Vísir - 10.03.1956, Page 4
VISIB
Laugardaginn 10.. marz 1956.
DAGBLAÐ
Ritstjóri: Hersteinn Pálssan.
Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson.
Skriístofur: Ingólfsstræti 3.
AlgreiSaia: Ingólfrstræti 3. Sími 1660 {fimm línnr)
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSffi HJ\
Lausasala 1 króna.
’ ' *1 Félagsprent&miðjan h±
• #•
Ijr
Emira al helztu franuímöimum hins „íslenzka“ kommúnista-
t.flokks, Eggert Þorbjarnarson, er fyrir skemmstu kominn
heim úr Moskvu-för, eins og frá hefur verið greint, en þangað
£ór hann til þess a'ð hylla bræðraflokkinn rússneska, votta
harðstjóranum Krúsév hollustu sina og tjá rússneskum ráða-
mönunm samstöðu sína og annarra „íslenzkra“ kommúnista.
Þegar leppar rússnesku kommúnistanna x hinurn ýmsum
íönduni fá að flytja ræður á hallelújasamkomum í Moskva,
fara þeir ævinlega eftir einskönar „i’esepti”, þeir hafa visst
form á ávörpum sínum, og reynir hver að ganga fram af öðr.um
í ógeðsiegu smjáðri um leiðtoga heimskommúnismans, og gildir
jþá einu, hvort leppurinn er frá íslandi, Albaníu eða Afganistan.
Þeir reyna að vekja á sér athygli, sannfæra yfirboðara sína um,
isð þeim megi treysta, en einkum keyrðu þessi fleðulæti úr
hófi fram meöan Stalíns naut við, eins og þráíaldlega hefur
•verið sagt frá í dagblöðum hér. Mönnum eru í fersku minni
lofgerðarrollu r Kristins „Fjölnismanns“ Andréssonar og Bryn-
■jólfs Bjarnasonar, svo að nokkrir séu nefndir, sem skæðastir
hafa reynzt á smjaðurskappmótunr í Moskvu.
Eftir fall Stalíns af stallinum hefur nokkuð dregið úr þess-
um fíeðurlátum, en þó eru þau enn svo ósmekkleg en um
leið svo hláleg, að menn hljóta að staldra við og hugleiða.
hvernig menn, sem reyna að telja öðrum trú um að séu ís-
t.enzkastir ailra, geti lagzt svo lágt og gert sig að slíku við-
undri. Eggeft Þorbjarnarson flutti að þessu sinni ræðu fyrir
hönd „Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins“ — en
Jþað er algengasta dulnefnið á íslandsdeild hins rússneska
kommúnistafiokks. í upphafi þessarar ræðu segir m. a.:
„Ví$ óskum Kommúnistáfloklii Ráðstjórnarríkjamia og' ráð-
etjórnarþjóðunum hjartanlega til hamingju með hina stór-
fenglegu árangra (sic) á sviði framleiðslu, menningar og vel-
megunnr og með hina djörfu og árangursríku baráttu fyrir varð-
veizlu friðarins og vináttu þjóðanna.“ íslenzkur verkalýður
mynd;. áreiðanlega hugsa sig tvisvar um, ef tækist að leiða yfir
hann þá „menningu“ Rússa, sem m. a. lýsir sér I því, að þar eru
verkföil bönnuð og nefnd skemmdarstarfsemi, og‘ að þeir mættu
aldrei kjósa nema einn flokk á þing. íslenzkir verkamennj
rnyndu líka afþakka þá velmegun, sem rússneskir starfsbræður
þeirra eiga við að búa. En höldurn áfram með ræðu Eggerts:
„Ásanut öllum ættjarðarvinum íslands mun Sameingar-
flokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn berjast ótrauðri baráttu
fyrir sjálfstæði íslenzku þjóðarinnar, fyrir friði og lýðræði."
.Eggert lofar sem sé að berjast fyrir því, að íslendingar hljóti
cams konar sjglfstæði og Eistland, Lettland og Lithaugaland
c-iga við að búa, og hann hyggst beita sér fyrir samskonar frið-
'arbaráttu og þeirri, sem berlegast kom fram í Kóreu og á
Malakkaskaga, og hann mun leggjá sig í líma um að koma á
,ams konar lýðræði og verið hefur í Rússlandi síðan 1917, og
itú hefur birzt í allri sinni dýrð í Kína, Austur-Þýzkalandi,
Póllandi, Ungverjalandi og’ fleiri löndum, sem nú eru nefnd
hinu hlálega nafni „alþýðulýðveldi". Og Eggert Þorbjamarson
er ekki að gera að garnni sínu, — síður en svo — þetta er
Lonum fúlasta alvara og hjartans mál.
