Vísir - 09.09.1954, Blaðsíða 1
44. árg.
Finuntudágmn 9. sepíember 1954,
204. tbl.
VI
Trapr afli . reknel nndan Aust-, I all,||lllrAllr af sli,| í
tirlandi undanfarið. 1 e# _
versíoovniii i dag.
Þar hafa verið miklar stiliur.
Frá fréttaritara Vísis.
Eskifirði í morgun.
Reknetjaveiðar hafa gengið
treglega út af Austurlandi nú að
undanförnu, og kenna menn það
miklum stilium.
Fimm bátar stunda þessar veið
ar frá Austfjörðum og hafa þeir
lægstu fengið eina tunnu i net.
Víðir kom til Seyðisfjarðar í gær
með 175 tunnur og Freyfaxi er
væntanlegur til Norðfjarðar í
dag með talsverða sild.
Einn stór bátur hefur róið á
línu frá Eskifirði og hefur feng-
ið 9—10 skippund í róðri, en
afli smærri báta hefur verið með
ágætum.
Togarinn Austfirðingur lagði
upp 200 tonn af fiski á Eskifirði
og Fáskrúðsfirði í vikunni, en er
nú farinn á veiðar fyrir Þýzka-
landsmarkað.
Útflutningur.
í síðustu viku fermdi Goða-
foss 4000 kassa af frosnum fiski
til Rússlands og Jökulfell tók
3700 kassa til Ameríku, i gær-
kveldi. Þá fermdi Tungufoss 1000
pakka af saltfiski til ítaliu og
norskt skip lestaði þunnildi til
Ítalíu. Brúarfoss mun lesta skreið
á morgun.
Bryggjusmíði — heyþurrkar.
Undanfarna tvo mánuði hef-
ur verið unnið að bryggjusmíði
á Eskifirði og er því verki nú
óðum að ljúka. Er smíði þessarar
bryggju til mikilla bóta fyrir
staðinn, þar sem legupláss verð-
ur þá rúmir 100 metrar.
Fékk gé&an afta
á nýju Græn-
landsmiðunum.
Akranesi í morgun.
Togarinn Bjarni Ólafsson
kom til Akraness í gær með
250 lestir af karfa, sem öfluð-
ust á Grænlandsmiðum.
Fékkst þessi afli eftir 8 daga
útivist, sem teljast verður mjög
gott.
Aflann fékk Bjarni Ólafsson
á nýjum miðum, sfem fundizt
hafa við austurströnd Græn-
lands, og hefur m. a. þann
mikla kost í för með sér fyrir
íslenzku togarana að þangað
eru þeir ekki nema 30—36 klst.
í stað þess að á miðin við Vest-
urströndina voru þeir 3—4 sól-
arhringa á leiðinni.
ítalir segja, að ekki hafi
enn fengist frá Rússum
greinargerð um 60.000 ítali,
sem börðust gegn Rússum í
seinustu heimsstyrjöld.
Bandaríkjastjórf) hefir tjáð
Israelsstjórn, að hún líti al-
vöruaugum á árásir frá
Isijael á lan.damærum .Tord-
aniu, Arásir þær, sem átt er
við, voru gerðar fyrir viku.
Góðviðristíð hefur verið á
Austfjörðum nú að undanförnu
og hafa bændur víðast hvár náð
inn heyjúm sínum. í dag og í
gær var þó ausandi rigning en
logn.
Komið með slasaðan mann.
Togarinn Austfirðingur kom
inn til Eskifjarðar i nótt með
slasaðan mann. Maðurinn heitir
Haraldur Ólafsson og er frá
Borgarfirði eystra. Við rannsókn
kom í ljós að maðurinn var Jær-
brotinn.
Langjnestl afladsgurino til
þessa — og betri síld en áður.
Attlee segir enga
hættu stafa af
Kínverjum.
Einkaskeyti frá AP.
Canberra í morgun.
Clement Attlee er kominn hing
að og dvelst hann hér i 5 daga í
boði sambandsstjórnarinnar.
Við komuna hingað sagði hann
að hvorki Brezka samveldið rié
Bandaríkin þyrftu neitt að ótt-
ast hið kommúnistiska Kína, þar
sem valdliafarnir þar hefðu næg-
um verkefnum að sinna heima
fyrir.
Brezk blöð í morgun eru á ann-
arri skoðun en Attlee og benda
á hina miklu hættu, sem komin
er til sögunnar, að brátt kunni
að verða barizt um Formósu.
Chou En-lai hafi boðað, að
kommúnistar myndu hertaka
hana — og Bandaríkin væru
skuldbundin til að aðstoða við að
verja liana. Afleiðingin gæti orð-
ið styrjöld milli hins kommún-
isiska Kina og Bandaríkjanna,
og því fari fjarri, að ekki sé neitt
að óttast.
Óhemju síldveiði var hjá rek-
netabátum úr öllum verstöðvun-
um hér sunnanlands í nótt og er
almennt talið að dagurinn í dag
sé langbezti afladagur sem komið
hefur til þessa.
Veiðin er, auk þess sem hún
er mikil í heild, yfirleitt jöfn hjá
bátunum. Er naumast nokkur
bátur með undir 100 tunnu afla,
en margir með liátt á öðru luindr
aðinu og jafnvel um eða yfir 200
tunn.ur.
