Vísir - 05.01.1955, Page 10

Vísir - 05.01.1955, Page 10
 sw*^, VISIR Miðvikudaginn 5. janúar 1955 HllitJ- klœkir 57 JERE WHEELWRIGHT drepinn við það tækifæri. Hann getur kært herra Killigrew «g herra Lane, ef hann kærir sig um, og sennilega sannað á- kæruna, en honum mun veitast það erfitt, að sanna sök á yður. Hann hefur ekki staðið þá að verki og vitnisburðurinn um sam- særi hvílir aðeins á orðum þjóns, sem hefur reynzt sviksamleg- ur njósnari. Það er einungis yður, sem hann vill vinna tjón. Hvað lætur hann sig varða um dauðan mann í Canterbury? Hvað hefur hann upp úr því, að taka Killigrew og Lane, ef hann nær yður ekki. Ef náðunarbréfið hefði ekki verið gefið út, hefði vitnisburður svikarans nægt. Honum hefur misheppnast í þetta skipti, en þó skall hurð nærri hælum'. Við verðum að fá að vita, hver hann er, annars kemur hann okkur einhverntíma fyrir kattarnef. John var að athuga skýin gegnum gluggann. Hann benti Blackett að koma til sín. — Hvernig lízt yður á veðrið? — Veðrið, lávarður minn? sagði einkaritarinn og gáði til lofts. — Það mun snjóa á morgun. — Það sýnist mér líka. Hann gekk frá glugganum og fleygði bréfinu hirðuleysislega á borðið. Þeir höfðu talað saman á lægri nótum, en nú töluðu þeir hátt. — Þefurinn af líkunum, sem hanga í gálgunum, berst jafnvel hingað. Við verðurn að brenna kryddi á arninum, til að kæfa ó- þefinn. Skrifið herra Killigrew og segið honum að koma til okkar, ef hann kemur til London aftur. Herra William! Herra William kom samstundis. — Hvers óskið þér, lávarður minn? — Á eg síðan kufl? — Nei, lávarður minn. Stuttir kuflar eru í tízku. Síðir kuflar eru ekki notaðir lengur, lávarður minn. , — Samt þarf eg að nota síðan kufl á morgun. Eg ætla í báts- ferð og vil ekki, að mér verði kalt. Kaupið einn slíkan handa mér! , — Sjálfsagt, lávarður minn. Hann var svo taminn, að enginn undrunarsvipur sást á andliti hans. , . — Fyllið körfu af vínföngum. Eg sgtla um borð í kaupskip frá Bristol til að hitta mann, sem eg þekki og eg vil ekki koma tómhentur. — Það skal verða gert, lávarður minn. Ætlið þér að verða þar í nótt? Ef svo er, æfla eg að sjá um að hafa skjólklæðnað með. —• Þess gerist engin þörf, sagði John. — Áin er ekki svo breið, að við komumst ekki fljótlega í land, ef hann fer að snjóa. Því næst sneri hann sér að Blackett. — Hefir skips- drengur nokkurntíma þjónað yður til borðs í skipi? Það nr ekki skemmtileg þjónusta. Þess vegna ætla eg að hafa herra William með mér. Heyrið þér *það, herra William? Þér farið með mér. —• Eg heyri, lávarður minn. — Gott! Útvegið þá kuflinn. Þegar hann var farinn, leit herra Blackett upp og sagði: ■— Var þetta hyggilegt, lávarður minn? — Eg held það svari tilganginum. Fjandmaður minn veit, að eg fer á flot á morgun og álítur, að eg ætli um borð í skip og komast til útlanda. Hann mun leita um allt að kaupskipi frá i Bristol og hann mun hafa tilbúið lið til að fara um borð til að I handtaka mig, ef eg ætlaði að sigla. Skipun Ráðsins um, að eg sé kyrr í London rnundi duga honum, ef það er þá enn í gildi síðan drottningin leyfði mér að ríða til Canterbury. Njósnarar hans munu hafa nóg að gera við að elta ólar við okkur og semja skýrslur um ferðir okkar. — Satt er það, sagði herra Blackett. — -Eg held, að yður sé óhætt að trúa mér fyrir því að fylgjast með njósnurunum. Eg mun líka reyna að komast að því, hvert herra William leggur leiðir sínar, ! n ' u| J UáC mimw' — Það getur vel farið svo, að eg þurfi einhverntíma á því að halda að stíga um borð í skip með körfu fulla af peningum og gimsteinum, en eg kæri mig ekki um, að herra William græði sína blóðpeninga á því að njósna um mig fyrir Ráðið. — Hafið þér náðunarskjal bróður yðar, lávarður minn? spurði Blackett. — Það er í kistunni, svaraði lávarðurinn undrandi. — Má eg fá það lánað? Það getur skeð, að eg þurfi á þvi að halda. Eg hefi engan tíma til að útskýra það nánar, því að þorparinn getur verið horfinn úr augsýn, áður en maður veit af. Fáið mér það og lofið mér að fara. Blackett stakk skjalinu í tösku sína og var farinn, áður en John gat spurt frekar. Jarlinn braut heilann um tilgang Blac- i ketts með því að biðja um náðunarskjalið, en komst ekki að| neinni niðurstöðu. Hann ráfaði því fram í ganginn og kom þar auga á þernu sem var með fullt fangið af brenni. Þegar hún sá hann, sleppti hún byrði sinni og hneigði sig óttaslegin. Hann brosti sínu ástúðlegasta brosi, en þá fór hún að gráta. — Verið þér