Vísir - 19.02.1954, Blaðsíða 1
44. árg.
Föstudaginn 19. febrúar 1954
41. ibL
Úskað styrks 1 að koma
Meiri íslandsfiski landað i
i |an. í ár en i ffyrra,
í janúar í fyrra komu þangað 30
togarar héðan, en 84 núna.
Meðal erinda sem lögð hafa
verið fram í sambandi við af-
greiðslu fjárhagsáætlunar Rvík
urbæjar má geta umsóknar um
styrk til þess að stofna al-
þjóðlegan svifflugskóla á ís-
landi.
Það er Svifflugfélag íslands,
sem sækir um þenna styrk að
upphæð 60 þús. kr. og er það
hugmynd félagsins að koma
upp byggingum og annast aðr-
ar framkvæmdir 1 sambandi
við stofnun alþjóðlegs svifflugs
skóla.
Aðstæður til svifflugs þykja
200 íbúar á ifiisa-
betareyjum — 400
þús. ferkm.
London (AP). — Kana-
diska stjórnin tilkynnti ný-
lega, að eyjaklasa fyrir
norðan Kanada hefði verið
gefið nafn og heita þær nú
eftir Elisabetu drottningu.
Liggja eyjamar allar fyrir
norðan 75° n. br., og veit
enginn rétta tölu á þeim, en
þær munu vera um 500 og
eru samtals um 400,000
ferkm. að stærð Stærst
þeirra er Ellesmere-eyja,
sem er um 190 þús. ferkm.
Þótt þarna sé um mikið land-
flæmi að ræða eru íbúar að
eins um 200 í sjö þorpum. Á
tímum Elisabetar 1. fóru
Englendingar fyrstu könn-
unarferðir á þessum slóðum.
betri hér en víðast annars stað-
ar, enda er nú svo komið að
útlendir svifflugmenn sækjast
ákaft eftir að komast hingað til
svifflugsiðkana, og verður ekki
hægt að sinna nærri öllum
beiðum í þessa átt.
Til þessa hafa aðallega komið
hingað þýzkir svifflugmenn og
hafa þeir látið óskerta hrifningu
sína í ljós yfir aðstæðum öllum
og dvöl sinni hér á landi. En
nú hafa fyrirspurnir borizt frá
ýmsum löndum og óskir um
það að mega koma hingað.
Af öðrum erindum. sem bæj-
arstjórn hafa borizt, er m. a.
umsókn frá Samkór Rvíkur um
50 þús. kr. styrk vegna söng-
farar kórsins á norrænt söng-
mót í Osló í júnímánuði n.k.
Skógræktarfélag Reykjavík-
ur hefur gert grein fyrir áætl-
uðum kostnaði við framkvæmd
ir í Heiðmörk á yfirstandandi
ári. Er kostnaðurinn áætlaður
275 þús. kr. og þess jafnframt
óskað að hann verði tekinn
upp í fjárhagsáætlun bæjarins.
Fulltrúaráð Sjömannadagsins
og byggingarnefnd dvalarheim-
ilis aldraðra sjómanna sækja
um 1 milljón kr. byggingar-
styrk á þessu ári til dvalar-
heimilisins.
Þá hefur h.f. Skallagrímur
óskað eftir 300 þús. kr. hluta
fjárframlagi frá bæjarstjórn
Rvíkur vegna kaupa á skipi í
stað m.s. Laxfoss.
Ýms fleiri erindi hafa borizt
þ. á m. umsókn um 10 þús.
kr. styrk frá stjórn Iðnbóka-
safnsins.
Það er ítalskur „tízkuskap-
ari“, Battilocchi, sem hefur
gert þenna vorkjól og kallar
Siann Ming Toy. Efst er hvítt
organza, en annars er kjóllinn
úr bómullarefni, sem prentað
er með vor-„mótívum“.
Bryggjur Reykjavíkur-
hafnar verði merktar.
Meira hreinlætís verði gætt við
höfnÍMa, bæði í skipum og á Inesdi.
Á fyrsta fundi hinnar ný-
kjörnu hafnarstjórnar Reykja-
víkur 17. þ. m. bar Guðbjartur
Ólafsson hafnsögumaður fram
ýmis nýmæli og tillögur sem
miða til bóta við höfnina og
fyrir starfsmenn hafnarinnar.
