Vísir - 25.08.1954, Qupperneq 4
V1SIB
Miðvikudaginn 25. ágúst 1954.
wasm
Ð A G B L A Ð
Ritstjóri: Hersteinn Pálsson.
Auglýsingastjóri: Kristján Jónsron.
Skriístofur: Ingólísstrsetl S.
Otgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H.F.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Sími 1660 (fimm iinur).
Lausasala 1 króna,
Félagsprentsxniðjan h.f.
Börn Merkurinnar
og vargar í véum.
Mannréttindi þurrkuft út
Svo brá við síðastliðinn sunnudag, að málgagn aðdáenda
harðstjórnar og mannréttindaskerðingar hér í bæ, leyfði
sér að birta á forsíðu undir feitletaðri fyrirsögn, að verið
væri að „þurrka út síðustu leifar mannréttinda í Bandaríkjun-
um“. Þetta blað, „Þjóðviljin*n“, málgagn hinnar íslenzku deild-
ar hinna alþjóðlegu bófa- og samsærissamtaka kommúnista,
þykist fyllast heilagri vandlætingu vegna þess, að hin amer-
íska deild bófasamtakanna hefur verið gerð útlæg að kalla má.
Það skal skýrt tekið fram, að Vísir lítur svo á, að þau tíð-
indi séu ill, að Bandaríkjaþing hafi tekið þá ákvörðun að banna
kommúnistaflokkinn þar í landi, eða hefta starfsemi hans svo
störlega, að jafngildi banni. Það er hörmulegt, að gripið hafi
verið til sömu ráðá og beitt er af kommúnistum sjálfum þar sem
þeir ráða ríkjum. Þessi ákvörðun Bandaríkjaþings samrým-
ist á engan hátt starfsháttum lýðræðisþjóða, og getur ekki
orðið annað en vatn á myllu kommúnista. Með þessu er þeim
fengið enn eitt vopn í hendur, þeim er sköpuð betri og þægilegri
aðstaða til þess að villa fólki sýn og læða eitri sínu í huga
almennings.
Ekki er nokkur vafi á því, að þessi ráðstöfun bandarískra
stjórnarvalda muni mælast illa fyrir um öll Norðurlönd og
hvarvetna í lýðræðisríkjum Evrópu. Kommúnisminn verður |
aldrei sigraður með því að beita sömu aðferðum og fylgismenn
hans beita við andstæðinga sína, og með slíkum baráttuað-1
ferðum er fótum kippt undan lýðræðisstefnunni og því hugar-
fari sem á bak við hana er eða á að vera. Allir heilvita menn,
sem hugsa og ræða um heimsmálin, sjá og skilja, að við vilj-
um ekki leiða yfir okkur ófrelsi og kúgun kommúnismans. Við
viljum ekki afsala okkur þeim mannréttindum, sem lýðræðið
hefur fært okkur eftir alda baráttu hinna mætustu manna,
en víða verið afnumin, og þá einkum og sér í lagi í Rússlandi og
leppríkjum þess. Við vitum líka, að þess gerist engin þörf að
banna kommúnistaflokka lýðræðislandanna, — dómgreind al-
mennings tryggir það, að stjórnarfar þeirra verður aldrei inn-
Jeitt í þessum löndum, nema með hervaldi utanaðkomandi afla,
eins og gerist í Austur-Evrópu. Engum heilvita manni dettur
í hug, að kommúnistar komist til valda í Danmörku, Noregi,
Svíþjóð eða á íslandi, svo að dæmi séu nefnd, nema að undan-
genginni styrjöld, þar sem Rússar bæru sigur af hólmi. Svo
Jjóst liggur dæmið fyrir.
En hitt er jafnfráleitt og jafnsvívirðilegt, að kommúnistar,
hvort sem þeir eru íslenzkir eða rússneskir, skuli reka upp
Ramavein vegna þess, að þeir eru beittir svipuðum tökum í
Bandaríkjunum og þeir beita andstæðinga sína heima fyrir. Og
þó er vitað, að hlutur bandarískra kommúnista er ólíkt létt-
bærari en þeirra, sem gerast svo djarfir að gagnrýna stjórnar-
farið í löndunum handan járntjalds. Þetta er lýðskrum og
þvættingur af vestu tegund, andstyggileg hræsni, en lýsir um
leið baráttuaðferðum þessara manna, sem þykjast virða lýð-
ræði, en eru þó svafnir fjendur þess, og sitja á svikráðum við
öll mannréttindi. j
Hvers vegna beinir hið „íslenzka“ blað Sameiningarflokks
alþýðu, Sósialistaflokksins, ekki geiri sínum að þeim þjóðum,'
sem um áratugi hafa beitt miklu verri og ósanngjarnari ráðum!
