Vísir - 26.02.1955, Side 5

Vísir - 26.02.1955, Side 5
Laugardaginn 26. febrúar 1955. vlsm Bk'eytingar á kaupmætti launa frá janúar 1953 til janúar 1955. Heíztu ní&urstöðiu' álítsgeriar eftfr Kfemeiti Tryogvason hagstofustjóra e§ Ólaf Björnsson prófessor. Eftirfarandi hcfur Vísi borizt frá viðskiptamálaráSuneytinu. Rikisstjórnin fól þeim Klem- ens Tryggvasyni hagstofustjóra og Ólafi Björnssyni prófessor að gera athugun á þeim breyt- ingum, sem orðió hafa á kaup- mætti verkamannslauna í Reýkjavík frá janúar 1953 til janúar 1955. Hér fara á eftir helztu niðurstöður álitsgerðar þeirra um þessi mál. Kaupgjald 1953 og 1955. Það er álitamál, við hvaða kaupgjald skuli miðað, þegar faera á saman kaupmátt launa á mismunandi tímum. í álits- gerðinni er miðað við vegið meðaltal Dagsbrúnarkaups, fundið á þann hátt, að almenni Dagsbrúnartaxtinn er látinn gilda að %, lægsti sértaxti Dagsbrúnar að % og meðaltal annarra sértaxta sömuleiðis að Vegið dagvinnutímakaup Dagsbrúnar verður með þessu móti kr. 14,94 í janúar 1953, kr. 15,04 í janúar 1955 og kr. 15,23 miðað við kaupgjalds- vísitölu syarandi til fram- færsluvísitölu janúarmánaðar 1955, en hún er tveim stigum hærri en nóvembervísitalan, sem kaup mánaðanna des. 1954—febr. 1955 er reiknað eftir. En nú hefur kaupgjalds- vísitalan, reiknuð eftir fram- færsluvísitölu febrúar 1955 hækkað um þau tvö stig, sem hér munar, og er þv í vegið tímakaup Dagsbrúnar kr. 15,23 frá 1. marz næstlromandi. Hinn almenni dagvinnutaxti Dagsbrúnar, sem samkv. ofan- greindu er látinn gilda að % við útreikning hins vegna tímakaups, er sem hér segir: Janúar 1953 .. kr. 14,60 Janúar 1955 .. — 14,69 Marz ........— 14,88 Samkvæmt þessu er vegið dagtímakaup Dagsbrúnar 2,3% hærra en almenna tímakaupið. Með því að athugunin tekur til tekjuskatts og útsvars af verkamannslaunum jafnhliða Öðrum útgjöldum, nægir ekki að finna vegið tímakaup á þeim tíma, sem hér um ræðir, heldur verður í því sambandi að miða við ákveðnar árstekj- ur. Niðurstaðah í því efni varð su, að miðað er við fulla dag- vinnu að viðbættum 3 eftir- vinnustundum á viku tíl jafn- aðar. Kemur þetta nokkuð vel heim við úrtaksrannsókn, sem gerð var á tekjum verkamanns í Reykjavík 1953 og ætti ekki að vera fjarri sanni. Árstekjur verkamanns verða þá 39.227 kr. miðað við kaupgjald í janú- ar 1953, 37.477 kr. miðað við kaupgjald í janúar 1955, og 39.934 kr. miðað við kaup- gjald í marz 1955, samkv. nú- verandi kjarasamningum. Hér er alls staðar miðað við 300 vinnudaga á ári. Ekki hefur verið tekið tillit til breytinga á yfirvinnumagni á umræddu tímabilí. Flest bendir til þess, að yfirvinna hafi farið í vöxt, en deila má um, hvort rétt sé að taka tillit til þess i athugun sem þessari. Framfærslukostnaður 1953 og 1955. Til þess að vitneskja fáist um breytingu á kaupmætti launa frá janúar 1953 til januar 1955 þarf að bera kaupið á hvorum þessara tíma saman við verðlag sama tíma. Mæli- kvarðinn, sem hér er notaður, er vísitala framfærslukostnað- ar, en vegna hinna stórfelldu breytiiíga, sem orðið hafa síðan núverandi framfærsluvísitala tók gildi í byrjun síðari