Vísir - 30.09.1953, Side 1

Vísir - 30.09.1953, Side 1
U, irg. Miðvikudaginn 30. september 1953 222. tbi. í ' ?; Nýiega kom til óeirða ó skipi þessu, Asturias, er það var á leið til Englands. Kom til handalögmáls milli brezkra hermanna, Orðsending Rússa sætir harðri gagnrýni vestrænna stjómmálamanna. sem verið höfðu í haldi hjá kommúnistum í Kóreu, en sumum þeirra hafði kommúnistum tekizt að snúa til fylgis við helstefnu sína. Þessir hermenn hafa nú verið sendir heim til fjölskyldna sinna, til þess að sefast þar á taugum. Samningar USA og Spánar gagnrýndir. Lundúnablaðið Daily Herald gagnrýnir í morgun hernaðar- og efnahagssáttmálann, sem Bandaríkin og Spánn hafa gert sér. ■ blaðið að vel megi vera, að John Foster Dulles hafi unn- ið það á, að Bandaríkjunum sé hemaðarlegur ávinningur að samningunum, en það hafi gert verið með því að fórna grund- vallaratriði, sem lýðræðisþjóð- hafa fylgt, að styðja ekki ríki, sem fascistiskt skipulag er ríkjandi í. Rússar skila fövtgiBm. Til Austur-Þýzkalands komu í gær fyrstu þýzku fangarnir, sem Rússar hafa lofað austur- þýzku stjórninni að skila. Er hér um að ræða menn, sem dæmdir höfðu verið fyrir stríðsglæpi. Ekki verður þeim þó skilað, sem dæmdir voru fyrir miklar sakif. Rússar segj- ; hafa í haldi um 13.000 _':i fanga, en sambands- stjórnin þýzka, sem hefur lát- ið athuga allt fangamálið , heldur því fram, að a. m. k. 100.000 Þjóðverjar séu enn í haldi hjá Rússum. Samkomulagstilraunum talið sigli í strand og nauðsynlegt að taka málin fyrir að nýju. „Hneyksli að ráða Árna Friðriksson fram- kvæmdastjóra Alþjóða-hafrannsóknaráðsins' Sérlega dónaleg skrif Kaupmannahafnar- biaðsins „Ekstrabladet" um þetta mái. Kaupmannahafnarblaðið „Ekstrabladet“ virðist líta svo á. að það sé fullkomið hneyksli að ráða dr. Árna Friðriksson framkvæmdastjóra Alþjóða- hafrannsóknaráðsins. Blað þetta við hefur þau orð um þetta, að það sé „en ufor- staaelig og pinlig udnævnelse“, án þess þó að rökstyðja nánar, hvers vegna dr. Árni sé óhæf- ur til starfans. Segir blaðið, að Mr. Dobson, sem er forseti Alþjóðahaf- rannsóknaráðsins, hafi skrifað öllum fulltrúum hafrannsókna- þingsins, sem haldið var í Höfn og tjáð þeim, að æskilegast væri að ráðinn yrði vísinda- maður til starfans. Um leið gat Mr. Dobson þess, að menn hefðu augastað á dr. Árna Friðriks- syni, sem væri vel til stöðunn- ar fallinn. Þetta telur hið danska blað óhæfilegt. („Har man kendt magen til frem- gangsmaade“). Síðan segir blaðið: „Hefði ekki verið eðlilegra að finna vísindamann í Danmörku, þar sem hann hefir möguleika á að iðka fag sitt í frístundum sín- um? Hægt væri að nefna marga haffræðinga Danmerkur, sem vafalaust yrði tekið af meira mögnuði erlendis en hinum ís- lenzka lærdómsmanni, af þeirri einföldu ástæðu, að hinir dönsku hafkönnuðir eru heims- kunnir á sviði alþjóða hafrann- sókna. Hvers vegnatverður þá dr. Friðriksson fyrir valinu?“ Fyrr í sömu grein var sagt, að kjör dr. Áma Friðrikssonar hafi átt sér stað undir svo dul- arfullum kringumstæðum, að menn hljóti að skoða aðferðir þær, sem yfirstjórn hafrann- sóknaráðsins beitir við að gæta hagsmuna sinna í ljósi hinna mest’u efasemda. Forseti alþjóða-hafrann- sóknaráðsins er Mr. Dobson frá London, en varaforseti þess próf. le Gall frá París. Ekki veit Vísir, hvað veldur þessum dónalegu viðbrögðum hins danska blaðs vegna ráðn- ingar Áma Friðrikssonar. Þó teljum vér sennilegt, að Dob- son hinn brezki og le Gall hinn fianski kunni betri skil á hæfi- leikum þeirra, sem til greina kunna að hafa komið en frétta- maður „Ekstrabladet“. 661 milljónari í Danmörku. Árið 1951 var 621 milljóna- mæringur í Kaupmannahöfn, en 355 í öðrum landshlutum í Danmörku. Þrjár stéttir höfðu flesta milljónamæringa innan vé- banda sinna, en það voru fram- kvæmdarstjórar, sem voru 117, heildsalar 109 og verksmiðju- eigendur 66. í öðrum stéttum voni aðeins« fáir milljónamær- ingar, slátrar höfðu aðeins tvo, ljósmyndarar tvo, kennarar einn, listmálarar einn og iðn- nemar einn. Mesta tekjuaukn- ing á árinu varð hjá þeim, sem seldur gömul föt eða járn. Tekjuhæstu menn voru fram- kvæmdarstjórar, þeir höfðu 68,811 kr. að meðaltali og þá átt við danskar krónur. Næstir framkvæmdarstjórunum komu málaflutningsmenn með 37,492 kr., heildsalar með 36,639, læknar með 26,634 kr. í höfuðborgum Vesturveld- anna hefur svarorðsendiug Rússa verið til athugunar og er