Vísir - 21.01.1955, Blaðsíða 12

Vísir - 21.01.1955, Blaðsíða 12
yíSIR er ódýrasta blaðið og þó það fjöl- breyttasta. — Hringið í síma 1660 og gerist áskrifendur. Þelr, sem gerast kaupendur VÍSIS eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til m&naðamóta. — Sími 1660. Föstudaginn 21. janúar 1955 Líkur fyrir vepnahiéi í í Kíiia ræddar í Washisigton Hin breytta stefna Bandaríkja- síjórnar rædd í heimsblöðunum. Einkaskeyti fíá AP. — London í morgun. Heimsblöðin í morgun ræða um þessar mundir daglega hina breyttu afstöðu Bandaríkjanna til Kína, sem m.a. kemur fram í því, að, Eisenhower hefur lýst sig hlyntan því, að reynt verði að koma því til leiðar, að þjóðernissinnar og kínverskir kom- múnistar hætti vopnaviðskiptum. Álit manna er, að hættan við mikil átök roilli þessara aðila hafi stórum vaxið við innrásina á Tacheneyjar s.l. þriðjudag, er kommúnistar náðu þar smáey á sitt vald. Lýsa þeir nú yfir, að mark þeirra sé að taka liverja eyna af annarri, en þessi innrás hefur leitt til mikilla gagnárása þjóð- ernissinna. Því Iiarðari sem á- tökin verða, því meir vaxa lík- inrnar fyrir, að barizt verði um Formósu sjálfa, sem Bandaríkja- stjórn hefur lofað þjóðernissinn- ram að verja. í sambandi við þessi mál vek- ur sérstaka athygli, að Holland forsætisráðherra Xýja Sjálands ræðir í dag við Dulles um lík- mrnar fyrir vopnaliléi á Formósu svæðinu, en Holland er staddur f Washington á Ieið til Lund-j úna á samveldisráðstefnuna. Álit brezkra blaða. Brezku blöðin ræða þessi mál aftur í dag. Fagna þait breyttri stefnu Bandaríkjanna, en í þeini lemur m. a. fram sú skoðun, að kinver.sk ir kommúnistar muni eki láta sér nægja nema fulla viðurkenningu og aðild að sam tökum Sameinuðu þjóðanna, og Bandaríkjastjórn verði að gera sér ljóst, að frá kommúnista hálfu sé engin önnur lausn til frantbúðar. Ðaily Teleáraph segir, að hin E.ýja stefna muni leiða til árekstra milli Eisenliovvers og íhalds- fflanna í flokki republikana, seni að vísu beri æ minna á í seinni tíð, og það niuni taka tíma að sannfæra þjóðina um hina breyttu stefnu. Hvort nokkuð verði ágengt nú sé mest undir kommúnistum komið. ■— Daily Hérald telur, að að því reki, að Chiaaig Kai-shek verði að hætta þeim «ýadarleik, að stjórn hans sé stjórn Kina og beri að koma fram fyrir Xína á vettvangi SÞ. Vetrarböfkurnar i Fjöldi bæja enn eíiiangraður. Einkaskeyti frá AP. London í morgun. Horfur eru heldur batnandi á fannkomusvæðinu, en enn er fjöldi manna sem fær engar birgð ir nema loftleiðis. Helikopterflugvélar flotans fóru yfir 30 ferðir í gær með matvælabirgðir, til fólks sem býr við niatarskort. — Flugvélar frá BOAC flugu yfir Orkneyjar til þess að svipast eftir neyðar- nierkjum i snjónum. Kolin urðu hörð sem stál. í Northumberland, þar sem fjölda margar járnbrautarlestir hla^nar kólum liafa tafist af völdum fannkomu, hefur komið í ljós, að kolin i vögnunum voru gegnfrosin og samfelld og hörð sem stál, og vérða ekki losuð nema með sérstökum ráðstöfun- uiB og mikilli fyrirhöfn. Bandaríkin hafa greitt tveggja milljóna doilara bætur til þeirra japönsku fiskimanna, sem urðu fyrir tjóni á líkama eða eignum af völdum vetnissprengjutilraunarinnar á Kyrrahafi á sl. vori. T. h. á myndinni er sendiherra Bandarjkjanna og til vinstri, Shigemitsu, er var utanríkisráðherra þegar um þetta samdist. Laxness stéS í ströngu í StokkhöhnsdvöfínnL Ætlar enskt kvikmyndafélag að gara mynd eftir „Sjálfstæðu fólki;?