Vísir - 21.10.1953, Blaðsíða 8

Vísir - 21.10.1953, Blaðsíða 8
Þér lem ferast kaupendur VtSIS efttr It. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis tíl mánaðaméta. — Sími 1660. VtSIR er ódýrasta blaðið cf þé ]>að fjöl- breyttasta. — Hriögið i síina 1660 og geriít áskrifendur. Hersveitum stefnt til Trieste, meSan málið er rætt austan hafs og vestan. Öryggisráðið frestar umræðum, svo að tóm verði til viðræðna við aðila. Vandanienn eftirlitssveita k'luffii* frá borginni. Öryggisráð Samcinuðu þjóð- anna hefur rætt Trieste-deil- una og kom þar fram tillaga um, að fresta umræðum til 4. nóvember, þar til séð væri, hvern árangur frekari viðræð- ur bæru við ítali og Júgóslava. Sagði fulltrúi Kolumbíu, að írestur á umræðum gæti skap- að ró um málið, og væri pað mikilvægt, þar sem vitað væri, að Bretar og Bandaríkjamenn ræddu við báða aðila um máJið, í von um varanlegt samkómu- lág. Vishinsky fulltrúi Rússa andmælti öllum drætti, og sagði að æsingaalda hefði risið ein- Var viðurkennt af hálfu ríkis- stjórnarinnar, að langt hefði ver ið gengið með því, að tilkynna, að A-svæðið mundi verða af- hent, en stjórnarandstæðh'gar sögðu, að með því hei'ði verið hranalega og heimskulega að i'arið. Kvartað var yfir þvi, að ekki hefði verið úm málið rætt við Júgóslava fyrirfram, en Eden kvað þá ekki hafa ástæðu til að móðgast frekar en ítalir, því að ekki hefði þeim heldur verið sagt frá ákvörðuninni fyr irfram. Dulles utanríkisráðh. Banda- ríkjanna hefur endurtekið, að mitt vegna þeirrar ákvörðunar ’ haldið verði fast við ákvörðun- Breta og Bandaríkjamanna, að ina um afhendingu A-svæðis- afhenda A-svæðið. Lagði hann til sem fyrr, að Trieste yrði ^ert að fríriki samkvæml ákvæð um friðarsamningánna. ■ Það varð úr, að hlé skyldi verða á umræðum. ■ ' Bæði Júgóslavar og ítalir hafa haldið áfram liðflutningum sín- um, og er ekki talið, að til þess muni koma, að Bretar og Bandaríkjamenn flytji burt lið sitt, meðan sú hætta vofir yfir, að barist verði um borgina. Bretar ræða málið. Nokkrar umræður og a!l- snarpar urðu um málið í gær í neðri málstofu brezka binPsin-<. ins. Um helgina fluttu Bretar 260 konur og börn setuliðs- manna frá Trieste og fór flest af þessu fólki til Vestur-Þýzka- lands, en sumt heim til Brét- lands. Undirbúningsfuitdur í Panmunjom á mánudag. Fundur beggja aðila í Kóreu- styrjöldinni til undirbúnings stjórnmálaráðstefnunni hefst í Panmunjom næstk. mánudag. Ákvarðanir kommúnista (Pek íngstjórnarinnar og Norður-| Kóreustjórnar) um þátttöku í fundi, til þess að ræða undir- * 1 þúning og tilhögun fyrirhug- ‘ aðrar stjórnmálaráðstefnu, eru taldar mikilvægt skref í áttina til samkomulags um þau atriði,1 sem menn að undanförnu hafa óttast, að myndi tvístra öllum vonum um að vopnahlé í Kóreu leiddi til friðarsamninga. Pekingstjórnin og N.-Kóreu- ■stjórn sendu Bandaríkjastjórn orðsendingu um ofannefnda.