Vísir - 30.08.1954, Blaðsíða 4

Vísir - 30.08.1954, Blaðsíða 4
VÍSIR WðSXR ÐAGBLAÐ Ritstjóri: Hersteinn Pálssoo. Auglýsingastjóri: Kristján JóoMon. Skrilstofux: Ingólfsstrsetí i. Otgeíandi: BLAÐAÚTGAFAN VlSIR BJ. AígxeiBsla: Ingólfsstrœti 3. Sími 1860 (fimm itour>. Lausasala 1 króna, Félagsprentsmiðjan h.í. Skipstjóri kærður fyrir brot á reglum um þögla umferð. Frakkai* banna hávaða í Paris og Marseille. „Stefna" Alþýðublaðsins. Blaðtetrið, sem kennir sig við alþýðuna birti forustugrein í fyi'radag, sem á að vera einskonar lofgjörð um alþjóðlega , samvinnu. Býsnast blaðið þar yfir slælegri frammistöðu ís- , lenzkra fulltrúa á alþjóðavettvangi, sem hafa ekki verið nógu röggsamlegir á þessu sviði, t.d. í samanburði við hin Norður- landaríkin. Öll blöð birta forustugreinar, sem eiga að lýsa stefnu blaðs- ins eða flokksins,, sem í hlut á. Alþýðublaðið er líka að burðast við að birta forustugreinar, en það hefur nú um nokkurt skeið, einkum eftir að núverandi ritstjóri þess hóf feril sinn við blaðið, haft þá furðulegu sérstöðu að vera aldrei sjálfu sér samkvæmt. Einn daginn er skorað á fylgjendur Alþýðuflokksins að fylkja liði með kommúnistum, t.d. með því að Alþýðusambandið og verkalýðsfélögin standi saman um einn og sama frambj.c "anda á hverjum stað, en hinn daginn er verið að nudda sér u.an í „bræðraflokkana" á Norðurlöndum, sem vitað er um, að vilja ekkert við kommúnista hafa saman að sælda, vegna þess, að þeir eru utangarðs í framfarastarfi lýðræðisflokka heimsins. Núverandi formaður Alþýðuflokksins og ritstjóri Alþýðu- blaðsins hefur bersýnilega aldrei komið auga á þá staðreynd, að vísasta leiðin til þess að afla sér trausts, hvort heldur er flokknum eða sjálfum sér, er að vera sjálfum sér samkvæmur, að viðurkenna þá staðreynd að maður getur ekki bæði verið með kommúnistum og móti þeim, ekki tekið þátt í einlægu norrænu eða alþjóðlegu samstarfi lýðræðisþjóðanna, og sam- tímis efnt til samfylkingar með kommúnistum, fjendum lýð ræðis og mannréttinda. í fáum, einföldum orðum, menn geta ekki gert hvorttveggja, stutt alþjóðlega bófasamtök samsæris- manna, sem stjórnað er frá Kreml, og þótzt einlægir og þjóð- hollir lýðræðssinnar. Á stundum birtast í fyrrnefndu blaðtetri væmnar lofgreinar um ágæti hinna sósíaldemókratísku flokka Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Örfáum dögum síðar á ritstjórinn svo til að hvetja til samstarfs við Einar Olgeirsson og fylgdarlið hans, sem um þessar mundir dvelst austur í Rússlandi til þess að taka þar við stefnuskrá þeirri, sem „islenzkir1 kommúnistar eiga að boða næstu mánuðina. Heildin og rökvísin hafa ekki verið hin sterka hlið Alþýðublaðsritstjórans. En það furðulegasta er þó, að hann og fleiri liðsoddar Alþýðuflokksins virðast gáttaðir á því, að flokkur þeirra skuli verða æ rýrari og rindilslegri. Er það nema von, að fólk aðhyllist ekki slíka „stefnu“, fylgi að málum þeim manni, sem segir eitt í dag og annað á morgun, en rekur þó óbeint erindi hinna fjarstýrðu? Meðan menn eins og Hannibal og Gylfi eiga að móta stefnu Alþýðuflokksins er varla nema von að fylgið haldi áfram að reitast af flokknum. Þessum mönnum treysta fáir, og þeim mun færri sem stundir líða. 0 Örlagatimar framundan. T sambandi við það, sem sagt er hér að framan, má gjarnan drepa á það, að örlagaríkir tímar munu nú vera framundan hjá Alþýðuflokknum og formanni hans, og fara senn í hönd. Boðað hefur verið flokksþing Alþýðuflokksins sem á að fara fram í næsta mánuði, og verða þar vafalaust „gerðar upp sakirnar‘‘, því að alþýðufjokksmönnum mun þykja, að þeir hafi verið illa sviknir, er þeir voru flekaðir til þess að kjósa Hannibal formann flokksins fyrir tæpum tveim árum. Það