Vísir - 05.01.1957, Síða 8

Vísir - 05.01.1957, Síða 8
Þcir, sem gerast kaupendur VÍSIS eftlr 10. hvers mánaðar fá blaðið ókcypis til mánaðamóta. — Sími 1660. VISIR VÍSIR er ódýrasta blaðið og þó það fjöl- breyttasta. — Hringið í síma 1660 og gerist áskrifendur. Laugardaginn 5. janúar 1957 300 erfðaskrár aldraðra kvenna til athugunar, áður en Bodkim iæknir var sakaður um morð< Mál James Bodkins læknis í Eastboume, Englandi, vekur sívaxandi athygli. Hann var nýlega sakaður um að hafa myrt 81 árs gamla, auðuga ekkju þar í bæ og grunaður um eitthvað fleira. Morðákæran var ákveðin eftir að Scotland Yard hafði mánuðum saman unnið að at- [ hugunum í sambandi við um 300 erfðaskrár auðugra_ gam-1 alla kvenna, sem látist hafa í Eastbourne undangengin 20 ár, en læknirinn stundaði þær allar. Konan, sem Adams var sak- aður um að hafa myrt, hét Edith Alice Merrill, og var ekkja auðugs stórkaupmanns. Hún lét eftir sig miklar eignir. Hún lézt í nóv. 1950 og var lík hennar brennt og öskunni dreift yfir Ermarsund. Adams var einnig sakaður um að hafa brotið lög um „hættuleg lyf“ og fyrir að reyna að fela fyrir lögreglunni tvær flöskur með morfini í. Starfaði í bænum í þrátíu ár. Grunur hefur lengi hvílt á lækninum_ en það var ekki fyrr en s.l. sumar, sem éinn af kunnustu mönnum Scotland Akureyrartogarar selja í Þýzkalandi. Frá fréttaritara Vísis. — Akureyri < gær. Þrír Akureyrartogarar selja þessa dagana afla sinn i Þýzka- landi. Svalbakur seldi í Cuxhaven í gær, samtals 237 lestir fyrir 111 þúsund mörk. Kaldbakur er kominn til Hamborgar með fullfermi og selur í dag. Hinir togarar Útgerðarfélagsins á Akureyri eru sem stendur á veiðum. Þá er Akureyrartogarinn Jörundur á leið til Þýzkalands með 180—190 lestir af fiski. Hann selur væntanlega n. k. þriðjudag og sennilega fyrir austur-þýzkan markað. Yard, Herbert Hannam, fór að gefa honum nánar gætur. Hann hafði grun um, að einhver mundi hafa haft mikinn hagn- að af dauðsföllunum í East- bourne, sem þóttu grunsamleg í vaxandi mæli. Adams heftu- stundað lækn- ingar í Eastbourne í 30 árv en í þessum litla bæ við sjávarsíð- una býr aðallega efnað_ aldrað fólk. Dauðsfallafjþldi í East- bourne er hærri en í nokkrum öðrum bæ í Englandi. Áður en Adams var handtek- inn hafði hann sett tryggingu fyrir að mæta í rétti, er þess væri krafist. Hann hefur feng- ið fyrir verjanda einn kunnasta lögfræðing Bretlands, Sir Hartley Shawcross. „Getið þér sannað það?“ Eastbourn hefur verið vin- sæll baðstaður allt frá dögum Viktoriu drottningar. Fyrir handtökuna, þrátt fyrir ákærur um ýms brot, falsanir, brot á líkbrennslulögum o. fL, hélt Adams áfram læknisstarfi sínu. unz hann var handtekinn. Adams er allmjög tekinn að reskjast. Hann er ókvæntur, írskur að ætt, af mætu fólki kominn. Síðari fregnir herma, að lík tveggja auðugra kvenna hafi verið grafin upp og tekin til rannsóknar. Leynilögreglumaður bar það fyrir rétti, að Adams hefði sagt,‘ er hann var handtekinn: „Morð? Getið þér sannað, að það hafi verið. morð. Eg held ekki, að þið getið sannað á mig