“ Verður hámarksökuhraði lögboðinn hjá Svíum? Banaslysum fjölgar ískyggsbga, og urðu nær 1000 á ársmt, sem leið. Frá fréttaritara Vísis. — Stokkhólmí í janúar. Mönnum hrýs hiurur við sí- fjölgandi banaslysum á þjóð- vegum Svfbjóðar, en þau urðu nær 1000 á árinu 1954. Málsmeíandi menn hafa því reynt að gcra sér grein fyrir einhverjum ráðum, er verða mættu til bf'.a í þessum efnum. Meðal þeirra er Eje Mossberg, landshöfðih")' j Ðolúm, fyrr- verandi ir.nanríkisráðherra. Hann hefúf 'bfrt' álit' þar sem segir, að eina'ráðið sé hámarks- ökuhraði, e:i undanfarin 24 ár liefur enginn hámarksökuhraði verið löfb'ðlhn í Svíþjóð. lÆggur hann til, að þjóðvegum úti megi E’..r 'ir.c-ð allt að 80 km. hraða á klst., en í þéttari byggð 40 km. Líklegt er, að félög bifreiða- eigenda muni berjast á móti þessum tillögum, en nær öll dagblöð landsins hafa látið málið til sín taka. Sven Anders- son samgöngumálaráðherra hefur mælt svo fyrir, að álit Mossbergs verði tekið til með- ferðar híð bráðasta, og gera menn ráð fyrir, að þingið, er | nú situr, fjalli um málið í vór. 1 BJIaeign Svía eykst hröðum skrefum, og í fyrra bættust hvorki fleiri né færri en 115.000 við þá, sem fyfir voru, en nú er svo komið, að sjötti hver Svíi á nú vélknúið fara- tæki. Frá fréttaritara Vísis. — Stokkhólmi í janúar. Sænska bókmennta-mánað- arritiS „All varldens beráttera” ver sex síðum janúarheftis sín- um til þess að segja frá ýmsu í sambandi við heimsókn Halldórs Kiljans Laxness þegar myndin Salka Valka var frum- sýnd. Þar er m. a. sagt frá því, að Laxness hafi orðið að standa í ströngu í Stokkhólmi. Hann var viðstaddur frumsýningu á Sölku Völku í Stokkhólmi, tók þátt í fundum hins kommún- istískra heimsfriðarráðs og ræddi við forleggjara sína. En auk þess varð hann að sitja forleggjarahádegisverði, kvik- myndahófs og allskonar fagn- aði dag hvern. Alltaf voru hástemmdar ræður til heiðurs honum, og enda þótt honum hafi frekar mislíkað allt þetta, ‘ hafi hann getað hvíslað að góð- | vini sínum og sessunaut. að , ’ [ „svona a það að vera í Sví- þjóð“, hér hafi verið um að ræða skoðun heimsborgarans á þjóðareðli Svía. Hinar lofsamlegu viðtökur voru oft hugsaðar sem sára- j bætur vegna þess, að hann fékk ekki Nobelsverðlaunin, en það , getur m. a. haft það í för með sér, að hinn bandaríski for- \ leggjari hans fresti að gefa út margar bækur hans, þorir það blátt áfram ekki fyrr en viður- • Bonn stjórnin hélt fyrsta fund sinn eftir nýár í gær og ræddi „tilboð“ ráð- stjórnarinnar um samstarf, ef V.