Vísir - 29.07.1954, Side 6

Vísir - 29.07.1954, Side 6
e VÍSIR Fimmtudaginn 29. júlí 1954 FtutMngflr sJiíkrasamðagsmfðBlima eniSii Nor&arðanda. I>að, sem menn þurfa að Eins og áður hefur verið skýrt frá var á fundi félags- málaráðherra Norðurlanda, sem haldinn var hér í Reykja- vík fyrir réttu ári síðan, und- irritaður milliríkjasamningur milli íslands, Danmerkur, Nor- egs og Svíþjóðar um flutning samlagsmeðlima milli sjúkra- samlaga og um sjúkrahjálp er maður dvelur um stundarsak- ir utan heimalands síns, en í einhverju samlagslandanna. Er samningurinn þegar genginn í gildi milli íslands, Danmerkur og Svíþjóðar, en gengur í gildi, að því er Noreg snertir um næstu mánaðamót, þ. e. 1. ágúst. Við Danmörku hafa íslenzk sjúkrasamlög haft samnings- samband síðan 1939, en nú bæt- ast, sem sagt, Noregur og Sví- þjóð við og jafnframt verða nokkrar breytingar á samband- inu við Danmörku. Tvennskonar réttur. Það er mikilsvert fyrir þá meðlimi íslenzkra samlaga, sem fara til hinna samingslandanna til lengri eða skemmri dvalar, að vita hvaða rétt þeir eiga, sam kvæmt samningnum, og hvers þeir þurfa að gæta, til að fyrir- gera ekki þeim réttí. Skal nú drepið á helztu atriðin í þessu sambandi. Um tvennskonar rétt er að ræða. I fyrsta lagi rétt fyrir þá, sem flytja til einhvers hinna landanna og í öðru lagi rétt fyr- ir þá, sem veikjast þegar þeir dvelja um stundarsakir í ein- hverju hinna landanna eða eru þar á ferð. Réttur til að flytja milli sjúkrasamlaga Skuldlausir meðlimir ís- lenzkra samlaga, sem flytja til Danmerkur, Noregs eða Sví þjóðar, eiga rétt á að flytja sjúkratrygingu sína frá samlagi sínu hér til samlags á þeim stað, sem þeir flytja til og öðlast inn- göngu í það samlag án nokkurs biðtíma, eða annarra almennra inntökuskilrða. Þetta fer þann- ig fram að sá, sem flytur, fær svokallað flutningsvottorð hjá samlagi sínu og leggur það fram' hjá samlagi á þeim stað, sem hann .flytur til. Þegar flutningsrétturinn glatast, verða menn að sæta bið- tíma hjá nýja samlaginu og jafnvel að uppfylla viss heil- brigðis og aldurskilyrði til að eiga kost á inngöngu í samlagið. Munið því, ef þér flytjið til þessara landa, að ganga frá sjúkratryggingunni án allrar ó- þarfa tafar. Fáið flutningsvott- orð hjá samlagi yðar áður en ferð er hafin og látið það verða eitt af yðar fyrstu verkum, þeg- ar þér eruð kominn á ákvörðun- arstað, að leggja það fram hjá sjúkrasamlagi þar. Fari nú svo að flutningsvott- orðið gleymist skal samt snúa sér án tafar til samlags á nýja heimisstaðnum og setur sam- lagið þá hæfilegan frest til framlagningar flutningsvottorð framlagningar flutningsvott- orðs. athuga við Mtanferftss- Dvöl um stundarsakir og ferðalög. Þá er. það réttur þeirra sem dveljast um stundarsakir í ein- hverju þessara landa, eða eru hér á ferð. Þeir meðlimir ís- lenzkra samlaga, sem veikjast á meðan á slíkri dvöl stendur, þannig, að þeir þurfi á Iæknis- hjálp eða sjúkrahúsvist að halda, eiga rétt á því að sjúkra- samlag á þeim stað, þar sem hjálpin er veitt, greiðd kostnað- inn, eftir sömu reglum og það greiðir fyrir sína eigin meðlimi. Nauðsynlegt að leita greiðslu hjá samlagi þar sem hjálp- in er veitt. Og ástæða er til að benda sérstaklega á það, að nauðsyn- legt er fyrir menn að neyta þessa réttar nema þeir vilji bera kostnaðinn sjálfir. Menn geta sem sagt ekki