Meðal annars leggur Guð-
bjartur til að allar bryggjur
hafnarinnar verði greinilega
merktar með sínu heiti, enn-
fremur hafnarhúsið og hafnar-
skrifstofan. Skuli merkin þann-
ig yerð að þau sjáist jafnt að
nóttu sem degi.
Þá verði sorpílát sett á allar
bryggjur og hreinlætis gætt í
hvívetna. Sömuleiðis verði skýr
og ákveðin fyrirmæli sett til
allra skipa um að þau gæti
hreinlætis og öryggis með olíu
og benzín. Sama gildi einnig
fyrir olíustöðvarnar hér í bæn-
um og að ströng ákvæði verði
sett um losun og lestun á olíu
og benzíni innan hafnar sem
utan. Ákveðinn verði staður í
námunda við Reykjavíkurhöfn
fyrir benzínflutningaskip, þar
sem þau geta gert gasfrítt án
þess að hætta stafi af.
Á lóðsbátunum vill Guðbjart-
ur gera þær breytingar að
dieselvélar verði settar í þá,
og talstöðvar, ennfremur að
þeir verði upphitaðir. Hann vill
ráða siglingafróðan mann, sem
hafi á hendi formennsku, um-
sjón og viðhald á bátunum,
öðru en vélum. Loks verði svo
útbúinn öruggur legustaður
fyrir lóðsbátana.
Guðbjartur vill láta bæta
símakerfi hafnarskrifstofunnar
frá því sem nú er og lagður
verði innanhússsími frá hafnar-
skrifstofunni í vistarverur
vatnsmanna við höfnina.
5 umferðum lokið
í skákþinginu.
Fimmta umferð Skákþings-
ins var tefld í gær og varð að-
eins tveimur skákum lokið í
meistaraflokki, hinar fóru í bið.
Skákirnar, sem lokið varð,
fóru þannig að Benóný vann
Margeir en Steingrímur og
Anton gerðu jafntefli.
Nýlokið er einnig að tefla
biðskákir úr 2., 3. og 4. umferð
og lyktaði þeim að Margeir
gerði jafntefli bæði við Jón og
Arinbjörn, Anton vann bæði
Benóný og Ólaf, og Steingrím-
ur og Ingvar gerðu jafntefli.
Efstu menn eru ennþá þeir
Eggert Gilfer og Ingi R. Jó-
hannsson með 3Vz vinning og
eina biðskák hvor.
Sjötta umferð verður tefld á
sunnudaginn kemur.
Landanir á togarafiski í
Grimsby sýna, að þrátt fyrir
það að brezkir togaraeigendur
og togaraskipstjórar hafi hald-
ið því fram, að þeim væri bol-
að burt af fiskimiðum við Is- i
land með stækkun landhelg- i
innar, sækja þeir enn meira á |
íslandsmið en áður. Megnið af |
þeim fiski, sem landað var í
Grimsby í janúar, var úr tog-
urum, sém fiskuðu á íslands-
miðum.
Landanir í Grimsby voru 116
í janúar 1953, þar af 30 úr tog-
urum, sem fiskuðu á íslands-
miðum, en í janúar í ár 118
landanir og þar af 84 úr skip-
um, sem fiskuðu á íslandsmið-
um. Landanir voru 19 úr er-
lendum togurum.
Haft er eftir Turner, for-
mani Félags fiskikaupmanna,
að „aumt ástand“ hefði verið í
fiskmálunum, ef það hefði ekki
hjálpað upp á sakirnar, að er-
lendir togarar lönduðu.
Vetrdmæðiitgar-
nir komii frá
Fjallshlíðin
rennur fram.
Róm (AP). — Fimmtán hús
hafa smám saman grafizt undir
am-skriðu nærri borginni Mod-
ena, norðarlega í landinu.
Hlíð smáfjalls, sem heitir
Boschi, hefir smám saman ver-
ið að renna fram síðustu vikur,
stundum metra á klukkustund,
og er vitanlega engin leið að
stöðva skriðuna. Hefir hún graf-
ið 15 hús í þorpi við fjallsræt-
urnar, og 100 manns hafa orðið
húsnæðislausir.
Kaldir vindar frá Sibiríu
hafa blásið yfir allt meginland
Evrópu á undangengnum vik-
um, frá Noregi þar sem firðina
hefur lagt suður til Spánar, þar
sem fyrstu hríðarveður í hálfa
öld hafa geisað og Valenciu
appelsínuuppskeran hefir eyði-
lagst í kuldunum.
