Vísir


Vísir - 26.11.1954, Qupperneq 9

Vísir - 26.11.1954, Qupperneq 9
Föstudaginvi 26. núvember 1954 VÍSIR ffiœkor, §em borizt hafa Undir SvÖrtuloftum. iivæSi' eftir Braga Sigurjénsson, Akur- eyri, 1954. Heill þér skáld allra skálda! — Bragi er frumsmiður brag-í ar. — Bragi orti fyrstu ljóð. Hann er frumkvöðull þess, sem fegurst er sagt með frægustu söguþjóð, því að hann hefur yndi af að anda í eyra, sem góðvinur ljær vængjuðum orðum með veldi og spekt, sem valda aðdáun .fjær og nær. Hann er elzti son- ur hins æðsta goðs, orðið, sem heyrðist fyrst, kölluð fram hugsun í krafti ljóðs, kristölluð speki, saga og list. Bragi er bókmennta drottinn, Braga var ísland vígt. Fyrir hann stendur landið uppi enn einart, fagurt og ríkt. Og Bragi hinn ungi Sigur- jónsson sendir nú út þriðju ljóðabók sína og það svo góð ljóð, að eigi fer að verða aúð- velt að láta lengur sem hann sé ekki til. Auðsýnt er, að hann stpfnir að því að komast í hina glæstu sveit meistarans mikla, sem hér var fyrr nefndur og sem hann er að líkindum heit- inn eftir. Halda þar til margir hlutir að svo megi verða. Til- finning hans er þróttmikil. Skapið er mikið og þó stillt. Hann yrkir af einlægri hjart- ans þrá, sem bæði er sár og ljúft, svo ljúft og sár, að hann verður að yrkja. Og eigi vantar málið, hagmælska hans er frá- bær. Þekkingu vantar hann ekki, því að hann er lærður vel. En þrátt fyrir allt þetta getur þó eitthvað á skort til þess að gera höfund að góðu skáldi. Og þetta ,,eitthvað“ er það, sem andi meistarans mikla hvíslar að skáldinu, góðvini sínum á góðri stund. Það er þeirra leyndarmál og verður aldrei kennt. Margar stuttar, en stórbrotn- ar smásögur eru í þessum kvæðum, vel sagðar. Bragi kann þá íþrótt að segja frá miklum atburðum í stuttu kvaéði, er segir meira en marg- ar blaðsíður fullar af mærð. Mannlýsingar hans í stuttum kvæðum eru fullkomnar og með snilldarbrag eins og í kvæðunum Sonur götunnar og Sámur í Urðarkoti. Skemmti- legt er kvæðið Fyrr og nú um gömul og ný viðskipti prest- anna og kölska. Talsverð ádeila felst oft í kveðskap Braga og þótt sum- um virðist hún helzti hjásögul eða vafasöm, verður samt að dæma hana eftir því :eingöngu hversu mikill kraftur í henni er og hversu vel hún er sögð. Það er skömm og svívirða að dæma skáld eftir stjórnmála- skoðunum, hvort sem það heitir Gunnar Gunnarsson eða Halldór Laxnes. Mönnum gléymist þá í augnablikinu, að höfundur getur verið gott skáld þótt honum skjöplist í búmennskunni eða í stjórn- málum og að listin er öllu æðra og fagrar bókmenntir eru æðsta listin. En hún verður að vera frjáls, því að annars deyr hún og um leið verður þjóðin andvana. í ádeilum Braga er margt snilldarvel sagt eins og þessar víðfrægu setningar, enda fengu þær vængi: Nú er Helga Haraldsdóttir hermannsskækja í Keflavík. Það er ekki hægt að segja þessa ádeilu betur. Hvort hún er sanngjörn eða hvort eigi er ofsagt er annað mál. En varaðu þig Bragi, þarna ríður „pólitík- in“ næstu götu, alveg grenjandi vond eins og hennar er vandi. Lofum henni að þusa. Hún er eigi þess verð að virða hana svars. Meira er um hitt vert að heyra meistarans orð og grípa það. Bragi kallar þetta kvæða- safn sitt: Undir Svörtuloftum. Það er veraldarskarnið, sem nú fær þessa nafngiftina. Þó er veröldin stundum fögur, fynd- in og skemmtileg, jafnvel undir Svörtuloftum, og lýsir Bragi því oft vel og skáldlega eins og í kvæði, sem heitir: Það sem leyfist Júpiter, leyfist ekki nautinu. Þessi fyrirsögn ,er fínni á latínu. Með leyfi rit- stjórans vil ég setja vísunrar hér sem lítið sýnishorn: Af fundi hinzta júlídags í fjólublárri skikkju kom fyrsta nótt í ágúst