en Bandaríkjamenn hyggjast nú beita? Hvers vegna æpa hinir1
,,lýðræðissinnuðu“ blaðamenn við „Þjóðviljann“ upp um það,'
að engir stjórnmálaflokkar skuli þolaðir í Rússlandi, Kína,
Tékkóslóvakíu, Rúmeníu o. s. frv., aðrir en kommúnistaflokk-
urinn? Vitaskuld gera þeir það ekki, því að þeir myndu banna
alla aðra flokka á íslandi jafnskjótt og þeir mættu því við
koma. íslenzkir kommúnistar eru hvoi-ki verri né betri en
kommúnistar annarra landa. Þeir myndu viðhafa sömu vinnu-
brögð og skoðanabræður þeirra í járntjaldslöndunum, ef þeir
hefðu aðstöðu til .
Kommúnistar allra landa við hafa sömu baráttuaðferðir.
Þeir reka erindi erlends stórveldis, og þess eru engin dæmi,
að þeir hafi hikað við að svíkja þjóð sína á örlagastundu. Þeir
dá það stjórnarfar, sem hefur svipt þegna síná öllum frum-
stæðustu mannréttindum, sem við teljum sjálfsögð og ómissandi
í lýðræðisþjóðfélagi okkar. Þeir dá stjórnarfar, sem smánar
rétt einstaklingsins, flytur hann til eftir geðþótta eða sviptir
hann lífinu, — allt fyrir hið sósíalíska kerfi, flokkurinn. Sam-
tírnis þykjgst þeir fyllast gremju yfir því, þegar þeir eru beittir
harðhentum tökum í Bandaríkjunum, sem þó eru silkihanzkar,1
miðað við það, sem þeir sjálfir búa andstæðingum sínum. j
í fögru veðri fara fimmtíu
félagar að vígja skála, sæluhús,
sem byggt hefir verið fyrir
landsmenn í skógi vöxnum dal
í Mörkinni. Það eru börn Merk-
urinnar. Flest andlitin þekkj-
um við frá fyrri árum, höfum
séð þeim bregða fyrir á fjöll-
um, í tjöldum og á vinamótum.
Nokkur ný andlit eru í hópn-
um og við gleðjumst af því.
Bifreiðastjórarnir eru af vík-
ingastofni, aka þungum farar-
tækjum um klungur og veg-
leysur, kanna vöð á ám. Sjá
straumlag brotanna og þræða
þau örugglega, er þeir hafa
gengið fhá vatnshlífum vagn-
anna. Ferðafólkið hefir aðeins
einn og hálfan dag til umráða,
en það telur ekki eftir sér að
sitja sex tíma í þröngum sæt-
um, ganga, þegar létta þarf á
farartækjum, vaða, ef þörf
krefur. Elzti maðurinn í för-
inni er 70 ára gamall, léttfætt-
ur sem hver annar og talar í
ljóðum þegar hann sér dýrð
Merkurinnar. Hópurinn stækk-
ar eftir því, sem austar dregur.
Þar eru menn á ferð sem kunna
að ferðast og leggja ótrauðir í
ófærurnar.
Hverjir hafa reist hús Merk-
urinnar og komið efni og á-
höldum inn yfir vötn í vor áð-
ur en snjóa leysti? Áhugamenn
um félagsmál, verkstjórar og
bændur. Smiðirnir hafa stund-
um lagt nótt við dag til að koma
verkum af fyrir haustrigning-
ar. Gjafiu hafa_verið gefnar og
sjálfboðaliðar unnið gott starf.
Höfundur hússins hefir skapað
það í anda þess manns, sem öt-
ulastur var í ferðamálum og
kunni bezt að velja tjaldstað.
Þegar síðasti sólargeisli dags-
ins kveður Goðastein og Ein-
búa, er búizt um í Langadal,
fjögur tjöld reist á grundinni
við lindina á sléttum bakka
bryddum bláum blómum um-
feðmingsgrassins. Engum þarf
að segja neitt, skipanir eru ó-
þarfar. Fyrstu kvöldverðurinn
er framreiddur þannig að það j
minnir á ævintýri. Húsfreyjan
og fleiri æfðar hendur töfra
fram gómsætan mat fyrir;
fjölda manns á svipstundu.
