Vísir - 12.11.1954, Síða 12
VtSIR cr ódýrasta blaðið og þó það fjöl- & Þeir, sem gerast kaupendur VlSIS efttr
breyttasta, — Hringið i sima 1660 cg gerist áskrifendur. » 10. hvers manaðar, fá blaðið ókeypis tU máaaðamóta. — SímJ 1660. ' .
Föstudaginn 12. nóvember 1954
Jafna&armenn setja skHyrfti
fyrir setn í stjorn M. France.
Samþykkir fuiigiidiiigu Par-
ísarsaniiiinganna.
Einkaskeyti frá AP.
París í morgun.
Flokksþing jafnaðarmanna í
Frakklandi samþykkti í gær-
kveldi að ganga því aðeins að til-
boði Mendes-France um 6 ráð-
herraembætti, að vissum skilyrð-
um væri fullnægt. — Fyrr í gær
samþykkti flokksþingið fyrir-
mæli til flokksins, að greiða full-
gildingu Parísarsamninganna at-
kvæði.
Af hálfu flokksins hefur ekk-
ert verið tilkynnt opinberlega um
skilyrðin, en fréttamenn telja
fullvist, að þau miði að efnahags-
legum og félagslegum umbótum
í þágu verkalýðsins, eins og sagt
var í skeyti í gær var almennt
búiztvið, að slík skilyrði yrðu
sett.
Flokksþingið samþykkti með
geipilegum atkvæðamun (3000 :
450) fyrirmælin til þingmanna
flokksins imi fullgildinguna. —
Vekur einkum athygli live at-
kvæðamunurinn var gífurlegur,
en menn höfðu búizt við honum
minni, þvi að kunnir leiðtogar í
flokknum liafa lýst sig andvíga
endurvígbúnaðinum. Telja nú
fréttaritarar næstum öruggt, að
fulltrúadeildin staðfesti Parisar-
samningana i næsta mánuði.
Brezk blöð fagna afstöðu
flokksþings franska verkalýðs-
flokksins og telja hana bera
vitni um aukinn skilning á vanda
málum álfunnar og sömuleiðis
fagna þeir afstöðu leiðtoga
brezka verlcalýðsins, en sam-
þykkt hefur verið gerð um það,
að greiða fullgildingunni at-
kvæði. Þetta er talið sýna, að
tortryggnin í garð Þýzkalands sé
dvínandi meðal brezks verkalýðs,
og tvorttveggja samþykktin, að
vaxandi skilningur sé á nauðsyn
öflugrar samvinnu vestrænu
þjóðanna. Kom það fram á flokks
þinginu í Paris í greinargerðinni
fyrir ályktuninni um fullgild-
ingu,að menn óttast einangrun
Frakklands, ef það skærist úr
leik og felldi fullgildingu samn-
inganna.
Adenauer vongóður.
Adenauer kanzlari Vestur-
Þýzkalands spáði þvi i gær, að
vestur-þýzka sambandsþingið
myndi hafa afgreitt fullgilding-
una i janúar og öll aðildarriki
Síannstviburar
til sýnis.
New York (AP). — Dómari
nokkur í Los Angeles hefur
kveðið upp úrskurð, sem hefur
hneykslað marga.
Hefur dómari þessi leyft, að
fimm ára gamlir svertingjatví-
burar, samvaxnir, verði hafðir
til sýnis gegn greiðslu í fjölleika-
húsum. Er ætlunin að fcrðast
með þá um landið þvert og endi-
Jangt, sanitals ‘16,000 km. leið.
Parísarsamninganna fyrir febr-
úarlok. — Adenauer spáði því,
að þrátt fyrir gagnrýni þá, sem
fram he'fði komið á Saarsamkomu
laginu, myndi það einnig verða
staðfest.
Konur byggja sundbug
s Brísey.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í gær.
Kvenfélag Hríseyjar hefur
gengizt fyrir byggingu Sundlaug-
ar í Hrísey og sýnt í því virð-
ingarverðan dugnað.