valið um það, hvort þeir halda sig að samlagi í dvalarlandinu eða leita endur- greiðslu hjá sínu eigin samlagi í heimalandinu. Þeir verða að nota sér rétt þann sem þeir eiga samkvæmt samningnum til að krefjasf greiðslu hjá samlagi í dvalarlandinu, eða bera kostn- aðinn sjálfir. Aðeins læknishjálþ og sjúkrahúsvist. En takið vel ef tir því, að þetta gildir aðeins um sjúkrahúsvist í allt að 90 daga og læknis- hjálp. Önnur sjúkrahjálp er ekki greidd samkvæmt samn- ingnum t. d. ekki lvf. Endur- greiða því íslenzk samlög hluta af lyfjakostnaði, sem til fellur erlendis eftir sömu reglum og hingað til. Nauðsynlegar ráðstafanir. En hvers þarf þá frekar að gæta til að tryggja þennan rétt sinn? í fyrsta lagi: Takið sjúkra- samlagsbók yðar með í ferðina. Það getur sparað yður mikið umstang, ef til þarf að taka. Börn innan 16 ára, sem ekki eru í fylgd með foreldrum, geta fengið sérstakt vottorð frá sam- lagi sínu, um að þau séu þar tryggð. í öðru lagi: Ef þér veikist, þá tilkynnið það sjúkrasamlagi, sem krefja má um greiðslu. Skal það gert svo fljótt sem við verður komið og ávallt innan 14 daga, nema gild forföll banni. Venjulega má aðeins krefja samlagið á þeim stað, þar sem sjúkrahjálþin er veitt. Ferða- maður sem leitar læknis á. við- komustað, getur þó snúið sér til samlags á ákvörðunarstað, ef hann yrði annars fyrir óeðli- legri töf. Stundum mun að vísu nægja að sýna sjúkrasamlagsbók sína, lækni eða sjúkrahúsi, sem í hlut á, þannig að þessir aðilar krefji sjálfir hlutaeigandi samlag um greiðslu. Nær ekki til þeirra, sem sigla í lækningaerindum. Það er algengt að fólk, sem hefur í hyggju að fara utan til að leita sér lækninga, spyrjist fyrir um það, hverrar fyrir- greiðslu það geti notið hjá sjúkrasamlögum erlendis, — Því er fljótsvarað, að það getur engrar slíkrar fyrirgreiðslu not- ið. Samningurinn tekur alls ekki til þess, heldur aðeins til manna, sem veikjast á meðan þeir eru staddir í einhverju hinna samn- ingslandanna. Hinsvegar taka íslenzk sam- lög eftir sem áður þátt í sjúkra- kostnaði þeirra, sem leita sér lækninga erlendis, enda sæki þeir um það fyrir fram til sam lags síns og leggi fram læknis- vottorð um nauðsyn fararinnar. En hvað er þá flutningur, og hvað dvöl um stundarsakir? f samningnum er sérstaklega tekið fram, að námsmaður, sem dvelst við nám í einhverju samningslandanna í meira en 3 mánuði, skuli alltaf eiga rétt til að flytja samlagsréttindi sín þangað. í Danmörku og Noregi (og íslandi) mun sama verða látið gilda um þá, sem stunda þar atvinnu jafnlangan tíma, enda þótt samningurinn áskilji „búferlaflutning“ til þess að svo megi verða. í Svíþjóð má hins- vegar búast við því að strangar verði haldið á þesu atriði, enda meiri hömlur á því þar, hverjir verði skráðir á manntal eða ,,kyrkobokfört“ eins og það heitir. Munið að kynna yður vel, hver réttur yðar er, og að allur óþarfur dráttur á að framfylgja réttinum getur valdið því að hann skerðizt eða glatist. f SitS l/NDA BCO TU 25SIMI37+3 ÞROTTARAR! Æfing í dag kl. 7 hjá meistara-, I. og II. fl. — Handknattleiksæfing hjá meistara-, og II. fí. kvenna í dag kl. 8 á Melavellinum. , Nefndin. ARMANN. Handknattleiksstúlkur! „ Munið æfinguna í kvöld kl. 8.30 á nýja æfingasvæð- inu við Miðtún. Mætið allar stundvíslega. — Nefndin. K.R. — KNATT- SPYRNUMENN. Meistara-, I. og II. fl. — Æfing í kvöld