Vísir - 03.06.1955, Blaðsíða 6

Vísir - 03.06.1955, Blaðsíða 6
8 VtSlR Föstudaginn 3. júní 1955. D A G B L A Ð Ritstjóri: Hérsteinn Pálsson. Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson. Skrifstofur: Ingólfsstræti 3. Afgm&sla: Ingólfsstræti 3. Sími 1660 (fimm línur), mgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H.P. Lausasala 1 króna. Féiagsprentsmiðjan h.f. Þegar Krusdiev og Riddlebergar leiddu saman hesta sína — í hvítu höllinni í Belgrad. Húsnæðismálin. 'IT'ins og skýrt hefur verið frá í dagblöðum bæjarins, hefur ríkisstjórn íslands skipað fimm manna nefnd til þess að hafa yfirstjórn húsnæðismálanna með höndum, en verkefni nefndarinnar verður m. a. það að beita sér fyrir umbótum í byggingarmálum, hafa umsjón með lánsfjáröflun og lánsveit- jngum til íbúðabygginga. Sýnist vel til fallið, að sérstakri nefnd, húsnæðismálastjórn, sé falin umsjón og fyrirgreiðsla í þessum xnálum, sem vissulega er eitt alvarlegasta viðfangsefnið, sem Wasir við íslenzkum stjórnarvöldum. 1 málefnasamningi ríkisstjórnarinnar var það veigamikið atriði, að unnið yrði að því að ráða bót á geigvænlegri húsnæð- iseklu í höfuðstaðnum og annars staðar á landinu. Þá hafa Sjálfstæðismenn í bæjarstjárn sýnt málum þessum fullan skiln- ing og áorkað miklu, þótt enn sé langt í land, að bót hafi fengizt á .þessum málum. Á þinginu í vetur voru isamþykkt lcg, sem miða að því að útvega mönnum lán til íbúðabygginga, en með setningu þeirra var stigið heilladrjúgt spor til varan- legrar lausnar þessum málum. í nefndina hafa valizt gegnir menn, sem fyllsta ástæða er tíi að bera traust til, þeir Gunnar Viðar bankastjóri, Þorvaldur Garðar Kristjánsson lögfræðingur, Ragnar Lárusson, forstjóri Ráðningarstofu Reykjavíkurbæjar, Hannes Pálsson fulltrúi og Jchannes Elíasson lögfræðingur. Má vænta góðs af starfi þess- arar húsnæðismálastjórnar. Má gera ráð fyrir, að í sumar hefjist framkvæmdir samkvæmt hinu nýja lánakerfi sem lögin írá í vetur gera ráð fyrir og má þá á þessu sumri vænta góðs árangurs af setningu laganna og starfi húsnæðismálastjórnar- innar. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að húsnæðisvandræðin hér í höfuðstaðnum eru eitt alvarlegasta vandamálið, isem yfir- völd bæjarins og almenningm’ allur á við að stríða. Reykjavík er þegar komin talsvert á sjöunda tuginn að íbúðatölu, bæði vegna aðstreymis fólks úr öðrum landshlutum, en einkum þó vegna eðlilegrar fólksfjölgunar í bænum sjálfum. Ný heimili hætast árlega við, atvinna er mikil og góð í bænum sem betur íer, afkoma almennings yfirleitt sæmileg, og þess vegna stofna margir til hjónabands í trausti þess, að innan tíðar batni horf- umar í húsnæðismálunum. Allt of margir, ekki sízt ung hjón, verða nú að sætta sig við að búa hjá foreldrum sínum eða öðrum vandamönnum, til bráðabirgða, og enn aðrir verða að gera sér að góðu braggaíbúðir, vistarverur í slæmum kjöllurum o. s. frv. Bæjaryfirvöldin. reyna eftir föngum að greiða úr þessu, fyrst og