Vísir - 19.02.1954, Blaðsíða 8

Vísir - 19.02.1954, Blaðsíða 8
VfSIR er ódýrasta blaðið og bó bað fjöl- breyttasta. — Hringið í síma 1660 og gerist áskrifendur. Þeir sem gerast kaupendur VÍSIS eftir 10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. — S'ími 1660. Föstudaginn 19. febrúar 1954 GefrauMÍn : vaða leikarar - í í hvaða hlufverkum? 7. MYND Myndin sýmt sem Þrenn verðlaun verða veitt, en svari fleiri en þrír rcttl að öllu leyti, verður hlutkesti að ráða. VERÐLAUNIN ERU ÞESSI: 1. Ritsafn Jóns Trauta, 2. Linnschiff hringbökunarofn, I 3. Ársáskrift á Vísi. Geymið myndirnar, þar til getrauninni er lokið, er I birtur verður seðill fyrir svör við öllum myndunum. Bíll rennur ofan í djúpt gil á Bröttubrekkuleið. Fímm farþegar í bífnum ea eagaa sakaðr. Það óhapp vildi til á Bröttu- brekkuleiðinni í fyrradag að bifreið fór út af veginum og niður í djúpt gil, sent Miðdals- gil heitir. Var áætlunarbifreið að koma vestan úr Dalasýslu og var á suðurleið. Stjórnandi hennar var Júlíus Sigurðsson, þraut- reyndur bifreiðarstjóri og voru nokkrir farþegar með honum. Á háfjallinu var þungfært og var önnur bifreið, sem var með drifi á öllum hjólum, fengin til þess að aðstoða áætlunarbif- ina með því að draga hana á taug yfir þungfærustu kaflana. Fyrir ofan Miðdalsgil liggur vegurinn utan í brattri brekku og á þeim kafla má ekkert koma fyrir svo bifreiðin hrapi ekki ofan í gilið. Og einmitt þarna skeði óhappið. Áætlunar- bifreiðin missti hjólfaranna, bifreiðarstjórinn gaf hljóð- merki, en bifreiðarstjórinn á bílnum sem dró, heyrði það ekki. Skipti það engum togum að bifreiðin fór heila veltu, en rann síðan aftur á bak á hjól- unum niður snarbratta brekk- una. Bifreiðarstjórinn, sem sá, hvað verða vildi, snaraðist út um glugga á síðustu stundu og meiddist við það eithvað á öxl. Fimm farþegar voru inni í bílnum þegar hann fór út af og fóru þeir allir með honum niður í gilið, en engan þeirra sakaði. Má það kallast hrein- asta mildi með tilliti til þess ini árangurinn af Berlínarfund- - ráBstefna í Genf i apríl, [swii læicte I Fundur var haldinn í bæjar- stjórn Reyltjavíkur í gær, og var fjárhagsáætlun bæjarins til síðari umræSu. Gunnar Thoroddsen borgar- stjóri flutti ræðu, og skýrði þá m. a. frá því, að í ár yrði heiid- arupphæð útsvara áætluð svip- uð eða heldur lægri en í fyrra, en það þýðir, að útsvörin lækka verulega, þar eð vitað er, að tekjur einstaklinga og fyrir- tækja hafa yfirleitt verið all- miklu meiri í fyrra en í hitteð- fyrra. Eins og menn muna var út- svarsstiginn lækkaður talsvert árið 1953, fellt niður 5% álag, en auk þess gerðar útsvars- frjálsar. tekjur allt að 15 þús- und krónur í stað 7 þús. áður. Lagt er til, að veittar vetði á þessu ári 300 þús. krónur til dvalarheimilis aldraðra sjó- manna í Laugarási, og að fram- lag til Iðnskólans verði hækk- að úr 475 þús. í 750 þús. Hér sjá menn nýjustu mynd- ina af Winston S. Churchill. Rétt er þó að geta þess, að þetta er ekki æskumynd af forsætis- ráðherra Breta, heldur er þetta sonarsonur hans, sonur Rand- olphs