Vísir - 24.11.1954, Síða 12

Vísir - 24.11.1954, Síða 12
r VtSIK er ódýrasta blaðið og þó það fjöl- breyttasta. — Hringið í síma 1660 og gerist áskrifendur. Miðvikudaginn 24. nóvember 1954 Þeir, sem gerast kaupendur VÍSIS eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. — Sími 1660. Fjögur falleg verk komin út á vegum Lithoprents. Þar á meéa! erti „Gömtil bíö57/ eftlr Kjarval og „Bsland farsæfda Frón" . Lithoprent heíur sent frá sér 1 fjðgur verk, sem fyrirtæki hefur að fullu gengið frá, og eru til- valin til gjafa. Hefur fyrirtækið fengið nýja vél, sem notuð hefur vérið við prentun á bókum þessum, og kemur það greinilega í ijós af prentuninni, að þetta er undra- tæki hið mesta, því að svo falleg- ar eru bækurnar og vel gerðar. Ekki er þó rétt að tala um bók í einu tilfellinu, því að þar eru um möppu með gömlum lista- verkum eftir Kjarval að ræða — „Gömul blöð“ eftir hann. þessi „gömlu blöð“ eftir hinn viður- kennda snilling, eru 16 manna- myndir, sem listamaðurinn hef- ur sjálfur valið. Myndirnar eru Ijösprentaðar í þrem mismun- andi litbrigðum, eftir því sem bezt þótti fara við fyrirmyndirn- ar, og eru myndirnar prentaðar á vandaðan, þykkan pappír, en lisgja- lausar í fallegri og vand- aðri möppu. Af safui þessu eru aðeins gefin út 750 eintök, töiu- sett og árituð af listamanninum, sjálfum, sem gerir verk þetta hvort tveggja í senn, persónu- legra og eftirsókriarverðara Hin gullfallega og vandaða bók „ísland farsælda frón‘f íneð Jjósmyndum af landi og þjóð eft- ír Hjábnar R. Bárðarson er nú komin út í annarri útgáfu, en fyrsta útgáfa gekk með öilu fil þurrðar snemma á þessu ári, svo eftirsótt var bókin. Nú er bókin í vönduðu og smekklegu bandi, með fallegi'i hlífðarkápu og er ó- dýrari í bóka'búðum en hún var i fyiTa. Óhætt mun að fullyrða að þetta sé ein bin aílra fegursta jólagjöf ó bókamarkáðinum, sem vq! er á, og er hún alveg sér- staklega hentug til gjafa út úr Jandinu, þar sem allir mynda- og skýringatextar eru á G tungu- málum. þessi önnur útgáfa af „ísland farsælda frón“ er aðeins prentuð í takmörkuðu upplagi. Sagan af Dimmalimm. Hin yndislega barnabók Muggs -— Guðmundar Tborsteinssonar — sem undanfarin ár hefur ver- ið áfáanleg, er nú loksins komin aftur á markaðinn — í fyrsta sinni prentuð á Islandi — í ijós- prentun frá Litboprenti. Ekki mun leika tíbkkur efi á því að Dimiriálimm verður kærkomin jólabók yngstu kynslóðarinnar,, ekki livað sízt þar sem þjóðleik- búsið ætlar að sýna „ballet“ við ævintýrið um Dimmalimm núna um jólin. Loks er „Töfratréð", lítil barna toók, sem kóstar 10 kr. í bóka- búðum, prentuð í 4 litum með léttum lesmálstetxa í bundnu máli. Ætti þessi litla bók að geta aflað sér almennra vinsældir barnanna. Sjórekið lík finnst á Akureyri. Akureyri í morgun. Sjórekið lík fannst á Odd- eyrartanga í gær og hefur það reynzt vera af Jóhannesi Sig- urðssyni frá Húsavík, en hann hvarf á Akureyri 17. júni í sumar. Menn sem voru að vinnu fremst á Oddeyrartanganum í gær urðu liksins varir og gerðu lögreglunni strax aðvart. Reyndist líkið, eins og áður getur, vera af Jóhannesi Sig- urðssyni sjómanni frá Húsavík. Hafði hann ráðið sig á Akur- eyrartogarann Jörund, en 17. júni í sumar eða daginn sem Jóhannesar var saknað, lá Jör- undur við bryggju á tangan- um. Jóhannesar var mikið leitað, en sú leit bar ekki árangur. Prestnr ver&i ráðinn til að annazt sálgæzlu í Reykjavík. Frá famdi Eirkjuráðsi. Kirkjuráð kom saman til funda nýlega undir