- ákvarðanir sínar í gær. IteyiicS í 4. siaias. Þjóðverji einn hefir nýlega kvænzt sömu konunni í fjórða skipti. Er talið, áð þau muni ekki skilja úr þessu. Hjónin skildu við og við vegna þess, að mað- urinn fekk augastað á öðrum konum, en nú ætlar hann bara að njóta hinnar einu réttu úr þessu. * Arnesingar áhugasamir imi raforkumálin. Árnesingar héldu f jölmennan fund í gær um raforkumálin. Meðal fundarmanna voru Steingrímur Steinþórsson raf- orkumálaráðh., alþingismenn- irnir Sigurður Óli Ólafsson og Jörundur Brynjólfsson og Jakob Gíslason raforkumálastjóri. Nokkrar samþykktir voru gerðar á fundinum, og voru þessar helztar: Skorað var á Alþingi og ríkisstjórn að hækka verulega fjárveitingu til raf- ■orkumála á næsta ári Þá var þess krafizt, að á næstu fimm árum yrði lokið við að leiða höfuðleiðslur um sýsluna, og aS hverjum hreppi yrði tilkynnt, í hvaða röð hann fái rafmagnið. Sýna Árnesingar mikinn sam hug í þessu máli, og hafa full- an hug á að fullnægja raforku- þörf sýslunnar hið allra bráð- asta. Gikiar ástæðnr til ai grípa ð taumana. London (AP). — Brezka stjórnin birti í gær „hvíta bók“ um Brezku Guinöu- Þar kemur in. a. fram, að stjórn Framfara- flokksins hafði vanrækt störf sín herfilega og haft stöðugt samband við.erlenda kommúri- ista. Greitt var fyrir því, a ) ind- verskir kommúnistar kæmu til landsins, veittur stuðningur uppreistarmönnum í Kenya og á Malakkaskaga, stofnað íil upp þota, og ráðherrar sátu fundi, þar sem lögð voru á ráð um að brenna hús og uppskeiu hvítra írianna. I Blöðin í morgun telja, að í hinni hvítu bók sé að finnaj nægileg'ar .sannanir fyrir því, að stjórniii hafi haft gildar á-; stæður til að grípa í taumana, en helzt skorti nægar sannanir fyrir, að mark Framfaraflokks- •ins hafi verið að koma á fót kommúnistiskú ríki. Ekki öií RÓtt úto enn. Kona ein í Suður-Afríku., frú Gwendolin Hodgkinson, hefir eignast 17 börn á 19-árum. Frú- in er nú 38 ára svo ekki er öll nótt úti enn. Sjö málverk seld. Aðsókn að sýningu Nýja myndbsíafélagsins í Lista- mannaskálanum hefur verið afbragðsgóð þrátt fyrir einkar óhagsíæít veður. Sem dæmi um aðsóknina má geta þess að í ofviðrinu á sunnudaginn sóttu hátt á 2. hundrað manns sýninguna, enda telja margir listunnendur þetta vera eina merkstu list- sýningu, sem hér hefur sézt í langan tíma. Sjö málverk hafa þegar selzt, 3 eftir Jón Stefánsson, 2 eftir Jóhann Briem og 1 eftir hvorn þeirra Jón Þorleifsson og Svein Þórarinsson. Sýningin verður opin til n. k. sunnudagskvölds. Happdrætti sýningarinnar hefur gengið með miklum ágætum. Getraunaspá Úrslit síðustu getraunaleikja urðu: Arsenal — Burnley 2—5 2 A. Villa — Newcastle 1—2 2 Cardiff — Tottenham 1—0 1 Chelsea — Middlesbi'o 1—1 x Manch. City — Preston 1—4 2 Portsm. — Charlton 3—1 1 Sheff. Utd. — WBA 1—2 2 Sunderland — Bolton 1—2 2 Bristol — Birmingham 2—2 x Derby — West Ham. 2—1 1 Lincoln — Nottingham 2—2 x Notts Co. 1—- Luton 1—2 2 Þessir leikir verða á næsta getraunaseðli og fara þeir fram á Jaugardag. Bclton — Wolves x Burney — Cardiff 1 Charlton — Arsenal 1 (x2) Liverpool — Sheff. Utd. 1 Manch. Utd. — A. Villa 1 Middlesb. — Blackpool 2 Newcastle — Hudders. (1) 2 Preston — Sunderland 1 (x2) Sheff. Wed. —- Portsm. 