Vísir - 24.04.1954, Blaðsíða 8
I VfSIR «r ódýrasta Maðl:3 það fjöl- nmni /ðPB chp phmp Þeir sem gerast fcaupendur VtSIS efHr
f fcreyttaata. — Hrlngíð í slma WIMIM 10, fcvers mánaSar fá blaSið ó&eypfc tH
gerist áskrlfendmr. mánaðamóta. — Súni 1604,
iLaugai-dagmn 24. apríl 1954.
til Flimfands í norgun
Stokkhólmi í morgun.
Einkaskeyti til Vísis.
Hinni minnisstæðu Sieimsókn
íorsetahjónanna íslenzku til
Stokkhólms er nú iokið. og í
■smorgun héldu ]iau flugleiðis til
Finnlands.
í gærkveldi hafði forseti Is-
lands boð inni fyrir konungs-
hjónin og fleira stórmenni að
Grand Hotel Royal. og þótti
’hófið með glæsibrag.
Borgarstjórn Stokkhólms-
borgar hafði og boð inni í gær í
ráðhúsi Stokkhólmsborgar.
Stadshuset, og voru þar sam-
ankomið um 250 manns, þar á
meðal konungshjónin, prins-
arnir Bertil og Wilhelm. dr.
Helgi P. Briem sendiherra. dr.
Fristinn Guðmundsson utan-
ríkisráðherra og sendiherrarnir
Öhrwall og Otto Johannsson og
Poussette.
Hófið var haldið í Gylta saln-
um. mesta viðhafnarsal ráð-
hússins, sem var fagurlega
skreyttur.
Carl-Albert Andei'sson, for-
.seti borgarstjómar og fleiri
synií'
í Listvinasalnisðii
Ungur listmáiari, Jóhannes
Geir Jónsson, opnaði í gær sýa
ingu í Listvinasalnum við
tFreyjugötu, og seldust þegar 5
xnyndir við opnunina.
Á sýningunni eru 50 pastel-
myndir og nokkrar vatnslita-
tnyndir. Sýningin verður opin
næstu 10 daga frá kL 2—10
■daglega,_____________________
forsvarsmenn borgarstjórnar-
innar ávörpuðu konungs- og
forsetahjónin, en drottningu,
forsetafrú og' prinsessunum
vorú fæfð blóm. Þá var kór-
söngur, en auk þess lék flokkur
úr útvarpshljómsveitinni
Áður hafði forseti skoðað
forngripasafn Svía, en þar tók
á móti honum Sven Jansson
dósent, sem ávarpaði hann á ís-
lenzku.
íynrlsstrar
Jdnasar Jónssonar
Jónas Jónsson skóiasíjóri
hefur sem kunnugt er haldið
nokkra fyrirlestra um skóla-
mál í útvarp og verður nú
framhald á.
Fyrirlestrarnir, sem haldnir
hafa verið, voru einskonar inn-
gangur að þeim, sem á eftir
áttu að koma. Nokkurt hlé hef-
ur orðið á fyrirlestrunum, en
nú hefur verið ákveðið. að þeir
verði næstu 3 sunnudaga í röð,
hinn fyrsti kl. 13.15 á moi'gun,
og á sama tíma hina dagana.
Fyrsti fyrirlesturinn verður um
barnagæzluna, annar um ung-
lingafræðsluna og sá þriðji um
menntaskóia og háskólamál.
J. J. mun í þessum fyrirlestr
um leggja áherzlu á ný úrræði
til þess að bæta móðurmáls-
kennsluna og þá einkum á bók-
menntalegu hliðinu og aukna
kennslu í íslenzkum fræðum
Þessir fyrirlestrar verða
væntanlega upphaf að víðtæk-
ari umræðum um þessi mál.
Friirik Óiafsson hraðskáktndsíari
Íslands
Vann með mSklum yfirburðuin
Friðrik Ólafsson.
Smrmála-
samkoma í
Stangaveðiifél.
Fyrirtaks afli í verstöðv-
unum í gær
Fregnum úr verstöðvum í
«norgun ber saman um, að afli
hafi verið ágætur í gær, enda
%>líðskaparveður.
Grindavíkurbátar öfluðu á-
.gætlega, að því er fréttamaður
Vísis tjáði blaðinu í morgun.
Xínubátar fengu 8—10 lestir,
og er það mikill afli. í dag eru
allir bátar á sjó, enda einmuna
gott veður.
Bátar, sem róa frá Keflavík,
vöru einnig með fyrirtaks afla
i gær. Línubátar voru með J0
—16% lest, en netjabátar voru
ainnig með mjög góðan afla.
í gær kom Reykjaröst inn með,
30 lestir. í dag er hvítalogn á
miðum Keflavíkurbáta, og allir1
bátar á sjó.
Svipaða sögu er að segja frá
Sandgerði. Þar fengu bátarnir
yfirleitt 10—15 lestir. Þaðan
róa allir bátar í dag.
í gær var einn bezti dagur
.Hafnarfjarðabáta, sem komið
heur í vertíðinni. Bátar fengu
10 lestir eða þar yfir, sem er
fyrirtaks afli.
