Vísir - 25.11.1954, Blaðsíða 8

Vísir - 25.11.1954, Blaðsíða 8
. ¥ISIB er ódýrasía blaðið og þó það fjöl- breyttasta. — Hringið í síma 1660 ®g gerist áskrifendur. r - \ & wMwv.’m. * Fimmtudaginn 25. nóvember 1954 Þeir, sem gerast kaupendur VÍSIS eftlr 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. — Sími 1660. IMeytendasaKnfökin: Fjárskortur befir dregidúr gæðamatsrannsóknum. IJniftiðt fyrir marga eisistaklinga, iöldn sig órétti heiita við vörtikaup. Aðalfundur Neytendasamtak- anna var haldinn 18. þ. m. For- snaður samtakanna, Sveinn Ás- geirsson, hagfræðingur, setti fundimt, en fundarstjóri var Kannveíg Þorsteinsdóttir, lög- ffxæðingur. Formaður flutti ítarlega skýrslu um störf stjórnarinnar á liðnu ári. Samtökin opnuðu skrifstofu á árinu í Bankastræti 7, og hefur hún verið opin 5 ðaga vikunnar, hluta af degi, og veitir almenningi ökeypis lög- fræðilegar upplýsingar og að- stoð vegna vörukaupa eða keyptrar þjónustu og annast miUigöngu í því sambandi, auk þess að vera miðstöð allrar atarfsemi samtakanna. Hefur rankill fjöldi fólks leitað til æfcrifstofunnar og mikið starf verið unnið þar fyrir einstak- Unga, sem hafa talið sig órétti feeitia við vörukaup. I fyrstu réð stjórnin lögfræðing til að vrara á skrifstofunni hálfan dag- inn, en af fjárhagsástæðum varð að hætta því, og tók for- snaður að sér að vera til viðtals 2tíma á dag, en lögfræðingar í stjérn samtakanna önnuðust lög fræðiíeg atriði mála. Væntan- lega verður hægt að lengja skrifstofustímann bráðlega, enda mikil þörf á því, þar sem starfsemi Neytendasamtakanna verður æ umfangsmeiri, m. a. vegna hinnar víðtæku útgáfu ffræðslubæklinga, sem þau eru biú að hefja. un afgreiðslunúmera, innpökk- un brauða, dagsetningarstimpl- un kaffipakka, sem er eins konar gæðamerking, heimsend- ing mjólkur, sem rætt hefur verið um við Mjólkursamsöl- una, o. fl. Þá hafa samtökin unnið að undirbúningi að út- gáfu fræðslubæklinga og fengið útgáfurétt hérlendis á f jölmörg- um ritum erlendra neytenda- samtaka. Ýmsar ályktanir voru sam- þykktar á fundinum og verður þeirra getið síðar. Margar lagabreytingar voru samþykktar, og var sú mikil- vægust, að samtökin eru ekki lengur bundin við Reykjavík, heldur geta allir sem orðnir eru 16 ára, orðið meðlimir í sam- tökunum. Árgjald er óbreytt, 15. kr., og eru almennir fræðslubæklingar innifaldir í því og sendir til meðlimanna, ásamt Neytendablaðinu. Sveinn Ásgeirsson var endur- kjörinn formaður Neytenda- samtakanna í einu hljóði, en auk hans eru 14 í aðalstjórn og jafnmargir til vara. Samtökin hófu gæðamats- »annsóknir, svo sem kunnugt er, era slíkar rannsóknir eru mjög áýrar yfirleitt, og hefur fjár- skortur tafið mjög frekari rann- sóknir. Umfangsmiklar saman- liurðarrannsóknir voru gerðar á áslenzkum og erlendum lyfti- duftum, sem húsmæður skyldu kynna sér fyrir jólabaksturinn, ©g að gefnu tilefni var þvotta- tafníð Hvile-Vask rannsakað. Maðal annarra mála, sem sam- ffökm hafa unnið að og látið sig dtípta, eru: afgreiðslutímar söSubúða, verðmerkingar, notk- 14 ára srtáði verk- ( sntiðjustjóri í Svíþjóð l Fjórtán ára snáði er for- stjóri sementsverksmiðju einn- ar í Mið-Svíþjóð. Hann hefir sjö menn í þjón- ustu sinni og treystir þeim full- komlega — og þeir honum — og þess vegna getur hann á- hyggjulaust haldið áfram framhaldsskólanámi sínu. Hann fekk leyfi til þess að taka við verksmiðjunni og reka hana á eigin ábyrgð, þegar faðir hans dó í september síðastliðnum. Hann hefir alltaf haft mikinn áhuga á starfinu og það olli honum því engum erfiðleikum að taka við verkstjórninni. Bókfærslu og útborganir ann- ast hann sjálfur. Hann