Vísir - 29.09.1954, Blaðsíða 12
VÍSIR er ódýrasta blaðið og þó það fjöl-
breyttasta. — Hriagið i síma 1880 *S
gerist áskrifendur.
Þeir sem gerast kaupeiidur VISIS eftir
10. hvers rnauaöiar fá f Jaðið ókcypis til
mánaðamóta. — Sími 1680.
Miðvikudaginn 29. september 1954
Fimm á?a afsiaæiá SjiítkraffÍiegsifBS.
Bjöm Páissost kefor fkit 266
sjiíkítiiga, fent á 180 stöðutn.
íarifíiiíIrpEgí sfíísrí í |»i@gai SpBkfÍl
©S5 s!rtSrt5rrt.
Nú um mánaðamótin sept-
*mber—október eru fimm ár
Siðin frá því er Björn Pálsson
íiugmaður hóf sjúkraflug sitt.
Flutti Björn þá fyrsta sjúk-
linginn utan af landsbyggðinni
til Reykjavíkurflugvallar í flug
vélinni TF-KZA. En frá þeim
tíma hefur Björn flutt samtals
266 sjúklinga, hann hefur lent
á 180 stöðum í öllum fjórðung-
'um landsins, verið á flugi í
680 klukkustundir og flogið
rösklega 120 þúsund km.
En auk alls þess fjölda sjúk-
linga, sem Björn hefur sótt og
flutt til læknis, eða á sjúkra-
liús á þessu fimm ára tímabili,
hefur hann margsinnis flogið
sjúku fólki til aðstoðar, svo
sem til þess að fara með lækna,
flytja meðöl, súrefnistæki o. fl.
Björn hefur tjáð Vísi, að
hann hafi komið öllum þeim
? júklingum, sem hann hefur
farið eftir flugvél sinni, á á-
kvörðunarstað að undantekinni
einni stúlku, sem slasaðist í
.'Landmannalaugum í fyrrasum-
ar og Björn sótti þangað. Á
heimleið hreppti Björn bæði
þoku og náttmyrkur og varð
jþví að lenda á Hellu með stúlk-
una.
Það, sem af er þessu ári,
hefur Björn flugmaður flutt
hvorki fleiri né færri en 77
sjúklinga, en það er hærri tala
en hann hefur flutt á nokkru
ári áður til þessa.
Um störf Björns í þágu sjúkra
flugsins er óþarft að fjölyrða.
Hefur hann innt ómetanlega
þjónustu af hendi við sjúka og
slasaða, og í senn sýnt hugrekki,
þrek og útsjónarsemi, ekki sízt
við lendingar á stÖðum, sem
hann hefur aldrei komið á áð-
ur, og ekki eru heldur ætlað-
ir til lendingar flugvéla. Má
alþjóð vera Birni þakklát fyr-
ir þessi miklu og ágætu störf
hans.
Prag-stjornin varar
við V.-ÞýzkaEandi.
Einkaskeyti frá AP.
London í morgun.
Tékkneska stjórnin hefur sent
stjórnum nokkurra Vestur-Ev-
rópuríkja boðskap, þar sem varað
er mjög eindregið við endur-
vopnun Vestur-Þýzkalands.
Hel'ur stjórnin í Prag sent
stjórnum Bretlands, Frakklands,
Iíollands, Beigíu og fleiri ríkja
boðskap þenna, og látið svo um
mælt, að ef Þjóðverjar hervæð-
ist, vof.i sama hættan yfir Evrópu
og fyrr, og sé þetta ekki leiðin lil
friðar, heldur til þriðju lieims-
styrjaldarinnar. Hins vegar sting
ur Pragstjórnin upp á þvi, að
stofnað verði til öryggissáttmála
Evrópu, á svipaðan hátt og rúss-
neská stjórnin hefur lagt til.
Það var mikið um að vera í Bretlandi fyrir nærri tveim árum,
þegar dóttir tinkóngsins Patinos strauk með unnusta sínum og
þau létu gefa sig saman á laun í Skotlandi. Síðar dó liin unga
kona, en barn hennar er þrætuepli um þessar mundir. Náðu afi
og amma í það, og vildu halda því fyrir föðurnum
Lausn Trfeste-deiíunnar
framundan.