Vestmannaeyjabátar öfluðu
afbragðs vel í gær, fengu flestir
1500—2000 fiska. f dag eru all-
ir bátar á sjó, enda stillilogn
' Og sumarbliða.
Brengjahlaup
Araiams fer fram
á morgun
Hið árlega drengjahlaup Ár-
manns fer fram á morgun,
sunnudaginn fyrstan í sumri og
hefst kl. 10.30 árd.
Keppt er í þriggja og fimm
manna sveitum. Keppendur eru
aðeins 11 að þessu sinni, 1 frá
K.R., 3 frá Í.R. og 7 frá Ár-
manni.
Vegalengdin er um 2.2 km.
Hlaupið hefst við Iðnskólann í
Vonarstræti, þaðan hlaúpin
Tjarnargata, suður á móti Há-
skólanum, yfir Vatnsmýrina, á
Njarðargötu, inn í Hljómskála-
garðinn og lýkur hlaupinu á
Fríkirkjuvegi á móti Bindindis-
höllinni. í fyrra vann Ármann
bæði þriggja og fimm manna
sveitarkeppnina og bikara þá
sem keppt var um ti eignar. Nú
er keppt um nýja bikara sem
Eggert Kristjásson stórkaup-
maður hefur gefið fyrir 3ja
manna sveit og Jens Guð-
björnsson fyrir 6 manna sveit-
arkeppnina.
Stangveiðifélag Reykjavíkur
efndi tii sumarmála skemmti-
og fræðslusamkonui í gær-
kvöldi og voru þar saman
komnir fjölda margir félags-
menn og konur þeirra, frétta-
menn og nokkrir aðrir gestir.
Sæmundur Stefánsson stór-
kaupmaður bauð gesti vel-
komna fyrir hönd félagsins. —
Sýmdar voru tvær kvikmyndir,
um laxaklak, sem er eitt af
mestu áhugamálum félagsins,
og Við straumana, hin gullfall-
ega laxveiðikvikmynd, nokkuð
stytt. Albert Erlingsson í Veiði
manninum skýrði hana. Víg-
lundur Möller flutti mjög at-
hyglisvert og greinargott erindi
um laxveiðimálin, stangaveiði,
netaveiði, viðhorf bænda og
annarra til þessara mála, og
seinast en ekki sízt stefnu og
mark stangveiðimanna. Fyrir-
lestur þessi á erindi til miklu
fleiri en á hann hlýddu, og vænt
ir Vísir þess að geta sagt nánar
frá þessum málum.
Næst á dagskrá var að Gest-
ur Þorgrímsson lék sínar listir,
og þótti góð skemmtun, en að
svo búnu var úthlutað verð-
launum til þeirra, sem bezt
stóðu sig á kastmótinu, hinu
fyrsta sem haldið hefur verið
hér á landi. Verðlaunin hlutu
Gunnbjörn Björnsson, sem kast
aðá lengst tvíhendis með flugu-
stöng, og líka lengst tvíhendis
með kaststöng „í hífandi roki
móti vindi“, Bjarni R. Jónsson
kastaði lengst einhendis með
flugustöng, Ófeigur Ólafsson
kastaði lengst einhendis með
kaststöng. — Að lokum var stig
inn dans. — Kvöldið var hið á-
nægjulegasta. — í félaginu eru
um 450 manns.
Hráðskakmóti íslands lauk í
gærkvöldi og varð Friðrik Ól-
afsson hraðskákmeistari Is-
lands, og vann með miklum yf-
irburðum.
Hlaut Friðrik Ólaísson I8V2
vinning; vann 17 skákir, gerði
3 jafntefli og tapaði aðeins 2
skákum.
Annar í röðinni varð Ingi R.
Jóhannsson, núverandi hrað-
skákmeistari Reykjavíkur með
15 vinninga, 3. varð Jón Páls-
son með 13% vinning, 4. Ben-
óný Benónýsson (fyrrverandi
hraðskákmeistari Islands) með
13 vinninga, 5. Eggert Gilfer
með 12 % vinning', 6. Guðmund-
ur Ágústsson með 12 vinninga
og 7. Baldur Möller með 11%
vinning.
Á miðvikudagskvöldið vann
Ingi R. Jóhannssbn það ein-
stæða afrek á hraðskákmótinu
að fá 100% vinning. Gerðisft
þetta í síðari undanrásinni i
mótinu og hlaut Ingi þar 26
vinninga í 26 skákum, og mviná
menn ekki eftir að slíkt hafi.
komið fyrir á opinberu hrað-
skákmóti hér áður. Nsestur Inga
þá varð Guðmundur S. Guð-
J mundsson með 23 vinninga,
i Gunnar Ólafsson varð þriðji
með 19 vinninga, Baldur Möil-
; er og Kári Sólmundarson ’nlútú
| 17% vinning hvor og Jón Vig-
ulndssön 13 vinninga.
Aðalfundur
útvarpsvirkja.