Veiðist bæði í Miðnessjó og
Grindavikursjó og aflinn áþekk-
ur á hvorum miðunum sem er,
en fleiri bátar munu þó hafa
Jagt net sín i Grindavíkursjó, þvi
auk Grindavíkurbátanna hafa
bæði Sandgerðis- og Keflavikur-
bátar verið þar að veiðum í nótt.
Sandgerði.
Frá Sandgerði var blaðinu
29 farast í
tólslysi.
Mexico City (AP). — Eitt
mesta bílslys í sögu landsins varð
á laugardag.
Skammt frá borginni Leon varð
árekstur milli tveggja langferða-
bíla, sem í voru samtals 51 mað-
ur. Áreksturinn var svo harka-
legur, að 29 manns biðu bana, og
hinir meiddust allir meira eða
minna. Viku áður liafði orðið bíl-
slys rétt hjá þessumsama stað,
og biðu þá 19 manns bana.
símað að þar leggðu 20—25 bátar
upp að staðaldri. í nótt var aíli
þeirra 100-—200 tunnur á bát og
yfirleilt mjög jafn.
Er atvinna nú svo mikil í landi
að ef þessu heldur áfram er ekki
unnt að gera að aflanum. Sand-
gerðingar hafa þráfaldlega reynt
að fá aðkomufólk í þessu skyni,
aðallega kvenfólk, en ekki borið
árangur.
Urn Keflavíkurbáta og Hafnar-
fjarðarbáta er sömu söguna að
segja, mokafli hjá öllum bátum.
Grindavík.
Frá Grindavik sjálfri stunda 9
bátar reknetaveiðar, en miklu
fleiri leggja afla sinn þar upp.
í gær fékk v.b. Þorbjörn 253
tunnur síldar og i nótt 150 tunn-
ur. Haraldur aflaði 200 tunnur i
gær og á 2. hundrað i nótt. í
morgun hafði enn fremur heyrst
í Hrafni Sveinbjarnarsyni og Haf
renningi sem kváðust Iiafa feng-
ið 4—5 tunnur i net, en það jafn-
gildir um eða yfir 200 tunnu afla
á livern þeirra.
Akranes.
Þar er einnig um óhemju síld-
arafla að ræða. I gær bárust á
land um 1400 tunnur síldar, en
eftir fregnum að dæma í morg-
un var búist við miklu meiri
löndun í clag, enda er þetta tvi-
mælalaust jafnasti og mesti afla-
dagur til þessa í öllum verstöðv-
um.
Síldin sem núna veiðist er
stærri og betri en áður.
England sekkur
— Skotland
hækkar.
Einkaskeyti frá A.P.
London, í gær.
J. A. Steer prófessor, sem
hefir verið kjörinn forseti í
landfræðideild bnezka vís-
indafélagsins, lét svo um
mælt í ræðu, er hann flutti
eftir kjörið, að suðurhluti
Englands væri smám saman
að sökkva í sjó, en jafnframt
hækkaði Skotland. „Hreyf-
ingin er mjög hæg,“ sagði
hann, „ekki nema brot úr
þumlungi á ári, en með sama
áframhaldi hljóta hafnir á
Suður-Englandi að verða lítt
nothæfar óbreyttau er tímar
líða.“
G jaWey rismál Dana a5al-
umræ5uefni biadanna.
Frá fréttaritara Vísis —
Kaupmannahöfn í gær.
Hið alvarlega ástand í gjald-
eyrismálum Dana er aðalum-
ræðuefni dönsku blaðanna og
manna á meðal um þessar
mundir.
Hvorki ríkisstjórn sósíal-
demókrata né andstöðuflokk-
arnir draga neina dul á, a?f
ástandið sé alvarlegt, og flest
blöðin álíta, að stjórnin vilji
ná inn milli 400 og 600 milljón-
um króna í nýjum sköttum og
með sparnaðarráðstöfunum á
næsta hálfu öðru ári, það er
að segja á seinni hluta yfir-
standandi fjárhágsárs og kom-
andi ári.
Áætlunin gengur út á að ná
inn um helmingnum með
sköttum á neysluvörur og hinu
með niðurskurði á fjárlögun-
um.
Fi’á hinu hræðilega járnbrautaslysi í Svíþjóð. Myndin er af því þegar næturhraðlestin
Kauprúannathöfn til Oslóar fór út af íeinunum við Rörvik.
Hryllilegt morí
í Strassbourg.
Geðveikur maður myrðir
konu sína og f jögur börn
Einkaskeyti frá AP. —
Strassbourg x gær.
Maður að nafni Anthony
Gross framdi hryllilegt morð
hér í nótt, myrti konu sína og
fjögur börn.
Við lögregluna sagði hann:
„Ég gerði það vegna þess, að
það átti að loka mig inni á
geðveikraspítala, og þá yrði
enginn til þess að líta eftir
þeim.“
Er hann hafði framið ódæð-
isverkið klæddi hann og þvoði
sér, kraup á kné og baðst fyr-
ir. Ekki hefur orðið neinnar
iðrunar vart hjá morðingjanum.