Vísir - 04.04.1956, Page 11
31
Miðvikudaginn 4. apríl 1956.
VfSIR
Sci©n®e
tir
99
ÞekStímg á snjóílóðum og hætt-
um þeim, sem af þeim stafa, er
næstimi því orðin vísindagrein
• sumstaðar i Evrópn, en í mörg-
um lönðum heims, eru þau Iítt
kurui fyrirbrigði
I raun og veru er enginn fjall-
garður i heiminum, þar sem
snjór fellur, öruggur fyrir þess-
ari hættu. Snjóflóð hafa banað
fóíki í fjalllendi Japans, í Him-
alajafjöllum, í fjalllendi Kákas-
us og jafnvel í fjöilum á ICors-
íku.
Ibúar Sviss og Austurríkis
hafa þvi miður of mikla reynslu
af þvi, hvað skeð getur á svo-
nefndum öruggum stöðum.
Meira en 10,000 snjöflóð steyp-
ast niður hliðar Alpafjallanna
árlega, oft á sveitaþorp meðan
allir eru í svefni, sveitabæi, gisti-
hús, jámbrautarstöðvar og kirk-
ur. Veturinn 1951 var einhver sá
versti í þessu tilliti í sögu Alpa-
landanna. Um 100 manns og 1000
nautgripir fórust, en þúsundir
húsa og 3000 ferkm. skóga eyði-
lögðust.
Árlegt sisjóflóð.
Þrátt fyrir þá staðreynd, að
Svissland eyðir árlega milljón-
um franka til að gera járnbraut-
ir, borgir og skóglendi örugg
fyrir snjóflöðahættunni, koma
sífellt nýjar sorgarfréttir af her-
verkum snjóflóðanna.
En á mörgum stöðum hefur
tekizt að stemma stigu fyrir
héttunni. Pontresina, frægum
vetraríþróttaskemmtistað, þar
sem hættulegt snjóflóð hafði
árlega fallið gegnum miðja borg-
ina, héfur tekizt að vinna bug á
hættunni með byggingu við-
náms, er bægði snjóflóðinu frá.
Á meginlandi Ameríku falla
líka snjóflóð, en þar fara minni
sögur af þeim, af því að fjalla-
héruð Ameríku eru strjálbýlli.
En 1910, til dæmis, steyptist
snjóflóð niður yfir smáborgina
Wellington í Fossafjöllunum
(Cascade Mountains) og tók með
sér járnbrautarstöðina ásamt
þremur eimreiðum, nokkrum
vögnum og vatnsgeymi, og gróf
þetta allt í djúpu gili, og drap
um leið 90 manns.
1 Tulleríde i Klettafjöllunum
féll snjöflóð á matsöluhús fullt
af fólki cg: ’örsp 20 manns.
Lifði í fSíMi i 12~daga.
í Alaska -þeytíi lofþrýstingur
af snjóilóji héillj röð af Irúsurn
50 metrx upp 1 móti og eyðilagði
þau .
Allmrargt sldðaíóll" og fialla-
manna heíurtíarist í vesturfjöli-
um Amsxáku ' vegna ókunnug-
Ieika á! hÆtt«merkj.-m um snjó-
flóð. Á síðasfcliðnu sumri fórust
sjö nmeáskir unglingar í snjó-
flóði ncerri Bánff í K ada.
Kimnugir: þekkja ýmsar ■: teg-
untíir' snjóflóða ■ og goia gefið
varúaaweglur , .um : sérhverrjá
.tegurtdj'iþeirra.
-1 Þótt •. eínkennilegt. sé, i- er dauð-
inn - ekkí-.alltaí • vfss, ■ -fcóU menn
vletKsi i snjófióði.- Fólk, tem Icnt
-héísUr. £. •sp.jóftöðurá, .•'•hgfur- .gst-
að haldlrt i íiíantíi ,vsvo dögcm
skipti. Eitt af þekktustu dæmum
um þetta kom fyxir 1951 nærri
smáborginni Heiligenblut i aust-
urrísku öipunum. Þar var mað-
ur,- Gerhard Freisegger að nafni
grafinn úr snjóílóði eftir 12 daga.
Hann missti að visu fæturna
vegna dreps, en er sarnt enn á
lífi.
Orsakir smjóflóða.
Allir, sem hætta sér út fyrir
hinar troðnu slóðir veírargisti-
húsa, ættu aö þekkja nokkrar
einfalar reglur lif getur oltið
á því. — "Fyrsta regian er að
Vera ekki eínn á ferð' á ókunn-
um slóðum. Önnur sú, að fara
aldrei í langar skiðaferðir án
snjóflóða-strengs. (Það er mjótt,
rautt band um 25 metra langt,
sem vafið er um rnitti allra i
hópnu.m). Bandið er öruggasta
leiðbeining til að fínna mann,
sem grafizt hefur í snjóflóði.