kl. 8 á félags- m mi RÓLEG, eldri kona ein- hleyp, óskar eftir einu her- bergi stóru eða tveimur minni með eldunarplássi. — Uppl. í síma 5602. (548 LYKLAKÍPPA tapaðist frá Bergstaðastræti 3 að verzluninni Hól. Skilist á Bergstaðastræti 3. (588 UM næstsíðustu lielgi tap- aðist nýr blágrár gaberdine- frakki og frekar stórt karl- mannsúr. Finnandi góðfús- lega skili því á Lögreglu- stöðina. BEZT AÐ AUGLYSAI VÍSl EINHLEYPAN mann í hreinlegum iðnaði vantar herbergi í Austurbænum. — Reglusemi heitið. Uppl. í síma 81701 kl. 7—9 í kvöld. VANTAR herbergi og eld- unarpláss sem fyrst. — Hef fasta atvinnu. Tilboð sendist fyrir laugardag. — merkt: „Áreiðanleg — 318“. (573 HÉRBERGI til leigu á Hofteig 28. Reglusemi fiskil- in. (580 GARÐYRKJUMAÐUR óskar eftir herbergi 1. ágúst. Uppl. í síma 82079. (592 HJÓN utan af landi óska eftir herbergi og eldunar- plássi. Æskilegt gegn hús- hjálp. Uppl. í síma 2148 til kl. 7 í kvöld. (590 HERBERGI til leigu. — Uppl. Laugateig 7, eftir kl. 7. — (584 RAFTÆKJAEIGENDUR. Tryggjum yður lang ódýr ctírta viðhaldskostnaðim. varanlegt viðhald og tor - fengna varahluti. Raftækja- tryggingar h.f. Simi 7601. mm VERZLUNAR- MANNAHELGIN. Ferðir í Þórsmörk, Land- mannalaugar og um Fjalla- baksleið kl. 2 á laugardag. Orlof h.f. Alþjóðleg ferðaskrifstofa. ABYGGILEG stúlka ósk- ast til hjálpar við húsverk í 1—2 mánuði. Sérherbergi á staðnum. — Uppl. í síma 5619. (594 RÁÐSKONA óskast strax á fámennt sveitaheimili ná- lægt Reykjavík. Má hafa barn með sér. Uppl. í síma 7613, eftir kl. 7. (589 Viðgerðir á tækjum og raf- lögnum, Fluorlampar fyrh verzlanir, fluorstengur oj ljósaperur. Raftækjaverzlunir LJÓS & HITI h.i, Laugavegi 79. — Simi 5184. VIÐGERÐIR á heimilis- vélum og mótorum. Ratlagn- ir og breytingar raflagna. Véla- og raftækjaverzlunin, Bankastræti 10, Síirn 2852. Tryggvagata 23, simi 81279. Verkstæðið Bræðraborgar- stíg 13. „ (461 HJALPARMÓTORHJÓL til sölu í Melaskóla. Uppl. í síma 7736. (595 ÖL og gosdrykkir, ískalt og hressandi beint úr ís- skápnum. Indriðabúð, Þing- holtsstræti 15. Sími 7287. — (521 HJALPARMOTORHJOL til sölu. Snorrabraut 73. —• Sími 2518. (586 SEM NÝR svefnsófi til sölu. Laugateig 7, eftir kl. 7. (585 BARNAVAGN á háum hjólum, mjög sterklegur, tí! sölu, ódýrt, eftir kl. 8 í kvöld á Grettisgötu 6, I. hæð, til hægri. (587 R AFMAGN SELDA VEL til sölu á Njarðargötu 27, uppi. (591 GÓÐUR Pedigree bama- vagn til sölu. Uppl. á Frakka stíg 13. „ (581 KÁPUR og swaggerar. — Einnig 2 peysufatafrakkar, stór númer, til sölu með miklum afslætti. Sími 5982. (582 HÆNUUNGAR óskast, helzt 2ja—3ja mánaða. —• Uppl, í síma 80933. (583 200 HÆNUUNGAR ósk- ast keyptir. Uppl. í síma 82663. f'“' (575 GÓÐUR Silver-Cross barnavagn til söiu í Sigtúni 25, kjallara. Uppl. í síma 6169. (576 VEL MEÐ FARIN barna- kerra með skerm til sölu, vegna brottflutnings. Báru- götu 15, uppi. (578 SEM NÝR barnavagn til sölu. Verð kr. 800. — Uppl. Hofsvallagötu 18. (577 ALLTAF TIL: Kjöt í buff, kjöt í steik, kjöt í gullasch, kjöt léttsaltað, kjöt. reykt, hestabjúgu. — Rababari kr. 3 kg., tekinn upp daglega og margt fleira. Kjötbúðin Von. Sími 4448. » (579 BOSCH kerti í alla bíla. PLÖTUR á grafreitL Út- vegum áletraðar plötur & grafreiti meé stuttum fyrir- vara. Uppl. á Rauðarárstig 26 (kjaliara). — Simi 6126,

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.