fremst með miklum byggingarframkvæmdum, bæði í smáíbúðahverfinu og eins með húsasámstæðum, sem ýmist hafa verið teknar í notkun eða verið er að smíða. En betur má ef duga skal, og ef traust samvinna er með bæjarstjórn og ríkisvaldinu, má vænta þess, að innan tíðar verði vel séð fyrir þessum málum, en skipan hinnar nýju húsnæðismálastjórnar spáir góðu. iSaðamannastéttin. T^ins og sagt er frá annars staðar í blaðinu í dag, hyggjast blaðamenn efna til skemmtidagskrár í Tivoli-garðinum á laugardag. í fljótu bragði mætti virðast, að slíkt sé ekki í Jorystugrein í dagblaði, en þó vill Vísir fyrir sitt leyti, með þessum hætti, stuðla að því, að hátíðahöld þessi takist vel. Þau eru til ágóða fyrir Menningarsjóð Blaðamannafélags íslands, en hlutverk hans er m. a. það, að styrkja blaðamenn til utan- færða og gefa þeim á þann hátt tækifæri til þess að víkka .sjónhring sinn og öðlast meira hæfi í starfi og yfirsýn um menn cg málefni. Það hefur löngum tíðkazt hér, að ýmis félagssam- tök hafi efnt til skemmtunar í Tivoli til ágóða fyrir starfsemi sína, en nú fara blaðamenn af stað í fyrsta sinn með slíka tilraun. í blaðamaniiasféttinni eru margir dugmiklir og vel færir menn, sem hafa kosið sér blaðamennsku að ævistarfi, enda þótt ýmis atvinna sé betur borguð. Þei-r hafa jafnan lagt á það mikið kapp að ferðast og kynnast fólki og ólíkum skoðunum, en allt miðar það að því ao gera þó hæfari í starfi, hæfari til þess að gegna mikilvægu hlutverki, en það er að skýra frá atburðum líðandi stu.ndar, greina frá erlendum atburðum og jnnlendum, skrifa greinar um hinn margvíslegustu mál og. þar með að nokkru móta almenningsálitið í landinu. Vonandi tekst- þessi tilraun BIaða.mannaféiags Íslands á laugardaginn vei, og yerði stétt þeirra tíl gengisauka og áhorfendum til ánægju. Fregnir frá Belgrad herma, að fyrir skömmu hafi þeir Kruschev framkvæmdastjóri Kommúnistaflokksins rúss- neska og Riddleberger, sendi- herra Bandaríkjanna í Belgrad, skipst á allhvössum orðum, en þetta gerðist, er þeir voru isessunautar í veizlu í Hvítu höllinni í Belgrad. Báðir reyndu þó, að mæla í þeim tón, sem hafi á > sér vel- vildar og góðsemisbrag, þótt mikil g'agnrýni kæmi fram í því, sem þeir sögðu. Það var Kruschev, sem byrjaði með því að ræða um sitt kærasta áhuga- mál og umræðuefni, kornyrkju- tilraunirnar á hinum þurrlendu sléttum Ráðstjórnarríkjanna. Gat Krushev þess, að óréttmæt gagnrýni hefði komið fram á þessu nýja, miklu áform, og væri hún af pólitískum toga spunnin. Riddleberger isagði að Kruschev mundi hafa fengið um þetta skakkar upplýsingar, — gagnrýnin væri alls ekki af pólitískum rótum runnin, en á hinn bóginn hefði Bandaríkja- menn mikla reynslu í korn- rækt, einnig á þurrlendum sléttum, og hefði hér verið um gagnrýni að ræða, er væri af tæknilegum rótum runnin. Lífslcjör almennings. Meðan þeir ræddust við vék Riddleberger að góðri afkomu verkamanna í Bandaríkjunum. i Kruschev sagði blátt áfram, að j sendiherrann