Churchill, og fyrri konu hans, Pamelu Digby, og er drengurinn alnafni afa síns. T.B.R. byggir íþrótta- hús. l>ai* verftsí m.a. 4-5 badmintoiivellír og 1 íennisvöllur. hve gilið er bæði bratt og djúpt. En bæði er það að bíllinn rann á réttum kili niður og svo hitt að nokkur snjór mun hafa verið í gilinu og dregið úr mesta hraðanum . og fyrir bragðið hafa farþegarnir sloppið ó- meiddir. Rúður munu hafa brotnað í bílnum við veltuna og einstök mildi að brotin slösuðu ekki far þegana. Stúlka sem sat hjá bif- reiðarstjóranum í framsæti var þó hætt komin, en það vildi henni til láns að nokkru áð- ur hafði henni orðið kalt í bíln- um og til þess að fá í sig hita tók hún skinnklædda kulda- úlpu og vafði henni um höfuð- j ið. Þegar bíllinn var kominn niður í gilið og stúlkan vafði, úlpunni utan af sér var úlpan öll skorin og glerbrot í henni j hingað og þangað, en piálí'a sakaði stúkuna ekki. Bifreiðin mun eithvað hafa skemmst en ekki vitað méð fullri vissu hve mikið. Hefur leiðangur verið gerður út til þess að reyna að ná henni upp. í morgun var sendur krana- bíll sem Vegagerð ríkisins átti í Borgarnesi upp á fjallið til þess að reyna að ná hinni hröp- uðu áætlunarbifreið upp. Ari Guðmundsson vegaverkstjóri úr Borgarnesi fór einnig á stað inn ásamt flokki manna til þess að aðstoða við björgunina og var gert ráð fyrir, að þeir myndu taka til starfa um átta leytið í morgun. Tennis- og badminíonfélag Reykjavíkur hefur mjög í hyggju að koma upp stóru íþróttahúsi hér í bænum fyrir starfsemi sína. Inni í þessu húsi hugsa for- ráðamenn félagsins sér að kom- ið yrði upp 4—5 badminton- völlum og einum tennisvelli, en auk þess þar svo hægt að iðka ýmiskonar knattleiki og aðrar íþróttir. Tennis og badmintonfélagið heíur verið í hreinasta hraki með húsnæði fyrir starfsemi sína að undanförnu. Það hefur orðið að leita á náðir íþrótta- húsa og skóla í bænum með eina og eina æfingu í senn og þannig hefur félagið orðið að flytjast milli K.R.-hússins, íþróttahússins að Hálogalandi, íþróttahúss Háskólans, Lang- holtsskóla, Laugarnesskóla, Austurbæjarskóla, Gagnfræða- skóla Austurbæjar og Mela- skóla. Áhuginn fyrir badminton eykst nú mjög ört og á s. 1. ári gengu 45 ungir menn og konur í félagið Félagið fékk ágætan Ovenjuleg tillitsseirJ. f enskum blöðum segir ný- lega frá óvenjulegum viðskipt- um manns við símaþjónustuna. Maður þessi keypti sem sé símaklefa, sem ekki var lengur þörf fyrir. Hefir maðurinn flutt klefann heim til sín, og æfir sig þar á harmóniku, án þess að trufla sambýlismenn sína. danskan badmintonkennara í fyrravetur og kenndi hann einnig badminton utan Reykja- víkur. Virðist áhugi fara vax- andi fyrir badminton í flestum kauptúnum og kaupstöðum landsins og sumstaðar er hann í orðinn mjög mikill. Tennis og badmintonfélag | Reykjavíkur hefur samæfingarj í badminton alla laugardaga og i þar af er byrjendum kennt annan hvern laugardag, en hinn iaugardaginn eru æfingar fyrir þá sem lengra eru komnir. Virðist fyrirkomulag þetta gef- ast mjög vel og áhugi mikill í félaginu. Félagar