Vísir - 22.06.1954, Side 4
VISIR
Þriðjudaginn 22. júní 1954
¥XS3R
DAGBLAÐ
Ritstjóri: Hersteinn Pálsson.
Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson,
Skrifstofur: Ingólfsstræti 3.
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Sími 1660 (fimm ifnur).
Lausasala 1 króna.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Atburðirnir í Guatemala.
T^að mun varla hafa komið mjög mörgum á óvart, þegar
vopnaviðskipti hófust í Mið-Ameríkú í lok síðustu viku
með því að innrás var gerð í smáríkið Guatemala, sem er
skammt fyrir norðan Panama-skurðinn, eina helztu lífæð við-
skipta og samgangna milli vestur- og austurstranda Ameríku.
I>eir atburðir höfðu á undan gengið, sem víst mátti telja, að
drægju nokkurn dilk á eftir sér, enda er það nú komið á
daginn, að pac eru aðilar, sem vilja ekki sitja aðgerðarlausir,
þegar þeir 'teXa að menn hlynntir kommúnismanum hafa tekið
völdin í landi þessu.
Því hefur lengi verið haldið fram, að stjórnin í Guatemala
væri hlynnt kommúnistum, enda þótt hún mótmælti því og
segðist aðeins vera framfarasinnuð þjóðernissinnastjóx'n. Var
þó allt kyrrt, og eng'n önnur viðbrögð gegn henni en þau, að
Bandaríkin neituðu aw selja þangað vopn — þar sem þau töldu
ekki ástæðu til að eiga viðskipti við stjórn með fjanasamlegar
skoðanir — þar til fréttist um mikil vopnakaup Guatemaia-
stjórnar í Evrópu, austan járntjaldsins.
Vopnakaup þessi hefðu ekki vakið neina verulega athygli, og
líklega ekki þótt umtalsverð, ef ekki hefði verið um svo mikið
magn að ræða, að það nægði margfalt stærri her en Guat.emala
hefur haft undir vopnum. Þá fór málið að verða uggvænlegra,
og brást Bandaríkjastjórn þá svo við, að hún sendi nágranna-
ríkjunum vopn í samræmi við samninga, sem áður höfðu verið
um það gerðir.
Fregnir af innrásinni eru að ýmsu leyti óljósar. Stjórn
Guatemala heldur því fram, að innrásin sé gerð a. m. k. með
vitund og vilja, og ef til vill að undirlagi, amerískra félaga,
en foringjar uppi’eistarmanna neita því og segjast aðeins vera
flóttamenn frá Guatemala, sem ætli sér að steypa stjórninni
í þágu sjálfra sín og þjóðarinnar en ekki vegna áhrifa frá
öðrum amerískum aðilum. Verður sennilega seint úr því skoriö
endanlega, hvorir hafa á réttu að standa.
Deila sú, sem risið hefur í sambandi við stjórn Guatemaia
og vopnakaup hennar frá kommúnistum getur reynt talsvert
á þolrif lýðræðisþjóðanna. Það hefur verið aðalsmerki lýð-
ræðisins, að einstaklingar og þjóðir mættu hafa skoðanir sínar
í friði, og ekki ætti að beita ofbeldi til að setja á laggirnar
þjóðskipulag, sem væri ógeðfellt öllum þorra þeii’ra, sern
ætti við það að búa. Þar af leiðandi getur engin lýðræðisstjórn
verið þekkt fyrir að standa að innrás, sem hefur að markmiði
að breyta stjórnarfari annars lands. Það verður þá hlutveik
Öryggisráðsins, sem hefur mál þetta til athugunar, að ganga úr
skugga um, hvort hér er um að ræða einkafyrirtæki flótta-
manna frá Guatemala eða önnur ríki standi þar á bak við.
Byltingar og uppreistir liafa löngum talizt til daglegs brauðs
í Mið- og Suður-Ameríku, svo að ekki er um neina nýjung
að ræða, þótt barizt sé í Guatemala. Flest ríki Mið- og Suður-
Ameríku eru full af pólitískum flóttamönnum úr öllum áttum,
svo að ósennilegt er, að þurft hefði hvatningu óviðkomandi
manna til að koma af stað innrásinni í Guatemala.
Söngskemmtun Thoru
Matthiason í Gamla Bíó.
Frú Thora Matthiason hé,:t
söngskemmtun föstudaginn
annan eð var í Gamla Bíó og
aðstoðaði frú Jórunn Viðar hana
Á söngskránni voru aríut eftir
Handel og gamla ítalska meist-
ara, Torelli og Durante, söng-
ljóð eftir Frakkana Debussy,
Gounod og Bachelet o'g.Amer-
íkumennina Vittoi’ia Giannini,
Powell Weaver, Ernest Charles
og Amy Worth og loks
Draumalandið eftir Sigfús,
Vögguljóð eftir .Sigui’ð Þórðar-
son og Noi’sk fjellsang sftir
W. Thrane. Var söngskrám
mjög skemmtilega valin.