Við minnumst þess, að lang-
þráður draumur hefir ræzt,
betur en nokkurn óraði fyrir i
upphafi. Við minnumst félag
ans, sem lagði af stað í ferðina
löngu jafn brosandi og æðru-
laus sem ávallt áður. Svo
syngjum við ljóð eftir skáld
Merkurinnar. Það er talað um
frarptíðardrauma, fjallkonur
og fjallameyjar, sem sett hafa
sinri svip á ferðir og gamkom-
ur Merkurfólks og allra, sem
ferðast vilja.
Drottning Merkurinnar er
stælt og spengileg sem öspin.
Þegar gengið er um brekkur
og skógargil, þá hefir hún tíma
til að tína ber og hyggja að
sjaldgæfum jurtum. Hún fer
úr skónum og kælir fætur sína
í svalandi fjallalækjum, lætur
sólina verma sig og nýtur ang-
ans jarðar. Reyrinn og lyngið
ilmat og . sunnanblærinn ber
með sér nið jökulkvíslanna á
aurunum. Glampandi jökul-
brúnir og svipmiklir tindar
umhverfis.
Maður finnur ekki þeysiflug
jarðar eða þrotlaust strit hins
daglega lífs. „Flýttu þéh hægt“,
segja félagarnir við lækinn.
Austurlenzk speki og þytur í
laufi hafa róandi áhrif á hug-
ann. Blátært vatnið og tár-
hreinn sandur í læknum renna
um greiparnar, grasið á bakk-
anum er ennþá svalt af nætur-
dögg. Þannig líða tímarnir í
fjallakyrrðinni. Böiln Merkur-
innar njóta þeirra. Muna þá
lengi, þótt vegir skiljist.
Um miðaftan er haldið heim-
leiðis. Tveir piltar koma gang-
and yfir Fimmvörðuháls frá
Drangshlíðardal um Heljar-
kamb og Goðalönd. Þeir slást í
förina. f Stakkholtsgjá hjálpa
þessir piltar þeim, sem illa eru
búnir fyrir vaðalinn; þeir
bregða sér hvergi þótt ískalt
vatnið leiki um bera fótleggina.
Innst við fossinn voru félag-
arnir harla smáir samanborið
við hina miklu reginhamra.
Blágrænt ljós leikur um sól-
brennd andlit, en bergdreyrinn
svalar göngumóðum börnum
Merkurinnar.
Á leiðarenda mætum við
tveim bílum frá félagi voru;
þeir höfðu ekið norður Sprengi-
sand og Suður Kjöl. Verða þar
fagnaðarfundir. Ys og þys
glymur í eyrum eftir kyrrð
Merkurinnar. — Vargar í vé-
um leynast þar á gatnamótum;
ef til vill hafa þeir þjónað sinni
lund þessa sólskinsdaga. Setið
í skugganum syfjulegir og
skrifað nafnlausar níðgreinar.
Eða farlið með rímlaust rugl
og hlustað á fleðulega, falska
tóna. „Symbol“ þeirra er
svarta dýrið, slanga með eðlu-
haus og ruglingslegt klessu-
verk.
Þetta vansæla fólk lifir í
skugga aldarhraðans, í spenni-
treyju ótta og haturs. Það er á-
stand „Beygsins“. „Yndi mega
þeir ekki sjá“ eins og skáldið
sagði um hrafninn; einnig
minna þessir kvistir af góðum
stofnum á fúaspnek á eyum
jökulánna og afrakstur túna.
Þögul sorg grípur hugann er
maður hugleiðir þessar and-
stæður „Vörgunum" er ekkert
heilagt, þeir kynda bál á græn-
um grundum, brjóta hurðir og
glugga fjallaskála eða þá að
þeir nota eldunaráhöld skál-
anna fyrir skotmörk og hleypa
sauðfé inn í sæluhús. Þeir stela
barnaleikföngum og dansa eft-
ir útfararljóðum með „köldu
blóði“, og eru fundvísir á sorfp-
hauga til að róta í.
