Vísir - 09.07.1954, Page 1
44. árg.
Föstudaginn 9. júlí 1954
152. tbl.
Skepnur liggja dauðar í hrönn-
um eftir flóðin S Skagafirði.
Gera má ráð fyrir, að nú hafi
um 21—22 þúsund manns synt
200 metrana í norrænu sund-
keppninni hér á landi.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Vísir fékk hjá Þorsteini Einars-
syni íþróttafulltrúa, er aðsókn
að sundlaugum landsins vegna
keppninnar góð og jöfn, en þó
engin ös. Þá er það mjög á-
nægjulegt, að sundnámskeiðin
eru víðast ágætlega sótt, ekki
sízt kvenna og barna. Spáir það
góðu um framtíð sundsins hér
á landi.
Þá hefur það skemmtilega
nýmæli verið tekið upp innan
ramma norrænu keppninnar, að
hinir ýmsu kaupstaðir landsins
keppa innbyrðis. Þannig eiga
Reykvíkingar nú í höggi við
Akureyringa og Hafnfirðinga,
en hólmganga stendur yfir
milli Akraness og Keflavíkur,
ísafjarðar og Siglufjarðar, og
loks munu Ólafsfirðingar og
Neskaupstaðarbúar hyggja á
innbyrðiskeppni.
Af norrænu sundkeppninni
hér eru annars þær fréttir helzt-
ar, að ísfirðingar virðast standa
sig bezt í bili. Þar er þátttakan
þegar orðin nær 20%. Reyk-
víkingar spjara sig furðuvel, en
hér mun þátttakan vera orðin
15—16%.
Stjórniii í Saar
biðst lansnar.
París (AP). — Samsteypu-
stjórnin í Saar hefur beðist
lausnar.
Það eru tveir flokkar, sem
staðið hafa að henni, flokkur
Hoffmanns forsætisráðherra,
kristilegir lýðræðissinnar, og
jafnaðarmenn. Deilur um verka
lýðsmál eru orsök samstarfs-
slitanna.
Þrem skákum lokið
í þrem umferðum.
Þriðja umferð Skákþingsins
fór fram í gærkveldi og lauk að-
eins einni skák í landsliðsflokki.
I þeim þrem umferðum, sem
þegar er lokið, hefur ekki verið
lokið nema einni skák í hverri
umferð í landsliðsflokkinum.
Það var skák þeirra Óla
Valdimarssonar og Birgis Sig-
urðssonar sem lauk að þessu
sinni og með sigri Óla. Er Óli
nú efstur með tvo vinninga. |
í meistaraflokki vann Ingi-)
rnundur Guðmundsson Gunnar
Ólafsson og Kári Sólmundar-1
son vann Ólaf Einarsson. j
Biðskákir verða tefldar í
lcvöld en 4. umferð á sunnu-
daginn.
Stúlkan í miðið er þýzK og nemr Ctanstei 'áchaak. HÚ3 v«r WBi
in „ungfrú Evrópa“ í fegurðarsamkeppni í París, en svíit sáfs
bótinni, er það kom á daginn, að hún var ekkja. Stúlkan lil
vinstri, sem er Irönsk, settist á heiðurssessinn.
Á 22. þúsund manns hafa
synt 200 metrana.
Innbyrðis keppni hafin milli kaupstaða.
40 Fiat-bílar
með Vatnajökli.
Með m.s. Vatnajökli, sem ný-
kominn er frá Miðjarðarhafs-
löndum, voru m. a. 40 litlir
Fiat-bílar.
Bílar þessir eru af gerðinni
Fiat-1100, fjögurra manna, og
eru fluttir hingað samkvæmt
heimild, sem LÍÚ hafði verið
veitt af ríkisstjórninni. Af bíl-
um þessum greiðist bátagjald-
eyrir, 61%, og verð bílanna er
um 45.000 krónur.
Um áramótin var auglýst eft
ir umsóknum um bíla þessa, og
bárust um 300 umsóknir. Langt
er síðan úthlutun lauk, og eru
bílarnir því allir seldir.
Með sama skipi komu nokkr-
Tjónið jafnvel metsð á milljónir króna.
Alll að 6 metra djúpai* gjar
hafa iiivuday.í í veginn.
Síldin:
SA-bræla spillir
veiðunum.
Frá fréttaritara Vísis.
Siglufirði í morgun.
Engar síldarfregnir höfðu
borizt hingað í morgun, cn
veður spilltist í gærkveldi og
hamlaði veiðum.
Flest skipin eru þó úti að
svipast um eftir síld, en nokk
ur þeirra munu hafa legið
undir Grímsey vegna suð-
austan brælu. í gærkveldi
var ekkert flogið vegna veð-
urs, né heldur í morgun
vegna þoku á miðunum.
Klukkan sex í morgun var
þó komið logn, en þoka
grúfði yfir miðunum. Mest
af síldinni, sem veiðzt hefur,
fór í bræðslu, en saltað var
á einum stað á Si glufirði.
Skriðuföllin og vatnavextirn-
ir í Skagafirði nú í vikunni
virðast hafa valdið miklu stór-
felldara tjóni en menn höfðu
hugmynd um í fyrstu.
Menn eru nú að fá æ betra
yfirlit og yfirsýn um skemmd-
irnar og eru stöðugt að koma
í ljós nýjar skemmdir og ný
ummerki sem ekki var vicað
um áður.
Aðal skemmdirnar hafa orð-
ið á svæðinu frá Grjótá á miðri
Öxnadalsheiði og vestur að
Héraðsvötnum, en tilfinnanleg-
astar og mestar hafa þær orðið
undir Kotafjalli í Norðurárdal.