Nýlega var haldinn aðalfund-
ur í Félagi útvarpsvirkja í
Reykjavík. Fráfarandi formað-
ir, Friðrik A. Jónsson, baðst
eindregið undan endurltosn-
ingu. Núverandi stjórn félags-
ins skipa: Form. Haukur Egg-
ertsson, ritari Gunnar Þorvarðs-
son og gjaldkeri Friðrik A.
Jónsson.
Árekstur
og
í gærkvöldi um kl. 10.39 vai2>
árekstur milli bifhjóls og Jbi£-
reiðar. Á bifhjólinu voru tvoir
karlmenn og ein stúlka og
meiddust öll nokkuð og voril
flutt í slysavarðstofuna.
í fyrrinótt var brotinn Ijósa-
staur á homi Bræðraborgar-
stígs og Ránargötu, og fannst
högghlíf af bifreið hjá straum-
um, en enginn bifreið var nærri.
Hefur lögreglan rannsakað
högghlífina og komist að því af
kvaða bifreiðategund hún er,
og er málið í frekari rannsókn..
Magnús Guðmundsson, Reykjayík
Islandsmeistari í svigi
Sveit ísafjarftar sigraði s sveitarkeppni ■ svi§«
Skíðamót íslands hófst á
sumardaginn fyrsta með því, að
keppendur söfnuðust saman við
íþróttaliús Jóns Þorsteinssonar
og gengu þaðan fylktu liði með
íslenzkan fána í fararbroddi að
miðbæjarbarnaskólanum, en
þar var mótið sett.
Að setningarathöfninni lok-
inni var ekið upp í Jósefsdal,
og hófst keppni í stórsvigi karla
kl. 15. 39 keppendur mættú til
leiks. Brautin var 1400 m. löng
Lögreglufréttir
Aðfaranótt sumardagsins
fyrsta var gerð tilraun til inn-
brots í efnalaug í Mjóstræti.
Klukkan um eitt var lögregl-
unni tilkynnt að maður væri að
reyna að brjótast inn í efna-
laugina. En innbrotsþjófurinn
hafði orðið þess var að til hans
sást og hljóp þá á brott yfir
stokka og steina og girðingar,
sem á vegi hans urðu. Hafði
maður þessi brotið rúðu í hús-
inu, en orðið að hverfa brott
við svo búið. Lögreglan hafði
ekki uppi á honura.
Umferðarslys.
í fyrrakvöld laust fyrir kl. 9
varð drengur fyrir bifreið móts
við biðskýlið á Digraneshálsi.
Drengur þessi heitir Metúsalem
Þórisson. Digranesvegi 12 A.
Hann skrámaðist á fæti og var
fluttur til læknis, en síðan
heim að aðgerð lokinni.
Ölvun.
Síðasta vetrarkvöld fannst
maður sofandi við bifreiðastöð
Hreyfils og fluttu lögreglumenn
hann til læknis, ef ske kynni að
hann væri sjúkur. En læknir-
inn taldi manninn einungis
vera ofurölvi og var hann þá
fluttur í fangageymslu lög-
reglunnar. — í fyrrinótt voru
fjórir bílstjórar teknir ölvaðir
við akstur, þar á meðal einn
varnarliðsmaður.
og með 32 hliðum og 340 m.
falli.
fslandsmeistari í svigi varð
Magnús Guðmundsson Reykja-
vík á 73,2 sek., 2. varð Ásgeir
Eyjólfsson, Rvík, 74,5 sek., 3.
Haukur O. Sigurðsson, ísaf.r
75,6 sek., 4. Eysteinn Þórðarson,
Rvík, 76,0 sek., 5. Stefán Krist-
jánsson, Rvík, 76,8 sek., 6. Gunn
ar Finnsson, Siglufj., 81,5 sek.r
7. Magnús Guðmundsson, Ak.,
82,1 sek., 8. Einar Einarsson,
Rvík., 82,9 sek., 9. Jóhann Vil-
bergsson, Siglufj., 83,7 og 10.
Oddur Pétursson, ísafj., 83,8
sek.
Úrslit í 3ja manna sveitar-
keppni um Sindrabikarinn, sem
gefin er af Vélsmiðjunni Sindra
h.f., urðu þau, að 1 var A-
j sveit Reykjavíkur á 223,7 sek.r
, 2. sveit ísafjarðar á 245,8 sek.
, og 3. B-sveit Rvíkur á 246,7
sek.
í gær hélt skíðamótið áfram
og var þá keppt í sveitarkeppni
í svigi um beztu svigsveit ís-
lands 1954. Keppnin fór fram
1 Hamragili við Kolviðarhól.
Til keppni mættu 4 sveitir.
Úrslit urðu þau, að sveit ísa-
fjarðar sigraði á 518.9 sek., 2.
varð sveit Reykavíkur á 522,7
sek., 3. sveit Siglufj. á 558,1
sek. og 4. sveit Akureyrar á
614,0 sek.
Mótið heldur áfram í dag í
Jósefsdal og verður keppt í
svigi karla og kvenna og stór-
Svigi kvenna.