Vísir - 03.12.1954, Side 12
; VÍSIR er ódýrasta blaðið og þó það fjöl- breyttasta. — Hringið í síma 1660 og gerist áskrifendur. ^aui c Þeir, seín gerast kaupendur VÍSIS eftix 10. hvers mánaðar, lá blaðið ókeypis til inánaðamóía. — Sími 1660.
WMSr
Föstudagmn 3. desember 1954.
ístenéingum gefnar mikrofiimur
af íslenzkuna fornskjölum erlená's
*
Tvæi* Islandskvikiiijndir, sessa
filiss tók í sumar, firaaaBisýBsdar laóa.*.
Sendiherra Þjóðverja á íslandi
mun í dag afhenda merka gjöf
þriggja þýzkra borga til handa
íslendingum.
Er þar um að ræða mikro-
lilmur af íslenzkum fornskjöl-
tmi og bréfum, sem fundizt itafa
í söfnum þessara þriggja borga,
en þær eru Hamborg, Bremen og
'Oldenborg.
Er þetta liin merkastagjöf og
verður hún afhent menntamála-
ráðherra íslands kl. 5 í dag við
opnun þýzkrar. listmunasýningar,
sem verður næstu 10 daga opin
almenningi í Listaniannaskál-
anum.
Listiðnaðarsýning þessi er
þáttur úr þýzkri kynningarviku,
sem nú fer í hönd og félagið
Eermanía gengst fyrir.
Sýningin er undirbúin og sett
saman úti í Þýzkalandi af hálfu
list- eða menningarráði, sem
nefnist Deutsclier Kunstrat,
þýzknr maður, dr. Thiele kom
með sýningarmunina hingað til
lands og setur þá hér upp.
Eru þarna sýndir fjölmargir
listiðnaðarmunir, þ. á m. postu-
lín.leirmunir.glermunir, bast- og
reyrvörur, gobelin- og veggteppi
vefnaðarvara, lampar, borðbún-
aður, silfur- og gullvörur. M. a.
er þarna gullskraut eftir einn
fremsta gullsmið Þjóðverja. Mun-
irnir verða flestir seldir að sýn-
ingunni lokinni.
Sýningin verður opnuð kl. 5
síðdegis í dag með viðhöfn og
taláþar m. a.formaður Germaníu,
dr. Jón Vestdal, dr. Kristinn
•Guðmundsson og' Bjarni Bene-
diktsson ráðherrar og dr. Oppler
sendiherra.
Mun sendiherrann afhenda við
Jþað tækifæri, auk framan-
greindrar gjafar, gjöf þýzku
þjóðarinnar til Rauða kross ís-
lands í þakklætisskyn fyrir
lijálp íslendinga. Þjóðverjum til
handa í stríðslókin. Gjöfin er
svartlistarmynd eftir þekktan
listamann.
Á þýzku kynningarvikunni,
sem nú fer í hönd koma fram
þýzkir listakraftar sem fengnir
hafa verið hingað lil lands og
men n i n ga r k v ikm y n d i r v er ða
sýndar, m. a. verða frumsýnd.ar
þar tvær þeirra íslandskvik-
mynda, sem Roto-film tók í sum-
ar.
Stúka endurvakin
á Húsavík.
Frá fréttaritara Vísis. —
Húsavík í gær.
í gær — 1. descmber — var
stúkan Þingey nr. 102- endur-
vakin á Húsavík.
Hefur Guðmundur G. Haga-
lín rithöfundur dvalið um skeið
á Húsavík á vegum Stórstúku
íslands og unnið að því að
endurvekja stúkuna.
Alls gengu 70 manns í stúk-
una í gær og var síra Friðrik A.
Friðriksson
templar.
kjörinn æðsti
Ættlsafa Thors Jðnsens,
sátt af Valtý Stefánsspi.
Girnilcg bnk íil fróMeiks:
Út er komin^ á forlagi Bók-
fellsútgáfunnar gagnmerk bók,
„Minningar“, eftirl Thor heitinn
Jensen, hinn landskunna at-
en' Jhaf namann.
Þetta er fyrra bindið af
tveim, sem Valtýr ritstjóri
Stefánsson hefir skrásett, og er
undirtitill bókarinnar Reynslu-
ár.
Það var vitað, að hin síðustu
æviár Thor Jensen vann Valtýr
Stefánsson að því að skrásetja
sögu hans, og menn hafa eðli-
lega beðið með nokkurri eftir-
væntingu útkomu bókar, sem
fjallaði um viðburðaríka ævi
þessa kunna framfara- og at-
hafnamanns, sem markað hef-
ir djúp spor í atvinnulíf þjóð-
arinnar, bæði til sjávar og
sveita.
