Vísir - 15.11.1954, Side 1
12
44. árg.
Mánucs,
i 15. hovember 1954
261. tbL,
Þau tíðindi gerðust hér í
bænum í fyrrinótt að maður
gekk í svefni út um glugga á
þriðju hæð og slasaðist nokkuð.
Um fjögur leytið í fyrrinótt
var lögreglunni lilkynnt að
maður hafi dottið ú.t um glugga
á húsi einu hér í bænum og
meitt sig.
Bæði lögregla og sjúkralið
fóru á staðinn og var sá slas-
aði fluttur á sjúkrahús. Hafði
hann farið út um glugga á
þriðju hæð hússins, og var
þarna um 8 metra hátt fall að
ræða. Maðurinn hlaut mikinn
skurð á handlegg og blæddi
mjög úr.
Móðir mannsins skýrði lög-
reglunni svo frá að hann ætti
vanda til þess að ganga í svefni
og myndi hann hafa gengið
sofandi út um gluggnn.
Innbrot.
í nótt var innbrot framið í
verzlun Hans Petersen í Banka-
stræti og stolið þaðan þremur
rifflum og tveimur skeiðar-
hnífum.
Árla dags í gær var lög-
reglunni tilkynnt frá Langholts
vegi að þaðan sæist til tveggja
drengja, sem væru að reyna að
komast inn um glugga á verzl-
un Kron, sem er til húsa á Lang
holtsvegi 24. Lög'reglari hand-
samaði báða drengina, sem eru
á aldrinum 9 og 11 ára og við
yfirheyrzlu kom í ljós, að þeir
höfðu brotizt þarna inn áður.
Ölvun.
TÖluverð brögð vpru að ölv-
un í bænum og m. a. brutu ■ . v
aðir menn rúður á uokkrum
stöðum, ýmist ‘viijandi eoa ó-
viljandí og þar á méðál bæði
rúðu í veitingahúsi o:_ verzlun.
í fyrrinótt gerði náungi sig
sekan um það, að aka ölva’ður
móti allri umferð um Lauga-
veginn, imz hann lenti í á-
rekstri og var þá tekinn fastur.
Var maður þessi mjög drúkk-
inn og olli talsverðum skemmd-
um á farartækjunurn, er árekst-
urinn varð.
í fyrrinótt tók lögreglan
mann, sem lá ofurölvi í dái
fyrir framan dyr eins veitinga-
hússins hér í bænum. Lögrégl-
an fekk lækni til þess að at-
huga manninn til frekara ör-
yggis, en læknirinn taldi ekki
annað að manninum en ölvun.
létta öllu amstri af
SlasaÖist á skíliem.
í gær slasaðist maður, sem
var á skíðum skammt frá Lög-
bergi.
Þetta var útlendingur, sem
farið hafði í skíðaíerð lipp fyr-
ir Lögberg, en hlaut siæm.
byltu í námunda við Se.lfla!!.
Mun maðurinn annað hvort
hafa mjaðmarbrotnað eða farið
úr liði á mjöðm og var Guð-
mundur Jónasson bifreiðarstjóri
fenginn til þess að sækja hann
og flytja í sjúkrahús.
IMaguib forseti Egypfa
var hatidfekinn i gær.
Verður leicldur fyrir rétt. Fær ekki
eð fara í útlegð.
Einkaskeyti frá AP. —
Kairo í morgun.
Tilkynnt Ihefir verið af hálfu
Byltingarráðsins, að til þess
komi ekki, að Naguib forseti
fái að fara úr land; í útlegð. í
opinberri tilkynningu er einnig
gefið í skyn, að Naguib kunni að
verða leiddur fyrir rétt.