svo hýr og rjóð á vangann, um mittið dreymnu brosi hún linda brá í lykkju, lagaði á sér hárið og gekk í hvarf við tangann. En rétt í sama vetfangi lcom Sigga litla í Sundi sunnan fyrir túngarð með skrefum fjaðurléttum, því hún var líka að koma af ungrar ástar fundi með engjamosa á kápu og berjalyng í fléttum. I nýslægjunni í mýrinni var náttfiðrildasveimur, nettur meyjahópur og kátur sveinaskari, og unaðsbikar lífsins var tæmdur þar af tveimur og tíminn látinn hverfa í engjarósar vari. En áin læddist hægstreym og hugsi milli bakka og hneyksluð velti því fyrir sér, hvað drottinn myndi segja, ef aðrir væru að leika það að espa slíka krakka upp í það að njótast — og láta þá siðan deyja. Þakka þér fyrir bókina, Bragi. Mér þykir vænt um hana. Sigurjón Jónsson. B6k um drauma. Komin er á markaðinn bók um drauma, allmiklu ítarlegri og með nokkuð öðbu sniði, en þær draumabækur sem áður hafa verið gefnar út hér á landi. Bókn heitir „Draumabókin“, hefur Guðm. Jón Jónsson tekið hana saman of þýtt að nokkuru leyti en bókaútgáfan Leiftur h.f. gefið út. Bókin hefst á einskonar rabbi um drauma almemit og trú fólks á þá og þýðingu þeirra. Þá kemur kafli um draumalífið þar sem rætt er ýmislegt um drauma, orsakir drauma, draumaráðningar, nokkur merkileg dæmi o. fl. Meginkafli bókarinnar — og er sá kafli um 90 bls. að stærð —• fjallar um merkilega drauma. Hefst sá kafli á inn- gangsorðum, en að því búnu er rætt um fjarskynjunar og hug- skeyta drauma, drauma ýmis- legs eðlis, um framliðna menn er sagt hafa til sín og um sann- anir fyrir framhaldslífi, um snásagnadrauma, íslenzka drauma, svefng'öngur, vöku- drauma o. fl. Annar stærsti kafli bókar- innar eru draumaráðningar og aftast orðalykill, sem fylgir þeim. Bókin er jöfnum höndum frumsamin, endursögð og þýdd. Hún er um margt skemmtilega og greindarlega skrifuð og flestallir eða allir sem hugsa um draumfarir eða taka mark á draumum mun þykja gaman að þessari bók og hún hafi betur verið lesin én ólesin. Ný bók eftír Ármann Kr. Einarsson- Ármann Kr. Einarsson rit- höfundur hefur nú sent á markaðinn 10. hókina sína og nefnir hana „Týnda flugvélin“. „Týnda flugvélin“ er saga ætluðum börnum og ungling- um, einkum þó drengjum og er einskönar framhald af síð- ustu bók hans „Falinn fjársjóð- ur“ sem kom út í fyrra. Koma sömu persónur við sögu í báð- um bókunum, en að öðru leyti er hvor um sig sjálfstæð. Þessi nýja bók Ármanns seg- ir frá brösum Árna í Hraun- koti við Svarta-Pétur og Gussa á Hrauni. En hápunktur ævin- týra og afreka Árna er það þegar hann finnur flak gamall- ar flugvélar uppi á jökli. Bók- in er ævintýraleg og heldur lesendunum hugföngnum frá upphafi. Útgerðarmenn í Reykjavík sem ætla sér að sækja um verbúð og ekki þegar hafa sent umsókn, sendi hana til hafnarskrifstofunnar fyrir 4. des. n. k. Æíafnarsijóri Krem Púður Varalitur Skintonic Naglalakk nýkomið. ‘fys/Ajavík Aðalfundur Málfundafélagið Oðinn heldur aðalfund sinn í Sjálfstæðishúsinu n. k. sunnudag 28. kl. 5 e.h. stundvíslega. FUNDAREFNÍ: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Félagsmál. Félagsmenn eru minntir á að hafa skírteini sín með sér. STJÓRN ÓÐINS. LAMPAR - SKERMAR Sending af erlendum lömpum og skermum tekin upp nýlega. Glæsilegt úrval. Shermabúöim Laugavegi 15. — Sími 82635. Coventrynefndin, sem nú er í Stalingrad, og móttöku- nefndin í Stalingrad hafa undirritað áskorun saniT eiginlega um bann við framleiðslu kjarhorku- vopna ög vetnissprengna. STANLEYj N ý k o m i ð : Skápalæsingar Skápahöldur Skápalamir* yfirf. Pantanir óskast sóttar. LUDVIG STORR & CO í i

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.