er að sjálfsögðu þjónkun formannsins við kommúnista, sem mestu hefur ráðið um það, að menn telja flokknum illa borgið undir forustu hans, og að ekkert sé framundan nema alger undirlægjuháttur við fulltrúa Kremlvaldsins, ef for- maðurinn fær að ráða framvegis sem hingað. Mun það hafa fljótt orðið áberandi við fulltrúakjör á flokksþingið, að stefna Hannibals ættu rénandi fylgi að fagna, og tók hann sig því upp, fór út um land, og' reyndi að hressa upp á fylgi sitt. Mun þar þó frekar hafa verið' um hlaup en kaup að ræða, svo að formaðurinn geti ekki gert sér mikla von um að halda „víginu“. En þótt pólitískir vandamenn formannsins í flokknum sé kvíðnir, munu áhyggjurnar þó vera enn meiri hjá kommúnist- um, því að þegar formaðurinn fær skell af einhverju tagi, heyrist skrækur frá Þjóðviijanum, því að kommúnistar mega i'lEkkert aumt sjá, þegar Hannibal & Co. eru annars vegar. Vélamenningu nútímans fylg- ír allskonar hávaði, sem fer mjög „í taugarnar" á mönnum. Till þess að draga úr þessu hefur víða verið gripið til þess að fyrirskipa svonefnda „þögla \ia rbíó: Sjö dauðasyndir. Austurbæjarbíó sýnir um þessar mundir frá- bærlega vel gerða fransk-ít- alska mynd, „Sjö dauðasyndir“, sem hvarvetna hefir vakið- ó- venjulega athygli. Hér er um Noél-Noel, sem leikur Sankti Pétur. að ræða einskonar smásagna- safn í myndum, haglega sam tvinnað, þótt hver saga sé sjálfstæð. Þær fjalla um mann- legan breyskleika í ýmusum myndum, sýna hver áhrif reið- in, ágirndin, letin, lauslætið, öfundin, græðgin og drambið hefir á líf manna, en að lokum er hugsunum áhorfandans beint glettnislega að þeim breysk- leika mannanna, að líta flísina í auga meðbræðra sinna en | ekki bjálkann í eigin auga. Það eru tveir af frægustu leikstjór- um ítala og Frakka, De Filip- po og Roberto Rosselini, sem hér hafa skapað litsaverk, al- vöruþrungið, en með léttum, suðrænum blæ, að því ó- gleymdu, að öllum hlutverkum eru gerð góð skil; og sumum af- burða vel. — 1. umferð“, en þá er bifreiðastjór- um bannað að gera óþarfan há- vaða, svo sem með því að þcyta horn bifreiða sinna. þann 1. þessa mánaðar gekk í gildi í París reglugerð, þar sem fyrirskipað var „þögul urnferð", það 'er að segja ökumönnum var bannað að gefa liljóðmerki nema þegar slys væri yfirvofandi. París bafði vei ið eitthvert mesta liávaðabæli, sem menn þekktu, því að þar er ekið mjög hratt, og það er venja rnanna að þeyta Iiorn bifreiðanna. við gatnamót, til þess að tilkynna komu sína, í stað þess að draga úr hraðan- um. Mönnum þótti það mikil við- brigði, þegar allt datt skyndilega í diuialogn í borginni, og létti öllum til muna, því að hávaðinn bafði sannanlega gert marga taugaveiklaða, svo að þcir urðu að leita til lækna. þar við bætist, að þetta virðist æt.la að draga úr slysum, því að allir vegfai'- endur fara nú gætilegar en áð- ur, og kunna menn þessu því að sjálfsögðu vel. Marseille hefur einnig farið að dæmi Parísar, en þar hefur lög- reglan gcngið enn lengra, því að skipum er meira að segja bann- að að þeyta eimpípur sínar í hofninni, nienn mega ekki leika á liljóðfæri undir berum himni, vönibifreiðastjórar eiga að láta vörur með gætni og hávaðalaust af bílum sínum og þar fram efl- ir götunum. Á finnnvdögum í síðustu viku voru 850 menn sektaðir fyrir bá- vaða í Marseille, og er þess get- ið, að meðal þeirra hafi verið skipstjóri, sem þeytti empíþu skips síns að óþörfu, og vöru- bifreiðarstjóri, er ók bifreið, sem söng í hemlunum á. En í Marseille eru menn þr ekki alveg eins ánægðir með ár- angurinn og í París, því að þaf hefur komið í ljós, að slysum é gatnamótum hefur fjölgað. • Þrír ungir Tékkar sneru sér til lögreglunar í Niirnberg í vikunni og báðu um