Fregnir í gær hermdu, að
hann hefði verið settur í stofu-
fangelsi, en í fréttatilkynning-
um í morgun er talað um
„handtöku" ‘hans, en Naguib
hafi verið tekinn höndum eftir
að Bræðralagsforsprakkar, sem
nýlega voru handteknir, ját-
uðu, að Bræðralagið hefði haft
samstarf við Naguib. Við rétt-
arhöldin . yfir tilræðismanni
Nassers báru vitni það einnig,
að Naguib hefði átt að ávarpa
þjóðina og biðja hana að gæta
stillingar, ef morðtilraunin við
Nasser hefði heppnazt.
Um handtöku Naguibs er
nokkuð rætt í brezkum blöð-
um, sem virðast hafa rennt
grun í hvert krókurinn beygðist,
eftir að sendiherra Egyptalands
var kvaddur heim, en hann er
bróðir Naguibs forseta. Margir
Bræðralagsmenn hafa flúið frá
Egyptalandi til Sýrlands og á-
róður þeirra hefir spillt svo
góðri sambúð Sýrlendinga og
Egypta, að ríkisstjórn Sýrlands
hefir beðið Bræðralagsmenn
þar í landi að hatta öllum
„árásum á Egyptaland“.
Brezku blöðin ræða í sam-
bandi við þessi mál, að reynsl-
an af hemaðarlegum stjórnum
sé ofast sú, að þær verði sjálf-
um sér að falli.
Maðurinn í myndinni heitir
Laggeberger og er sænskur.
Hann virðist hafa talsvert fé
til umráða, því að hann langar
til þess að kaupa hluta af hinni
frægu Nýhöfn í Kaupmanna-
höfn. Þar hyggst hann láta
reisa stórt sænskt gistihús og
gildaskála. Kaupverðið, ef um
semst, mun vera um 5 millj.
d. kr.
De Gaulle „sérlepr sendi-
fierra“ í Moskvu ?
De Gaulle hershöfðingi kann
að fara til Moskvu innan
skamms sem sérlegur sendi-
herra frönsku stjórnarinnar, til
þess að ræða bætta sambúð
þjóðanna í austri og vestri.
Frá þessu er sagt í banda-
ríska vikuritinu NewsweeE,
sem telur að Mendes-France
hafi þetta til „alvarlegrar at-
hugunar".
Vopnasmygli
stjórnað í París.
Einkaskeyti frá AP. —
París í morgun.
Franska Iögreglan í Mar-
okkó hefir haft hendur í hári
vopnasmyglara, sem hafa
um langt skeið smyglað
miklu af vopnum og skot-
færum til spellvirkja frá
Spænska Marokkó. Hefir
rannsókn málsins leitt í
[jós, að smyglararnir hafa
staðið í sambandi við menn
í Frakklandi, sem Iiafa út-
vegað þeim vopnin, og eru
aðalstöðvaú samtakanna hér
í París.
Vilji eða viljaleysi ræður úrsíítum
í baráttu við kommúnismann.
A.fIíBirdífi-!SEBj©Il ræða <*ífifiiiifi»rs slí.ál®Is
tÍBBiBnarssoBíar á Sffeiin«Iaflarfiiiidl
í gær.
Sjálfstæðishúsið var þéttsetið tilheyrendum, er Gunnar skálcf
Gunnarsson flutti framsöguræðu sína á umræðufundi Heim-<
dalíar, sem þar var haldinn í gær.
Ræða Gunnars Gunnarssonar
var afburða snjöll, leiftrandi af
speki og skarplegum athugun-
um, eins og vænta mátti af svo
mikilhæfum manni.
Þess er enginn kostur að gera
ræðu Gunnars nokkur viðhlít-
andi-skil í stuttri blaðafrásögn,
en hér verður þó reynt að geta
nokkurra atriða úr henni.
