Vísir - 03.04.1954, Side 4
4
VISIR
Laugárdaginn 3. apríl 1954
- ■
DAGBLA.Ð ■. | M [
Ritstjóri: Hersteinn Pálsson.
Auglýsmgastjóri: Kristján Jónsson.
Skrifstofur: Ingólfsstraeti 3.
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VtSIR H.F.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Sími 1660 (fixnm linur).
Lausasala 1 króna.
Félagsprentsmiðjan h.f.
í kfiikiMjHdakewitoim ?
wisxm
„Söguleg tí&indj."
Igærmorgun birtu ,öll andstöðublöð Sjálfstæðisflokksins í
bænum gleiðletraðar fyrirsagnir og langar greinar útaf ti!-
lögu um húsnæðismálin sem glundroðafylkingin lagði sameig-
inlega fram á síðasta bæjarstjórnarfundi. Það mætti ímynda
sér að tillaga, sem helgað er svona mikið rúm og „slegið svo
stórt upp“, fæli í sér einhvérja varanlega lausn á þessu vanda-
mál og bætti, ef samþykkt gerði, verulega úr húsnæðisþörfinni
í bænum. En við nánari athugun kemur í ljós, að þarna eru
engin nýmæli á ferðinni, aðeins hin venjulega sýndarmennska,
sem einkennir allar tillÖgur og alla gagnrýni þessara flokka í
bæjarmálunum.
Hvað var þá efni þessarar tillögu? Það var hvorki meira nc
minna en áskorun til méiri hluta bæjarstjórnarinnar um að
láta fara fram „rannsókn á heilsuspillandi húsnæði“.
í heilbrigðissamþykkt bæjarins frá 1950 er ákvæði um
þetta atriði. í hana voru tekin upp mörg nýmæli, sem síðr.n
hefur verið unnið að framkvæmd á, eftir því sem framast
hefur verið unnt, enda þegar orðnar mikilvægar umbætur í
mörgum greinum.
Hitt vilja fulltrúar glundroðaflokkanna í bæjarstjórn ek«i
skilja, að engir möguleikar hafa verið til að koma fram öllurn
þeim umbótum á skömmum tíma, sem gert er ráð fyrir í
reglugerðinni. Slíkar umbætur hljóta að taka sinn tíma.
Borgarstjórinn sagði frá því á fundinum, að hann hefði
rætt við borgarlækni um að framkvæmd 34. gr. samþykktarinn-
ar, sem fjallar um heilsuspillandi húsnæði. Slík athugun væri
vitanlega sjálfsögð, enda þótt ekki mætti telja hana aðal-
atriðið í húsnæðismálunum, því raunhæfar aðgerðir væru mik-
ilvægari en eintómar athuganir og rannsóknir.
Meirihluta bæjarstjórnar er vel kunnugt um húsnæðismál
bæjarins, og hann hefur tekið þau svo föstum tökum undir
forystu núverandi borgarstjóra,að þess munu fá eða engin dæmi,
að bæjarfélag hafi áorkað svo miklu á því efni á svo skömm-
um tíma. Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins hafa þar ekkeit
nýtilegt fram lagt, hvorki í orði eða á borði. Allir vita um af-
stöðu Framsóknarmanna fyrr og síðar, nema þegar þeír hafa
þurft að ná í atkvæði við kosningar, og hinir flokkarnir hafa
þar aldrei annað gert en bera fram sýndartillögur til þess að
blékkja kjósendur, og hefur sá venjulega þótzt mestur, sem
flutt hefur fáránlegustu og óframkvæmanlegustu kröfurnar.
Það er því ekki að undra, þótt Þjóðviljinn kalli það, ánægjuleg
„og söguleg tíðindi“ þegar þessi sundurleita sundrungarhjörð
nær samkomulagi um að standa óskipt að tillögu, sem ci
ekkert annað en endurtekning á ákvæðum, sem fyrir lönga
er búið að samþykkja, fyrir forgöngu annarra manna, og a.
m. k. óbeint farið að framkvæma fyrir löngu. Því þó að
skrá sú, sem gert er ráð fyrir í samþykktinni, hafi enn ekki
verið samin, þá er heilbrigðisnefnd bæjarins og borgarlækn'r
vitanlega kunnugt um, hvar ve'rst er ástatt; og úr því hefur
verið reynt að bæta eftir föngum, og því verður haldið áfrarn,
hvort sem skráin verðúr fullgerð nokkrum mánuðum fyrr eöa
seinna.