forsæti Isiskíos, en í því eiga sæti auk Iians séra Jón Þorvarðsson og séra Þorgrímur Sigurðsson kjörnir af prestum og Gissur Bergsteinsson hæstaréttardóm- og Gísli Sveinsson fyrrv. sendiherra kjörnir af héraðs- fundum, og er Gísli varafor- seti ráðsins. Að þessu sinni ræddi ráðið mörg mál varðandi kirkju og kristnihald. Má þar nefna m. a.: RáðiS mælti með því, að ráð- inn verðr prestur til þess að gegna þjónustu í forföllum sóknarpresta og þar sem brauð cru prestlaus um stundarsakir. Ráðið tjáði sig hlynnt því, að fenginn verði prestur til þess að annast sálgæzlustörf í Reykjavík í samvinnu við lækna, einkum meðal sjúkra manna, gamalmenna, fanga og þeirra annarra, er þarfnast hugarstyrkingar og hollra ráða. Ráðið taldi óviðunandi, að prestar og aðrir guðfræðingar hefðu ekki að lögum fullkomin kennsluréttindi í kristnum fræðum í barna- og unglinga- skólum landsins. Bæri að því að stefna, að guðfræðilærðir menn hefðu þessa kennslu með höndum í skólunum, þar sem því yrði við komið. Biskup las skýrslu Skálholts- nefndar og áætlanir um fram- kvæmdir í Skálholti. Urðu um hana nokkrar umræður, en engar ályktanir gjörðar. Óvesijugéö kabarott- söngk'ona a5 Röðli- Samkomuhúsið Röðull hefur fengið hingað óvenjulegan skemmtikraft en hað er danska kabarettsöngkonan Inga Völ- mart. Hún mun dvelja hér um mánaðartíma og koma fram á Röðli tvisvar á hverju kvöldi og syngja m. a. lög frá ýmsum löndum, klædd viðeigandi þjóð- búningum. Söngkonan syngur bæði dægurlög og klassisk lög. Blaðamönnum gafst kostur á að hlýða á söngkonuna í gær, og kom í ljós að hún hefur óvenju háa og hljómþýða rödd af kabarettsöngkonu að vera. Framkoma hennar er mjög lát- laus og aðlaðandi. Frk. Völmart hefur getið sér góðan orðstír í Danmörku, fyr- ir söng sinn svo sem úr danska útvarpinu, frá National-Scala, og Atlantic-Palace og fleiri stöðum. Þegar söngkonan fer héðan að lokinni dvöl sinni fer hún í söngför um Danmörku, sem mun standa yfir allt fram að páskum. Hljómsveit Árna ísleifs mun annast allan undirleik aúk þess sem hún leikur. fyrir dansin- um. Ólafur Ólafsson eigandi Röð- uls er sá fyrsti, sem býður gest- um sínum upp á ókeypis- skemmtikrafta á kvÖldin og hefur hann í huga að fá hingað fleiri erlenda skemmtikrafta í vetur auk innlendra skemmti- krafta. Miklir vatnavextir á Englandi. Vatnið yfir metri á dýpt í mörgum hæjum. Einkaskeyti frá AP. London í morgun. Mikil flóð eru nú á Englandi. Hafa margar ár flæft yfir bakka sína og stór landsvæði éru und- ir vatni. 1 Hampton og fleiri bæjum var vatnið nokkuð á annan metra á <lýpt í gær á götunum- en liorfur á, að það muni fara að sjatna. Yfir 40 þjóðvegir voru í gær ófærir á köflum, vegna þess að vatn hafði flætt yfir þá. Úr- komusamt hefur verið mjög síð- an um helgina og tjón orðið af iivassviðri og vatnavöxtum um gervallt landið. Iimbrot í nótt — rán í gær. Sltvs viö liöfnina i gær. Innbrot var í nótt framið í vörugeymslur Helga Magnús- sonar & Co. bak við verzlun fyrirtækisins 1 Hafnarstræti. Mál þetta var í rannsókn í morgun og ekki upplýst hveiju stolið hafði verið þégar blaðið fór í prentun. Slys varð við höfnina í gær- morgun er vírstroffa slóst í fót manns á útlendu skipi, sem liggur hér í höfninni. Maður- inn meiddist nokkuð og var fluttur í sjúkrabifreið á Land- spítalann. Telpur rændar. Tvær ungar telpur, 7 og 8 ára gamlar, voru rændar í.gær, er þær voru á leið í banka til Bridge: Sveitir Eggrunar og irynjóífs efstar- þess að