Vísir - 31.10.1955, Page 10

Vísir - 31.10.1955, Page 10
 \MSIR R UjartMA mL Eftir Graham Greene. 37 Yusef sprautaði sódavatni úr ,,siffóninum“ framan í sig. Þvi næst rumdi hann af ánægju. — Hvað gengur á, major Scobie? Er eitthvað að? — Það verður ekki höfðað mál gegn Tallit. Yusef var eins og örmagna maður, sem nýlega hefur verið bjargað af skipsbroti. Hann sagði. — Afsakið, major Scobie. Eg var ekki sofandi. Aðeins mókti. Þér voruð eitthvað að tala um Tallit, major Scobie. — Tallit verður ekki ákærður, sagði Scobie. — Það skiptir engu. Pyrr eða seinna mun hann fara yfir strikið. — Áttuð þér demantana, Yusef? — Átti eg demantana? Þeir hafa rægt mig við yður, Scobie. — Var strákurinn í yðar þjónustu, Yusef? Yusef þurrkaði sódavatnið af andlitinu á sér með handar- bakinu. — Auðvitað, major Scobie. Þannig fékk eg mínar upp- lýsingar. Yusef var nú alveg laus við minnimáttarkendina. Hann var búinn að hrista áhrif brómsins úr kollinum á sér, enda þótt líkaminn lægi enn þá hálfmáttlaus á sófanum. — Ég er ekki óvinur yðar, Yusef, sagði Scobie. — Mér geðjast að yður. — Þegar þér segið það, majór Scobie, titrar hjarta mitt, svaraði hann. — Mér þætti vænt um að mega treysta yður, Yusef. Segið inér sannleikann. Áttuð þér demantana, eða Tallit? — Ég hef alltaf viljað segja yður sannleikann, majór Scobie. Og ég hef aldrei sagt yður að Tallit ætti demantana. — Áttuð þér þá? — Já. — Þér hafið sannarlega gert mig að fífli, Yusef. Ef ég hefði vitni hérna, mundi ég stefna yður. — Ég ætlaði mér aldrei að gera yður að fífli, majór Scobie. Ég ætlaði aðeins að reyna að koma Tallit burt. Það væri öllum fyrir beztu, að hann færi. Það er ekki gott ástand, þegar Sýr- lendingar eru hver upp á móti öðrum. Ef hér væri aðeins einn flokkur, gæti stjórnin komið og sagt: Yusef! Stjórnin vill, að Sýrlendingarnir geri þetta og þetta. Og ég mundi geta svarað: Skal gert. . — Og þá yrði demantasmyglið á einni hendi. —Ó, demantarnir, demantarnir, demantarnir! sagði Yusef mæðulega. — Ég get fullvissað yður um, herra Scobie, að ég græði meira á minstu búðinni minni á einu ári en ég mundi græða á demantasmygli á einu ári. Þér hafið ekki hugmynd um, hve mikið fé fer í mútur í sambandi við smygl. — Jæja, Yusef. Ég ætla ekki framar að leita upplýsinga hjá yður. Hér með lýkur kunningsskap okkar. Auðvitað sendi eg yður mánaðarlega vexti, og afborganir af láninu. Yusef settist framan á og setti fæturna á gólfið. Hann sagði: -— Major Scobie. þér hafið tekið þetta gaman mitt fullalvar- lega. — Verið þér sælir, Yusef. Þér eruð ekki slæmur náungi, en verið þér sælir. — Þér hafið á röngu að standa, major Scobie. Eg er slæmur maður. Hann hélt áfram, alvarlegur í bragði. — Hlýhugur minn í yðar garð er það eina, sem gott er í þessu svarta hjarta. Eg get ekki misst vináttu yðar. Við verðum alltaf að vera vinir. — Eg er hræddur um ekki, Yusef. — Heyrið mig, major Scobie. Eg er ekki að biðja vður um annað en að heimsækja mig einstöku sinnum eftir að dimmt er orðið, sitja hjá mér og rabba við mig. Ekkert annað. Aðeins það. Eg skal aldrei minnast á Tallit framar. Við bara sitjum ’nér með „siffóninn“ og viskýflösku. — Eg er ekki fábjáni, Yusef. Eg veit að yður yrði það ómetan- leg hjálp ef fólk áliti, að við værum vinir. En eg ætla ekki að láta yður þá hjálp í té. Yusef horfði á hann stundarkorn og sagði: — Major Scobie. Hafið þér nokkurn tíma sagt lögreglu- stjóranum frá hinum lítiifjörlegu viðskiptum okkar, eða voru það látalæti? | — Spyrjið hann sjálfur! — Eg er að hugsa um að gera það. Eg er í beizku skapi. Mig iangar til að fara til lögreglustjórans og segja honum allt saman. j — Gerið það, Yusef. — Eg segi honum, að þér hafið þegið af mér peninga og að | við höfum í félagi ákveðið að koma Tallit í fangelsi. En að þér ■ iiafið ekki staðið við samninginn, og að þess vegna ætli eg nú j að hefna mín á yður. Hefna min. Yusef endurtók þetta skugga- i iegur á svip. — Látið slag standa, Yusef. Gerið það, sem yður þóknast. j Kunningsskap okkar er lokið. En hann hafði enga trú á i alvöru þessa leiks, þótt hann liti alvarlega út. Þetta var eins j og rifrildi milli tveggja elskenda. Hann hafði