Frú Thoi’a hefur undurfagra
1 sópranrödd, þýða, litrika og
vel þjálfaða. Hún flytur lögm
af mikilli smekkvísi og full-
kominrii stílvitund. Texta-
framburður hennar er einnig
ágætur. Framkoma hennar á
söngpallinum er ákafiega falleg
og aðlaðandi. Ver 3.\,- vart. öðru
trúað en að hún standi mjög
framarlega í hópi amei’ískra
tónlistarmanna. Fyrir oss Ís
lendingum verður söngur
hennar enn unaðslegri fyrir þá
sök, að hún er aiinenzk að
ætterni og auk þes - sonar-
dóttir hins mikla Mattníasar
Jochumssonar. En meðal af-
komenda hans ber mikið á tón-
listargáfum. Það vor því ekki
að undra, þótt þessari hugijúfu
söngkonu væri hlýtt og innilega
fagnað og söngskemmtun
hennar væri vel sótt, þrátt fyr-
ir mikið framboð á tóniist um
þessar mundir.
Undii’leikur frú Jórunnar vai
svo vandaður og samstilltur
söngkonunni sem frekast vatð
á kosið og vakti aðdáun í nú -
tímalögunum, sem leggja tals-
verðar þrautir fyrir pianóleik-
arann. Átti hún sinn góða þátt
í ljúfri og eftirminnilegi”
skemmtun.
B. G.
2:5 2
1:2 2
1:1 x
4:3 1
Síðasta get-
raunavikan
Úrslit leikjanna á getrauna-
seðlinum fyrir síðustu helgi og
fyrstu umferð heimsmeistara-
keppninnar þann 16. og 17.
júní urðu:
Fram — Akranes
Valur. — Þróttur
Viking — Sandefjord
Larvik — Sparta
Sarpsborg — Lilleström 3:1 1
Strömmen — Fredrikstad 1:4 2
| Austurríki—Skotland 1:0 1
. Uruguay — Tékkóslóv. 2:0 1
Frakkland — Júgóslavía 0:1 2
England — Belgía 4:4 x
Ítalía — Sviss 1:2 2
Tyrkland — Þýzkaland 1:4 2
Úrslit ýmissa leikjanna á
þessum síðasta getraunaseðli
vorsins komu mjög á óvart og
þá helzt sigur Þróttar yfir Val,
og sigur Svisslendinga yfir
ítölum. Sigur Þróttar kom í veg
fyrir að einum þátttakanda
tækist að fá 12 rétta, en hann
fær 1400 kr. fyrir 11 rétta. —
Vinningar skiptust þannig:
1. vinningur: 799 kr. fyrir 11
rétta (1).
2. vinningur: 72 kr. fyrir 10
rétta (11).
3. vinningur: 14 kr. fyrir 9
rétta (56).
ALM. FASTEIGNASALAN
Lánastarfsemi. Verðbréfa-
kaup. Austurstræti 12,
simi 7324.
\MsBiPgt er skzittí^
Skipi sökkt í New York-
höfn á hverjum mánuði.
, S»vá er kíuiikíuikISs núö M|»p iefáafls%
i Ameríski sjólierinn lætur kennslustofa fyrir aðra kafara,
sökkva skipi mánaðarlega í sem fá kennslu í að rífa niður
höfninni í New York og sjó- skip. Með logsuðutækjum losa
liðar eru svo látnir spreyta sig þeir um stálþynnurnar' og koma
Slys á sundi.
kað hefur nú komið fyrir tvívegis á skömmum tíma, að
menn, sem verið hafa á sundi í Sundlaugunum eða Sund-
höllinni, hafa beðið bana. í fyrra skiptið var um ungan pilt
að ræða, en síðara slysið henti mann á bezta aldri um síð-
ustu helgi.
Ekki skal það dregið í efa, að öryggis sé jafnan gætt á
þeim tveim stöðum, sem um getur hér að ofan, en nú stendui
svo á, að sundkeppni Norðurlanda stendur yfir, og menn mjög
hvattir til þess að taka þátt í þeirri sundraun til að tryggja
íslandi sigur. Af því leiðir eðlilega, að aðsókn að sundstöðum
hér í bænum og raunar hvarvetna á landinu er miklu meúi
en ella, og virðist þá eðlileg fylgja þess, að öryggiseftirlit
verði aukið til mikilla muna, ef það gæti orðið til að koma í
veg fyrir slys, sem alltaf getur borið að höndum.
Öllum íslendingum leikur vafalaust hugur á, að við sigrum
í keppninni að þessu sinni, eins og árið 1951, en slíkt ofurkápp
má ekki leggja á það, að öryggis sé ekki gætt í hvívetna.
í þessu efni eins og öðrum er kapp bezt með forsjá.
á 'því að ná því upp
Skóli , ameríska sjóhersins
stendur að þessum aðgerðum,
og eru þær ætlaðar kafarasveit
flotans við ýmsar björgunar-
tilráúnir.