Lendingarstaður
hjá sjúkrahúsinu.
Buffalo (USIS). — Lend-
ingarpallur Ihefir verið gerð-
ur við eitt af sjúkrahúsum
borgarinnar, og er Siann ætl-
aður fyrir þyrilvængjui’,
svo að þær geti lent þar, er
þær koma með slasaða menu
eða fárveika. Samsltonar út-
búnaði hefir verið komið
fyrir við sjúkrahús í Santa
Monica í Kaliforniu. í Bufí'-
alo verða notaðar þyrii-
vængjur af þeirri gerð, sem
bezt reyndist í Kóreu.
sækjs tiii
læioiisembætii.
Héraðslæknisembættið í Sel-
fosshéraði var auglýst laust til
umsóknar þ. 4. sept. s.l. og var
umscknarfrestur til 25. sept.
Umsækjendur voru 11 og fara
nöfn þeirra hér á eftir:
Arngrímur Björnsson, hér-
aðslæknir, Ólafsvík, Lárus Jóns
son, læknir, Siglufirði, Magnús
Ágústsson héraðslæknir, Hvera
gerði, Bjarni Guðmundsson,
héraðsl., Patreksfirði, Brynj-
ólfur Dagsson, héraðslæknir.
Hvammstanga, Kristján Jó-
hannesson, héraðslæknir, Búð-
ardal, Þorgeir Gestsson, hér-
aðslæknir, Húsavík, Hinrik
Linnet, héraðslæknir, Bolunga-
vík, Þorsteinn Árnason, héraðs-
læknir, Neskaupstað, Jón Gunn
laugsson, læknir, Selfossi, Val-
týr Bjarnason, héraðslæknir,
Stórólfshvoli.
Embættið verður veitt frá 1.
okt. n. k.
, James Goldsmith, sem hefir
leitað til yfirvaldanna til að
fá barnið afhent.
Talið er, að innan skamms
muni ítalir og Júgóslavar leysa
Trieste-málið á vinsamlegan hátt.'
Lausafregnir um þetta lierina,
að innan tíðar muni fulltrúar
Itala og Júgóslava ltoma saman á
fund í London og ganga form-
lega frá samningi um þetta við-
kvæma deilumál.
Akureyrarbær býður út miHj’.
kr. skuldabréfalán.
Aðallega til a5 standa straiini af
Sbyggiiigarkostiiaði siindl;ingarliiiss.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun.
Akureyrarbær hefur nú boðið
4t einnar milljón króna skulda-
bréfalán til þess að ljúka við
byggingu sundlaugar kaupstaðar-
ins, svo og til annarra aðkallandi
framkvæmda í kaupstaðnum.
Unnið hefur verið að undan-
förnu af fullu kappi að byggingu
laugarhússins við sundlaug bæj-
arins. Hús þetta er tvær hæðir,
-auk kjallara, og er það byggt á
bakka gömlu laugarinnar. í
kjallara hússins á að koma fyrir
tækjum til rafmagnshitunar, en
það verður keypt hjá Rafha i
Hafnarfirði og er væntanlegt
qorður einhvern næstu daga. Þar
verður einnig komið fyrir vatns-
Jireinsunartæki og loks lítilli inni
laug 12(4x5 metra að stærð, sem
fyrst og fremst á að nota til
sundkennslu skólabarna að vetri
til.
Á efri hæðum laugarhússins
eru auk rúmgóðra anddyra og
stigaganga, búningsherbergi, böð,
gufubaðstofa og fleiri salarkynni.
Öllu er þarna vel og liaganlega
komið fyrir og húsakynni rúm-
góð og smekkleg.
Búið er að koma húsinu undir
þak, múrhúða það að mestu leyti
að utan og mála það.
Þá má enn fremur geta þess að
byggð hefur verið steinsteypt
brú yfir gilið, sem sundlaugin
stendur við og er hún byggð
milli andatjarnarinnar og laugar-
luissins.
Útilaugin sjálf er 33 metrar á
lengd.
Pólska stjórnin vill fá
framselda sjómennina 7.
ViII siehia þelm IVrir réti vegna
uppreisiiftai* á hafi úti.