enga trú á hót- j unum Yusefs. Og hann botnaði ekki heldur neitt í sínu eigin rólyndi. Hann varð því ekkert hissa, þegar Yusef leit upp og sagði: — Auðvitað fer eg ekki og einn góðan veðurdag komið þér aftur og viljið vera vinur minn. Og eg mun taka yður opnum örmum. Verð eg virkilega svo langt niðri? hugsaði Scobie Því að málrómur Sýrlendingsins hafði hljómað eins og spámannsrödd. Á leiðinni heim stöðvaði Scobie bílinn sinn fyrir framan kaþólsku kirkjuna og gekk inn. Þetta var fyrsti laugardagur- inn í mánuðinum, og hann gekk alltaf til skrifta þann dag. Nokkrar gamlar konur biðu þar inni og hann heyrði róm séra I Ranks í skriftastólnum. Scobie horfði á krossinn og las Faðirvor og Maríubænir. Ein af annarri gengu gömlu konurnar inn í skriftastólinn. j Scobie bað þess, að hann leiddi aldrei neina ógæfu yfir Louise. Hermaður nokkur kom út úr skriftastólnum og hann stóð á j fætur. — í nafni föður, sonar og heilags anda, sagði hann. — Síðan eg skriftaði síðast fyrir um mánuði síðan hef eg vanrækt eina messu. — Voruð þér vant við látinn? — Já, en með ofurlítilli fyrirhöfn hefði eg nú samt getað rækt skyldur mínar betur við kirkjuna. — Einmitt. - — í þessum mánuði hef eg verið óþarflega stranrur við einn af mönnum mínum. . . . Hann þagnaði stendar1- — Er það allt og sumt? — Eg veit ekki, hvernig eg á að orða það, faðir en eg er að verða þreyttur á trú minni. Hún er að verða mér rskis virði. Eg hef reynt að elska guð, en eg er ekki viss u að eg trúi lengur. — Það hafa margir slíka sögu að segja, sagði nresturinn. -— Einkum hér. Loftslagið hefur sín áhrif. Eg mundi ráðleggja sex mánaða orlof. Það er auðvelt að ímynda sér, að þreyta sé sama og vantrú. —• Eg vií ekki tefja fyrir yður, faðir. Það eru fleiri, sem bíða. Eg veit, að þetta er bara ímyndun. En eg finn til: svo mikils tómleika. — Það er oft sú stund, sem drottinn velur, sagðf prestur- inn. — Farið nú og biðjið tíu bænir á talnabanrl —- Eg Hef ekki talnaband. — Jæja, lesið þá fimm sinnum Fáðir yor og"fir>- n sinnum Maríubæn. Mánudaginn 31. október 1955» Á kvöldvökunni. Maður nokkur stóð frammi fyrir dómaranum öðru sinni x sömu vikunni ákærður fyrir ölvun á almannafæri. „Skammist þér yðar ekki maður minn?“ spurði dómarinn, „að koma hingað tvisvar £ sömu vikuni?“ „Jú,“ svaraði maðurinn ösköp> undirleitur..„Það sagði eg einmitt lögregluþjóninurrr, sem sem tók mig, en hann viídi ekki hlusta á mig.“ Hinn frægi amerískx leikari Paul Muni lenti eitt sinn á sín- um unglingsárum í áflogum við annan ungling og þegar þeir voru leiddir fýrir rétt, reyndi mótstöðumaðui hans að gera hann hlægilegan með því að nefna hann stöðugt hinn. skegglausa mótstöðumann sum. Að lokum varð Muni þreyttur á þessu og sagði: — Mótstöðumaður minn virðist harma mjög skeggl'eysi mitt. í því sambandi langar mig til þess að segja honum dálitla sögu: Konungur Spánar valdl eitt sinn mjög ungan og grannan sendiboða tif þess að færa öðr- um þjóðhöfðingja mikilvæg' skilaboð. Þegar séndiboðinn gekk á fund þjóðhöfðingjans varð hann undrandi og sagði: — Hefir konungur Spánar ekki annan sendiboða, til þess að senda á minn fund, en skegg- lausan dreng? Hinn ungi sendiboðí svaraði: — ííerra, ef hans hátign hefði álitið að skegg og gáfur færu saman hefði hann áreíðanlega sent yður geithafurí • Það var í hinu vilta vestri, Þegar ..ferðamaður einn kom í bifreið sinni frá New York til Arizona, sá hann manri nokk- urn sem líktist helzt námu- manni. Fei^ðamaðurinn ,,gtöðV- aði bifreið sína og gaf. gíg.á tal við manninn. — Eruð þér kannski ,að leitá að gulli? spuy.ði hanu, , — Nei, að Uranium.: —• Ilvernig lítur það út? — Það veit eg ekki. — En maður. getur þó ekkert fundið.. sem maður veit ekki hverni.g lítur út. — Nú, ekki það. Ef Kolum- bus hefði hugsað svona, væri Amerika enn ófundin. í„ & TAHZAM 1939 Sjáið gullpa .hárið, æpti Turo. Krjúpið á kné fyrir hinni nýju iflrottningu ykkar. Og þeir hlýddu. Fiytið ykkur nú áð útbúa hið kon- unglega aðsetur. Hinir innfæddu hiýddu skipun hans, en. hann. hallaði sér að Glgu og h ;slaði: —Eftir fimm mínútur ska eg útskýra allt fyrir yður.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.