í Bretlandi voru olíuofnar al-
mennt teknir í notkun þegar
kolabirgðir þraut, því að erfitt
eða ógerlegt var að ná nýjum
hirgðum vegna snjóa. I Þýzka-
landi varð að grípa til flugvéla
til að flytja matvæli og aðrar
nauðsynjar til eyjanna í Eystra-
salti, m. a. til 400 barna, sem
voru í fríi á ey einni. í Frakk-
landi króknaði lasburða fólk
og húsnæðislaust úr kulda og
í Sviss, Austurríki, Júgóslavíu
og Grikklandi einangruðust
bæir og þorp. í Tékkóslóvakíu
og Ungverjalandi stöðvuðust
samgöngm- á járnbrautum.
Verksmiðjum varð að loka
vegna kolaskorts. í Póllandi jók
það erfiðleikana, að inflúenzu-
faraldur geisaði um landið
þvert og endilangt o. s. frv.
Einnig er athyglisvert hve
fiskverð er miklu hærra í jan-
úar í ár en í fyrra, sem sýnir
að almenningur verðuv að
kaupa fiskinn miklu hærra
verði en meðan íslenzkir tog-
arar lönduðu þar. Það var í
janúar í fyrra 2 stpd, 19 sh. og
1 pence kittið, en nú 4 stpd, 3
sh. og 8 p. kittið.
Eins og menn muna voru tvö
fyrirtæki sett í bann í Grims-
by, Jack Wright fiskkaupmað-
ur fyrir að kaupa fisk úr ísl.
togurum eftir löndunarbannið
og Standard Ice Coal, sem tók
þá 500 kitt til geymslu í frysti-
húsi sínu. Jack Wright var tek-
inn í sátt sem kunnugt er og
Standard Ice stóð til boða að
fá „syndakvittun" gegn j ví að
lofa að kaupa ekki framar eða
taka við togarafiski úr ísl. tog-
urum, en félagið hafnaði þessu
boði. Nú hefur því þó verið ar-
létt, án þess félagið gengi að
kúgunarskilyrðunum.
í þessari frétt het'ur verið
stuðst við uppl. í skýrslu frá
Woodcutt fiskimálaráðunaut ís-
lenzka sendiráðsins, að því er
varðar landanir og tölur.
Tvö innbrot.
Innbrot var framið í nótt í
verzlun Guðlaugar Björnsdótt-
ur við Suðurlandsbraut.
Stolið var meðal annars kúlu-
pennum, súkkulaði, konfekti,
vindlingum og vindlum og e.
t. v. fleiru. Allmikið var rótað
til og sennilega leitað að pen-
ingum, en þeir voru engir til
staðar.
í fyrrinótt var innbrot framið
í verzlun Bjarna Bjarnasonar
á Laugavegi 47 en ekki stolið
neinu svo sjáanlegt væri.
Dilkakjöt í Kron.
Ekki cru allar búðir dilka-
kjötslausar í dag, þótt hað hafi
verið ófáanlegt undanfarið.
Vísir frétti á 12 tímanum,
að KRON hefði fengið eitthvað
af dilkakjöti. Hringdi blaðið í
KRON á Skólavörðustíg 12 og
fékk þetta staðfest. Er því gæð-
um heimsins misskipt að þessu
leyti eins og mörgu öðru.
Ætia að bafa
kfarnorkuvopn
við hendina.
I opinberri skýrslu (hvítri
bók), sem birt var í London í
gær um landvarnamálin, segir
að horfur séu þær nú, að áfram
hald verði á köldu styrjöldinni,
en að heit «tyrjöld brjótist ekki
út um sinn.
I skýrslunni segir, að hafin
sé framleiðsla kjarnorkuvopna
í Bretlandi. Er lögð áherzla á,
að ef til styrjaldar kæmi, yrði
að hafa slík vopn við höndina,
og yrði því stefnan sú að byggja
varnirnar á grundvelli nýjustu
þekkingar og tækni. M.a. verð-
ur lögð áherzla á aukningu
sprengjuflugvélaflotans, á fram
leiðslu fjarstýrðra eldflauga o.
s. frv. Gert er ráð fyrir, að
frekar verði fækkað í land-
hernum en hitt, og munu verða
kvaddir til vopna um 199.000
hermenn á árinu. — Ekki þyk-
ir fært að fara lengra en gert
hefur verið í að lækka útgjöld-
in til flotans.