leggja inn 900 krónur sem þær höfðu meðferðis. Hittu þær mann að máli í Austurstræti og spurðu hann vegar í Útvegsbankann, en þangað var ferðinni heitið með peningana. Maðurinn visaði þeim leiðina, en innti telp- urnar jafnframt um erindið í bankann og sögðu þær allt af létta. Kvaðst maðurinn þá vera starfsmaður bankans, tók af þeim peningaan og þegar þau voru öll komin að bankadyr- unum ýtti hann telpunum inn. fyrir en tók sjálfur til fótanna yfir í Hainarstræti og þaðan £ Tryggvagötu og hvarf þar sýn- um. Maðurinn var dökkhærður, berhöfðaður, í gráurn fötum og plastkápu og eru vegfarendur, sem kunna að hafa séð til ferða hans eða gefið get.a aðrar upp-: lýsingar um óþokka þenna að gera lögreglunni aðvart. Þriða umferð í sveitakeppni 1. flokks í bridge var spiluð í gær- kveldi og fóru leikar þannig: Eggrún vann Kristján Þor- steinsson, Ólafur Hannesson og Ólafur Þorsteinsson gerðu jafn- tefli, Gunnlaugur vann Mar- gréti Jensdóttur, Vigdís vann Hersvein, Hallur vann Ólaf Ein- arsson, Jón vann Þorstein, Kristján Magnússon vann Bjarna, Zophonías vann Margréti Ásgeirs dóttúr, Jens vann Gísla, Iiaf- steinn vann Ingibjörgu og Elín vann Helga. Eftir þessar þrjár umferðir eru sveitir Eggrúnar Arnórsdótt- ur og Brynjólfs Stefánssonar efstar með 6 stig hvor og næst- ar koma sveitir Ólafs Hannes- sonar, Ólafs Þorsteinssonar og Vigdísar Guðjónsdóttur nieð 5 stig hvor. Fjórða umferð verður spiluð n.k. sunnudag. Svíar hækka. Einkaskeyti til Vísis. — Stokkhólmi í gær. Meðalhæð manna í Svíþjóð eykst stöðugt. A árunorn. 1841—45 var meðalhæð 167,4 cm., en 100 árum seinna var meðalhæðin 174,5 cm. og hafði aukizt um 7,1 cm. Á tímabilinu 1925 til 1953 hafði meðalhæð aukizt frá. 172,7 cm. upp í 175,7 cm- Börn verða líka að jafnaði: hærri en foreldrarnir. M.-France á heimleíð. Mendes-France forsætisráð- herra er nú á leið heim tíl Frakklands loftleiðis. Hann sagði við burtförina, að Frakkland vildi byggja upp Evrópu. Var dæmdur dauður, en sann- aði, að hann væri á lífi. Övenjulegt mál fyrir rétts í §koiIandi Einkaskeyti frá A.P. — Edinborg 19. nóv. Þrjátíu og níu ára gamall .maður sór fyrir rétti hér í gær og reyndi að sanna, að hann væri á lífi. Hann gerði grein fyrir máli sínu, en engin lausn fékkst. Bæði rétturinn og málafærslu- menn voru í vafa! Maðurinn heitir James Martin og hvarf árið 1944, eft- ir að heimili hans hafði verið eyðilagt þrisvar sinnum í sprengjuárásum. — Ég hef kannski verið dá- lítið ruglaður á sinninu, sagði hann — og taugar mínar voru í hræðiíegu ólagi. Hann ákvað að yfirgefa allt, bæði konu og börn, og fekk vinnu í amerísk- um herbúðum. Kona hans, Annie Jane Martin, beið árum saman eftir því, að hann kæmi aftur, en að lokum fékk hún dómsúr- skurð fyrir því að mega líta á sig sem ekkju. Á þann hátt öðlaðist hún rétt til þess að taka út peninga af bankainn- eign manns síns sem hún hafði „dóm“ fyrir að væri dauður. En þegar hún kom í bankann, var henni sagt, að Martin hefði komið sjálfur og tekið út pen- ingana og á þeim forsendum var frú Martin synjað Um ekkjulífeyri. Því næst höfðu yfirvöldin uppi á manninum. Frú Martin tilkynnti eigin- manninum, að sér væri ómögu- legt að hefja sambúð með hon- um að nýju eftir svona langan skilnað. Réttarhöldin í gær staðfestu að maðurinn væri á lífi, en áður hafði verið gefinn út dómur fyrir því, að hann væri dauður og vita nú hinir lögspöku menn ekki sitt rjúkandi ráð.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.