Fyrir tveimur árum hóf Kven-
félagið fjársöfnun íþessu skyni og
safnaðist þá þegar 30 þúsund
krónur. En fjársöfnunin hefur
stöðugt verið haldið áfram og nú
er búið að steypa sjálfa laugina
og klefa og samtals varið í það 80
þúsund krónum. Gert er ráð fyr-
ir að kaupin verði fullgerð að
sumri.
í flæðarmáli norðanvert við
kauptúnið i Hrisey hefur fund-
izt heit laug, sem flæðir yfir við
flóð. Nú hafa Hríseyingar hugs-
að sér að reyna að hagnýta
þetta heita vatn fyrir sundlaug-
ina og er vonandi að það takist.
Hríseyjarkonur halda fjáröfl-
uninni áfram til sundlaugar-
byggingarinnar og þann 1. des.
n. k.efna þær til fjölbreyttrar
skemmtunar þar á staðnum til
ágóða fyrir þetta áhugamál sitt.
Hasarblaðaút-
gáf u hætt.
London (AP). — Nú mun svo
komið, að útgáfa „hasarblaða"
verður lögð niður í Bretlandi.
Fjölmörg félög höfðu sam-
þykkt mótmæli gegn útgáfustarf-
semi þessari, og þar á meðal fé-
lag eigenda blaðsöluturna. Það
var einn maður, sem hafði með
höndum útgáfu nærri allra slíkra
blaða, og hefur hann tilkynnt, að
vegna andúðarinnar á þeim,
muni hann hætta þessari starf-
semi.
Fé dregið úr fonn.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri I gær.
í hríðarveðrinu, sem gerði
norðanlands um mánaðamótin
síðustu, fennti talsvert af fé í
Bárðrdah
Leit hefur verið gerð að fénu
viðsvegar í sköflum, þar sem helzt
þótti liklegt að kinda væri von.
Nýlega fundust þrjár kindur af
átta, sem saknað var frá Mýri.
Sömuleiðis fundust 13 fenntar
kindur frá Úlfsbæ í Bárðardal,
allar lifandi en mjög þjakaðar.
Vonlaust þykir að hér eftir
finnist fleira lifándi fé af því, sem
fennti í framangreindu hriðar-
veðri. i .:
leðalhitá mánaðarins í
'kjavík var 3,6 stig en það
),7 stigum kaldara en í með-
:i. Á Akureyri var hitinn
stig eða 0,4 stigum undir
Næst síðasta umferð í
brídgekeppiEi Brefðfirð-
inga.
í tvímenningskeppni Bridge-
deildar Breiðfirðingafélagsins-
er staðan í A-riðli þessi eftir
fjórðu umferð:
Ivar — Gissur 357 st.
Dagbjört — Kristján 343 —
Einar — Ingi 341(4 —
Baldvin — Lilja 335(4 —
Magnús — Þórarinn 332(4 —
Einar — Ingólfur 330(4 —
Guðrún — Óskar 327 —
Olgeir — Benedikt 326(4 —
Magnús — Bergsveinn 323 —
Ragnar — Magnús 322 (4 —
Þórarinn — Þorsteinn 321 —
Thorberg — Bjarni 320 —
Daniel — Kristín 316(4 —
Hjörtur — Ólafur 315 —
Síðasta umferð verður spiluð
í Breiðfirðingabúð n. k. þriðju-
dag kl. 8.
Vísir sagði fgrá því á sínum tíma, að mál væri rekið fyrir
rétti í Þýzkalandi, til að slá því föstu, að Hitler væri dauður.
Eitt helzta vitni málsins var tannlæknir, Echtmann, sem
skýrði frá því, að tanngómur, er hefði fundizt úti fyrir sprengju-
byrgi Hitlers, væri hinn sami og hann, tannlæknirinn, hefði á
sínum tíma smíðað fyrir Hitler. Echtmann vildi ekki láta taka
mynd af sér í sambandi við réttarhöldin og var þessi mynd
tekin af honum (t. v.), er hann reyndi að leynast ljósmyndurum.
Meðalhiti októbermánaiar var
3,6 stig í Reykj'avík.
" *
Urkoma varð hér í 23 das>a.