Pólska stjórnin hefur krafizt | snúið bökum saman til varnar
þess að fá framselda sjómennina j löndum sinum og fengið þeim
sjö, sem tóku togarann „Pusz- hina færustn málflutningsmenn,
czyklt í sínar hendur og sigldu en nú bíða menn úrskurðar utan-
honum til Whitby á Englandi, en ríkisráðuneytis Bretá um það,
báðust síðan hælis sem pólitískir hvort veita beri mönnum þessum |
flóttamenn. hæli, eins og þeir fara fram á. j
Milnikiel, sendiherra Pólverja Hefur málið vakið geysilega at-
1 London, hefur formlega kraf- bygli á Bretlandi,
izt þessa af utanríkisráðuneytinu,
og fylgir það orðsendingu hans
að menn þessir verði leiddir fyr-
ir rétt í Póllandi, sakaðir um upp
reisn.
Á togaranum, sem var að veið-
um í Norðursjó, voru 15 menn,
en 7 þeirra bundust samtökum,
lokuðu skipstjórann inni í 12
stundir, og héldu til hafnar, eins
og fyrr segir.
Sendiherra Pólvei'ja skipaði
siðan svo fyrir, að togarinn skyldi
halda úr höfn og ná sambandi við
„nióður-skip“ pólska togaraflot-
ans á Norðursjó, og er togarinn
farinn úr höfn,
Skipstjórinn lét svo um mælt
við blaðamenn áður en hann lét
úr höfn, að hann vonaðist til þess,
að skipinu yrði stefnt heim, enda
gæti hann ekkí stundað veiðar
með 8 manna áhöfn.
Pólska stjórnin sækir mjög
fast að fá menn þessa framselda,
en pólskir útlagar í London hafa
Audrey Hepburn
giftist Mel Ferrer.
Einkaskeyti frá AP.
Burgenstock, Sviss, í gær.
S.l. Iaugardag voru kvik-
myndaleikaraijnir Audrey Hep-
burn og Mel Ferrer gefin sam-
an í lijónaband.
Hjónavígslan fór fram í
kapellu einni í fjallaþorpinu
Burgenstock, skammt frá
Louzern-vatni. Móðir Audrey
Hepburn, hollenzka baróns-
frúin Ella van Heemstra, var
viðstödd athöfnina.
Audrey Hepbum er með vin-
sælustu kvikmyndaleikkonum
Hollywool, og fékk hún Óskars-
verðlaun fyrir skemmstu. Hún
er 25 ára að aldri.
Svíar aflögufærir
um hveiti.
Svíar eiga nú um 406.000 lest
ir af hveiti, sem ræktað hefur
verið í landinu sjálfu, um fram
það, er þeir þurfa sjálfir að
nota.
Þetta er ekki tímabundið fyr
irbæri, segir formaður landbún-
aðarnefndarinnar sænsku, Olof
Söderström, heldur má gera ráð
fyrir, að Svíar geti flutt úr
landi allt að 600.000 lestir af
hveiti. í bili eru ekki horfur
á slíkum útflutningi vegna hinn
ar miklu uppskeru í hveitilönd
unum miklu, einkum Kanada
og Bandaríkjunum, en líklegt,
að aðstæður breytist í þessum
eínum. (SIP).
17 ára plttur opnar
mátverkasýningu.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í niorgun.
Ungur Akureyringur, Kristinn
J. Jóhannsson, en hann er að-
eins 17 ára að aldri, opnar mál-
verkasýningu á Akureyri n.k»
laugardag.
Kristinn hefur helgað málara-
listinni allar frístundir sínar und
anfarin ár, en sýnir nú í fyrsta
skipti opinberlega. (•
Sýningin verður í Varðborg —
heimili templara — og sýnir
Kristinn þar 60 myndir, flest
olíumálverk.
Vörubíll banar
98 kindum.
Vemeuil, Frakklandi í gær.
Stór vörubifreið ók í gær á
fjárhóp á þjóðveginum skammt
f^á Vemeuil og drap fjöida
kindanna.
Ókunnugt er um orsakir
slyssins, en vitað er, að 98
kindur voru drepnar í slysr
þessu, áður en bílstjóranum
tókst að stöðva vagninn.