Sjálfsögð varúðarregla áður en
farið er í skíðaferð, er að spyrja
kunnuga menn um hverig snjó-
lagi er háttað. Aldrei skyldi far-
ið í slíka ferð í mikilli fannkomu
eða strax á eítir. Þá er snjó-
flóðahættan mest, og þvi seinna
sem er vetrar, því hsettulegri eru
snjóflóðin.
Á bjartviðrisdögum eftir
hvassviðri er hættast við snjó-
flóðum af áhrifum sólskins —
þegar „sólvakin snjóflóð“ geis-
ast niður fjailahlíðarnar, stund-
um af völdum örlítils hávaða —
til déemis ef talað er hátt. Það
tekur nýfallinn snjó að minnsta
kosti tvo til þrjá daga að „setj-
así“ og verða nokkurn veginn
öruggur.
TöBu sér alveg’ óhætt.
Þeir sem leyfa sér að gera lít-
ið úr slikum aðstæðum, setja
sig í slíkar kringumstæður eins
og hópur unglinga, þrir piltar og
ein teipa, sem ég hitti fyrir all-
mörgum árum í týrólsku ÖIp-
unum. Þau voru áð reyna að
komast upp í fjallakofa hátt
upp í Silveretta í mikilli fann-
komu, og voru öli jaínbarnalega
ófróð um þá hættu, sem þau
settu sig , með þessu. Þeim
virtist allt i bezta lagi, þrátt
fyrir aliar aðvaranir.
„í þessum mjúka snjó getur
ekkert orðið að.“ sögðu þau háðs
lega, þegar reiður fjallamaður
reyndi að varna þeim að halda
áírám, — cg þau héldu áfram.
En tutíugu minútum seinna biðu
þau öil bana í ákaflega miklu
snjóflóði, og lík þcirra náust
ekki fyrr en viku seinna. Þau
vissu ekki, að það er ekkert
„mjúkt“ við snjó í snjóflóði.
Næstum alit skíðafólk, sem
orðið hefur „á vegi“ snjóflóðs.
heíur nokkur augnablik til að
átta sig á livað gera skuli. Stund-
um haía menn sloppið til hliðar
við voðann; slíkt kapphlaup við
dauðann hefur frelsað mörg
mannslíf.
Oftast eru skiði og skíðastafir
fremur til ógagns en gagns i snjó
flóði. Þau draga menn lengra
niður í snjóinn og bezt er að
skera þau af sér með vasahníf
— sem 'allir ættu að hafa á sér
í skiðaferðum.
Keynt aS „synda“.
Þegar menn lenda í snjóflóði
hefur mörgum reynzt vel aö
hreyía handleggi og fætur eins
og á sundi og reyna þannig að
„synda“ á yfirþorði snjóflóðsins
undan „straumnum“. Það eru
talin helmingi meiri líkindi fyr-
ir menn á „sundi“ að lenda á yf-
i-bo’-ði flóðsins, eða að minnsta
kosti svo oíarlega í skriðunni,
að hægt væri að hafa öndunar-
rúm.
Að grafast í snjóflóði er mik-
il þrekraun, en alls ekki vonlaust
um björgun, ef farið er skyn-
samlega að ráði sínu. í því sam-
bandi má minnast mannsins,
sem áður getur, er tókst að
halda sér Iifandi í .12 sólarhringa,
í einhverju versta snjóflóði, sem
fallið hefur í týrólsku Ölpun-
um. Hann var sofandi í rúmi
sinu, þegar snjóflóðið skall á og
barst með hinum drynjandi
flaumi. Þegar snjóflóðið stöðv-
aðist um síðir, var hann enn
keyrður fastur niður í rúmið og
mátti sig hvergi liræra en dá-
lítið loftrúm var fyrir ofan, svo
hann gat andað. En strax þegar
honum gafst ráðrúm til, fór
hann að reyna að bjarga sér úr
hinni köldu gröf.
10 daga í snjóflóði.
Það var erfitt og seinlegt verk;
fyrst að hreyfa tærnar og síðan
fæturna og losa að síðustu hand-
leggina, til þess að berjast fyr-
ir lífi sínu, þrátt fyrir hungur,.
þreytu og vonleysi. Dögum sam-
an var hann að búa til litla holir
í kringum sig, Einu sinni heyrði
hann til björgunarsveitanna og
þekkti jafnvel einstakar i’addir,
en gat ekki gert vart við sig.
En þegar honum fór að lengja
eftir að björgunarmennirnir
finndu sig, gerði hann það eina
sem hann gat, eftir aðstæðun-
um; hann fór að reyna að grafa
sig upp i gegnum snjódyngjuna.
Eftir 240 klukkustundir tókst
honum loks að gera litla holu á
yfirborðið og anda að sér fersku
lofti. En björgunarmönnunum
tókst ekki fyrr en tveim dögum
seinna að finna þessa litlu rauf
og heyra veik neyðaróp hans.
