Vísir - 11.09.1953, Page 1

Vísir - 11.09.1953, Page 1
43. árg. Föstudaginn 11. septeinfaer 1953. 206. tfal. Ólafur Thors myndar nýja samsteypnstjórn ■ dag. Ráðherrar verða sex, þar a£ tveir9 ei* hafa ekki seiið í stjóm áðnr. Árdegis í dag var haldinn ríkisráðsfundur, faar sem Stein- grímur Steinþórsson forsætisráðherra lagði fram lausnarbeiðni fyrir sína liönd og ríkisstjórnarinnar, og tók forsetinn, herra Ásgeir Ásgeirsson, hana til greina. Ólafur Thors talar á þingfundi. Bátar fengu 60- 100 tn. á Hiína- ftóa í nót. Ágæt síldveiði var hjá rek- netjabátum á Húnaflóa í nótt, sem leið, og komu bátarnir inn í morgun með frá 60—100 tunn- tir. Er þetta bezta og jafnasta veiði, sem verið hefur frá því síldarhrotan byrjaði í Húna- flóa. Á Skagaströnd leggja 15 bátar upp afla sinn, og verður saltað þar að minnsta kosti í 500 tunnur í dag, en einnig er nokkuð af síldinni, sem þangað berst send til Siglufjarðar til frystingar. Einnig er saltað á öðrum höfnum við Húnaflóa, en rúmlega 30 bátar stunda nú reknetaveiðar þarna nyðra og eru enn að bætast við bátar. Veður er ágætt nyrðra og síld- arlegt talið á miðunum. Norðurlanda- iReistaranuin færl gód gjof. Friðrik Ólafssyni, skákmeist- ara Norðurlanda, var haldið samsæti í Tjarnarcafé í gær. Skákunnendur og aðdáendur Friðriks fjölmenntu til hófsins, og færðu honum að gjöf for- kunnar fagran silfur-bréfhníf, og var handfangið hrókur. Baldur Möller var samkvæm- isstjóri, en til máls tóku Guð~ mundur Arnlaugsson, Eggert Gilfer, Ásmundur Ásgeirsson, Óli Váldimarsson og Björgvin Friðriksson. Þá skemmti Egg- ert Gilfer með píanóleilr. Friðrik, sem er. hlédrægur maður með afbrigðum, þakk- aði sóma þann, er honum væri sýndur, nokkrum orðum. Hóf- ið var hið ánægjulegasta og bar þess gleggstan vott, rve vinsæll hinn ungi skákmeistari er. Frá Akranesi: Bezta síld sum- arsms barst á land í gær. Akranesi í niorgun. Bátar eru ekki á sjó í dag, vegna vestan hvassviðris á miðunum. í gær komu 12 bátar að og var aflinn mjög misjafn, frá engu upp i 120 tunnur. Var það vb. Sveinn Guðmundsson, sem fékk 120 tunnur. Síldin, sem bátarnir lögðu á land í gær, var með bezta móti og var bæði söltuð og sett í íshús. Var þetta bezta síldin, sem lönduð hefur verið hér í sumar. Akranestogararnir eru vænt- anlegir hvað líður frá Græn- landi. Kunnugt er, að Akurey hafði fengið 200 lestir eftir viku. Þeir fiska til herzlu. Bv. Elliði frá Siglufirði er væntanlegur hingað eftir helg- ina af karfaveiðum. Aflinn verður flakaður fyrir Rússann. Es. Brúarfoss lestar hér síld, sem mun eiga að fara til Tékkóslóvakíu. Tjón af Eand- skjálftum í 135 þorpum. Aþena (AP). — Mountbatt- en lávarður, yfirmaður brezka Miðjarðarhafsflotans, fyrirslcip- aði í gær, að flugvélaskipið Theseus og önnur brezk her- skip í Piræus, hafnarborg Aþenu, skyldu halda þegar í stað til Kýpur, til aðstoðar við íbúana vegna landskjálftanna. Þar varð mikið tjón í gær af völdum landskjálfta, og einnig á jónisku eyjunum, og megin- landi Grikklands. Á Kýpur hrundu í rúst tvö þorp, svo að þar stendur ckki steinn yfir steini, en landskjálft ans varð vart í 135 þorpum á suðvesturhluta eyjarinnar, og mun eitthvert tjón hafa orðið á þeim öllum. — Á Kypuv biðu 40 menn bana, en um 100 meiddust alvarlega. — Þúsund- ir manna eru heimilislausir vegna þessara nýju land- skjálfta. Forsetinn skipaði síðan hina nýju ríkisstjórn, en ákveðið var í gær, hverjir skyldu verða ráðherrar flokkanna, og er Ólafur Thors forsætisráðherra. Verður hann jafnframt át- vinnumálaráðherra, Bjarni Benediktsson verður dóms- mála- og meimtamálaráðherra, og Ingólfur Jónsson verzlunar- og iðnaðarmálaráðherra. Fyrir Framsóknarflokkinn verða í j stjórninni Eysteinn Jónsson fjármálaráðherra, Kristinnj Guðmundsson utanríkisráð- j herra og Steingrímur Stein- þórsson landbúnaðar- og fé- lagsmálaráðherra. Á fundi þeim, sem haldinn Vogeler krefst 500.000 dollara. Robert Vogeler, Bandaríkja- maðurinn, sem sat í fangelsi í Ungverjalandi í 17 mánuði, hefur nú farið í mál vegna fangavistarinnar. Vogeler hefur þó ekki hafið mál gegn ungverskum stjórn- arvöldum, heldur International Telephone and Telegraph-fé- laginu, sem hann starfaði fyrir. Telur hann, að félagið eigi