Og til jþess að kóróna fláttskapinn og fleðulætin klykkir
'Jþessi umboðsmaður íslandsdeildar kommúnistaflokksins út með
jþessum upphrópunum: „Lifi hin reynda forystusveit þeirra (Ráð
ctjómamkjanna), ■ Kommúnistaflokkur Ráðstjórnamkjanna.
Lifi hin sígursæla barátta þjóðshna fyrir sjálfstæði, frelsi og
fdðiA .
Þarna íalar þá liinn „íslenzki ættjarðarvinur“. Hin „reynda
forystusveit Ráðstjórnarríkjanna“ hefur vissulega fengið nokkra
reynslu í dómsmorðum, manndrápum, styrjöldum og kúgun.
Reynsluna vantar ekki, það fengu þeir að. rey-na, svo að ekki
Varð um villzt, þeir Sinoviev, Kamenev, Bería og margir aðrir,
i:em Eggert Þorbjarnarson og „íslenzkir11 kommúnistar tilbáðu
jafnmiklu ofstæki og þeir nú svívirði sömu menn.
Friðarlbarátta sú, sem Eggert Þorbjarnarson vegsamar með
fleðulátum í Moskvu, birtist meðal annars í stórkostlegustu
hersýningum heimsins á Rauða torginu 1. maí ár hvert, —
hún bírtlst í stærsta kafbátaflota heims og fjölmennasta land-
h.er, sem sagan kann frá að greina, og hún birtist í skipulögðum
og.þjálfuðum deildum kommúnista um heim allan, sem reyna að
vinna löndum sínum allt það tjón, er þær mega, undir yfir-
sfeini æítjarðarástarinnar.
Em Eggerí Þorbjarnarsou hrópar Isginn upp yfir sig í
liCóskTC Þair léngi lifi, húrra!
Hinir smáu og hinir
stóru i verzluninni.
Hr. ritstjóri!
Eg las með athyglí ræðu þá,
sem Vilhjálmur Þór bankastjóri
flutti á fundi Landsbanka-
nefndar í sl. viku og birt var
í blaði yðar s.l. þriðjudag. —
Efast eg ekki um, að þær tölur,
sem þar voru nefndar, hafi
verið réttar í einu og öllu, svo
að hagur landsmanna sé næsta
bágborinn, eða horíur að
minnsta kosti óvænlegar. En
mig langar til að forvitnast lít-
ið eitt um þau bjargráð, sem
bankastjórinn bendir á.
'Bankastjórinn segir, að nauð-
synlegt sé að gera verzluninni
torveldara að fá gjaldeyri, og
yrði afleiðingin þá sú, að
minna yrði eytt af gjaldeyri, en
það er ætlunin. Þétta yrði þá
sennilega gert með þeim hætti,
að menn yrðu að greiða meira
inn á „rembúrs", neyddust til
að draga meira fé út úr.rekstr-
inum. Vafalaust mundi þetta
hafa tilskilin áhrif, en mundi
þetta vera réttlát lausn á vand-
anum? Mundi allir verða jafn-
ir fyrir þessum „lögum“? Eg er
hræddur um,' að ; sVo 'yfði ekki,
því áð þetta yrði fyrst og
fremst til að hjáípa hinum
stóru, og þeir mundu smám
saman heltast úr lestinni, gefast
upp í samkeppninni, þótt þeir
sé samkeppnisfærir að öðru
leyti, til dæmis að því er snert-
ir að útvega góðar vörur við
hagstæðu verði.
Mér sýnist, að verzlunarstétt-
inn sem heild verði að taka af-
st-cðu íil þess, ef þannig á að
kreppa að hinum mörgu smáu.
Og sermilega hefði einginn aðili
eins mikinn hag af þessu og
Samband íslenzkra samvinnu-
félaga, sem hefir ekki þjáðst af
fjárskorti hingað íil, og hefur
einmitt getað komið undir sig
fótunum, af því að það hefur
fjármagn mikils hluta þjóðar-
innar undir höndum, en ekki
vegna þess, að samvinnuverzl-
irnin hafi einhverja sérstaka
kosti fram yfir aðrá verzlunar-
hætti. Og'vitanlega ér það ekki
ónýtt fyrir Sambandið að hafa
Framsóknarflokkinn sem deild
innan vébandanna. Þau „fyrir-
taeki“ eru eins 'og' samlokur,
vinna einungis livort fyrir
annað.