vissi ekki hvað ‘ „verkamannastétt“ væri og væri ekki í neinum tengslum við hana. Þá sagði Riddleberg- er, að hann væri verkamönnum kunnugri en ráðstjórnarleið- toginn, því að hann hefði verið í sveit sem strákur, múrari og málari. McCarthy, Beria. Aðstaða hins sterka. Kruschev kunni því illa, að vera sleginn þannig af laginu og lét í ljós furðu yfii’, að Bandaríkjamenn létu mann eins og McCarthy vaða uppi, og svaraði sendiherrann þá, að hann hefði heyrt alloft rninnzt á mann nokkurn, sem Beria var nefndur. — Nú snerist viðræður þeirra um ,,socialisma“ og „kapitalisma“. Sakaði Kruschev l Bandaríkin um að hafa notað • sterka aðstöðu sína til Þess að ota sínum tota viðskiptalega I og stjómmálalega, en Riddle- berger minnti þá á, að er hann j var í Berlín hefði Rússar ætlað að nota sterka aðstöðu sína, til að knýja sitt fram með því að hindra alla flutninga þangað og einangra Berlín, en banda- menn bjargað með loftbrúnni. Nefndi hann og mörg önnur dæmi, urn hvernig Rússar not- uðu aðstöðu sína isér til fram- dráttar á sviði utanríkismála. Ræða Kruschevs. Sendiherrann vék því næst að ræðu þeirri, sem Kruschev flutti við komuna, til þess að bjóða Júgóslava í opinn faðm Kominícrm að nýju. Þá hefði vei’ið deginum ljósara, að sá hefði verið tilgangurinn. Kruschev svaraði, að ráðstjórn- arleiðtogar hefðu litið á hina góðu sambúð Júgóslava með velþóknun. Síðasta vertíð........... Framh. a 6. síðu 655 smál. í 175 róðrum. „Ægir“ varð aflahæstur með 325 smál. í 61 róðri. Þorlákshafnarbátar öfluðu 4390 smál. í 466 róðrum, en í fyrra nam vei’tíðaraflinn 3078 smál. í 412 róðrum. Aflahæstur vai'ð „ísleifur" með 788 smál. (óslægt) í 85 í’óðrum. Bátar frá Grindavík öfluðu um 8600 smál. í 1274 róðrum, en í fyi’ra öfluðu þeir 8481 smál. í 1239 róðrum. í Sandgerði öfluðu bátar 11.483 smál. í 1609 róði’um, en í fyi’ra ekki nema 7977 smál. í 962 róðrum. Mestan afla hafði „Muninn II,“ 930 smál. í 104 róðrum. Keflavíkurbátar öfluðu á vertíðinni um 28 þús. smál. í 3700 róðrum. í fyrra öfluðu þeir 18.779 smál. í 2496 róðrum. Aflahæsti bátur í vetur var Hilmir með 862 smál. í 102 róðrum. Heildarafli Hafnai’fjarðar- báta nam á vertíðlnni 10.472 smál. í 1075 róðrum, en nam á vertíðinni í fyrra 10.112 smál. í 465 róðrum. Aflahæstur varð „Ársæll Sigurðsson“ í ár með 678 smál. Um heildarafla Reykjavíkur- báta er ekki vitað á sl. vertíð, en Akranesbátar öfluðu 13.564 smál. í 1776 róðrum. Á vertíð- inni í fyrra nam heildaraflinn 10.282 smál. í 1336 róðrum. Aflahæstur í vetur varð „Bjarni Jóhnnesson“ með 779 smál. í 92 róðrum. Heildai-afli Hellissandsbáta var á vertíðinni um 1300 smál. í 420 róðrum, en í fyrra 849 smál. í 396 róðrum. Ólafsvíkurbátar öfluðu um 5800 smál. í 655 róði’um, en í fyri’a 3342 smál. í 522 róðrum. Mestan afla fekk „Fróði“, 874 smál. í 88 róðrum. Frá Grundarfirði öfluðu bátar 4229 -smál. í 481 róðri í. stað 1958 smál. í fyrra í 304 róðrum. Aflahæstur varð „Farsæll“ með 803 smál. (óslægt) í 79 