Gamall maður, sam grafizt
hafði í snjóflóði á Hkum slóð-
um, var heppnari. Honum tókst
að gera holu í kring um sig og
þegar honum tókst að bora sig
upp úr snjólaginu, stakk hann
langri tóbakspípu með rauðum
vasaklút upp úr gatinu, eins og
neyðarflaggi. Hann fannst þá.
undír eins og var grafinn upp á
nokkrum minútum.
En þessar sögur segja ekki
hin venjulegu afdrif manna.
Flestar sögur af snjóflóðum enda.
ekki giftusamlega.
Kjamfræðanefnd íslands
tekin til
FormaBur hettnar er Þorhjörn Sigurgeírssott.
í Lundúnum heiur verió haltíití. sýning, sem sýnir „framtíðar-
hshiii’ið“ eftir 20—30 ói. Eí þar gert ráð fyrir, að skot séu í
veggjum fyrir ýmsa Muíi, og speglarnir þurfa ekki að vera
rétthyrndir, eins og áu er veniulegast. Konan á myndinni er
léik&öhaá. Anne Hcywood, ;en ekki er tryggt, að hún verði í
hverju f mtíðarheimiii!
Stofnuð hefir verið Kjarn-
fræðanefnd íslands, og eru
stofnaðilar tæplega 30 stofn-
anir, félög og fyriríæki á^ sviði
orkumála, iðnaðarmála, sam-
göngumála, hcilbrigðismála,
búnaðarmála og ýmis konar
vísindalegra rannsókna.
Formaður nefndarinnar er
Þorbjörn Sigurgeirsson, fram-
kv.stj. Rannsóknaráðs ríkisins,
Jakob Gíslason raforkumála-
stjóri, Jóhann Jakobsson deild-
arstjóri Atvinnudeildar Há-
skólans, Halldór Pálsson, deild-
arstjóri Eúnaðardeildar At-
vinnudeildar Háskólans, Gísli
Fr. Petersen yfirlæknir, Gunnar
Böðvarsson yfirverkfræðingur
og Steingrímur Jónsson raf-
magnsstjóri.
Verkefni kjarnfræðanefndar
séu;
a) Að kynna sér fræðilegar
og tæknilegar nýjungar varð-
andi hagnýtingu kjarnorku og
geislavirkra efna í þágu at-
vinnuvega, læknavísinda og
hvers konar rannsókna.
b) Að stuðla að sem ýtarleg-j
astri fræðslu um kjarnfræða-
málefni hér á landi.
c) Að gera tillögur um kjarn-
fræðileg rannsókna- og til-
raunastörf hér á landi og vinna
að því að hrinda þeim í fram-
kvæmd eftir því sem gerlegt
þykir og við getur átt.
d) Að gera tillögur um notk-
un kjarnorku og geislavirkra
efna í þágu atvinnuvega, heil-
brigðismála og hvers konar
rannsókna.
e) Að vera ríkisstjórn íslands
og öðrum til ráðuneytis í kjarn-
fræðamálum, ef þess er óskað.
f) Að hafa samband og sam-
starf við tilsvarandi eða skyldar
nefndir og stofnanir erlendis.
Skipaðar hafa verið undir-
nefndir og er starfssvið þeirra;
1. Framleiðsla á þungu vatni;
formaður Jakob Gíslason raf-
orkumálastjóri.
2. Orkumái (rafveitur, hita-
veitur); formaður Steingrímur
Jónsson rafmagnsstjóri.
3. Heilbrigðismál; formaður
Gísli Fr. Petersen yfirlæknir.
4. Landbúnaðarmál; formað-
ur Halldór Pálsson deildarstjóri
Búnaðardeildar Atvinnudeildar
Háskólans.
5. Iðnaðarmál; formaður Jó-
hann Jakobsson deildarstjóri
Iðnaðardeildar Atvinnudeildar
Háskólans.
6. Almennar rannsóknir og
undirbúningur á stofnun rann-
sóknastofu; formaður Þorbjörn
Sigurgeirsson framkvæmda-
stjóri Rannsóknaráðs ríkisins.
Kjarnfræðinefndin er stofnuð
með vitorði ríkisstjórnar ís-
lands, og mun nefndin reglu-
bundið gefa henni skýrslu um
störf sín.
tii Aisir.
Frrskkar halda áfram mikl-
nnj ’iðsfíutningum til Alsír. —-
Um 2400 hermenn eru á leið
þangað frá Vestur-Afríku í
fhigvélarskipi og um 1500 eru
á förum frá Marseille. Flokkur
þrýsíilrftsflugvéla fer til Alsír
í vikulokin.
Til á+aka kom í gær milli
lögreglunnar í Tripoli, Libyus
og andstæðinga Frakka. Vörð-
ur var settur við franska sendi-
herrabústaðinn.
Sýrland hefur farið fram á, .
að hin arabisku ríkin samfylki
sér í að hætta menningarlegu
og viðskiptalegu samstarfi við
Frakkland, vegna stefnu þess .
í Alsír. Sýrlenzka þingið hefur
samþykkt ályktun í þessu efrtL