enn. Hefur stjórnmálamönnun- um veizt rnjög erfitt að átta sig á henni, og komust loks að þeirri niðurstöðu í gærkveldi, að fyrir Rússum mundi vaka: Að haldnar yrðu tvær stjórnmálaráðstefnur, fimm velda- og fjórveldaráðstefn ur. Hin fyrri yrði fimm- veldaráðstefna og um al-! heimsvandamálin og fengi Pekingstjórnin aðild að henni, en hin síðari yrði um Þýzkalandsvandamálin, og j þar væru kínverskir komm- ! Bretar hafa heiðrað garpinn Tensing Norkay með því ; að nefna nýja flugvélargerð Sherpa. únistar ekki til kvaddir. —| Hins vegar yrðu þar fulltrú . ar Austur- og Vestur- Þýzkalands. Um friðarsamningana við Austurríki segir í orðsending- unni, að ráðstjórnin telji heppi- legast, að halda áfram að leyna ^ð ná samkomulagi um þá eftir venjulegum stjórnmálaleiðum, og hafnað er tillögunum um /rjálsar kosningar í Þýzka- landi. í fregnum frá Washington segir, að þar sé litið svo á, a'-5 Rússar fari undan í flæmingi í orðsendingu þessari, en í fyegn um frá París, að orðsendingin sé óljós og villandi, og hafi ráð- stjórnin í rauninni ekki hafnað neinu og ekki heldur fallist á neitt. í brezkum blöðum í morgun er tónninn yfirleitt sá, að ekk- prt hafi þokast í samkomulags- átt, og jafnvel að málum hafi nú verið siglt í strand og ættu Bretar og Frakkar að athuga afstöðu sína gaumgæfilega, m. a. með tilliti til þeirra tillagna, sem Churchill hefur borið fram. Oljós og í leiðindatón. Daily Herald, blað verkalýðs ins, segir að orðsendingin sé óljós að efni og i leiðindatón, og málum hafi verið siglt í al- gert strand. Daiíy Telegraph segir, að fyr ir ráðstjórninni vaki að ala'á óánægju meðal lýðræðisþjóð- anna og herða tökin á Austur- Þýzkalandi, þar sem helzt hafi orðið ókyrrðar vart austan járn tjalds. Þá vilji þeir gera Norð- ur-Kóreu að varanlegri her- bækistöð. Manchester Guardian segir að ef til vill sé tilgangur Rússa sá, að reyna að dylja það, að þeir vilja ekkert aðhafast eins og sakir standa, til sam- komulags um stónnálin. í brezkum blöðum kemur hað fram, að Rússar hafi í rauránni aldrei verið hernaðarlega sferk ,ari en nú, og því sé ekki þess að V£(t 'ita, að leiðtogar þeirra vilji falla frá fyrirætlunum sin- um um heimsbyltingu, en hins vegar hentugur tími til að reyna að breikka bilið milli lýðræðis- þjóðanna. Því sé mikilvægt fyr- ir lýðræðisþjóðirnar að Ireysta samvinnuna. Frjálsar kosningar höfuðskilyrði. Times segir, að ekki megi til þess koma, að íallið verði frá því höfuðskilyrði, að frjálsar kosningar verði látnar fara fram í öllu Þýzkalandi. Ff til vill verði Þýzkaland klofið eins langt og unnt sé að sjá fynr, og engin breyting væntanieg fyrr en varnarsamtökin ertl komin á traustan grundvöll, en þá geti svo farið, að Rússar verði tilleiðanlegri til að fallast á samkomulag í líkingu við það, sem Churchill hafi í huga. Vísir að Locarnokerfi. Blaðið segir, að í rauninni sé kominn vísir að Locarnokerfi, eins og það orðar það, með varn arsamtökunum, en sá vísir gæti orðið að allsherjar samkomu- lagi friðinum í álfunni ti! ör- yggis, einskonar nýjum Locárno sátmála, sem Rússar yrðu aðilar að. ' Stjórnarfundir í London á morgun. Brezka stjórnin kemur sam- an til furidar á morgun og verð- ur Sir Winston Churchill i ior- sæti, en hann er væntanlegur heim frá Suður-Frakklandi í dag. Eden situr og fundinn, en hann er einnig væntanlegur heim í dag. Hefur hann dvalist. í Grikklandi að uridanförnu og verður þetta fyrsti stjórnar- fundurinn, sem hann situr eft- ir að hann veiktist í marz s.l. í Bretlandi og víðar vænta menn þess nú, að mikilvægra tillagna megi frá þeim vænta, til þess að koma málunum inn á greiðari brautir tii samkomu- lags. Árekstur herskipa við Island. London (AP). — Árekstur varð suður af fslandi við flotaæfingarnar miklu, milli brezka beitiskipsins Swift- sure og hrezka tundurspillis- ins Diamond. — 32 menn meiddust á Swiftsure en ekki lífshættulega. Swiftsure liggur í land- vari við ísland og er verið að athuga skemmdirnar, en Diamond hélt áfram til Bret- Jands. Vont var í sjó, er á- reksturinn varð. Skemmdir- urðu á Swiftsure miðskipa stjórnborðsmegin. — Árekst- urinn varð 30 mílur suður af fslandi. Peklfigstjórn hafnar mótmælum Breta. Pekingstjórnin hefur hafnað mótmælaorðsending'u Breta út af árás kínversks herskiiis á brezkan hraðbát, en 7 brezkir sjóliðar biðu bana af völdum þeirrar árásar.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.