Nú er fyrri hluti bókar þess-
arar kominn út, og verður ugg-
laust mörgum tilhlökkunarefni
að lesa hann. Hann skiptist í
aðalkafla, sem nefnast: í for-
eldrahúsum, í heimavistarskól-
anum „Dfet- kongelige Opfost-
ringshus“, Islandsferð og upp-
haf Borðeyrarvistar, Um kyrrt
á Borðeyri, — fyrsta utanför,
Leit að fótfestu, Verzlunar-
stjóri í Borgarnesi, Heimilis-
hagir og búskapur í Borgar-
nesi, Erfið ár á Akranesi, Vída-
línsútgerðin, og lýkur þar með
þessu fyrsta bindi ritverksins.
Eins og að líkum lætur er
þetta girnileg bók til fróðleiks,
og í raun réttri kafli úr at-
vinnusögu íslendinga á þessu
tímabili.
Thor Jensen var óvenju stór-
huga og sá glögglega, að íslands
biði glæst framtíð með breytt-
um atvinnuháttum og nútíma
tækni. Það er og næsta fróðlegt
að kynnast sögu þessa efnalitla
útlendings, sem hér brýzt áfram
til velsældar og virðinga, og má
vafalítið telja, að bókin verði
mörgum kærkomið lesefni.
Bókin er 246 bls. að stærð,
prentuð í prentsmiðjunni Odda.
Margar myndir prýða þessa
merku bók.
Stúdentafélag Suðurlands
minntist 1. des.
f gær, 1. des., hélt Stúdenta-
félag Suðurlands aðalfund sinn
að Selfossi.
Félagið er stofnað 7. janúar
1953 af Lúðvík Nordal, fyrrum
héraðslækni og var hann jafn-
iramt fyrsti formaður þess. —
Félagar eru 32.
Fundurinn hófst með venju-
. legum aðalfundarstörfum en
síðan var kosið í stjórn félags-1
ins. Hana skipa þessir menn:
Hjalti Gestsson, ráðnautur,
formaður, en Snorri Árnason,
-sýsluskrifari og Jón Gunn-
laugsson, læknir meðstjórnend-
ur. Varaformaður var endur-
kjörinn, en hann er Björn Sig-
urbjarnarson, gjaldkeri. Vara-
stjórn skipa Björn Björnsson,
sýslumaður og séra Sigurður
Einarsson í Holti.
Þá flutti séra Sigurður Páls-
son í Hraungerði mjög mérki-
legt erindi er hann nefndi
„Ríkið og einstaklingurinn".
Einnig tóku til máls séra Gunn-
ar Jóhannesson, Skarði og
Hjalti Gestsson.
Fundurinn samþykkti að
senda fyrsta formanni félagsins
kveðjur og árnaðaróskir en
hann liggur sjúkur í Reykjavík.
Um kvöldið var haldið veg-
legt hóf í Tryggvaskála og var
þar fjöldi manns saman kom-
inn. Fyrrverandi formaður fé-
lagsins, Páll Jónsson, tann-
læknir stjórnaði hófinu. Meðan
setið var að snæðingi ílutti
Björn Björnsson, sýslumaður
skörulegt erindi en Magnús
Ágústsson, læknir, stjórnaði al-
mennum söng. Þá fór fram
spurningaþáttur undir stjórn
séra Gunnars Jóhannsonar. —
Að loknum var stiginn dans
fram eftir nóttu.
Bók um Finnland.
Nýtt bindi er komið út
safninu „Lönd og lýðir“, sem
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
gefur út. Fjallar það um Finn-
land og er samið af Baldri
Bjarnasyni sagnfræðingi.
Bókin skiptist í 3 megin-
kafla, er nefnast Landið, Þjóðin
og Einstakir landshlutar og
merkisstaðir. Hún er 112 bls.
að stærð og prýdd 53 myndum.
Samkvæmt óskum margra
félagsmanna verður reynt að
hraða útgáfu bókaflokksins
Lönd og lýðir. Tvær bækur,
Finnland og Bandaríkin, koma
því út í ár. Að sjálfsögðu varð
að háfa aðra bókina sem auka-
félagsbók, þar sem engin leið
er að láta félagsmenn hafa
meira en 5 bækur fyrir 60 kr.
félagsgjald. Minni bókin var
valin sem aukabók, svo að fé-
lagsmenn þyrftu að greiða sem
minnst til viðbótar, enda er fé-
lagsverð Finnlandsbókarinnar
aðeins kr. 23.00. Sjö bindi eru
nú alls komin út í safninu
„Lönd og lýðir“.
Þorsteinn Hannesson syngur í
éperu við Þjllle&lisll.
Þorsteinn Hannesson, óperu-
söngvari, er nýlega kominn
hingað til lands og mun syngja
hér Canio í óperunni Pagliacci
(Bajazzo) eftir Leoncavallo, er
sýnd verður í Þjóðleikhúsinu
um jólin.
Blaðamenn ræddu við Þjóð-
leikhússtjóra og söngvarann og
skýrði Þjóðleikhússtjóri frá
því, að það væri mjög ánægju-..
legt, að Þorsteinn hefði getað
komið því við, að koma hingað
heim og syngja í óperu við
Þjóðleikhúsið svo landar hans
fái tækifæri til þess að njóta
söngkunnáttu hans.
