Vísir - 19.10.1953, Blaðsíða 8

Vísir - 19.10.1953, Blaðsíða 8
Mt lem cen.it kaopendur VtSIS efttr 19. kven mánaðar fá blaðið ókeypis tiJ mánaðamóta. — Sími 1660. VlSIR VtSIR er ódýrasta blaðið og þó það fjöl- breyttasta. — Hringið i sims 1660 og geriat áskrifendur. Mánudaginn 19J október 1953. Iltanrikisráðherrarnir vilja ræða við utanríkisráðherra Rússa. Vilja að fundur hefjist 9. nóvember Friðurinn í tiæiiu Orðsendingar Vesturveldanna til ráðstjórnarinnar rússnesku bafa verið aflientar í Moskvu. Haldið er fast við fyrri tillögu nm fund utanríkisráðlierl-a þeirra allra og nú lagt til, að 'hann hefjist hinn 9. nóvember. Fundi utanríkisráðlierra vest- urveldanna lauk í gær. Orðsendingarnar eru sain- hljóða. Þar er m. a. bent á, að friðarsamninga við Austurríki hefði átt áð vera búið að gera fyrir löngu og aðkallandi væ.i að samkomulag væri gert um Þýzkaland. Haldið er fram, að það mundi reynast mjög gagn- legt og koma málunum áleiðis, ef utanríkisráðherrarnir kæmu saman til fundar nú. En þegar ráðstjórnin legði til, að farriar væru venjulegar diplomatiskar léiðir til að ná samkomulagi um friðarsamningana við Aust- úrríki, væri þess að geta, að það hefði verið gert undangeng- in 3 ár, án árangurs. Tillög- unni um 5-velda ráðstefnu er hafnað. Þeir Dulles og Bidault eru lágðir af stað heim af fundiri- uin, og báðir sæmilega ánægð- ir með fundinn, einkum Dulles, sem taldi mikilvægast að alger eining hefði verið lun svarið til Rússa. Bidault kvað árang- urinn góðan, þegar tekið væri tillit til allra aðstæðna. Yfirlýsing var birt að fund- inum loknum og eru talin upp þau mál, sem rædd voru, og kemur þar fram, að stefna Vest urveldanna er óbreytt í öllum höfuðatriðum. Um Trieste er t. d. sagt, að stefna þeirra sé áfram, að vinna að varanlegu .samkomulagi um lausn þessa vandamáls. Utanríkisráðherr- ■arnir lýstu áhyggjum sínum yf- ir viðburðum á landamærum -Jordaníu og ísrael og vísa til þess, að þeir lögðu það mál fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Friðurinn í hættu. Þeir benda á, að friðurinn sé í hættu vegna þessarra árása. Öryggisráðið kemur saman á fund í dag um málið. — ísrael hefur kært til ráðsins yfir tíð- um árásum ræningjaflokka frá Jordaníu. í fregnum frá ísrael hefur verið sagt, að ræningja- flokkar frá Jordaníu hafi ban- að yfir 420 manns í ísrael and- angengin 3 ár. — Landvarna- ráðherra ísraels hefur fengið heimild stjórnarinnar, til þess að senda hersveitir úr fasta- hernum til landamæranna. Symfoníuhljóm- leikar á morgun. Symfóníuhljómsveitin heldur hljómleika í Þjóðleikhúsinu annað kvöld kl. 8.30. Á efnisskránni eru verk eft- ir Beethoven, Brahms og Grieg. •Olav Kielland stjórnar hljóm- sveitinni, en einsöngvari með henni verður Guðmundur Jóns- .son óperusöngvari. Syngur hér í siðasta sinn í kvöld. Enski jazzsöngvarinn Cab Kaye, sem hér hefur dvalið und anfarið á vegum Ráðningar- skrifstofu Skemmtikrafta, kem ur fram í síðasta sinn hér á landi að þessu sinni í kvöld á dansskemmtun í Þórscafé. Hann fer utan með Gullfaxa í fyrra- málið. Cab Kay hefur aðallega kom- ið fram á skemmtunum og hljómleikum í Reykjavík, með- an hann héfur dvalið hér. En hann hefur jafnframt komið fram á nokkrum stöðum utan Reykjavíkui-, og t. d. um síð- astliðnu helgi kom hann fram á þremur skemmtunum á Ak- ureyri ásamt tríói Árna Elfar píanóleikara. Enn fremur hefur hann skemmt fyrir sjúklinga að Víf- ilsstöðum og í gærdag skemmti hann sjúklingum að Kristnes- hæli í Eyjafirði, en sjálfur hef- ur Cab Kay verið sjúklingur á berklahæli í Englandi og var því mjög ljúft að koma fram á fyrrgreindum sjúkrahælum. Stríðsfangar yfir- heyrðir í Kóreu. 