Hér er því ekkert á ferðinni annað en hin venjulegi
vinnubrögð andstæðinganna, að blekkja bæjarbúa og reyna að
telja þeim trú um að Sjálfstæðismenn séu alltaf að drepa til -
lögur um velferðamál þeirra.
Þetta var vopnið, sem átti að sigra með í bæjarstjórnar-
kosningunum í vetur, þegar svo langt var gengið, að jafnvel
Framsóknarmenh þóttúst hafa háð sleitulausa baráttu til þess
að bæta úr húsnæðisþörf Reykvíkinga!! og fulltrúi. Alþýðu-
flokksins fánn upp hina smekklegu samlíkíngu um fjósið, í
ræðu, sem ekki benti til að honum væri sérlega sýnt um þrifnað
í málflutningi. En ekkert dugði. Bæjarbúar treystu Sjálfstæðis-
flokknum, enn sem fyrr, bezt til þess að stjórna málum sínum,
og frá honum mun þeir, nú eins og áður, mega vænta þeirra
umbóta, sem framkvæmdar verða bæði í húsnæðismálum og
öðrum efnum næstu árin.
Eins og frá hefur verið skýrt í blöðum flokksins eru miklai
byggingarframkvæmdir fyrirhugaðar, og lóðir eru nú þegar til
ráðstöfunar fyrir fleiri íbúðir en um hefur verið sótt. Af þeim
hefur 400 verið úthlutað og verið er að undirbúa áframhaldandi
úthlutun. Má því vænta að byggingaframkvæmdir geti haf’sí
óvenjulega snemma í vor. Meiri hluti bæjarbúa mun áreiðan-
lega telja þessar aðgerðir áhrifaríkari til útrýmingar á heilsu-
spillandi íbúðum en sýndártillögur kommúnista og taglhnýt-
inga þeirra.
Shirley Temple, sem einu
sinni var frægust allra barna-
„stjarna“, er fyrir löngu hætt
kvikmyndaieik.
Maður hennar á að hafa látið
í ljós andúð sína á þess konar
starfsemi. Hins vegar getur
vel verið, að hún fari að koma
fram í sjónvarpi.
Suður-Amcrikumaðurinn
Femanda’ Lamas, sem sumar
konur segja, að sé sá „sætasti
í heimi“, er eimt fárra karl-
manna rneðal Holíywoodleik-
ara, sem mælir með því, að
karlmenn noti varalit. Vara-
liturimi er sagður vekja enn
meiri athygli á mjallhvítum
tönnum hans. — Ekki er öll
vitleysan eins, — segjum vér.
Lex Barker, sem léikið hefir
Tarzan upp á síðkástið, var
farinn að vona, að hann fengi
hlutverk, þar sem hann má
vera í fötum, eins og annað
fólk. Þetta hefur þó brugðizt,
hvað sem kann að valda og
hefir hann enn xmdirritað
samning um fleiri Tarzan-
myndir. Lana Tumer, sem
hann er sagður trúlofaður, vill
nefnilega, að hann vinni líka.
Patrice Wymore Flynn, kona
Errols, sem reykvísúm bíógest-
tun er vel kunnur, mun ætla
að fara fram á skilnað frá hin-
um fræga bónda sínum, en skil-
yrði hennar sýnast heldur ó-
aðgengileg: 1) Álger umráða-
réttur yfir barni þeirra. 2)
Skattfrjálsar tekjur, 25.000
dollara á ári. 3) Helming af
sameign þeirra á Jamaica í>
Vestur-Indíum. Aðrar kröfur
gerir HÚN ekki, og ætlar ekki
að „nefna nein nöfn“.
Clark Gabel og Spencer
Tracy, sem báðir eru með vin-
sælustu kvikmy nd aleikur um
samtíðarinnar, eins og alkunna
er, hittust á dögunum, og kom-
ust þá að raun ura, að þeir ættu
það sameiginlegt, að hafa báðir
leikið á hljóðí'æri. Spencer
Tracy lék á horn í skólaliljóm-
sveitinni, en Gable þótti lið-
tækur trombón-spilari.