vonast meira að segja eftir því að geta innan skamms stækkað verk- smiðjuna. Síúdentafélagið efnir til mannfagnaðar 30. þ. m. Sfádcntafélag Reykjávíkur ffSair til mikils mannfagnáðar Sft. nóvember n. k. eins og und- ;r»í&rm ár. Samkvæmið hefst með borð- Baldí í Sjálfstæðishúsinu kl. C30 siðdegis. Formaður félagsins Guð- Bmmdur Benediktsson hdl. set- mr hófið. Þá mun Þórarinn Bjömsson skólameistari halda ææðii,, en hann kemur hingað til fcejarins í boði félagsins í því ftfeyni. Krístinn Hallsson og jFriðrik Eyfjörð syngja glunta- söngva. en Lárus Pálsson leik- ari syngur vísur, þ. á m. glæ- nýjar og bráðsmellnar vísur, sem Ragnar Jóhannesson skóla- stjóri orktir fyrir félagið i til- efni af þessum fagnaði. Að vanda mun Stúdentafélag Reykjavíkur sjá um dagskrá ríkisútvarpsins að kvöldi 1. desember n, k Verður þá út- varpað frá samkvæminu í Sjálfstæðishúsinu og Bjarni Benediktsson menntamálaráð- herra mun halda ræðu. Erfið uppskerutíð á Írlandi. Tíðarfar hefir verið stirt á írlandi í haust og voru upp- skerustörf miklum erfiðleikum bundin. Dillon landbúnaðarráðherra kvað erfiðleikana hafa verið miklu meh’i en um langt und- angengið árabil og teldi hann sér skylt að þakka bændum og búaliði framúrskarandi dugnað við að bjarga uppskerunni við þessi erfiðu skilyrði. Ölvaður maður hvolfir stolnum bíl. Stúlka hverfur að heiman. 60 Mrúar á aðalfuiulf LÍÚ. Yfir sextíu fulitrúar sitja aðal- fund Lndssambands íslenzkra út- vegsmanna, sem hófst hér í bæn- um í gær. Sverrir Júlíusson, formaður LÍÚ, setti fundinn, og minntist útvegsmanna og sjómanna, sem látizt hafa á árinu. Síðan rakti formaður afkomu og hag útvegs- ins á árinu og gat um lialla- rekstur togaranna. Þá skýrði hann frá sölu sjávarafurða og vandamálum þeim, sem útvegur- inn á við að stríða í dag. Jón Árnason, útgerðarmaður á Akranesi, var kjörinn fundar- stjóri, en til vara Margeir Jóns- son, Keflavík. Fundarritari var kjörinn Hafsteinn Baldvinsson, fulltrúi. Síðan var kjörið i nefndir. Fundinum var haldið áfram í gærkveldi, og var þá flutt skýrsla sambandsstjórnar fyrir starfs- árið 1953—54. í morgun kl. 10 var aftur tekið til við fundar- störf, og átti Finnbogi Guðmunds son þá að flytja skýrslu verðlags ráðs en síðar í dag mun Ingvar Vilhjálmsson flytja skýrslu inn- kaupadeildar LÍÚ. Sigurður H. Egilsson, framkv.stj. LÍÚ, mun leggja fram endurskoðaða reikn- inga, en síðar um kvöldið flytur Jón fiskifræðingur Jónsson er- indi. 500 fiýja sæl- una daglega. Einkaskeyti frá AP. — Berlín í gær. Flóttinn frá Austur-Þýzka- lndi heldur áfram í svo stríð- um straumum að stjórnarvöld- in hafa neyðst til þess að auka landamæragæzluliðið um 50 af hundraði. í þessu gæzluliði eru nú 20.000 menn, en verða komnir upp í 30.000 um áramótin. Á þessu ári hafa flúið að meðaltali 500 menn daglega frá A.-Þ. til V.-Þ. Það. sem mestum áhyggjum veldur er hve margir menn úr alþýðulögreglunni svonefndu leggja á flótta. Úr henni hafa flúið á þessu ári 2900 menn og 7 af hverjum hundrað undir- og yfirforingjar, en 1949 til 1953 flýðu 10.913 alþýðulög- reglumenn frá A.-Þ.. eða álíka margir og venjulega eru í heilu herfylki fótgöngulðs (20.000). í nótt varð slys á Miklatorgi, en við athugun. kom í ljós að sá slasaði hafði verið ölvaður við akstur bifreiðar og bifreiðin auk þess þjófstolin. Klukkan rúmlega tvö í nótt ’v'a'r Iögreglunni tilkynnt að bif- reið hafi hvolft á Miklatorgi. þeg- ar lögreglan kom á staðinn var toúið að rétta bílinn við, en einn maður hafði verið í bílnum, töluvei't undir áhrifum áfengis og hafði hann meiðzt á fæti. Maðurinn var fluttur til læknis- skoðunar, en hún leiddi í ljós að maðurinn myndi ekki vera brot- inn. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að bifreiðinni hafði verið stolið, en réttur eigandi hennar er í Hafnarfirði. Varð að fá kranabifreið til þess að ná bif- reiðinni burt af slysstaðnum. — Mál þetta er nú til frekari rann- sóknar. Annað slys varð í morgun á grunni bæjarsjúkraliússins, sem er í byggingu við Klifveg. Hafði maður, Ragnar Halldórsson að nafni, fallið af vinnupalli og var hann fluttur í sjúkrabifreið á Landsspítalann. Sennilegt var talið að Ragnar myndi hafa rif- brotnað. Stúlka hverfur. Lögreglunni hefur verið til- kynnt að stúlka, S’tefanía Hin- riksdóttir að nafni og til heimil- is að Norðurbraut 3 í Smálönd- um hafi horfið að heiman 13. þ. m. og ekkert til hennar spurzt eftir það. Stefanía er' 29 ára gömul og er hún fór að heiman var hún klædd í þunna svarta kápu, grá- ar bomsur og með græna húfu. Hún var meðalhá vexti, ljós yf- irlitum, með mikið Ijóst, sítt hár og með ör á hægri kinn. Lögreglan biður þá, sem orðið hafa vör ferða Stefaníu eftir 13. þ. m. að gefa sér þær upplýsing- ar sem þeir geta í té látið. Eldur Eldur kom upp á Holtsgötu 23 í gær, en þar hafði kviknað út frá rafmagni. Eldurinn var strax slökktur og skemmdir urðu ó- verulegar. í gærkveldi var lögreglan kvödd á leikvöllinn við Skúla- götuhúsin vegna elds sem krakk- ar höfðu kveikt þar. Lögregiu- þjónar kæfðu eldinn og veittu krökkunum áminningu. Bifhjólið komið fram í gær skýrði Vísir frá því að bifhjóli hafi verið stolið í fyrri- nótt frá Eskililíð 16 hér í Ibæn- um. í gænnorgun barst lögregl- unni tilkynning um að hjóiið hafi fundizt suður í Ilafnarfirði. Framleiða meira stál en Bretar. Einkaskeyti frá AP. London í morgun. Vestur-Þýzkaland er orðiS mesta stálframleiðsluland Vest- ur-Evrópu. Skýrslur um framleiðsluna á. þriðja fjórðungi ársins leiða þetta í ljós. Var hún 6000 lest- um meiri en Breta. Þó fer fjarri: að Bretar hafi dregið af sér. — Framleiðslan hjá þeim er nú sem svara myndi til nærri 19 millj. lesta framleiðslu, ef hún verður svipuð seinasta ársfjórðung sem i fyrra. Stálframleiðslan i ágúst. og september var i hámarki fyr- ir þá mánuði, en hins vegar minni en venjulega í júlí sökum verkfalla. Skrifstofumaður í London hefur verið sakaður um aS láta Rússum í té upplýsingar- um loftvarnir borgarinnar. Vaxanúi viisjár innan Verka- mannaflokksins brezka. Vegsta þess að sjö þingmenift eru beiítir agaregleiiii. Einkaskeyti frá AP. — Helzta umræðuefni brezka blaða í morgun er ágreiningur- inn innan brezka verkalýðs- flokksins. Leggja þar flest blöð eitthvað til málanna. nema Daily Herald, höfuðmálgagn flokksins. Um ágreininginn, sem að vísu hefir lengi verið umtals- efni er mikð rætt nú vegna þerrar ákvörðunar þingflokks- ins, að beita agareglum gegn þeim 7 þingmönnum, sem greiddu atkvæði gegn Parísar- samningunum í trássi við flokkssamþykkt. Endanilega verður tekin ákvörðun í þessu innanflokksmáli á flokksþingi, og víturnar tákna ekki brott- rekstur úr flokknum, heldur aS þeir verði óháðir þingm. flokks- ins, þar til lokaúrskurður er fallinn. Þeir geta til dæmis ekki flutt ræður í nafni flokksins. í einu blaðiuu er vikið að því. að flestir þessara manna séu friðarsinnar. sem meini allt vel, og hafi fundið sig til knúða að leggja áherzlu á hver sann- færing þeirra sé, með því að greiða atkvæði en Bevanitar hafi verið hyggnari en svo, að gera það. Yfirleitt er það harm- að, að þetta mál skuli verða til að veikja flokkinn, en almennt álit blaðanna er, að það muni valda miklum og vaxandi deil- um í flokknum hvarvetna um landið.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.