1000 kínverskir og norður- kóreskir stríðsfangar verða yf- irlieyrðir í dag og spurðir, hvort þeir vilji liverfa heim. Af yfir 400, sem yfirheyrðir voru um helgina, vildu 9 hverfa heim, og þó talin ástæða til að ætla, að þeir hafi misskilið spurningarnar, og vilji í raun- inni hvergi fara. Bridgekeppnin: Kristinn og Lárus efstir. Tvímenningskepphi meistara- , flokks í bridge stendur nú yfir 1 og er hún hálfnuð. Eftir þrjár umferðir eru þeir Kiústinn Bergþórsson og Lárus Karlsson efstir með 831 stig. Níundu í röðinni eru sigurveg- ararnir frá í fyrra, Ragnar Jó- hannesson og Þorsteinn Þor- steinsson með 753.5 stigum. Fjórða umferð yerður spiluð í kvöld og þá hefst einnig und- irbúningskeppni þeirra tvímenn inga, sem ætla sér að taka þátt i landskeppninni, en hún verð- ur seint í næsta mánuði. Röð efstu tvímenninganna og' stig þeirra er sem hér segir: K. Bergþ.ss. — L. Karlss. 831 St. Stef. — Vilhj. Sig. 797 Hilmar Ól. — Ól. Karlss. 793 Sigúrhj. P. — Örn Guðm. 788 Ásbj. Jonss. — Jóh. Jóh. 785 Árni Gúðm. —-,Q1. Þorst. 768 G. Vagnss. —Ól. Gutt. 765 G. Ó. Guðm. — G. Pálss; 755.5 Ragnar Jóh. — Þ- Þorst. 753.5 Einar Þorf. — Hörðúr Þ. 745 E. Guðj. — M. Björnss, 741 E. B. Guðm. — Sv. IngV. 737 Egg. Ben. — Kr. Kristj. 736.5 Gunnl. Kr. —: M. Jónss. 735 Tr. Péturss. — Þórh. Tr. 734 Pétur Halld. — R. Halld. 719 Bv. Ágúst komian til Hafnarfjarðar. Bv. Ágúst, sem áður hét Bjarnarey, og seld var frá Vest- mannaeyjum til Hafnarfjarðar, kom þangað síðdegis á laugar- dag. Margmenni var við komu skipsins. Emil Jónsson vitamála stjóri flutti ræðu. — Skipstjori á togaranum verður Árni Sig- urðsson, sem seinast var stýri- maður á Júní. Júní er nú á veiðum fyrir Þýzkalandsmarkað, en Júli í slipp. 2 Akureyrar- togarar á útleið. Frá fréttaritara Vísis. — Akureyri í morgun. Allir togarar bæjarútgerðar- innar eru nú á veiðum, og veiða flestir í ís. Sléttbakur kom nýlega af veiðum — í fyrsta sinn — með 185 smálestir til herzlu og fór út aftur til að veiða kai'fa upp í samninginn við Rússa. Þá hef- ur Kaldbakur og komið af veiðum með 248 lestir í herzlu og 70 föt ag lýsi. Hann fór á veiðar í ís í fyrradag, og veiðir sennilega fyrir Breta. Svalbakur er á leið til Þýzka- lands með fullfermi af ísfiski og Harðbakur er einnig á leið til Þýzkalands. Adenauer leggur fram rádherralista. Bonn (AP). •— Adenauer kanslari Vestur-Þýzkalands mun í dag' leggja ráðherralista sinn fyrir Heuss forseta. Stjórnarmyndunin hefur geng ið erfiðlegar en búizt var við, að því er talið er, vegna skil- yrða Flóttamannaflokksins, sem ræður yfir 27 þingsætum. Adenauer þarf á stuðningi þessa flokks að halda til þess að stjói'n hans ráði yfir % þingsæta, og þannig afgreitt samningana varðandi varnarsámtök og Ev- rópuher, svo að ágreiningur um, hvort slíkar þingsamþykkt ir séu í samræmi við álcvæði stjórnarskrárinnar eða ekki, komi ekki til Flóttamanna- flokkurinn mun gera kröfu til, að ráða yfir tveimur ráðherra- embættum. Kynningarkvöld i Leikhúskjallaranum f kvöld verður fyrsta kynn- ingarkvöld Lisívinasalarins á vetrinum í Þjóðleikhúskjailar- anum kl. 8.30. Efnsskráin verður á þessa leið: 1) Sýnd kvikmynd urn. brautryðjanda franska im- pressiónismans, Eduard Manet. 