-Þ. hafnaði Parísar'- sámningunum. — Fréttarit- arar segja stefnu stjórnar Adenauers óbreytta. kennd hefur verið snilld hans á alþjóðavettvangi. Það eru engar ýkjur þegar sagt er, að Laxness er mikill Svíþjóðavinur. Hingað kom hann 17 ára að aldri, er hann hafði skrifað fyrstu bók sína „Barn náttúrunnar“. Þá var Salka Valka fyrsta bók hans, sem þýdd var á sænsku, árið 1938, en vakti þá enga sér- staka athygli. Frá árinu 1948 hefur forlag sænsku samvinnu- félaganna gefið út bækur hans, í þýðingu Peters Hallbergs í Gautaborg. Laxness kemur til Svíþjóðar og kemur bókum sínum á framfæri, annars staðar annast það umboðsmenn hans. Kvikmyndataka Sölku Völku kom honum til þess að sjá bók sína í nýju Ijósi, og hann varð hrifinn, og nú mun hann hafa í hyggju að einbeita sér meira að kvikmyndatöku. Vera má, að hann samþykki nú tilboð ensks kvikmyndafélags um að gera kvikmynd eftir „Sjálfstæðu fólki”. Brunnsjö. 12 sin, snjcr hér í morgun. Allmikinn snjó setti niður á suðvesturkjálka Iandsins í nótt og morgun, aðallega milli kl. 6—8, en fannkoman var eklsi á stóru svæði. — Norðanlands og austan var bjart ýfxr. í morgun vTar 12 sentimetra snjór á flugvellinum í Rvk. Gera nxá ráð fyrir, að fenni á stærra svæði í dag. Innanbæjar var víða þæf- ings ófærð í morgun. Rafmagnstruflanir í fyrradag. Töluverðar truflanir xu:ðu á rafmagnsleiðslum í fyrradag, sem taldar voru hafa eðallega orsakazt af veðurbreytingu og raka. Var slökkviliðið þrívegis- kvatt út af þeim sökum. Var það kvatt á Bragagötu 22 A á: þriðja tímanum, en þar hafði öryggi sprungið og reykjarlykt síðan lagt frá ljósstæði í húsinu.. Rétt á eftir var slökkviliðið kvatt að Bergsstaðastræti 30 B, en þar blossaði út frá rafmagns- inntaki. Loks var svo enn kall- að á slökkviliðið frá Skálholts- stíg 7 vegna þess, að þar leiddi saman rafmagnsvíra í röri og blossaði út. Tjón hlauzt hvergi neitt og lagfærðu slökkviliðs— menn það, sem aflaga fór. Hafnfirfóngar og Heyk- víklstgar keppa í skák. Taflfélag Réykjavíkur gengst n.k. sunnudag fyrir skák- keppni miíli Reykvíkinga eg Hafnfirðinga og verður keppt á 7 borðum. Keppnin fer fram í Þórscafé . og hefst kl. 2 e.h. á sunnudag- inn. Samtímis mun svo Friðrik Ólaf sson Norðurlandameistari í skák tefla fjöltefli við 30 skákmenn. í keppninni milli Hafnfirð- ,inga og Reykvíkinga keppa m. ! a. af hálfu Hafnfirðinga þeir 1 Árni Finnsson, Ólafur Sigurðs- i son, Sigurgeir Gíslason og Sig- I urður T. Sigurðsson. En af ; hálfu Reykvíkinga keppa m. a. Baldur Möller, Gunnar Gunn arsson, Jón Pálsson og Birgir Sigurðsson. Arbenz hverfur. Bern AP. — Jacobo Arbenz, fyrrurn forseti Guatemala, er horfinn frá Zermatt með konu sinni. Settist hann þar að, er við- urkenndur var svissneskur uppruni hans, en nú er Arbenz horfinn, sem fyrr segir. Börn sín skyldu hjónin eftir, og kváðust mundu koma fljótlega aftur. Bollaleggja menn mikið um-ferð þeirra. Bretar smíðuðu milljón bíla. Einkaskeyti frá AP. —•- London í morgun. Árið sem leið komst fram- leiðsla vélknúinna farartækja í Bretlandi yfir milljón í fyrsta sinn. Þar af voru um 770.000 fólks- flutningabifreiðar. — Helm- ingur þessarar framleiðslu var seldur til annafa landa. Vonir standa til, að enn verði sett nýtt met í þessari fram- leiðslugrein á næsta ári.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.