Vísir - 19.10.1954, Blaðsíða 8
VÍSIR er ódýrasta blaðiS og þó þaS fjöl-
> ' * ■ — **»■
breyttasta. — Hringið í síma 1660 og
__________i#
gerist áskrifendur.
wlsxm
Þeir, sem gerast kaupendur VlSIS eftir
10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til
mánaðamóta. — Sími 1660.
Þriðjudaginn 19. október 1954.
Véf heppnaður fundur um
menningarhlutverk útvarpsms.
MJörvar gagnrvnir liharpsfrétiir en
nivarpsstjóri kvað menningarskci'l'
iitvarpsins niikinn.
Stúdentafélag Reykjavíkur kennari tók næstur til máls. Hann
.gekkst í gær fyrir öðrurn um-
iræðufundi sínum á þessum vetri,
®g var að þessu sinni rætt um
iinenningarhlutverk útvarpsins.
Fundurinn var fjölsóttur og fór
jhið bezta fram, eins og títt er um
umræðufundi þesaa félags.
Helgi Hjörvar, skrifstofustjóri
idvarpsráðs, flutti framsöguræðu,
langt mál, kom víða við, eins og
/hans var von og vísa, þótti fróð-
legur og skemmtilegur, djarf-
xnæltur á köflum.
Helgi deildi á ýmislegt, er
ihann taldi betur mætti fara í
rekstri útvarpsins. Einkum var
liann harðorður um innheimtu-
íyrirkomulag útvarpsins, er hann
taldi ekki ná nokkurri átt.
Hann taldi höfuðhlutverk út-
varpsins vera verndun íslenzkrar
■tungu, og yrðu þeir, sem kæmu
tfram þar, að vanda málfar sitt
svo vel, sem unnt væri, en á þessu
■taldi hann mikinn brest. Þá gagn-
rýndi hann útvarpsfréttirnar og
"taldi máli á þeim ábótavant.
Næstur talaði Auðunn Her-
mannsson skipstjóri. Hann sagði
æn. a., að frá sinu sjónarmiði væri
•dagskrá útvarpsins of þunglama-
leg, og að þar vantaði tilfinnan-
lega efni, sem hugstætt væri ungu
fólki. Hvað Helga Hjörvar snerti,
leit Auðunn svo á, að Helgi kæmi
ekki nógu oft fram í útvarpinu.
Vilhj. Þ. Gíslason útvarps-
stjóri tók næstur til máls. Út-
varpsstjóri taldi ádeilur á menn-
ingarstarf útvarpsins vafasamar,
■og benti m. a. á, að erindi þau,
•er flutt væru i útvarpið á einu
Ári, svöruðu til 25 binda af
Skírni, og væri það all-nokkuð.
Ýmsar fleiri tölur nefndi hann,
ináli sínu til sönnunar.
Frú Aðalbjörg Sigurðardóttir
leit svo á, að í fréttum útvarpsins
gætti um of frásagna af liryðju-
verkutn, „vellieppnaðra loftárása“
og þess konar, sem vafasanit
menningargildi væri að. Þá taldi
Siún, að ekki kæmu fram nægilega
margar óháðar skoðanir í dag-
skrá útvarpsins.
Björn Th. Björnsson listfræð-
ingur talaði næstur. Björn sagði
m. a., að sér fyndist, að í starf-
semi útvarpsins vantaði tilfinnan-
leg sérstaka deild, er liefði það
verkefni með höndum að tilreiða
■ -útvarpsefni.
Einar Magnússon menntáskóla-
Hoover boðið
til Bonn.
t Bandaríkjunum hefur flogið
fyrir, að Herbert Hoover, fv.
forseti muni bráðlega heim-
sækja Konrad Adenauer, kansl
ara Vestur-Þýzkalands.
Fer hann þangað í boði Aden
- auers. Eisenhower og Duiles
hafa hvatt Hoover til að þiggja
fcoðið. Hoover er áttræður, en
-Adenauer 78.
ræddi m. a. um útvarpsmessur,
og lýsti yfir því, að morgunmess-
urnar væru afleitar, enda lítið á
þær hlustað vegna anna og ýmis-
legs. Bæri að breyta þessu fyrir-
komulagi. Þá gagnrýndi hann
leikritaval útvarpsins. Sagði Ein-
ar, að leikritin væru oft léleg, og
bókstafleg skaðleg unglingum,
ljót og stundum klámfengin. Væru
slik leikrit síður en svo þrosk-
andi og líkleg til menningarauka.
Lúðvíg Guðmundsson skóla-
stjóri talaði siðastur. Tók hann
undir þau ummæli frú Aðalbjarg-
ar, að frjálsræði skorti i útvarp-
inu. Þá lagði Lúðvíg á það á-
herzlu, að áhrifa hlustenda á út-
varpið gætti allt of lítið.