Samkvæmt viðtali við Öddu
Báru Sigfúsdóttur, veðurfræð-
ing, mun veðrið í október hafa
verið svipað því, sem venja er
til, um þetta leyti árs.
Þýzki flokkurinn, sem er
minnsti stuðningsflokkur
Adenáuers, hefur gagnrýnt
Saarsamkomulagið, og hafa
nú 3 af 4 stjórnmálaflokk-
um gagnrýnt það. Þýzki
flokkurinn kveðst hinsveg-
ar munu greiða fullgildingu
Parísarsamninganna at-
kvæði.
Stúdentinn...
r. Framh. af 1. síðu.
við tökum við. Loks er þess að
geta, að þetta er ein bezta og
skynsamlegasta landkynning,
sem völ er á. Hinir erlendu.
stúdentar, sem hingað koma til
náms, verða margir hverjir
kennarar í heimalöndum sín-
um og geta þannig miðlað
miklum fróðleik um land okk-
ar og þjóð. Virðist fé því, sem
til þess er veitt, mjög skynsam-
lega varið, og væri athugandi.
að auka þá fjárveitingu eftir
getu.
Annars má geta þess, að nú
stendur yfir kynning fyrir er-
lenda stúdenta, sem nám
stunda við Háskóla íslands, og
eru nú flutt erindi, farið í
ferðalög um merka staði,
heimsóttar stofnanir ýmsar og
iðjuver.
Yfir hálf milljón manna
sóttu brezka vörusýningu í
Bagdad. Mesta athygli vakti
sjónvarpsstöð, sem Irak-
búar hafa mikinn hug á að
kaupa og starfrækja.
Gunnar Gunnarsson framsogu-
maiur um vestræna menninp
og kommunisma.
Fram að miðjum mánuði var
víðast hvar frostlaust nema á
Norð-Austurlandi. Þann 15.—
17. okt. var frost um land allt.
Yfirleitt var ekki um verulegar
frosthörkur að ræða í októ-
bermánuði en þó komst frostið
upp í -4- 13 stig á Grímstöðum
á Fjöllum.
Síðari hluta mánaðarins
skiptist á frost og þíðviðri.
Stormar voru fremur fátíðir og.
úrkoma með minna móti.
í Reykjavík varð úrkomu
vart í 23 daga, en úrkomu-
magnið vaY' óverulegt nema
þann 8. og 9. og þann 11. og 12.
Enginn teljandi snjór var í
Reykjavík sl. mánuð. Meða'i
frost mældist þar vera -4- 5,4
stig og var það þann 16. og
hæsti hámarkshiti mánaðarins
var 11,5 stig.
Sólskinsstundir voru 81 og er
það svipað því sem venjulegt
er.
Heimdallur, félag ungra
sjálfstæðismana, efnir til um-
ræðufundar á sunnudaginn
kemur um vestræna menningu
og kommúnisma, og mun
Gunnar skáld Gunnarsson
hefja umræður.
Fátt ér eins ofarlega á baugi
og umræðuefnið, sem Heim-
dallur hefur valið sér að þessu
sinni. Um fátt er méira talað
en vestræna menningu og
kommúnisma, þessar andstæð-
ur, sem barist er um í heim-
inum, bæði í ræðu og riti. Hér
eigast við lífsskoðanir og hug-
sjónir vestrænnar menningar
og myrkur það, sem kennt er
við kommúnismann, og snertir
þess vegna sérhvern nútíma-
mann.
Stjórn Heimdallar hefur
verið svo heppin að fá önd-
vegishöfundinn Gunnar Gunn-
arsson til þess að reifa málið,
og verður fróðlegt að heyra,
hverjum tökum hann beitir við
það.
Þetta er fyrsti umræðufund-
ur Heimdallar á þessum vetri,
og verður vafalaust fjölmennt
í Sjálfstæðishúsinu á sunnudag,
en fundurinn hefst kl. 2 e.h.
Vérður svipað snið á fundinum
og þeim, sem haldinn var um
handritamálið s.l. vor, og mörg-
um er minnisstæður. — Öllum
er heimill aðgangur meðan
húsrúm leyfir.