nokkra sök á því, hvernig fór fyrir honum. Hann frestaði málshöfnuninni, þar til Bretinn Sanders hafði verið látinn laus, en krefst nú 500,000 dollara bóta. Stáipiötur í dráttar- bátinn komu með Brúarfossi. Verið er að steypa „planið“, sem hinn nýi dráttarbátur Reykjavíkurhafnar verður smíðaður á hjá Stálsmiðjunni fyrir vestan Slipp. Þá eru komnar hingað stál- plötur þær, sem notaðar ve'rða í skipið, rúmar 100 smál, sem komu með Brúarfossi síðast frá Belgíu. Úr plötunum verður smíðaður byrðingur skipsins, botnstokkar’ þil og fleira. Hinsvegar ei-u böndin í skip- ið ókomin, en væntanlegt mjög bráðlega. Þá er verið að steypa hluta afturstefnisins í Hels- ingjaeyri í Danmörku, og er hans einnig von hingað til lands innan skamms. Aflvél skipsins, sem er diesel- vél af Deutz-gerð, er svo vænt- anleg hingað eftir áramótin. var í þingflokki Sjálfstæðis- flokksins í gær, til þess að á- kveða, hverjir skyldu verða ráðherrar flokksins, skýrði Ólafur Thors svo frá, að Björn Ólafsson óskaði eftir því að vera leystur frá þeim störfum. Hafði hann komið að máli við Ölaf fyrir áramótin og skýrt honum frá því, að hvort sem hann yrði kjörinn á þing aftur eða ekki, mundi hann ekki óska þess að gegna ráðherraembætti lengui' en til kosninga. Þegar kosningarnar hefðu verið um garð gengnar hafði Björn end- urtekið þetta við formann Sjálf- stæðisflokksins, og enn ítrekað það, áður en hann fór utan í byrjun þessa mánaðar, til þess að sitja fund Alþjóðabankans £ Washington. Ólafur Thors hefir þrívegis áðui' verið forsætisráðherra, og mun hann ávarpa þjóðina í út- varp í kvöld, skýra frá myndun. ráðuneytisins og fleira, sem máli skiptir í þessu sambandi. Dawson béðar landanii* eftii* miðjaii inániiðimi. Hefir keypt ísvélar og byggingu yfir þær í Grimsby. George Dawson hefur viS- búnað til þess að hefja Icindun á íslenzkum togarafiski upp úr miðum þessum mánuði. Frá þessu er skýrt í blaðinu Grimsby Evening Telegraþh, samkvæmt viðtali við Dawson, og kveðst hann hafa gert allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess, að löndun og dreifing gangi greiðlega. Undanfarið hefur mikið vex- ið rætt um fyrirætianir Daw- sons í sambandi við löndunar- málið, og er greinilegt, að hann lætur engan bilbug á sér finna, enda þótt sums staðar kveði við í hó.tunartón hjá andstæðing- um hans, sem sýnilega ætla að neyta allra bragða til þess að bregða fæti fyrir Dawson. Með- al annars er látið í það sltína, að vfirmenn á togaraflotanum leggi niður vinnu, ef af fyrir- ætlunum Dawsons verður, og er rfeynt verði að skipa fiski á land úr íslenzkum togurum rnegi búast við „trouble“, þ. e. ihandalögmáli. Hins vegar eru engar líkur til þess, að hafríar- verkamenn í Grimsby taki þátt í samblæstrinum gegn Dawson, og munu þeir vinna að upp- skipun, er þar að kemur. ísvélar og bygging yfír þær keyptar. Fyrir fáum dögum var til- kynnt, að Dawson hefði fest kaup á vélum og öðrúm ut- búnaði til ísframleiðslu í Grims- by, en áður hafði hann keypt húseign í borginni, sem verður eins konar fiskimiðstöð hans þar. fsvélarnar kostuðu um 18.00 l sterlingspund, eða rúml. 800.000 krónur, og geta þær afkastað um 150 lestum af ís á viku, en það er nægilegt magn fyrir 4—5 togara á viku. en Dawson ætlar að taka við tvejm (Fram a 8. síðu) Tekst nú að sigra kvefið? Vii*usinn hefir verið rækíaður. f Harvardsjúkrahúsi í Brctlandi hefur flokkur vis- indamanna undangengin 7 ár unnið að rannsóknum á venjulegri kvefsótt (comm- on cold). Hafa þeir notið aðstoðar margra sjálfboðaliða. Nú er svo langt komið, að tekist hefur að rækta virusbakter- íuna, sem veldur kvefsótt- inni. Er litið á það, semfyrsta skrefið í áttina til sigurs í baráttunni við kvefið, en margra ára rannsóknir kunni enn að vera framundan. Hraðferðum Gull- foss að Ijúka. M.s. Gullfoss fer í síðustu hraðferð sína á þessu sumri á. morgun. Farþegar hafa verið mjög márgir í sumar, að heita má fullskipuð hver ferð. Næsta ferð þar á eftir verður héðan 26. sept., en síðan hefst vetrar- áætlun með ferð frá Höfn 3. október. Verður þá farið frá ■Höfn á laug'ardegi og komið hingað á föstudagsmorgni í stað fimmtudags, svo sem verið- hcfur i surriar.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.