Einu sinni í hverjum mánuði
er 320 lesta skipi, venjulega
innrásarpramma, sökkt í 20
feta sjó.skammt frá New Jersey
strönd. Flokkur kafara, sem
ekki er sagt, hvað valdið hafi
skiptapanum er sendur til að
gera við skemmdir á skipinu og
þeim á land sem brotajárni.
Nýlega hefir James K. Mar-
tins, læknir í ameríska sjóhern-
um, fært sönnur á ágæti tækni-
legrar nýjunga á sviði kafara-
útbúnaðar. Hann kafaði sjálfur
við eina bryggjuna í New York
höfn og' gerði ýmsar æfingar
þegar á botninn kóm, svo sem
að standa á höfði og velta sér
eftir botninum, til þess að sýna
að útbúnaðurinn væri algjör-
lega loftþéttur.
Dr. Martins, sem er læknir
koma því .aftur á flot, Venjulega j við kafaraskólann, heldur því
er þetta gert á þann hátt, að , fram, að maður sem lokast hef-
öllum ópum og götum er vand- ’ ir inni í bíl sem sokkið hefir í
lega lokað, skipið gert loftþétt,; 40 feta djúpt vatn, muni geta
en síðan er lofti dælt í það og haldið lífi í fimm mínútur, þar
því þannig komi á flot. sem loft það, sem er í bílnum,
Þá er sokkið eftirlitsskip þegar hann sekkur, eigi að geta
notað sem nokkurskonar nægt svo lengi.
Það hefur oft heyrst að al-
menningur hér 1 bæ sé ekki sem
bezt að sér i almennri háttvísi,
og á sú skoðun sér nokkurn stað
í veruleikanum. Það verður að
minnsta kosti varla sagt, að menn
geri sér meiri rellu út af manna-
siðum en bráðnaugsyniegt er, af
hverju sem það kann að stafa. Hér
fer á eftir stutt bi’éf er Bergmáli
liefur borizt og er þar drepið á
atriði, er betur hefðu mátt fara
og er engu um að kenna neina
skorti á venjulegri kurteisi.
Að taka ofan.
„Bergmál. Mig langar til þess
að koma með nokkrar aðfinnslur
i sambandi við hegðun allmargra
á þjóðhátiðardaginn 17. júní.
Datt mér í hug að skrifa þessar
línur, einmitt vegna þess að Berg
mál hefur gert ýmislegt annað að
umræðuefni varðandi þann dag,
er ég tel að hefði einnig mátt bet-
ur fara. Það tekur mig alltaf sárt,
er ég heyri þjóðsönginn leikinn,
og menn standa eins og styttur
með höfuðfötin á höfðinu, rétt
eins og þeir könnuðust ekki við
hann. Þetta áttisér stað 17. júní.
Fáninn dreginn að hún.
Eg fylgdist með öllum liátiðar-
höldunum við Austurvöll og varð
þess var að allmargir virtu að
vettugi þá sjálfsögðu kurteisi að
taka ofan, þegar það átti sannar-
lega við. Til dæmis tók ég eftir
því að ýmsir stóðu með hatta og
húfur á höfðunum, er lýðveldis-
fáninn var dreginn að hún. Þetta
mátti auðvitað ekki eiga sér stað.
En vandi er að skipta sér af sliku
ineðan á athöfninni stendur. Það
var líka tiltalcanlegt live fáir
virtu þögnina í mínútu, sem
skyidi vera um land ailt. Það
kunna samt að vera þær orsakir
að því, að rétt hefði verið að til-
kynna í hátalara um hana, því
ekki er víst að allir hafi lesið
dagskrána, eða áttað sig á því
hvenær luin yrði. Enda tók ég
eftir að margir voru að troðast
áfram einmitt á þeirri mínútu, og
aðrir spjölluðu hátt saman.
Undir messunni.
Það liefði líka verið viðeigandi
að mannfjöldinn, er hlýddi á
messuna, liefði haft skilning á
því, að þá þúrfti að sýna sömu
vinðulegu framkomuna og setið
væri í kirkju. Þó tók út yfir allt,
er biessað var, að þá skyldi finn-
ast menn, er stóðu keikir með
löfuðfötin. Jæja, ég er víst búinn
að koma með nógar aðfinnslur, en
mér finnst samt rétt að slikt komi
fram, ef það gæti orðið til þess
að einhver færi eftir því og þeim
fækkaði, sem næst gleymdu al-
mennri kurteisi á hátíðlegri
slund. Það er skylt og rétt að geta
þess, að auðvitað voru margir, og
meirihlutinn, sem kunni sig. ís-
lendingur.“
Bergmál þakkar bréfið og von-
ar að það hafi áhrif. Þar með
ljúkum við pistlinum í dag. — kr.
Það bezta verður ódýrast,
notið því
BOSCH
í mótorinn.