1 Fullham — Doncaster x Leeds — Derby 2 Rotterdam — Everton (1) x Skilafrestur er til fimmtu- dagskvölds. J. Ekki alls fyrir löngu varð; skriðuhlaup mikið skammt rá Osló og varð mörgum að bana. Bílar köstuðust langar leiðir og sýnir myndin, hvernig umhorfs var á nokkrum hluta slysstaðar- ins, þegar um hægðist. Maður fellur ofan í togara. Var drukkinn og meiddist IrtiA. Vilurkeniia ekkf ffiiitærii London (AP). — Hin nýja stjórn Adenauers kanslara hefur nú tekið við, eftir að hann lagði ráðherralistann fyrir Heuss forseta. Flutti Adcnauer stefnuskrárræðu, . Iiann lýsti yfir því, að aðal- mark stjórnarinnar væri sjáif- stætt sameinað Þýzkaland. Hann endurtók, að Ráðstjórn- arríkjunum stæði til boða ör- yggissáttmáli, sem tryggði þau gegn árás úr vestri. Adenauer kvað Þjóðverja aldrei geta fallist á núverandi austur- í gærmorgun féll ölvaður mað ur af bryggju og niður í togara, sem lá við Ingólfsgarð. Var óttazt að maðurinn hefði slasazt við fallið og var lög- reglunni gert aðvart þegar í stað. Lögreglan flutti man.n- inn, sem ekki bar þó neina sýni lega áverka, á Landspítalann til rannsóknar. Leiddi sú læknis- athugun í ljós, að maðurinn hefði lítið meiðzt. Slökkviliðið á ferð. Síðdegis í gær var Slökkvi- liðið gabbað að Austurstræti 4 með því að þar hat'ði verið brot inn brunaboði. Vegfarendur höfðu séð drukkinn mann, er þeir töldu vera valdan að þessu og handtók lögreglan har.n iitlu síðar. í gær var slökkviliðið einnig kvatt að Efstasundi 67. Þar hafði kviknað út frá olíukynd- ingu og var eldur 1 miðstöðvar- herbergi, þegar slökkviliðið kom á vettvang. Eldui'inn var strax slökktur og urðu skemmd ir óverulegar. Sofandi í bíl. Seinni hluta s.l. nætur þuií'ti Njálsgötubúi nokkur að br.egða sér burt úr bænurn. En þegar hann kom út að bílnum sínum, ér stóð á götunni, var þar fyrir sofandi maður og svo öldrukk- inn, að ekki tókst að vekja hann. En þar sem bíleigandinn þurfti að hafa hraðan á, Sá hann sér þann kost vænstan að svipta manninum út úr bílnum, leggja hann til á götunni og tilkynna lögreglunni um tilveru hans þar. Lögreglan sótti mann inn, sem enn svaf svefni hirma réttlátu á götunni, þótt svalt væri í veðri, og flutti hann nið- ur á lögreglustöð. Þar vaknaði hann og hresstist brátt í hlýj- unni. Árekstur. Nokkrir árekstrar bifreiða urðu hér í bænum í gær, en ekki sögulegir og ekki yfm meiðsli að ræða. landamæri (Oder-Neisselín- una), en vilja fá breytingum framgengt með í'riðsamlegu I móti. Persar teksila* af iifi. Þrír persneskir sjómenn hafa verið teknir af lífi, eftir að her- réttur hafði kveðið upp dóm yfir þeim. Þeir voru sekir fundnir um tilraun til að kveikja í einu herskipi • landsins. Stjórnin hefur nýlega aukið mjög hervörð í öllum her-, flug- og flotastöðvum. Flóttamannaflokkurinn tek- ur nú þátt í samsteypustjórn Adenauers og hafa þeir 4 flokk- ar, sem að henni standa, ráð yfir % atkvæða. „Hreinsun" í Dagestan. Hreinsun átti sjr nýlega stað í'smá sovétríkinu Dagestan við Kaspíhaf. Varaforsætisráðherr- arnir Adzhiev og Yuoposov, sem báðir voru fylgismenn Beria, voru sviptir völdum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.