Vísir - 06.03.1954, Qupperneq 5
Laugardaginn 6. marz 1954
VI S I R
Islenzkur prestur settur í
embætti í Vesturheimi.
VirBuleg athöfn í Lundakirkju, þegar síra
Bragi Friðriksson tók við prestsstörfum þar.
Síra Bragi Friðriksson, hinn
nýi prestur islenzka safnaðarins
I Lunda- og Langruthsóknum í
Kanada var settur í embætti við
sérstaka athöfn í Lundakirkju
34. jan. s.I.
Prestshjónin, síra Bragi og
Katrín Eyjólfsdóttir, fóru vest-
ur um haf skömmu fyrir jól og
messaði síra Bragi í fyrsta
skipti á jóladag.
Vestur-íslenzka blaðið Lög-
berg skýrir frá embættisinn-
setningu síra Braga og þar seg-
jr m. a.:
Stjórnaði dr. Valdimar J.
Eylands, forseti hins ísl.-lút-
erska kirkjufélags, athöfninni
og setti sr. Braga hátíðlega í
embættið.
Sr. Haraldur S. Sigmar á
Gimli prédikaði, en kveðjur
flutti sr. Jóhann Friðriksson í
Glenboro, fyrrv. sóknarprestur
að Lundum, og gaf hann sr
Braga að lokum til heilla lykil
að kirkju staðarins, er hann
hafði eignazt 1931, þegar hann
þjónaði þar í fyrsta sinn, og
ætíð átt síðan.
Sr. Robert Jack flutti og
kveðjur frá söfnuðum sínum í
Nýja íslandi og árnaði starfs-
bróður sínum alls hins bezta.
Kvaðst hann vona, að þeir gætu
síðar prédikað hvor í annars
kirkjum og átt þannig ánægju-
lega samvinnu.
Er sr. Bragi hafði verið sett-
ur í embættið, prédikaði hann
á báðum málunum, tónaði og
flutti bæn, og þótti öllum mik-
ið til koma. Lauk þar hinni
kirkjulegu athöfn.
Fjölmennur kór söng sálma
bæði á undan og eftir, en organ-
leik annaðist frú Rósa Hjartar-
son. Hvert sæti í kirkjunni var
skipað.
Að athöfninni lokinni var
öllum boðið til samsætis í sam-
komuhúsi bæjarins, þar' sem
borið var fram kaffi/ og aðrar
veitingar af hinni mestu rausn.
Laugi Breckman, forseti Lunda-
safnaðar, stýrði samkomunni
röggsamlega og kvaddi hvern
af öðrum upp til ræðuhalda.
Fluttu allir aðkomuprestarnir
fjórir ræðu, en auk þeirra Njáll
Bárdal, féhirðir kirkjufélags-
ins, og próf. Finnbogi Guð-
mundsson.
Síðast talaði sr. Bragi Frið-
xiksson og þakkaði öllum við-
stöddum, kirkjufélaginu og
söfnuðum sínum hinar, hlýju
viðtökur, er þeim hjónum hefðu
veriö yeittar, og, kvaðst, ekki
betur geta l^st þeim, en , með
því að segja, að þeim fyndist
sem þau væru komin heim.
Samkoman var hin fjölmenn-
asta og íofar góðu um farsælt
samstarf prestshjónanna og
safnaðaríns norður þar.
Næturverðimir.
Næturverðimir heitir spenn-
andi leynilögreglusaga, sem
komin er út hjá nýrri útgáfu,
Regnbogaútgáfunni.
Fjallar hún um lögreglu-
mann, sem á að handsama.
bankaræningja, en ákveður að
ráða manninn af dögum og
njóta sjálfur ávaxtanna af af-
broti hans. Er sagan mjög
spennandi, og bókin gefin út í
snyrtilegum búningi, vasabók-
arbroti.
betur verkum þessa ágæta list-
málara. Sum málverkanna eru
í einkaeign, en flest í eign ým-
issa einstaklinga, sem hafa lán-
að þau á sýninguna.
Glæsileg sýning iöns
Stefáitssonar.
í dag er næsísíðasti dagurinn,
sem opin er sýningin á nýjum
málverkum eftir Jón Stefáns-
son og eru því seinustu forvöð
á morgun fyrir listunnendur,
að skoða hana.
Öll þau málverk, sem á þess-
ari sýningu eru, hafa verið gerð
á síðari árum, svo að hér er
um einstakt tkæifæri fyrir þá
að ræða, sem áður skoðuðu yf-
irlitssýningu þá, sem haldin
var í tilefni af sjötugsafmæli
listamannsins í Listasafni rík-
isins, til þess að kynnast enn
Þarna er hvert málverkið sérkennilegu hestamyndir Jóns,
níSrii fr>n"nrra m q fvó „i____ 'm
öðru fegurra, m. a. myndir frá
Þingvöllum, og myndir af Ing-
ólfsfjalli, Búrfelli og Esjunni,
Suðurfjöllinn, ot' svo eru hinar
sem hér sjást sýnishorn af.
Hestar í þoku og Svarti folinn.
Sýningin er í Listvinasalnum,-
við Freyjugötu.
Minningarspjöld
Styrktar- og sjúkrasjóðs verzlunar- !
manna í Reykjavík
Það bczta verður ódýrast, fást hjá:
notið því
BOSCH -kcrti Skrifstofu V. R., Vonarstræti 4. Jörgen I. Hánsen, Tjarnargötu 4. Guðm. Þórðarsyni, S. í. F.
| í mótorinn.
.V.V«V^o,WiA.%%WWVbViAAVWWVi,W1iVV,«Vb-
leynilögreglusaga —;
Fæst nú þegar af öllum Shell-
benzíndælum í Reykjavík og nágrenni.
íÆlk
EINKALEYFI I UMSDKN
Hindrar glóðarkveikju og
skammhlaup í kertum.
Veigamiklum orsökum orku-
taps og óþaría benzíneyðslu
hefur nú venÖ rutt úr vegi -—
af sérfræðingum Shelífélag-
anna. Eingöngu „Shell“-
benzín með I.C.A. kemur í
veg fyrir hin skaðlegu áhrif
af völdum glóðarkveikju cg
skammhlaups í kértum.
Notið eingöngu „Shell“-
benzín með I.C.A., er eykur
orku hreyfilsins ok géfur
honum jafnari og þýoarigang.
„Sheíl“-benzm með Í.C.Á. er
: árangur fimm ára rannsókn-
arstarfs cg 120 milljóna kíló-
metra reynsluakstúrs Við hin
■ i i ti. . Lvl'- yJlitip' '
: oVfiðustu skilýrðiy#rterfeyiir
! vJK'-di-! id íltlíA>J líiCvd.V-.il .\x álílfKK- I
á öllurn tegundum bifreiða í
Bandaríkjum N.-Ameríku um
8 mánaða skeið, með af-
bragðs árangn.
ÆL
j&Mat í
Eingöngu „Shell“-bes«z»8t
inniheídur I.C.A.
Þér getið sjálfir saita-
færst ini kosti I.C.A.
Þær niðurstöður, er rannsóknar- og tilrauna-
stöðvar Shell-félaganna hafa komizt að,
gcíi þér sjálfir sannfærst ,um, að eru féttay.
Rcynið hið nýja „Shell“-benzín méð I.C.Á.
Eftir tvær áfyllirigar munið þér finna mun
á afköstum hreyfilsins.
Þrátt fyrir aukin gæÖi
er verÓÉÖ óbreytt.
Aukin orka — Jafnari gangur — Lengri ending