róleg. Eg ætla ekki að gera yður neitt mein. Eg er aðeins að leita að þjóni mínum, herra William. Hættið að væla og svarið mér. Hún snökkti hátt og neri sér um nefið, þangað til hann missti þolinmæðina og hristi hana duglega. — Hvar er herra William? — Hann er hérna fyrir handan, lávarður minn, sagði hún á mállýzku, sem hann átti erfitt með að skilja. — Segið mér, hvar hann sefur. — Þarna! Hún benti með höfðinu á dyrnar. Jarlinn tók upp gullpening. — Gerið svo vel ■— og haldið yður svo saman. Ef þér kjaftið, skal eg sjá um, að þér verðið hýdd rækilega. Hann gekk inn í herbergið og litaðist um. Þar var óumbúið rúm, borð, stóll og stór kista í einu horninu og fyrir henni var stór, klunnalegur hengilás. John gekk að hehni, kraup niður og glotti kuldalega. Þegar hann var barn, hafði hann oft komizt inn í garða og hnuplað ávöxtum með því að sprengja upp svona lása. Eftir að hafa fiktað svolitla stund við lásinn með hnífn- um sínum opnaðist lásinn og undir kistulokinu voru föt, snyrti- lega brotin saman. Hann tók fötin upp og kom þá auga á hanzka, sem hann átti sjálfur, en herra William hafði sagt, að væru týndir. Loks kom hann niður á botninn. Þar var ofurlítið ski?ín og það var líka lokað með hengilás, og hjá því var blekbytta, penni og 'ýmis konar skjöl. Þegar hann sá þetta, gretti hann sig og kinkaði kolli, því næst for hann að reyna að opna kist- ilinn og gekk það miklu ver, en með kistuna. Herra William hafði sagt honum, að hann kynni hvoi'ki að lesa né skrifa. Eftir fáeinar mínútur gat hann opnað kistlinn. Hann varð steini lost- inn, því að kistillinn var fullur að börmum af gimsteinum og gulli. ~ Þorparinn er auðugur tautaði hann. — Það, sem eg hefi gefið Francis og Anthony er lítilræði saman borið við þetta. Þetta er ekki allt frá mér. Hann hefir hlotið að hafa gert njósnir að ævistarfi. Hann lét ofan í kistuna áftur, lokaði og fór aftur til herbergja sinna. Eftir dálitla stund kom Ambrose og tilkynnti, að báturinn væri tilbúinn. Hann væri bundinn við næstu bryggju og yfir honum stæði varðmaður. Því næst kom herra William hljóð- lausu fótataki til þeirra í nýja frakkanum sínum og grunaði ekki neitt. En herra Blackett kom ekki fyrri en' löngu var búið Á kvöldvokunni. Þeir sátu á stórum bar og voru búnir að staupa sig af mikilli kostgæfni. Benti þá annar á tvær konur er sátu nokkuð álengdar og sagð: „Get- urðu séð þessar tvær þarna? Eg skal trúa þér fyrir því að sú dökkhærða er konan mín, en sú ljóshærða er vinkona. mín.“ „Það er einkennilegt," svar- aði hinn. „Það er nefnilega þveröfugt hérna megin“. • Maðurinn var smávaxinn og lítilsigldur, en herti sig þó upp úr sæti sínu í kaffihúsinu og gekk að manni, sem var að taka ofan yfifrakka, sem hékk þar á snaga. „Afsakið,“ sagði sá lítilsigldi. „Eruð þér hr. Hansen frá Hol- bæk?“ „Nei, það er eg ekki .... “ „Já, en það er eg. Og það er hans yfirfrakki, sem þér eruð' að taka af snaganum.“ O Sigga var í góðu skapi og sagði við mömmu sína: „Hann Pétur, nágranni okkar og eg ætlum að strjúka sam- an“. „Hvað er að heyra þetta„ Sigga mín,“ sagði mamma: hennar. „Finnst þér ekki illái gert að taka hann Pétur litla burt frá foreldrum sínum?“ „Nei, alls ekki,“ sagði Sigga; ákveðin í máli og leit nístandi; augum á móður sína. „Þau erui bölvað hyski og skilja hann. ekki!“ Kunnur kvikmyndastjóri ít- alskur kom að konu sinni £ fanginu á bezta vini sínuni „Við skulum ekki fara að gerai neinn hávaða út af þessu,“ sagðl kvikmyndastjórinn og var hinnt rólegasti. „Og ekki skulum við) fara að fljúgast á. Eg sting upp á því, að við iátum spilin; gera út um málið. Við skulumi spila Kánasta. Og sá sem vinn- ur fær konuna!“ „Eg sam- þykki,“ sagði vinur hans og létti nokkuð. Kvikmyndastjór- inn tók nú spilin og fór acS stokka, en hætti því skyndilegai. og sagði: ,,„Æ heyrðu, góði vin, ættum við ekki að gera spilið dálítið viðameira og meira spennándi. Eg sting upp á þyf að við leggjum undir 100’ lírur!“ C. R. SuweufkJ: 1719 Aparnir voru komnir í vígamóð eftir ^ð hafa dansað hinn tryllta dans, Tarzani til heiðurs og einnig æstir af draugalegu mánskíni. Þegar hvíta stúlkan lá þarna hjálparvana á meðal þeirra réðust þeir því þegar í stað að henni. En á seinustu stundu skarst Tarzan í leikinn, og mátti þá ekki tæpara standa. Hann braust í gegnum þvöguna og . tókst að hrmda öpunum frá stúlk- unni áður en þeim hafði tekist að gera henni mein. j

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.