Helgi Hjörvar flutti lokaræð-
un, og svaraði ýmsu, er fram hafði
komið í ræðum.
Þetta var annar umræðufundur
Slúdentafélags Reykjavikur á
þessum vetri, eins og fyrr segir,
og þótti takast ágætlega. Næst-
komandi föstudag gengst félagið
fyrir kvöldvöku, og verður þá m.
a. fitjað upp á nýmæli, vísnasam-
keppni, sem Bolli Thoroddsen
bæjarverkfræðingur stjórnar.
Emar iónsson
mrndiiöggvai'i lézt
í gær.
Prófessor Einar Jónsson
myndhöggvari andaðist í
Landakotsspítala í gær, rösk-
Iega áttræður að aldri.
Einar Jónsson var braut-
ryðjandi á sviði' íslenzkrar
myndlistar, éinn mikilhæfasti
listamaður, sem hin íslenzka
þjóð hefir átt, og vafalaust bezt
þekktur út um heim allra nú-
lifndi listamanna landsins.
Hann nam höggmyndalist í
Kaupmánnahöfn fyrir aldamót-
in, ferðaðist síðan til Suður-
landa og dvaldi um skeið vest-
an hafs, en heim kom hann árið
1920, og bjó hér alla tíð síðan
al Hnitbjörgum á Skólavörðu-
holti. Einar Jónsson var kvænt-
ur Önnu Maríu, f. Jörgensen,
danskri konu, er lifir mann
sinn.
Bandaríkjadeild SAS, nor-
rænu flugfélagasamsteyp-
unnar, tekur í vor í notkun
nýtt húsnæði í borgarhlut-
anum Queens í New Yorls,
en húsið, sem SAS hefur
látið reisa, kostar um 16
milljónir ísl. króna, og er
um það bil miðja vegu
Ýfingar meÓ
Dulles og Rhee.
Það er sagt orðið grunt á því
góða milli John Foster Dulles
utanríkisriáðherra Bandaríkj-
anna og Syngman Rhee’s for-
seta Suður-Kóreu.
Rhee er lítt samvinnuþýður
orðinn og Dulles hótar að sjá
um, að allt bandarískt herlið
verði kvatt frá Kóreu, en Banda
ríkjamönnum sé engin lífsnauð
syn að hafa þar herstöðvar með
an þeir hafi herstöðvar á Jap-
anseyjum, Filippseyjum og sam
vinnu við þjóðernissinna á For-
mósu.
milli Idlewild- og
Guardia-flugvalla.
La
Rak lengra en Kon-Tiki.
Tók laitd eítir 115 daga oj*
6500 iii. rek.
Landsbankinn hefur útgáfu
fjármálatímarits.
Hagliræðideildíii gefur það ót, og
nefnist það ..FjárEnálatíðindi'*.'
í síðustu viku bárust þær
fregnir frá Kyrrahafi, að mað-
ur nokkur hefði hnekkt fleka-
siglingarmeti Heyerdahls og
félaga hans.
Heyerdahl sigldi 4300 mílna
leið vestur yfir Kyrrahaf frá
Peru árið 1947, og tók sú sigl-
ing 102 daga. Þeir voru sex á
flekanum, en sá, sem betur
gerði, var einn síns liðs, hafði
aðeins kött og páfagauk sér til
afþreyingar og át páfagaukinn
tveim dögum áður en hann tók
land.
Það var Bandaríkjamaður,
William Willis, sem þetta
gerði, sigldi meira en 2200
mílum lengra en Heyerdahl og
félagar hans og var þó aðeins
13 dögum lengur. Hann er af
léttasta skeiði, því að hann er
61 árs, og beið kona hans milli
vonar og ótta heima í New
York, er ekkert fréttist til hans,
því að hann lét undir höfuð
leggjást að nota sendistöð sína.
Sagði hún er hún frétti, að
hann væri kominn fram, að ef
hann ætlaði sér að fara í slík-
an leiðangur áftur, iiiundi húH
verðá háseti hjá honum.
Nýtt tímarit hefur hafið göngu
sína, Fjármálatíðindi, og er það
gefið út af hagfræðideild Lands-
banka íslands. Ritstjóri er Jó-
hannes Nordal, hagfræðingur.