heims- st'yrjaldar, hefur hún takmark- að notagildi í þessu efni. í stað er stuðzt við rannsókn á neyzlu launþega hér í bænum, sem er nú verið að gera á veg- um Kauplagsnefndar til undir- búnings nýjum vísitölugrund- velli, ef til kæmi. Rannsókn þessi er ekki langt á veg kom- in og ekkert er enn vitað um endanlegar niðurstöður henn- ar. En þar sem ekki er fyrir hendi annar betri grundvöllur að byggja á, hefur verið stuðzt við þessa rannsókn. Hér er um að ræða meðaltal útgjalda- skiptingar hjá úrtaki 25 verka- mannafjölskyldna, með sam- tals 96 einstaklingum, þannig að segja má, að meðalfjölskyld- an sé hjón með 2 böm, í þess- um neyzlugrundvelli eru, eins og við er að búast, útgjöld til brýnna nauðsynja. muri minni að tiltölu en í grundvelli fram- færsluvísitölunnar, en útgjöld til ýmissa annarra þarfa þeim mun meiri að tiltölu. Er þetta venjuleg afleiðing bættrar efnahagsafkomu, enda leikur ekki vafi á þvS, að lífskjör verkamanna í heild hafi batn- að verulega síðan grundvöllur framfærsluvísitölunnar var á- kveðinn fyrir um það bil 15 árum. Útgjöld til skatts og útsvars á hvorum. tímum um sig eru ekki samkv. heimild Kauplags- nefndar, heldur er sá liður á- kveðinn á þann hátt, að Skatt- stofan reiknaði út tekjuskatt og útvar af fyrr greindum árs- tekjum kvænts manns með 2 börri, annars vegar svarandi tii kaupgjalds í janúar 1953 og eftir þeim skatt- og útsvars- stiga, er var í gildi 1953, hins vegar svarandi til' kaupgjálds í janúar 1955 og þá ^ftir þeim skatt- og útsvarsstiga, er var í gildi 1954, — enda er ekki enn vitað, hver útsvarsstiginn verður í ár. Niðurstöðurnar eru þessar: Á fyrri tíma skattur 729 kr. og útsvar 3.000 kr., alls kr. 3.729 kr. Á síðari tíma skattur 464 kr. og útsvar 1.800 kr., alls 2.264 kr. Breyting framfærslukostnað- ar frá janúar 1953 til janúai' 1955 er síðan fundin á þann hátt, að útgjaldaupphæðir á fyrri tímanum sarnkv. grund- velli Kauplagsnefndar eru margfaldaðar með vísitölu fyr- ir breytingu sömu liða í fram- færsluvísitölunni. Útgjalda- skiptingin samkvæmt áætlun Kauplagsnefndar er þannig látin ráða, en einstakir liðir hennar eru færðir fram til janúar 1955 í hlutfalli við breytingu sömu framfærslu- vísitölunnar á sama tímabili. Þessi aðferð er að vísu ekki nákvæm, en þó leyfileg og verður að nota hana vegna þess að grundvöllur Kauplagsnefnd- ar liggur ekki fyrir nægilega sundurgreindur. — Útgjöld til skatts og útsvars eru ákveðin sjálfstætt fyrir hvorn tímann um sig, eins og áður segir. — Lækkun þeirra síðan 1953 nemur 39,2%. Víð samanburð á reiknuðum heildarútgjöldum verkamanns- fjölskyldu 1953 og 1955 kem- ur það í ljós, að framfærslu- kostnaður hefur á þessu tíma- bili lækkað 0,4 %, ef skattur og útvar er meðtalið í útgjöldum, en hækkað um 3,6%, ef þeim er sleppt. Hér er þess að gæta, að hækkun húsaleigu frá 1953 til 1955 er sjálfsagt talin of lág með því aðmiða við hækk- un húsnæðisíiðs framfærslu- vísitölunnar, eins og hér er gert, enda gilda sérstök ákvæði um útreikning á húsnæðislið framfærsluvísitölunnar. Verð- ur vikið nánar að þessu síðar. Hækkun framfærsluvísitöl- unnar sjálfrar á umræddu tímabili