róðrum. Stykkishólmsbátar öfluðu rúmlega 2800 smál. í 387 róðr- um. í fyrra Öfl-uðu þeir 1711 smál. í 367 róðrum. „Arnfinn- ur“ hlaut mestan aflá, 617 smál. í 82 róðrum. Heildarafli Hornafjarðarbáta nam 2432 smál. í 389 róðrum, en nam í fyrra 2270 smál. í 381 róðri. vatnsþétí. Kjélatvveed loðkragaefni. Fraan Klapparstíg 37. Síini 2937. Móðir skrifar: „Þessa dagana hef ég í fysta sinni haft áhyggjur af elzta drengnum, ekki vegna þess að um veikindi sé að ræða né hann beri merki andlegra van- kanta, heldur hins að hann kann ekki að lcsa en á að hefja nám í liaust. Ég liélt í einfeldni minni að skólarnir kenndu börnum að lesa orðalaust en nú segir nágranna- kona min mér, að skólarnir vildi helzt að börnin séu orðin læs þegar þau komi í skóla og séu þau það ekki, séu þau umsvifa- laust sett i tossabekk. Mér kross- brá, þegar ég heyrði þessar fréttir því ég tel mig muna þða rétt, að sálfræðingarnir telji það til lítilla bóta að farið sé að kenna börnum fyrir skólaskyldualdur. Getur Vis- ir gefið mér nokkur ráð í þessu sambandi?" Visir sneri sér til Ólafs Gúnn- arssonar sálfræðings og leitaði á- lits lians á málinu. Fer álit hans efnisleg hér á eftir: „Vilaniega kenna skólarnir börnum að lesa, en það virðist vera almennt kappsmál foreldra, að börnin komi læs i skóla og rétt mun það vera, að niðurröð- un í fyrsta bekk styðjist að miklu leyti við lestrarkunnáttu barn- anná. Fyrirkomulag þetta er var- hugavert þegar þess er gætt, að flest börn hafa ekki þroska til þess að hefja lestrárnám með góðum árangri fyrir sjö ára ald- ur en suiri ættu að bíða ineð það unz þau eru 8—10 ára. Hins veg- ar eru allmörg börn sem geta haf- ið lestrarnámið fyrr og lxaft af þvi fullt gagn. Hið varlmgaverða við að raða börnum í bekki eftir lestrárkunn- áttu er fyrst og fremst það, að hætt er við að foreldrar leggi ó- eðlilega áherzlu á að kenna börn- um léstur áður en þau fara í skóla, og mun þá ekki alltaf gætt sem skyldi að þroska barnanna. Árangurinn getur orðið sá að börnin gefist upp við lestrarnám- ið, fyllist vanmetakennd og skóla- leiða. Einföld mæling á minnis- vídd barnánna myndi vera rétt'- ari mælikvarði á námsgetu lít- illa barna þegar þau koma í skóla en lestrarkunnátta þeirra. Móðurinni sem liér á í lilut skál bent á að tala við skólastjóra éða yfirkennara þess skóla sem barn- ið hennar á að sækja, og greina nokkuð frá atferli drengsins, inunu hinir ágætu menn, sein veita forstöðu barnaskólum Rvk- iir árciðanJega sjá um það, að di eiigurinu hennar verði i sveit settur eins og efni standa til, ef móðirin sjálf gengur á vit þeirra, sein þéssitm málum ráða.“ s. Dronning Áiexandrine fer til Færeyja og Kaupmanna- hafnar, laugardaginn 11. þ.ni. Pantaðir farseðlar óskast sóttir sem fyrst, ennfremur tilkynn- ingar iim flutning. SMpaaígreiðsla Jes Zimsen Eríeiidur Pctursson. MAGNÚS THORLACIUS hæstáréttarlögmaður. . . .Málflutningsskrifstofa A'ðalstræti 9.'—Sími 1875.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.