Kunnugir telja að tjónið nemi
jafnvel milljónum króna.
Víða þar sem ræsi voru áður
undir veginn við Kotafjall eru
Armas forseti
Goatemafa.
Einkaskeyti frá AP.
New York í morgun.
Herforingjastjórnin (junta) í
Guatemala kaus í gærkveldi
Armas hershöfðingja einróma
ríkisforseta.
Armas, höfuðleiðtogi bylt-
ingarmanna, tekur því við nú
af Monzon, sem farið hefur með
forsetavaldið að undanförnu.
Hann átti einnig sæti í herfor-
ingjastjórninni.
Þótt Armas væri einróma
kjörinn ríkisforseti og Monzon
hafi þannig greitt honum at-
kvæði, vekur það nokkra at-
hygli, að tveir stuðningsmanna
Monzons hafa síðan beðist
lausnar.
Dulles situr
einn heima.
Einkaskeyti frá AP.
London í morgun.
Genfarráðstefnan um Indó-
kína kemur aftur saman á mánu
dag og verða þá viðstaddir allir
utanríkisráðherrar stórveld-
anna — nema Dulles.
Hann tók þó fram í gær, að
ekki væri með öllu fyrir það
girt, að, annað hvort hann eða
Bedell-Smith aðstoðarutanrík-
isráðherra færu til Genfar. —
Dulles kvað Johnson sendiherra
Bandaríkjanna í Sviss mundu
verða aðalfulltrúa Bandaríkja-
anna, eins og verið hefði síðan
er Bedell-Smith hélt heimleið-
is þaðan.
Tilkynnt var í London í gær,
að Eden mundi fara til Genfar
á mánudag. í París hefur það
aukið vonir manna um sam-
komulag, að Ho Chi Minh, leið-
togi uppreistarmanna í Indó-
kína, hefur lýst yfir, að horf-
ur um samkomulag séu væn-
legri vegna Genfarráðstefnunn-
ar.
ir jeppar frá ísrael, en þeir
Adenauer beygði
sig.
Einkaskeyti frá AP.
Bonn í gærkveldi.
Vestur-þýzka sambands-
stjórnin hefur lagt á hilluna á-
form um að setja á laggirnar
upplýsinganefnd.
Hlutverk hennar átti einnig
að vera að „samræmá fréttir"
o. s. frv. Mikill áróður var haf-
inn i blöðum gegn hugmynd-
inni; og töldu menn, að hérværi
um að ræða vísi að stjórnar-
deild eða jafnvel „Göbbelsráðu-
neyti“. Almenningur reyndist
og áformunum mjög andvígur
og hefur stjórnin nú beygt sig.
nú komnar djúpar gjár í gegn-
um hann; sumar allt að 6 metra
djúpar.
Á bæinn Fremri-Kot féllu
ski iður yfir megiaið af túninu.
Þar sópaði skriða burt ný-
byggðri heyhlöðu með miklum
heyfirningum frá því í fyrra.
Haughús, sem var áfast við fjós
ið, sópaðist líka burtu en fjós-
ið stóð eftir. Bóndinn á Fremri-
Kotum var nýbúinn að rýja og
átti ull af 90 fjár geymda við
réttarvegg við túnið — hún fór
öll. — Samanlagt er tjón bónd-
ans svo mikið að hann mun
vart fá risið undir því nema
honum berist hjálp og það
fljótt.
Fólksbifreið var á ferð hjá
Kotabæjunum og lenti í jaðri
einnar skriðunnar þegar hún
hljóp fram. Farþegunum varð
það til lífs að þessi skriða var
í fyrsta lagi með þeim minnstu
sem þarna féllu og í öðru iagi
að bifreiðin lenti aðeins í jaðri
hennar. Fólkið bjargaðist með
naumindum út úr henni, en bif-
reiðin situr eftir í skriðunni
eins og samanbeigluð blikkdós,
full af auri og grjóti og sér að-
eins á þak hennar og aftur-
hluta.
Skepnur liggja dauðar £
hrönnum, bæði hross og sauðfé
og er þó ekki vitað um nema
um lítið eitt af því sem farizt
hefur. Skagfirzkur bóndi sem
lagði leið sína upp með Norðurá
í gær, fann þar á aurunum rek-
in þrjú hross og margar kindur.
í viðtali sem Vísir átti í rnorg
un við Karl Friðriksson vega-
verkstjóra á Akureyri sagði
hann að enn væri ekki unnt að
segja hvenær samgöngur kæm-
ust á að nýju. Það yrði í allra
fyrsta lagi á sunnudag en gæti
líka orðið seinna. í morgun fóru
4 bílar með brúarefni frá Ak-
ureyri vestur að Valagilsá til
þess að koma þar upp bráða-
birgðabrú. Enn fremur fóru 2
jarðýtur að norðan og 20 manna
vinnuflokkur, bæði til þess að
vinna að brúarsmíðinni og
ryðja bráðabirgðaveg undir
Kotafjalli.
Bráðabirgðaviðgerð hefur far
ið fram á Öxnadalsheiðarveg-
inum, þannig að hann er slark-
fær orðinn, en öll varanleg við-
gerð er eftir.
Siglingahætta ekki
fyrir hendi.
Að afstöðnum rannsóknum,
sem staðið hafa 51 dag, hefur
japanska fiskimálastjórnin til-
kynnt, að engin siglingahætta
hafi stafað af kjarnorkuvopna-
prófunum á Bikinisvæðinu.
Ennfremur, að geislaverkana-
hættan hafi reynzt mjög Iftil. ,