er 2,1%, en þar er þess að gæta, að engir beinir skatt- ar eru í grundvellí hennar. —* Eins og áður segir er hækkuni frámfærslukostnaðar samkv. grundvelli Kauplagsnefndar 3.6%, ef tekjuskatti og útsvari! er sleppt, og er það miklu meiri hækkun en framfærsluvísital- an sýnir á sama tímabili. ( Breyting kaupmáttar launa frá 1953 til 1955. Þegar hlutfallið milli kaups og framfærslukostnaðar í jan. 1953 annars vegar er borið saman við hlutfallið milli kaups og framfærslukostnaðar í janúar 1955 hinsvegar, kemur í ljós, að kaupmáttur Dags- brúnarkaups hefur aukizt um 1,1% á umræddu tímabili. Er þá miðað við kaupgjald í jan. 1955 og við grundvöll Kaup- lagsnefndar að meðtöldum. skatti og útsvari. En ef sleppt- er skatti og útsvari, þá hefur kaupmáttur launa rýmað um 2,9%. Kaupgjaldsvísitalan er sam- kvæmt gildandi kaupsamning- um reiknuð út á 3ja mánaða fresti, og hún er í janúar 1955 2 stigum lægri en hún væri, ef hún væri reiknuð eftir fram- færsluvísitölu þess mánaðar. —• Miðað við kaup eftir kaup- gjaldsvísitölu svarandi til framfærsluvísitölu janúarmán- aðar 1955 — sem nú er vitað áð verður gildandi kaupgjald frá' 1. marz 1955, samkv. núverandil kjarasamningum — hefur kaupmáttur launa hækkað um, 2,4% á umræddu tímabili, ef skattur og útsvör er með, ern rýrnað 1,6%, ef þeim er sleppt. Til þess að hugmynd fáisti um þýðingu mismunandi mik- illar yfirvinnu í þessu sambandj — ef menn vilja taka tillit ,tö) slíks — má geta þess t.d., að sé reiknað með 3ja klst. eftir- vínnu á viku til jafnaðar núy en með engri eftirvinnu í jan., 1953, þá hefur kaupmáttun verkamannstekna aukizt iim 10,5%, miðað við kaupgjald í janúar 1955, en um 12,0%, jmiðað við kaupgjald frá 1» marz næstkomandí. í báðum þessum dæmum er miðað við Þarsteinn Þorsteinsson, Húsafelli: Ferð til fslendinga vestasi hafs. Frh. orðinn naumt fyrir en Ragnar ók hægt, svo síra Bragi settist við stjórn og ók í hvelli að ferjunni aftur, sem svo sótti okkur. í litlu þorpi í Vogum var næsta messa flutt. Þar er snotur kirkja, æfður söngfloklc- ur, laglegt fólk. Þriðja messaji var flutt í kirkju sem stóð ein sér í litlu rjóðri í þéttum skógi við vog einn. Heitir þar Silfur- flói. Meðan á messu stóð þar rauk upp á norðan og kólnaði. Gekk þá vatn upp á veg þann sem við þurftum að fara eftir svo bílamir urðu að vaða fet- djúpt á kafla. Mai'gt af kirkju- fólkinu fór þar inn á einn ‘bóndabæinn, var þar veitt kaffi og kökur. Seinustu mess- una flutti prestur á Steeprock;. mun það vera lun 100 kilómetra* íyrri norðan Lundar. Eítir messuna var þar farið inn á eitl heimBið og voru þar veit- ingar góðaF. ■ Húsbóndinn hét Jón Þoi-steinsson. Þar var Ieikið á hljóðfæri og sungið og spilað á grammófón íslenzk lög. Á meðal gestanna þarna var íslenzk kona að nafni Sigrún Hjartarson, var hún dóttur- dóttir Einars gamla á Urriða- fossi og'móðir Hjartar þess sem í fefðinnl var með okkur presti. Iiún vai' há kona og höfðingleg, Ijóshærð og bláeygð. Þegar hann raúk upp á norð- an fyrr um dagnn voru syriir heimar fjórir meo stórah bát út á Manitobavatni. Var hami hlaðinn með nautgripum sem þeír vom að sækja vestur