morð. Hún átti skammt eftir hvort sem var“. Ákæruvaldið hefur ekki enn látið neitt uppi um hvernig það ætlar að sanna morð á Adams lækni. Don Camillo og Peppone — myndin er af finnskum leikurum í hlutverki ofannefndra góðkunningja. í janúarlok fara þeir Valur Gíslason og Róbert Arnfinnsson í gerfi þeirra félaga. Don Camillo og Peppone bráð- lega sýnd í Þjóðíeikhúsinu. \ríitíirbúinrt. Firwter* setur ieikitan a sriii hér. Kviknar í skrtfstofuvékmt. Eldur kviknaði j nótt á skrif- stofu Vélsmiðjunnar Keiiis inn í Vogahverfi og var slökkvilið- ið kvatt á vettvang. Virtist sem eldurinn hafi kviknað í rafmagnsskrifstofu- vélum, er stóðu í rafsambandi yfir nóttina og höfðu þær eyði- lagzt af eldinum. Við þetta myndaðist og mikill reyþ.ur á skrifstofunni og' urðu meiri skemmdir af völdum réyks og vatns heldur en af eldi. Slokkvi starfið gekk greiðlega. í nótt hafði maður, Sigurjón Hallbjörnsson að nafni, dottið í stiga í Landssímahúsinu óg meiddist við það á höfði. — Sjúkrabifreið var fengin til þess að flytja manninn í slysa- varðstofuna. Don Camillo og Peppone eru orðnir góðkunningjar ís- lenzkra lesenda og bíógesta og bróðlega eigum við eftir að fá nónari kynni af þeim félögum á sviði Þjóðleikhússins. Til Reykjavíkur er kominn í boði Þjóðleikhússins, Austurríkis- niaðurinn, Vínarbúinn, prófes- sor í leikbókmenntum, leikstjór inn og leikritaböfundurinn Walter Firner, sem kominn er i til að setja áðurnefnt leikrit á svið. í gær ræddu blaðamenn við Firner, sem með vandfengnu samþykki höfundarins Gio- vanni Guaresci, fékk leyfi, til að gera leikrit úr sögu Gio- vannis um Camillo. Leikritið Don Camillo og Pepponen er ekki síður vinsælt en kvikmyndin og bókin, því í Vín, þar sem 15 stór leikhús eru Sþ-menn komnir til Budapest. OUtt itaitliií iet/ntiu unt ferðaiat/ þeirra. Undirbúa vertíð í Eyjum. Frá fréttaritara Vísis. — Vestmannaeyjuni í gærkveldi. Vertíð fer nú að byrja í Vest- mannaeyjum og eru menn sem óðast að búa sig undir hana. Tveir bátar réru í gær, en fengu sama og engan afla enda vitlaust veður í gær. í dag var veður skárra en enginn réri. Samgöngur hafa verið slæm- ar við Vestmannaeyjar undan- farið, því að ekki hefur verið hægt að fljúga þangáð vegna hvassviðrls. Tveir embættismenn frá Sam | frelsissinna verði einuðu þjóðunum eru komnir til, hún sé við völd. Budapest t’l þess að athugai þörfina fyrir hjálparstarfsemi. | Mikil leynd var um ferðalög j þessara manna, þar sem Kad- ar-stjórnin vildi ekkert láta spyrjast um ferð þeirra fyrr en þeir væru komnir til Ungverja lands. Hún hefur áður þver- skallast yið, að sendimenn frá Sþj. kæmu til landsins í athug- unarskyni, og ætla menn, að hún mundi nú fegin að fá að- stoð þá, sem af athugun þess- ara manna kann að leiða. Brezk blöð segja í morgun um væntanlega stefnuyfirlýs- ingu Kadarstjórnarinnar, að milli hennar og ungversku þjóðarinnar sé sama djúp stað- fest og áður, og engum kröfum sinnt meðan Orðabók til — eftir 25 ár. Eftir 25 ára uiidirbúning hef- ur Gyldendal gefið út þá stærstu dönsk- ensku orðabók, sem