2) Thor Vilhjálmsson rithöf- undur les upp nýja smásögu. 3) Sýnd kvikmyndin „Pacific 231“, sem byggð er á symfón- ísku tónverki eftir Honegger. Mynd þessi hlaut 1. verðlaun á alþjóðlegri kvikmyndasýningu í Cannes. Að lokum sýnir Björn Th. Björnsson listfræðingur skuggamyndir úr myndreflin- um frá Bayeux. Aðgangur er enn fram á sama stað síðdegis salarins. Hún er bersýnilega enginn vesalingur, stúlkan þarna á myndinni. Þó er liún ekki nema 15 ára. Hún heitir Beverly Jocher, og á heima í Santa Monica í Kaliforniu í Banda- ríkjunum. Þegar liún var 10 ára, gat hún borið næstum 400 pund, en nú er hún komin yfir 500. Auk þess hefir liún unn- ið sjö „miss“-titla fyrir fegurð og yndisþokka, svo að liún hef- ur meira en vöðvum einum að státa. Flytur f róðleik um ísland. Blað varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli — Hvíti fálkimti — hefur tekið upp kynningu a ýmsu íslenzku efni. Fyrir nokkru var þar til dæmis fróðleg grein um söga íslands, og síðan hefur birzt löng grein um sögu Alþingis, þar sem miklum fróðleik er safnað saman. Kjarnorkurann- sóknir í Sviss. Genf. (A.P.). — Innan skamms verður hafizt handa um að koma upp kjarnorku- rannsóknastöð hér í kantón- unni. Verður samvinna Evrópu- þjóðanna um að koma stöð- inni upp og starfrækja hana. — Voru allir þjóðþingsfull- trúar meðmæltir mannvirkinu — 102 samtals — en kommún- istar, fimm, andvígir, enda hafa þeir róið mjög gegn henni. Togarar aftur við Grænland. Karfaveldar góðar i\V af Hvarfi. Nokkrir ísl. togarar munu komnir á Grænlandsmið og eru þeirra meðal 4 togarar Bæjar- útgerðar Reykjavíkur. Eru það togararnir Pétur Halldórsson, Jón Baldvinsson, Þorsteinn Ingólfsson og Skúli Magnússon, og fiska tveir þeirra í salt, en hinir tveir eru á karfaveiðum. Karfaveiði er sögð góð NV af Hvarfi. — Þorkell máni kom á laugardagskvöldið af Græn- landsmiðum og fer til Esbjerg með aflann kl 4 í dag. Marz kom af karfaveiðum í morgun með á 3. hndr. 1. (á- ætlað). Uranus fer á karfaveið- ar í dag, en Fylkir fór á isfi.sk- veiðar á laugardag og Hvalfell og Akurey á saltfiskveiðar. Vestmannaeyjatogarinn Vil- borg Herjólfsdóttir er komin úr slipp og liggur hér í höfriinni utan á Hæringi. Forsetinn í heim- sókn í Garðahreppi. Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, kom í opinbera heimsókn til Garðahrepps í Gullbringusýslu í gær. Komu forsetahjónin til sam- komuhússins í Garði laust fyrir klukkan þrjú, og voru þar fyrir sýslumaður, Guðmundur I. Guðmundsson, og sýslunefnd og hófst móttökuathöfn í sam- komuhúsinu kl. 3. Bauð sýslu- maður forsetahjónin velkomin með ræðu, en auk þess söng kór undir stjórn Páls Kr. Páls- í Kenya hafa verið hand- sonar. Þá flutti forseti ávarp. telcnir nokltrir ineim, grunaðir Er lokið var kaffidrykkju og um þátttöku í árás á trúboðs- forsetahjónin höfðu rætt við stöð, í fyrri viku. ýmsa viðstadda ávarpaði Bjöm Tvær af nunnum þeim, sem Finnbogason oddviti þau að' særðust í árásinni, hafa nú lát- endingu og þakkaði þeim fyrir Haitdtökur í Kenya izt. komuna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.