Einn smælingjanna.
VWWWAWWAWWWAUW l’.V.-.V'.'.'.-.W.-.V
Messur á niorgun.
Dómkii’kjan: Messa kl. 11.
Síra Jón Auðuns. Síðdegisguðs-
þjónusta kl. 5. Síra Óskar J.
Þorláksson.
Laugarneskirkja: Messa kl.
11 f. h. (ath. breyttan messu-
tíma'). Síra Garðar Svavarsson.
Barnaguðsþjónusta fellur xiiður,
Kaþólska kirkjan: Lágmessa
kl. 8.30 árdegis. Hámessa og
prédikun kl. 10 árdegis. Minnst
verður 80 ára afmælis hans
heilagleika Píusar páfa 12.
Elliheimilið: GuðsþjónUsta
kl. 2 e. h. Síra Þorsteinn Jó-
hannesson fyrrv. prófastur frá
Vatnsfirði (aðgætið breyttan
messutíma).
Háteigsprestakall: Messa í
hátíðasal Sjómannaskójans kl.
2. Barnasamkoma kl. 10 árdeg-
is. Síra Jón Þorvarðsson.
Bústaðaprestakall: Messa í
Kópavogsskóla kl. 3. Barna-
samkoma kl. 10 árdegis á sama
stað. Síra Gunnar Árnason.
Nesprestakall: Messa í kap-
ellu háskólans kl. 2. Síra Björn
O. Björnsson prédikar. Síra Jón
Thorarensen.
Hafnarfjarðai’kirkja: Messa
ld. 2. Síra Garðar Þorsteinsson.
Fríkirkjan: Messað kl. 5. Síra
Þorsteinn Björnsson.
Hjúskapur.
Gefin verða saman á morgim
af síra Þorsteini Björnssyni,
Erna Konráðsdóttir, Borgar-
holtsbraut 11, og' Sveinbjörn
Jónsson, Laugavegi 159. —
Ennfremur Sigurlaug, Jónína
Jónsdóttir frá Haukadal í Dýra-
firði og Ólafur Kristberg Guð-
mundssQn, Selvogsgötu 22,
Hafnarfirði.
Hinni fyrirhuguðu
firmakeppni Skíðaráðs Rvk.,
sem fram átti að fara á morg-
un, verður frestað vegna veð-
urs til næstkomandi helgar.
Vínneyzla
skapar Iirömun sálar og iík-
ania.
Umdæmisstúkan.
Jívar eru skipin?
Ríkisskip: Hekla fór frá Rvk.
kl. 19 í gærkvöldi vestur um
land í hringferð. Esja er í Rvk.
Herðubreið fer frá Rvk. kl. 20
í kvöld austur um land til Þóis-
hafnar. Skjaldbreið er á Húna-
flóa á leið- til Akureyrar. Þyrill
er í Hamfoorg.
Eimskip: Brúarfoss fór frá
Reyðarfirði i nótt tiL London
og Bpulogne. Deítifoss fer frá
New York annan sunnudag til
Rvk. Fjallfoss fer væntanlega
frá Hull í dag til Bremen og
Hamborgar. Goðaioss er í
Hankö; fer þaðan til Rvk. Gull-
foss kom til K.hafnar í fyrra-
kvöld frá Hamfoorg. Lagarfoss
hefir væntanlega farið frá Mur-
mansk í fyrradag til Tromsö og
Vestm.eyja. Reykjafoss fór frá
Hull á þriðjudag; væntanlegur
til Rvk. síðdegis i dag. Trölla-
foss fór frá New York á mánu-
dag til Rvk.. Tungufoss ,fer frá
Ainsterdam í dag til 'Rvk.
Skip S.Í.S.: Hvassafell fór 2.
þ. m. frá Rvk. áleiðis til Pirae-
us. Arnarfell fór í gær frá New
York áleiðis til Rvk,. Jökulfell
er í Vestm.eyjum. Dísarfell. er
á Reyðarfirði. Litlafell keipúr
væntanlega til Rvk. í' kvöld.
Helgafell er í Roquetas, ""
Leiðiúuing.
I greininni „Bretar ánægðir
með kassafiskinn“ í Vísi' í gær
hafa misþrentast nöfn beggjá
bátanna, ísólfur, á að vera Ás-
úlfur, Valgeir, a að ýera Vað-
geir.
Fálkakrossiim,
sem Pétur Hoffmenn fann í
Selsvör, hefir nú verið seldui’.