noklcru sinni hefur komið út í Danmörk. starfandi, hefur hann verið sýndur 83 sinnum. Leikstjórn Firners er ekki síður rómuð, því hann hefur sett leikin á svið í Stuttgart, Helsingfors og Oslo við mikla aðdáun. Það hefir ekki verið vanda- laust að gera leikrit úr hinni vinsælu sögu. sem í raun og veru er safn smásagna og skorti því dramatíska spennu, en Firner mun hafa tekist það með ágætum því hann var sá eini af meir en 100 rithöfundum sem leyfi fékk til að gera leikrit úr sögunni. Sagði Firner að þrátt fyrir alþjóðlega mannúðarstefnu væri sagan af Don Camillo svo dæmigerð' ítölsk að hún gæti hvergi annarsstaðar hafa gerst og i leikritinu er þessum áhrif- um haldið eins og unnt er. Af hinni stuttu viðkynningu af ís- lenzkum leikurum álítur Firn- er að leikurin megi takast vel þótt undirbúningstíminn sé naumur. Þjóðleikhússtjóri upplýsti að þegar hefði verið skipað í hlut- verk og leikur Valur Gíslason Don Camillo, Robert Arnfinns- son leikur Pepponen. Aðspurður um leikhúsmál í Austurríki lét hinn reyndi leikhússtjóri í ljós óánægju sína yfir nýtilkomnu skipulagi á leikstarfsemi í Austurríki sem hann sagði að hefði stór- tekjur af „útflutningi“ á list ekki síður en útflutningi á várningi. Tillögur Eisenhowers samþykktar. Eisenliower forseti ávarpar þjóðþingið um miðdegi í dag. Fregnir að vestan herma, að þar sem hann láti sitja í fyr- irrúmi að skýra tillögur sínar varðandi nálæg Austurlönd, megi öllum ljóst vera hversu mikilvægt hann telji, að þær nái fram að ganga þegar. Vanalega flytur hann sam- einuðu þingi sérstakt ávarþ í þingbyrjun eftir áramót um stefnu stjórnar sinnax-, ný laga- frumvörp og hag lands og þjóð ar, en jafnvel þessi mikilvægi boðskapur er nú látinn biða. Mikilla umræðna er vænzt um tillögurnar, en a.ð þær verði samþykktar í meginatriðum. : Nýjar fjöldagraflr í Póllandl. Nýjar fjöldagrafir fundust fyrir skömmu í Póllandi. í þessum gröfum voru lík manna, sem öryggislög- reglan pólska drap í árslok 1945 í bæjunum Leobs- cbútz (Glubczyce) og Falk- enberg (Niemodlin) í suð- vesturhluta landsins. Hér var um tvær fjölda- grafir að ræð'a. Báðar höfðu verið grafnar í húsagarðin- um í aðalbækistöð öryggis- lögreglunnar. Nokkrir hiima drepnu voru Þjóðverjar, hinir Pólverjar. Bókin er nærri þvi 2000 tvídálka blaðsíður og eru í henni 200.000 orð og um 135.000 orðasambönd og þýð- ingar þeirra. // // I Leikarar eru þar á föstum i ! launum og eru fast ráðnir. Þetta veldur því að leikurum er nokkurnveginn sama um að- sókn að sjónleikjmium og þeir leggja sig ekki eins fram við list sína. Þetta er mjög misráðið Höfundar orðabókarinnar eru sagði hann og mun með tíman- Hermann Vinterberg, lektor, og' um verða leiklistinni í Austur- C. A. Bodelsen, prófessor. ! ríki til tjóns. Ferðfn til tunglsins sýnd í ÞjóÖleikhúsinu. Hið vinsæla barnaleikrit Ferð in til Tunglsins, sem sýnt var meir en 30 sinnum árið 1954, verður nú sýnt aftur í Þjóðleik- húsinu. Fyrsta sýningin verður í kvöld. Leikstjóri er Hildur Kal- man.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.