Ung leikkona, sem líkleg er
tl vinsælda í Bandafíkjxlnum,
Terry Moore að nafni, vakti ný-
lega á sér mikla ahygli er hún
skemmti hermönnum með dansi
í Kóreu. Hún var í einskonar
baðfötum, sem brydduð voru
skinni, og þótti flík þessi svo
djarfleg, að henni var bannað
að sýna sig í henni á slíkum
stöðum. Auðvitað varð þetta.
til þess að vekja enn meri at-
hygli á leikkonunni, og mikið;
um ,þetta rætt í . kvikmynda-
blöðum. Húsbændum Terrys,
Fox-félaginu, Hkaði þetta svo
vel, að þegar hún kom heim
aftur á dögunttm, gáfu þeir.
henni dýrindis bifreið og loð-
feld úr minkaskinnum.
Söngkonan Doris Day er gift
Marty Melcher, og yitum vér
engin deiíi ó honum. Hins veg-
ar mun liggja yið borð, að þáu
rifti hjúskapnum, aðalíega
vegna bess, að Marty þessi taí-
ar of mikið, að sögn Dorisar, og
við það verður hún taugaóstyrk.
Þá er sagt frá því í nýjum
Hollywoodblöðum. að hjóna-
band Gregory Pecks og Gretu,,
konu hans, sé ekki upp á marga
fiska. Þó virðist Peck vera slík-
ur öðlingur, að enda bótt þau
séu skilin að borði og sæng, og
hann staddur í fjarlægu landi
við kvikmyndatöku (á Ceylon).
gleymir hann ekki að senda
henni forkunnar fagra gim-
steina, safír-steina, 400 karat.
ekki tekið þátt í leikjum ann-
Annette Kellermann vakti á
sínum tíma hneyksli með því
að láta sjá sig á baðfötum, þar
sem handleggir og fótleggir
sáust berir, og hún var meira
að segja handtekin fyrir slíka
yfirsjón. Hún var þolsundkona,:
en þó var hún svo máttfarin og
veikuleg sem barn, að hún gat
Paulette Goddard — sem hér
sást síðast í Önnu Lucasta —
varð fræg er nún koriist í kynni
yið Chaplin.
Hánri lét hana leika aðal-
hlutverk í einni mynd sinni og
kvæntist henni síðan. Þau eru
löngu skilin, og Chaplin giftist
Oona O’Neil, þótt hann hefði
getað verið afi hennar. En
Paulette ætlar að giftast rit-
höfundinum Erich Maria Rem-
argue . (Tíðindalaust á vestur-
vígstöðvunixm) á næstunni.
Esther Wiliiams í
nýrri sundmynd.
Esther Williams leikur aðal-
hlutverkið í kvikmynd, sem
nefnist „Gullna hafmeyjan“,
og fjallar um ævi kunnrar
sundkonu, Annette Kellermann.
arra barna. í mynd þessari fær
Esther Williams auðvitað tælci-
færi til þess að sýna sundlistir
sínar, en auk þess leika þar
Victor Mature (Samspn),
Walter Pidgeon og David Brian.
Mervyn Le Röy setur myndina
Nýkomtn
skemmtileg
lamatejopi
mörg mynstur í biáum
og bieikum lit. Verð
kr. 27,00.
Verzl. FRAM
Kiapiíarstíg 27.
Sími 2937.
I 11-
myn-davél með Sonnar
1/2 iinsu og.fl, tii söiu.
Úppl. i síma 82639 eítir
kl. 5.
Kristján Guðiaugsson,
hæstaréttariögmaður.
Skrifstofutími 10—12 og
1—5. Austurstræti 1,
Sími 3400.
Rétta leiðin er að kaupa
heldur innienda fram-
leiðsiu. HELLU-ofnarmr
hafa 18 ára reynslu hér-
iendis. Spyrjið um kosí-
ina og verðið.
fíft %OFNASMIÐJAN
CIN H O CTI IO - HíVKMVÍIC - ISLANOI