Skáldið hóf ræðu sína
með því að segja dæmisögu, er
hann hefði lesið í svissnesku
blaði, er byggðist á hinni ódauð
legu sögu Grimms-bræðra um
Rauðhettu. Nú væri mörgum
líkt farið og Rauðhettu, sem
full trúnaðartrausts hætti sér
inn í myrkviðinn, þrátt fyrir
aðvaranir og holl ráð, og vand-
séð um afdrif þeirra. Ekki end-
uðu öll ævintýri jafn vel og
sagan um Rauðhettu og ömmu
hennar, sem losnuðu úr kvið
villidýrsins. Óvíst væri, hvort
þeir losnuðu úr kviði hins póli-
tíska villidýrs, sem þangað
væru komnir.
Vellíðan
austan tjalds.
Síðan brá skáldið upp snjallri
mynd af sæluríkjunum ausfan
tjalds, þessu Gósenlandi, þar
sem stjórnarvöldin létu þegn-
um sínum líða svo vel, að þau
hefðu jafnvel iétt af þeim öllu
amstri í sambandi við lands-
stjórn og kosningar, t. d. hefðu
A.-Þjóðverjar fyrir skemmstu
kosið eftir hinum nýja sið og
greitt Valdhöfunum atkvæði, og
hlutu þeir hvorki meira né
minna en 99.3% greiddra at-
kvæða. Hins kann mörgum að
þykja skrítið, að Austurríkis--
menn kunna ekki að meta þessa
stjórnarháttu, því að í kosn-
á hernámssvæði Rússa ekki
nema 8.6% atkvæða, en annars
staðar í landinu 5% atkvæða.
Geta menn dregið sínar álykt-
anir af því.
Skáldið sagði, að vestræn
menning ætti nú í vök að verj-
ast. Kommúnistar og fylgifisk-
ar þeirra leitast við að tor-
tryggja samstarf frelsisunnandi
þjóða. Atlantshafsbandalagið
var rökrétt afleiðing af endur-
vígbúnaði Rússa eftir styrjöld-
ina. Kommúnistar ætla að ær-
ast, ef þeim er ekki leyft að
einoka vopnabúnað’ heimsins.
Vilji eða
viljaleysi.
Nú er það vilji eða viljaleysi
hins frjálsa heims, sem ræður
úrslitum í baráttunni milli vest
rænnar menningar og komm-
únismans.
Ræðumaður minntist þess,
að þrátt fyrir ýmis víxlspor
vestrænna þjóða, væri vestræn
menning engin aukvisi. í þeim
efnum eru við íslendingar einn
ig ábyrgir. Hlutskipti okkar í
sögu vorri hefur stundum ver-
ið þungbært, en aldrei neitt í
líkingu- við áþján þá, er ýmsar
þjóðir eiga nú við að búa af
völdum kommúnismans. Allt of
margir hafa verið sviptir hin-
um sjálfsögðustu mannréttind-
um.
Stundum væri sagt, sagði
ræðumaður, að menntamenn og
Eramhald á 7. síðu.
Eldur kæfður með snjó.
Husi bjargai á þann hátt frá efdsvoða.
Frá fréttaritara Vísis. -—
Akureyri í morgun.
Fyrir nokkru kom upp eldur
í einum bæjanna í Grímsey —
bænum Miðgörðum.
Hafði eldurinn kviknað út
frá olíukyndingu, sem er í kjall
ara hússins.
Slökkvistarf var allmiklum
vanda bundið þar á bænum, því
ekkert vatn var þar tiltækilegt.
Slökkvitæki eru heldur ekki
önnur til, en tæki sem flug-
völlurinn hefur nýlega fengið,
én þenna dag var .stórhríð og
niikill snjór kominn svo ekki
var hægt um vik að koma tækj-
unum. Var því gripið til þess
ráðs að bera snjó á eldinn og
unnu að því bæði heimamenn
og aðrir sem komu á vettvang
til hjálpar.
Verulegar skemmdir urðu á
kjallara hússins, en fyrir at-
orku þeirra, sem unnu að
slökkvistarfinu tókst að bjarga
húsinu að öðru leyti.