land- vistarleyfi sem pólitískir flóttamenn. Margt er shritjS Gleypti tannburstann sinn. * Ytti á eftir ávaxtabita með honum og missti af honum. Það kemur oft fyrir að fólk gleypi allskonar hluti, stóra og smáa en hingað til liafa menn ekki vitað til að nokkur legði í að gleypa tannbursta. Þó var það, ekki alls fyrir löngu, að ung stúlka kom til lækríis í Danmörku og kvaðst hafa gleypt tannburstann sinn. Þetta hafði skeð nokkrum dög- um áður og áleit hún að sér hefði ekki orðið meint af. Vin- stúlka hennar hafði þó eggjað hana á að leita læknis, því hún taldi ekki heppilegt- að ganga með tannbursta í maganum. Læknirinn vildi senda stúlk- una heim með þeim orðum," að hana hefði dreymt. þetta allt áaman. En þar sem stúlkgn sat fast við sinn keip, varð það úr að hún var lögð í sjúkrahús. Mánudaginn 30. águst 1954 „Gamall Þingvellingur“ hefur skrifað niér stutt bréf, sem hér fer á eftir, én þar ræðir hann að sjálfsögðu um Þingvöll, hinn fornhelga stað, þar sem liann ól áldui’ sinn. Hann kemst svo að orði: Varðveizla örnefna. „Fyrir nokkru birtu blöðin greinargerð — eða eittlivað þvi líkt — frá Þingvallanefnd, þar sem frá þvi var skýrt, sem gert hefði verið til að vernda þenna helga stað, svo og hvað nefndin teldi rétt, að gert væri, til þess að honum væri sýndur fullur sómi í framtíðinni. Var það allt gott og sjálfsagt, en ég hnaut um eitl atriði, sem var söfnun og varðveizla örnefna. Rauðukusunes. í inínu nngdæmi, þegar ég var að alast upp í Þingvallasveit, var ekki til neitt, sem hét Kárastaða- nes, en svo nefnir Þingvalla- nefndin nú nes það, sem er fyrir neðan Kárastaði og í landi þeirra. Finnst mér það óviðeigandi, að ég segi ekki hlálegt, að nefndin- skuli þrástagast á þessu nafni, þegar það er ekki til, og í sömu andránni og hún er að tala urn nauðsynina á varðveizlu örnefna. Nes þetta hefur nefnilega fram á okkar daga lieitið Rauðukusu- nes. Óvirðulegt nafn? Eg skal játa, að nafnið er ekkí fagurt eða rismikið, en það kem- rír ekki þessu máli við. Þetta er nafn nessins, og það keniur af gamalli sögn, sem ég man nú' ekki svo vel, að ég vilji fara með> hana. Kannske sér einhver ann- ar gamall Þingvellingur þetta sjijall mitt, og gerir hann þá bragarbót með þvi að skýra frá sögunni. En mér fannst samt ekki rétt að láta „Kárastaðanes- ið“ vaða svona uppi algerlega bótalaust, þar sem Þingvalla- nefnd segist vilja safna og varð- veita örnefni og hlýtur þá að> vilja hafa það, sem sannara reyn- ist.“ „Hrossabrestirnir“, Svo virðist sem almenningur sé að fá sig fullsaddan á „hrossa- brestunum“, sem sumir kalla en> aðrir „skellinöðrurnar“, en það; eru bifhjólin nýju, sem nú vaða> uppi hér í bæ. „Gramur“ skrif- ar um þau: „Mig furðar á þvi, að: yfirvöldin skuli ekki vera búin> að taka í taumana í þessu efní fyrir löngu. Hér eru óvitar látn- ir þjóta um allt á bifhjólum, sem> geta orðið að drápstækjum í hönd' um þeirra, áður en varir, og er raunar ekki þeim að þakka, að svo skuli ekki orðið þegar. Hver ber ábyrgðina á þeim spjöllumi á, mönnum og tækjum, sem ungl- ingar gela valdið á lijólum þess- uni? Þeir eru sjálfir ábyrgðar- lausir. Hvílir ábyrgðin hjá for- eldrum þeirra, éða þéitn, sem lána þeim eða selja þeim hjólin? Með þökk fyrir birtinguna.“ Menn geta gert sér í hugarlund' undrun læknanna, þegar þeir komu auga á- stóran tannbursta innan í stúlkunni við röntgen- myndatöku. Aðspurð sagðist hún hafa verið að ýta á eftir ávaxtabita, sem staðið hefði í henni, og ekki vitað fyrr til en burstinn var kominn svo langt niður í hálsinn að henni fannst ekki um neitt ánnað að gera en renna honum niður. Síðan fór hún og borðaði >mat og varð gott aL

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.