Þorsteirin hefir verið fast-
ráðinn söngvari hjá Cövent
Garden óperunni í London síð-
an 1948, og hefir sungið aðal-
hlutverk í 15 óperum þar, og
einnig hefir hann sungið í flest-
um stórborgum Englands. Hann
er líka eini útlendingurinn,.
sem fastráðinn er hjá Covent
Garden, en flestir færustu
söngvarar heims hafa sungið
þar sem gestir um lengri eða
skemmri tíma.
Óperan Pagliacci er önnur af
tveim óperum, sem Þjóðleik-
húsið mun sýna um jólin og
mun sænska óperusöngkonan
Stina-Britta Melander fara
með aðalkvenhlutverkið eða
hlutverk Neddu og Guðmundur
Jónsson fer með hlutverk
Tonios.
Leikstjóri er Símon Edvard-
sen.
Þorsteinn hefir í hyggju að
sækja Norðurland heim og
Salka Valka frum-
sýnd á morgun.
Kvikmyndin Salka Valka,
sem Nordisk Tonfilm og Edda-
Film hafa gert, eftir sam-
nefndrí sögn Halldórs Kiljan
Laxness, verður frumsýnd á
morgun í Austurbæjar-bíói og
Nýja-bíói.
Mestur hluti kvikmyndar-
innar Var gerður hér á landi í
sumar, sem kunnugt er. Kvik-
myndastjóri er hinn þelckti
sænski leikstjóri Arne Matts-
son. Aðalleikarar eru Gunnel
Broström, Folke Sundquist,
Birgitta Pettersson og Erik
Strandmark. Eina af hinum
þekktari persónum sögunnar,
Beintein í Króknum, leikur
Lárus Pálsson. Þar sem tal
kvikmyndarinnar er á sænsku
hefir íslenzkur texti verið sett-
ur í hana, svo allir geti fylgzt
með samtölunum.
Ný Ijóðabék.
„Hið töfrandi land“, nefnist
nýkomin ljóðabók eftir Baldur
Ólafsson frá Akranesi.
í bókinni eru 63 kvæði og
fæst hún í öllum bókaverzlun-
um. Hún er prentuð í prent-
smiðjunni Rún h.f.
halda söngskemmtanir á Siglu-
firði og líklega Akúreyri,
Þjóðleikhússtjóri gat þess að
sú’aðferð hefði verið tekin upp
við aðgöngumiðasölu Þjóðleik-
hússins, að strax og hann hefði
getið þeirra viðfangsefna Þjóð-
leikhússins, opinberlega, sem
sýna ætti, hæfist forsala á að-
göngumiðum á frumsýningar.
Nýít slvarlegt deilio-
• efsíl f V.-Asísi.
Nýtt, alvarlegt deiluefni er
komið upp í Vesíur-Asíu, á
landsvæði, sem er hernaðarlega
mikilvægt samtökum frjálsu
þjóðanna.
Afghanistan hefur fengið 39.5
millj. dollara lán frá Export-
Importbankanum bandaríska til
virkjunar Helmand-árinnar.
íranska stjórnin telur að með
framkvæmdunum sé brotið í
bág við lög og. hefðbundnar
venjur, þar sem íran verði af
miklu vatnsmagni vegna þess-
■ara framkvæmda. íransstjórn
hefur hótað að taka málið upp
á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna.
Landhelgisbrot.
Samkvæmt upplýsingum frá
landhelgisgæzlunni var brezkur
togari tekinn í landhelgi í gær.
Klukkan rúmlega 12 i gærdag
tók varðskipið Þór togarann
Burke GY 285 i landhelgi út af
Mjóafirði en togarinn var a'S
veiðum í’úma sjómílu innan við
fiskveiðitakmörkin.
Skipstjórinn liefur játað brot
sitt og munu réttarhöldin liefjast
í máli þessu í dag. •
Seinkaðl vegna veðurs
og verkfalla,
Tröllafoss er væntanlegur
hingað þann 9. þ. m., og hefur
m. a. meðferðis 4500 lestir a£
sementi.
Sementsfarminn tók skipið í
Wismar, og var iippliaflega ráð-
gert að hann yrði hingað kom-
inn síðat-i hluta nóvetnbermán-
aðar. Skipið hefur tafizt um
10 daga eða svo vegna aftaka
veðra, sem geysað hafa, eins og
kunnugt er af fréttum, svo og
verkfalla i Englandi.
Amerísk félog vílja
breskar flugvélar.
London í morgun.
Vickers Armstrong flugfélag-
ið tilkynnti í gær, að verksmiðj-
ur þess hefðu fengið pöntun frá
bandarísku flugfélagi, Capital
Airlines, á 20 Vickers Viscount
flugvélunt.
Áður hefttr sama félag fengið
40 flugvélar hjá verksmiðjuntmi
af þessari gerð. Kanadiska flug-
félagið Trans-Canada Airlines
hefur fengið 20 flugvélar af þess-
ari sömu gerð.