Börn Merkurinnar >eru, öðr-
um fremur,; næm fyúir hæla-
glefsum svörtu dýránna og
sniðganga þéssa bitvarga ef
Hægt er. En ekki er hægt, nú
á öld hraðans, að flýja inn í
öræfi eins og Torfi í Klofa
gerði. í landi Fjallkonunnar
ætti þó að vera afdrep fyrir þá,
sem elska frið og fegurð Merk-
urinnar. Skáld Merkurinnar
skildi þetta manna bezt og tal-
aði um það við sólskríkjuna.
Að vísu mun ríki varganna
eljki verða algert á íslandi,
meðan manndómur og dreng-
skapur ræður ríkjum, en þeir
kunna að gera börnum Merk-
urinnar óleik, draga úr áhrifum
Það er orðið ömurlegt ástand I
síldarbænum Siglufirði, ef fólk
| þaðan verður að flytja brott í stór-
j hópum vegna þess að því er ekki
mögulegt að hafa í sig eða á fyrir
1 sakir atvinnuleysisins þar. Nú þeg-
ar síldarvertið hefur brugðizt í 8
sumur hafa margir sjómenn orðið
jað koma slyppir og snauðir heim
til sín og hafa þar margir sömu
sögu að segja. Fjölmargir sjómenn
héðan að sunnan fara ævinlega.
norður á síldveiðar og hafa svip-
' aða sögu að segja og Sigfirðingar,
þótt þetta ástand muni þó haía
komið harðar niður á þeim, en að-
komumönnum.
I
Lág voru kuunin.
Reykvískur sjómaður, sem stund-
ar ávallt síldveiðar og hefur oft
fengið slæma útreið vegna sildar-
leysisins hefur sagt mér það, að
hann hafi haft í laun í 52 daga i
sumar aðeins tæpar 5 þúsund kr.
Á þessum litlu tekjum verður hann
að sjá fyrir 5 manna fjölskyldu.
Það verður að segja, að varla
getur hann talizt ofsæll af þess-
um launum, enda ekki sjáanlegt
að hann geti á nokkra lund séð
fyrir fjölskyldu sinni með þeim.
Gagn er þó, að þessi maður er dug-
legur reglumaður, sem skapar sér
góðar tekjur á milli. En björgu-
legt getur ástandið ekki talizt, er
menn fara í erfiða vinnu í tvo
mánuði og hafa ekki meira upp
úr sér en sem nemur því, er áður
var sagt um laun sjómannsins. Og
það eru margir, sem svipað geta
sagt.
Hvaö á aö gera?
Margir spyrja nú hvað eigi að
gera. Fyrir norðan eru margar
dýrar síldarverksmiðjur, sem orð-
ið hafa fyrir stórtapi ár eftir ár.
Þessi dýru atvinnutæki verða ekki
nýtt vegna þess að síldin kemur
ekki. Þó er vitað, og halda sér-
fróðir menn því fram, að ávallt sé
næg sild í sjónum fyrir norður-
landi, en engin tök virðast vera á
því að veiða hana. Það er sýnilegt
að taka verður upp einhverjar
breyttar veiðiaðferðir, því varla
getur þjóðin þolað það mörg ár
til viðbótar, að fjöldi vinnandi
manna stundi jafnóarðbæra at-
vinnu og sildveiðar eru orðnar.
Þarna er verkefni.
Þarna er verkefni fyrir sérfræð-
inga okkar á vegum fiskimála.
Þeir eiga að gera tilraunir með
nýjar veiðiaðferðir til þess að tak-
ast megi að ná síldinni upp úr
sjónum og til þess að auka vinn-
! una í landinu. Margt hefur að visu
, verið reynt, en betur má ef duga
skal. Þannig hugsa líká margir
sjómenn, er við mig hafa rætt.
Þeir eru gramir og reiðir yfir því,
(að þurfa að leggja fyrir sig sjó-
ménnsku upp á þessi kjör. Og
furðar það engan. — kr.
unaðslegra daga og gera lífið
hversdagslegt og leitt,
Sólardagar við tæran fjalla-
læk, angan jarðar og góðir fé-
lagar, allt ( þetta sættir menn
við tilveruna., gefur von um,
að vargarnir séu aðeins stund-
arfyrirbæri á villtri öld. Eg
mun samt hverfa aftur til fjall-
anna og Merkurinnar.
Vinsamlegast
Guðmundur Einarsson,
frá Miðdal.
MARGTASAMA STAÐ
LAUGAVEG 10 - SIMI JJSX