fyrir vatn. Þeir komu þarna um kvöldið, seint eftir að þeir komu í land. Þeír voru a.liir risár að vexti, bláeygðir og Ijós- og Ijós- skolhærðír, myndarlegir og dugnaðarlegir menn. Á Stee- prock var ágætur æfður söng- flokkur senv annaðist. sÖnghani Messað -Var 'í - v samkosnuhúsi þorpsins. Klukkan 12-um kvöid. ið fórum við frá Steeprock og komum heim til Lundar klukk- an tvö um nóttina. Rósa og Hjörtur urðu eftir hjá Sigrúnu móður sinni og bræðrum sín- um. Með okkur presti var sam- ferða nokkuð af leiðinni heim frú ein ung, sem féklc far með okkur heiman að frá sér og til baka aftur. Var hún að fara til messunnar og heimsækja frændfólk sitt. Hún var bróð- urdóttir Jóns þess er við kom- um til á Steeprock. Síra Bragi er risi að vexti — 193 sm. — og samsvarar sér vel. Hann er laglegur maður Qg vi iilcun nanle gur; Húnvetn- ingur að ætt, alinn upp í Mið-. firði. Hann er ranmur að afli og velbúinn íþróttum, söng- maður ágætur ogiskrifar prýði- lega rithönd. Mjög er hann vinsæll hjá söfnuðum sínum, bæði fyrir kénnimenskú og aöra -tstaxfsémi og; framkomu alífc^ • Eg fór í heimsókn til Pálren seilingar hæð upp á eyru. frænda míns. Hann er dugandi bóndi og á fjölda fallegra gripa. Hann á heima við stóra, skóg- lausa sléttu og er þar eitthvað af tjörnum og síkjum, en skógur við bæinn og í ki-íngum slétt- una. Skógurinn hérna við bú- stað frænda míns er laufskóg- ur, mest ösp. Hafa bændurnir hana í byggingar sínar og til eldiviðai'. Páll var að byggja stórt fjós og byggir það úr þess- um viði; sagar bjálkana niður í planka og raðar þeim upp á endann hverjum við annan. en hefur steyptar undirstöour. Hafði hann útbúnað til að saga niður trén og gerði það sjálfur. Lét hann heimilisdráttarvélina drifa sögina. Þegar hann hafði koniið upp fjósinu átti hann hús yfir allar skepnur sínar, en það hafa fáir bændur þar. Páll átti nokkrar glámóttar hryssur stórar og fallegar; fen.gu þær fyrstu verðlaun á sýningu í sumar. Stóðhest átti hann gamlan. Keypti Páll hest- inn á stjómarbúi fyrir nokkr- uin árum. Þótti hanii fallegasti hestúr í Kanadaland. Klárinn var kollhíeð min á herðakambi Var hann fóðraður inni, en lát-. inn út daglega í litla girðingu, —Kona Páls er af enskum ætt- um, fríð og góðmannleg, Ijós yfirlitum. Þorsteinn sonur Kristínar og Kristján tengdasonur hennar hafa félagsbú. Til þeirra fór eg. seint á laugardagskvöld og gisti um nóttina. Dansleikur átt þá að vera í skólahúsi þar austur í byggðirmi. Kristján ók bílnum en Kristín og eg vorum frammí. Þetta var vörubíll med frekar litlum vörupalli. Land- ið þarna er flatt og mishæða- laust og skui-ðir allir fullír af vatni. í nánd við bakhúsið kom fóllisbíll á fleygiferð é eftir okkur. Kristján færði sig út á kantinn, en sá sem á eftb var ók á fullum hraða út i skurðinn og stóð þar í djúpu vátni. Ekki var hægt að ná bílnum upp þá. Kristján tók fólkið á pallinn á sínum bík tróð telpu, sem með var, inn- frammf, en léði einum stráknuife yfírhöfn sína því hann- var illé klæddur en kalt í veðri, Þétts- v'oru Indíáítablendingar. ...jr Pramhali. f

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.