eru alls rúm- lega 200 talsins. Það sem félaginu háir mest er húsnæðisleysið eins og áður getur. Félagið er þegar búið að fá vilyrði fyrir lóð undir íþróttahús í Laugardalnum en ekki verið endanlega úthlutað henni enn sem komið er. Félag- ið væntir þess þó að það verð’ gert í vor og að þá strax verði byrjað á byggingunni. Aðalfundur Tennis- og bad- mintonfélagsins var haldinn 16. þ. m. og var stjói’n þess endurkosin, en hana skipa Þor- valdur Ásgeirsson formaður en meðstjórendur þeir Friðrik Sig- urbjörnsson, Guðmundur Árna- son, Magnús Davíðsson og Pét- ur Nikulásson. 0 Sir Ralph Stevenson, sendi- herrá Breta í Kairo, ræddi í gær í 40 mínútur við e- gypzka utanríkisráðherrann. Ekkert samkomu- lag um aðalmálin. Kn J>« var ráðsíefia- aia læa*flóiBSsrák. Einkaskeyti frá AP. Lonon í morgun. Berlínarráðstefnunni lauk x gær, án þess nokkurt samkomu lag næðist um Þýzkaland og Austurríki. Dr. Figl utanríkis- ráðherra Austurríkis bar fram málamiðlunartillögu á seinustu stundu, en Moloíov hafnaði henni. Utanríkisráðherrar Vestur- veldanna létu í ljós vor.brigði yfir, að ekki náðist samkomu- lag um Þýzkaland og Austur- ríki, en telja það ávinning, að sam- komulag varð um að kveðja saman ráðstefnu í Genf 26. apríl n.k. til þess að ræða friðsamlega lausn Kóreu- deilunnar og hversu koma mætti á friði í Indókína. Stjórninni í Peking verður boðio að senda fulltrúa á þá ráðstefnu, enn fremur Suður- og Norður-Kóreu og fulltrúum allra þeirra þjóða, sem börðust gegn kommúnistum í Kóieu. Tilslakanir voru gerðar af beggja hálfu, til þess að sam- komulag gæti náðst í þessu efni. í tilkynningu um Berlínar- ráðstefnuna segir, að samkomu- lag hafi einnig náðst um, að haldið yrði áfram tilraunum til’ þes að ná samkomulagi um af- vopnunarmálin og vísað til á- lyktunar allsherjarþings Sam- einuðu þjóðanna um þessi mál, frá því í nóvember s.l. Umræða um utanríkismál verður í neðri málstofu brezka þingsins í næstu viku og flytur Eden þá skýrslu um Berlínar- ráðstefnuna. Dulles sagði í gær, að ráð- stefnan hefði verið lærdóms- rík fyrir fulltrúana í vestri og þeir sæju eftir á skýrara en áður það djúp skoðanamunar, sem ríkjandi væri milli austurs og vesturs. Taldi hann til bóta, að ráðstefnan var haldin og mikilvægt, að haldin yrði ráð- stefna um Kóreu og Indókína, þar sem slík ráðstefna gæti greitt fyrir samkomulagi um friðarráðstefnu um Kóreu. Kommúnistar í Austur-Ber- lín gengu um göturnar í gær og létu í ljós aðdáun og vel- þóknun á Molotov og tillögum hans. í Vestur-Berlín voru farnar kröfugöngur til þess að halda fram kröfunni umfrjáls- ar kosningar og kom fram ein- dreginn stuðningur við Vestur- veldin. Schreiber borgarstjóri’ flutti ræðu. Kommúnistar reyndu að hafa óspektir í frammi, en mistókst það, 20 þeirra voru handteknir. 3 millj. atvinnuleysingja eru nú í Bandaríkjunum og hafa aldrei verið fleiri síðan 1952. Eisenhower forseti hefur boðað sérstakar ráðstafanir, ef ekki fer að draga úr at- vinnuleysinu í marz eins og vanalega.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.