Ráðgert er að timrit þetta komi
út fjórum sinnum á ári. Söluum-
boð hefur ísafoldarprentsmiðja
h.f. í inngángsorðum segir að
ekkert tímarit sé til hér á landi,
scm hafi það hlutverk, að birta
aðgengilegar upplýsingar og
greinar um efnhag þjóðarinnar
og fjármál, en mikil nauðsyn, að
ahnenningur geri sér Ijóst eðli
slikra vandamála. Einnig hafi
vantað vettvang fyrir ritgerðir
og umræður um hagfræðileg efni,
og úr þessu vilji stjórn Lands-
bankans bæta með útgáfu Fjár-
málatíðinda. Áform um þetta hafa
verið lengi á döfinni, og í maí
1947 stóð til að hefjast handa, en
af þvi varð þó eigi þá, en nú hef-
ur ritinu verið hleypt af stokk-
unum, og þó með nokkuð öðru
sniði en upphaflega var ætlað.
í þessu fyrsta hefti eru birtar
hinar merku tillögur Landsbank-
ans í peningamálunum, sem Vísir
hefur fengið leyfi til að kynna
lesendum sínum með þvi að birta
þær í heild, þá er grein um láns-
féð og skipting þess, utanríkis-
viðskipti 1953, fréttaþættir, töflur
Averill Harriman er fylkis-
stjóraefni demokdata í
New York. Hann kom ný-
lega til Harlem, blökku-
mannahverfisins í New
York, á kosningaferðalagi,
og vakti það eigi litla at-
liygli, að hann hafði Marga-
ret Truman, einkadóttir
Trumans fyrrv. forseta, sér
við hlið.
o. fl. Oft er talað um liinn mikla
fjölda blaða og timarita hér á
landi, en þetta er vissulega þörf
útgáfa, sem bætir úr brýnni þörf,
og ber að fagna því, að Lands-
bankinn hefur nú hrundið í fram
kvæmd gamalli og góðri hug-
mynd.
Frá Flugféiagi islands:
Péstflutningar
þrefölduJust.
Farþegaílutnngar Flugfé-
lags íslands hafa aukizt um
20% í septembermánuði, mið-
að við sama mánuð í íyrra,
vöruilutningar aukizt um 82%
og póstflutningar innanlands
hafa þrefaldazt.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugfélagi íslands fluttu flug-
vélar félagsins 5944 farþega í
s.1. mánuði, þar af 4910 innan-
lands, en 1034 milli landa. —
Aukningin nemur 20% frá
sama mánuði í fyrra, því þá
voru 5005 farþegar fluttir.
Enn meiri aukning varð þó
í vöruflutningunum, eða sem
nemur 82%. í s.l. september
voru fluttar 131.679 kg af vör-
um, en í sama mánuði í fyrra
72.640 kg.
Póstflutningar innanlands
hafa aukizt ur 2270 kg. í sept.
i fyrra í 6919 kg nú. Hala þeir
þvi rösklega þrefaldazt.
Félagið fór fjórar ferðir til
Grænlands í mánuðinum með
farþega og flutning, þar af 2
ferðir til Meist ara vikur, 1 ferð
til Ellaeyjar og 1 ferð til Ang-
magsalik.
Um 40 ljósmyndarar sýna
samt. um 100 Ijósmyndir.
Sýningln verður væntanlega opnuð í viku-
lokin í þj’óðmmjasafnlnu.
Ljósmyndafélag Reykjavíkur
efnir til fyrstu aimennu ljós-
myndasýningar sinnar í viku-
lokin og er ráðgert að hún
verði opnuð n.k. föstudag í
Þjóðmin jasafnshúsinu.
Nær 40 atvinnu- og áhuga-
ljósmyndarar sýna þarna
myndir og eru myndirnar um
100 talsins.
Fyrir réttu ári var það sam-
þykkt á fundi í Ljósmynda-
félagi Reykjavíkur — en það er
félag áhugaljósmyndara — að
efna til almennrar ljósmynda-
sýningar hér í Reykjavík og
skyldi öllum heimil þátttaka,
en auk þess var Ljósmyndara-
félagi íslands, sem er félag at-
vinnuljósmyndara, sérstaklega
boðin þátttaka og boðin sam-
virtna um undirbúning og
myndaval á sýninguna.
Var sérstök dómnefnd skip-
uð til þess að velja myndir úr
á sýningunna af þeim myndum
sem bærust. Þrír nefndar-
manna voru frá áhugamönnum,
þeir Páll Sigurðsson, Óttar
Kjartansson og Ralph Hannam,
en tveir frá atvinnuljósmynd-
urum, Sigurður Guðmundsson
og Guðmundur Hannesson.
Niðurstaða dómnefndar var
sú að alls voru valdar úr um
100 myndir og hafa sumir
aldrei sýnt áður. Nöfn þátt-
takenda verða birt hér í
blaðinu á morgun.
Sýningin verður opin eitt-
hvað fram yfir n.k. mánaða-
mót. Ráðgert er að í sambandi
við hana verði flutt fræðandi
erindi um ljósmyndagerð og
tækni og kvikmyndir sýndar.
t