-Línan (HAP-
AG), sem ætla að hefja ferðir
milli Evrópu og Bandaríkjaima.
Til að byrja með munu tvö 20
þús. smálesta hafskip annast
ferðir þessar.
Saniii þófið iiiit Kórenráðsfefnitna:
Vísliiaislí.y vfll fjölga þátt-
takenduin úi* 11 í 15.
Hann virðist hrokafullur á svipinn, tarfurinn á myndinni. Og
er víst ekki að furða, því að hann er „búsettur“ á Indlandi,
þar sem kýrin er heilagt dýr og dauðsynd að blaka við henni.
Af því leiðir, að menn verða oft að svelta vegna nautgripanna.
Frá >lalakkaskaga:
Bretar ætla að hafa hreins-
að til fyrir áramót.
Þyrítvængjur gefasf vel í fmmskágunum
Aðrir telja árangur
líklegri með færri
ríkjum.
Sríar kæra sig ekki
ii iii fulltróa |>ar.
Einkaskeyti frá AP. —■
London í tnorgun.
Umræður um fyrirhugaða
Kóreuráðstefnu er nú lokið £
stjórnmálanefnd Sþ, án þess að
ákveðið hafi verið, hvert fyrir-
komulag verði á henni, en Vis-
hinsky vill nú fjölga þátttöku-
ríkjunum og veitist dólgslega
að Bandaríkjamönnum.
Krishnamenan, fulltrúi Jnd-
verja, flutti ræðu í gær, næst-
síðastur þeirra, er til máls tóku.
Hann sagði m. a., að það værx
undir Sþ komið, hvort Indverj-
ar ættu fulltrúa á væntanlegri
Kóreuráðstefnu. Þeir gæfu kost
á sér til þessa starfs, ekki vegna
þess, að þeir sæktust sérstak-
lega eftir því, heldur vegna
þess, að aðrir hefðu stungið
upp á þeim. Hann sagði það
eitt vaka fyrir Indverjum að
reyna að verða að einhverju
liði í þessu vandmeðfarna máli.
Einkaskeyti frá AP. —
London í gær.
Yfirmaður Breta á Malakka-
skaga, Sir Gerald Templer,
gerir sér góðar vonir um, að
búið verði að sigrast á upp-
reistarmönnum þar á skaganum
í lok 'þessa árs.
Byggir hann skoðun sína á
því, að mjög vel hefur gengið
undanfarið að uppræta smá-
flokka hingað og þangað um
skagann. Þó eru allstórir hóp-
ar enn uppi standandi, en það
eru hinar nýju bardagaaðferðir
Breta, sem hershöfðinginn
byggir vonir sínar á.
Undanfarnar vikur hafa
Bretar beitt þyrilvængjum
í æ ríkara mæli, og. hefur
komið í Ijós, að þær eru hið
ákjósanlegasta vopn, þegar
um frumskógaliernað er að
ræða.
Jafnskjótt og fregn berst um
bófaflokka, eru margar þyril-
vængur sendar til nágrennis
staðarins. Þar lækka þær flugið,
unz menn geta farið úr þeim í
stigum, og síðan, ryðja þeir í
flýti rjóður, svo að fiugvélarn-
ar geti lént. Er þar komið upp
bækistoð, og síðan leitað í
kring í lofti og á landi. Eru
hundar eirinig notaðir í aðg'erð-
um þessurri og gefast vel.
Ofærir frumskógar.
Baráttan við kommúnista er
erfiðust í Pahang-fylki, þar sem
frumskógarnir mega heita ó-
færir með öllu nema um örfáa
mjóa götuslóða, en auðvelt að
gera mönn.um fyrirsát, sem eru
þar á ferð.
Hersveitir Breta felldu fleiri
kommúnista í síðasta mánuði
en nokkrum öðrum á árinu að
janúar undanskildum, og er það
talið hinum nýju hernaðarað-
ferðum að þakka.
Piccard prófar
kúluna.
Einkaskeyti frá AP. —
París í morgun.
Svissneski prófessorinn Aug-
uste Piccard og sonur hans,
próf. Jean Piccard, köfuðu í
stálkúlu sinni í morgun í til-
raunaskyni.
Tilraun þessi fór fram skammt
undan eynni Capri á Miðjarð-
arhafi, og fóru þeir feðgar nið-
ur á 1000 metra dýpi. Gekk fil-
raun þessi mjög' að óskum, en
Piccard-feðgar hafa ákveðið að
reyna að kafa niður á 4000 m.
dýpi og kanna þar ýmislegt,
sem mönnum var áður hulið,
enda enginn komizt niður á
slíkt dýpi áður. —
(Vísir birti fyrir skemmstu
grein um Piccard-feðga og fyr-
irætlanir þeirra).
Frumsýning á ball-
ettínum í kvöld.
Dönsku ballett-dansararnir,
sem komu hingað með Gullfaxa
í gærkveldi, hófu strax æfingar
á sviði Þjóðleikhússins í morg-
un.
Gullfaxi lenti hér um kl. 11
í gærkvoldi, en Guðl. Rósin-
kranz Þjóðleikhússtjóri og frú
Bodil Begtrup, sendiherra Dana
voru á flugvelíinum til þess að
taka á móti gestunum.
Fyrsta sýningin verður í
kvöld, eins og áður hefur verið
getið, en nokkur sæti eru enn
óseld, eða voru um kl. 11 í
morgun, en ugg'laust verður að
sókn mikil að sýningum þess-
ara ágætu lisiamanna.
Viðtökurnar í London voru
fádæma góðar, en einkum var
lokið lofsorði á frammistöðu
„sólódansaranna“, þeirra Frið-
Vishinsky finnur
Ieynisamning.
Vishinsky, aðalfulltrúi Rússa,
flutti ræðu á undan fulltrúa
Indverja, og lét dólgslega. Á-
sakaði hann Bandaríkjamenn
um að hafa gert leynisamning
við Suður-Kóreumenn, og væri
ráðagerðin sú, að Suður-Kóreu-
menn skyldu hefja styrjöld í
Kóreu á nýjan leik undir þvx
yfirskini að verið væri að sam-
eina Kóreu.
Þá stakk Vishinsky upp á því,
að þátttökuríkjum á ráðstefn-
unni yrði fjölgað upp í 15, en
áður hafði hann gert ráð fyrir
11. Svíar hafa tilkynnt, að þeir
kæri sig ekki um að eiga full-
trúa á ráðstefnunni Vishitisky
stakk upp á fulltrúum frá Tékk
um, Indónesum, Mexíkóbúum,
Sýrlendingum og Egyptum til
viðbótar, að Svíum frágengn-
um.
Fáir menn og
meiri árangur. ___
Henry Cabot Lodge, fulltrúi
Bandaríkjanna, flutti ræðu og
skýrði- sjónarmið Bandatíkja-
manna. í fyrsta lagi kvað hann
Bandaríkjamenn vera á móti
fjölmennri Kóreuráðstefnu
vegna þess, að engin likindi
vræru til, að hún yrði árangurs-
ríkari með þeim hætti, í öðru
lagi væru Suður-Kóreumenn á
móti þeirri tilhögun, og í ’priðja
lagi væri ekki meiri ástæða til
þess að bjóða Indverjum þátt-
töku eh Japönum og kitwer.sk-
um þjóðernissinnum. — Um-
ræðum er nú lokið, og vita menn
ekki, hvað næst gerist í þess-
um málum, en hver höndin
virðist vera upp móti annarri,
eins og fyrri daginn.
björns' Björnssonar, Inge Sand,
Kirsten Ralov og Stanley Wiíl-
iams.