Pétur reyndi að koma krossin-
um af sér í stjórnarráðinu, en
þangað taldi hann rétt að skila
honum gegn hæfilegum fund-
arlaunum, en þar var honum
ekki. veitt möttáka. Pétur tjáði
Vísi, að hann hefði selt kross-
inn fyxir svo sem svarar eimmi
daglaunum, og hefði það verið
sanngjarnt.
Befgniáli hefur borizt bréf frá
„Göngulúnum“, og er það á þessa
leið: „Hvað dvelur Orminn
langa? Á hraðferðarleiðinni
Austurbær—Vesturbær og öf-
ugt hafa birzt hin fegurstu far-
artæki. Nú síðast er undrágóð-
ur vagn kominn á leiðina Áust-
urbær—Vesturbær. Áður voru
tveir vagnar, allgóðir, i förum á
þessari strætisvagnaleið, eða svo
átti það að heita. Að vísu komu
þeir áðeins af og til, svona frek-
ar sem sýnishorn af þvi sem
koma skyldi. Nú hefur svo brugð
ið við, að hvorugur þessara vagna
hefur sézt á þessúm slóðum um
íangan tima. Gamall skrjóður af-
skrifaður og allsendis óboðlegur
á þessari mikilvægu samgöngu-
æð, hefur haldið uppi ferðum.
l>að er ófullnægjandi.
.. Það þarf ekki að geta þess, að
þessi þjónusta á slíkr! leið er
allsendis ófullnægjandi, algjör-
lega óboðlcg. Það munu þeir
mæla, seni þurfa að neyðast til
þess að nota þetta samgöngu-
tæki. Hvað hefur orðið af þess-
um tveimur nýjú, stóru og glæsi-
legu farartækjum, sem hoffnir
eru af þessum leiðum? Eru þeir
orðnir uppgefnir, eða hvað? Hafa
þeir verið „keyrðir i klessu“
eins og sagt er á reykvísku? Eða
er endingin ekki meiri en þetta?
Göngulúinn." Þessu bréfi er hér
með komið áleiðis til þeirra, sem
um þessi mál fjalla. Bergmál get
ur ekki gefið neinar upplýsingar
uni málið, en líklegt er að Stræt-
isvagnar líeykjavikur hafi í mörg
horn að líta. Þjónusta SVR er
ávallt undir smásjá bæjarbúa, og
sannar raunar ekkert annað en
það live nauðsynleg hún er orð-
Litið til baka.
En sé litið til baka, þá sézt
fljólt live geysilega Vagnarnir
hafa batnað með hverju árinu,
og raunar verið vel fylgzt með
tímanum, Það eru ennþá ínis-
jafnir vagnar í ferðum, en það
á cftir að breytast, og góðir
vagnar koma á allar leiðir. Það
hefur verið erfitt að úppfylla
kröfur. tímans undanfarin ár,
þar scm Strætisvögminum liefur
verið skorinn naumur fjárhags-
legur stakkur. Lolcs eftir mikið
jþref, fékkst það samþykkt að
gjöldin með vögnunum voru
jliækkuð, en hver heilvita maður
var fyrir löngu búinn að sjá-
fram á, að þjónustan hlyti að
liða fyrir það, að ekki var raun-
hæfur rekstrargrundvöllur fyr-
ir vagnana. Það var þess vegna
viðbúið að erfiðlega gengi með
útvegun nýrra vagna, en þó
furðulegt hve vagnar á mörgum
leiðum hafa verið endurnýjaðir.
— kr.
Ekknasjóður íslands
efnir til merkjasölu á morg-
un og er það í fyrsta skipti. sem
sjóðurinn hefur merkjasölu. —
Börn og unglingar, sem vildu
aðstoð við söluna, geri svo vel
að koma í litla salinn í Sálfstæð
ishúsinu, en þar verða. merkin
afhent frá k. 10.
Rakarastofur
bæjarins! eru opnar til kl. 4
á laugardögum, en til kl. 6 e. h.
aðra virka daga. Er rétt að
vekja athygli bæjarbúa á þessu.
Flugvélamar.
Edda var væntanleg til Rvk.
kl. 7.00 í morgun frá New York.
Flugvélin fer áleiðis til Björg-
vin. Stafangurs og Luxemborg'-
ar kl. 8.00. — Einnig er vænt-
anleg til Reykjavíkur Saga kl.
18.30 í dag frá Hambqrg, Kaup-
mannahöfn og Osló. Flugvélin
fer áleiðis til New York klukk-
an 20.00.