Vísir - 18.01.1957, Blaðsíða 12

Vísir - 18.01.1957, Blaðsíða 12
Þeir, sem gerast kaupendur VÍSIS eftir 10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. — Sími 1660. VI VÍSIR er ódýrasta biaðið og þó það fjöi- breyttasta- — Hringið í síma 1660 cg gerlst áskrifendur. Föstudaginn 18. janúar 1957 „Bs'etiand var, er verður stórveidi64. 3Æ(*3f iilísat úvnrpíBi' &r&ta. Harold McMillan forsætis- ráðherra Eretlands flutti ræðu í gærkveldi í útvarp o" ávarp- ! aði brezku bjóðina, hvatti til 7 r I aukins samstarfs v’ð Evrópu og samveldið og bað menn hætta að tala í beim dúr, að; Bretland væri ekki lengur stór- veldi. Hann kvao Bretland hafa verið, vera og mundu verða stórveldi Hann endurtók það, sem hann sagði, er honum hafði verið falið af drottningu að mynda stjórn, að hann hrygð- ist og gleddist í senn. Sér væri það hrj’gðarefni, að hann tæki við embættinu vegna burtfarar Edens, sem væri sér kær og verið hefði mikilhæfur leið- togi, en jafriframt kvaðst hann hafa glaðst yfir því trausti sem sér væri sýnt og væri hann stoltur af því. Hann varði og gerðir Breta og Frakka í Súez- málinu og kvaðst ekki óttast dóm sögunnar, en erfiðleikarn- I ir sem nú steðjuðu að ættu rætur sínar að rekja til þess,! að Eden hefði haft djörfungu' til að taka af skarið og grípa til vopna. Heíði allt verið látið reka á raiðanum hefði allt glat- ast. Þá bcðaði McMillan, að ekki yrði efnt til kosninga fyrr en kjörtímabilið væri á enda runnið, en því hafði hann og lýst yfir áður. Hann kvað út- gjöld til hernaðarþarfa hafa verið skorin niður af nauðsyn. Bretar myndu bera sinn hlut, en ekki lengur bera byrðar annara. Hann boðaði aukið samstarf við Evrópuþjóðir og samveldið og hagnýtingu orkulinda í þágu atvinnuveganna, lands og þjóð- ' ar. Bretar hefffu haft forustu í hagnýtingu kjarnorku til, friðsamlegra nota og myndu j halda henni, og erm væru kol og olía það, sem mest ylti á. | í blöðum er ræðunni mis-! jafnlega tekið. Yorkshire Post, | sem var heizta stuðningsblað Edens, tekur ræðunni ákaflega vel, sörnuleiðis Daily Mail, sem bæði ræða öryggi, festu og einurð McMiIlans, og telja hann mikinn leiðtoga, ósmeykan við að gera það, sem hann álítur rétt, hvort sem það er gera verður er vinsæit eða ekki. , Daily Express er hinsvegar óánægt með viðskiptastefnu McMilIans og segir hann hafá horfið frá þeirri stefnu, sem var viðurkennd stefna flokks- Nýtt flugcneft. Bandarísk herflugvél af gerðinni B-52, eða risasprengju flugvél, flaug í gær viðkomu- laust frr. Kaliforníu til Eng- lands. Vegalengdin er um 8800 km. og er þetía í fyrsta skipti, sem slíkt flug hefur átt sér stað. | ins í kosningunum 1955, þ. e. að leggja megináherzlu á við- skipti við samveldið, og eina heiðarlega leiðin, ef breytt sé um stefnu í þeim málum, að efna til kosninga, og geti Mc- Millan ekki hafnað þeirri kröfu, en hann hefur nú samt ein- dregið hafnað slíkum kröfum, bæði í ræðunni í gærkvöldi og fyrr. Daily Herald, blað jafn- aðarmanna gagnrýnir McMill- an og stefnu hans og heldur enn fram kröfunni um nýjar kosningar. Óvanalegt skíðamót. Brezkir og svissneskir þingmenn kepptu. Óvanalegt skíðamót átti sér stað í hlíðunum nálægt Davos í Svisslandi fyrir nokkru. Kepptu þar brezkir og svissneskir þing- menn: Þingmenn Svissara unnu með 210 stigum gegn 160, en þó .var það brezkur þingmaður, sem gat sér mest frægðarorð, því að hann sigraði þrjá Svisslend- inga í keppni í bruni, á 14 sekúndum og einnig í Alpa- tvíkeppni. Þingmaðurinn Isaac Pitman, er 55 ára, í íhalds- flokknum og þingmaður fyrir Bath-kjördæmi. Agæt kvöldvaka Ferðafélagsins. Fyrsta kvöldvaka Ferðafé- lags Islands á þessu nýbyrjaða ári var haldin í gærkvöldi í Sjálfstæðishúsinu. Margt manna var saman- komið á skemmtun þessari. | Björn Björnsson frá Norðfirði I sýndi vel teknar litskugga- : myndir af fuglum víðsvegar að ! af landinu. Dr. Finnur Guð- mundsson fuglafr. skýrði myndirnar skemmtilega. Síðan i voru myndagetraunir og veitt verðlaun fyrir. Að lokum lék hljómsveit Björns R. Einarssonar til kl. 1. Má segja að þessi fyrsta kvöld- vaka félagsins á árinu hafi tek- izt mjög vel og vonandi að líði ekki langt til þeirra næstu. Hden á leid <51 N.-§jáIand§. Sir Anthony Eden og kona hans löeðu af stað í morgun í Nýja Sjálands ferðina. Þau fara sjóleiðis og munu verða komin til Nýja Sjálands eftir mánuff'. — Þau hjón fara í boði nýsjálenzku stjórnarinn- ar. — _____ ★ Lögreglan í Ulster handtók í gær 2 menn norðarlega í Londonderry héraði. Báðir kváðust eiga heima í Bel- fast. — Litlu munaði í gær, að margir menn særðust af völdum sprengju í Úlster. íinn fégræðgi gaf Eækuir sjúkiingum sinnm eiturlyf. Frá réttarhöldunum yfir Adams lækni í Eastbourne. Réttarhöldum er haldið á- j fram í máli Adams læknis í Eastbcume. Saksóknari hefir nú'nefnt tvo sjúklinga til við- hótar, sem Adams læknir er talinn hafa yefið sterka skammt af eiturlyfjum, áður hafði vorið nefnd frú Edith Morrell, 81. árs. Þessir tveir sjúklingar voru maður að nafni Hullett, 71 árs, auðugur, farlama maður, og ekkja hans, um fimmtugt, en hún lézt í júlí, fjórum mánuð- um eftir andlát hans. Saksóknari kvað Adams hafa verið ánafnað samkvæmt erfða- skrám þessa fólks: Frá frú Morrel kistu með silfurmun- um og Rolls Royle bifreið, frá Hullet 500 stpd., frá ekkju hans Rolls-Royce bifreið, en auk þess hafði Adams fengið frá henni 1000 stpd. ávísun 6 dögum áð- ur en hún dó. Frú Morrell hafði Adams stundað í tvö ár. 12. nóvember kom hann til hennar í sjúkra- vitjun, fyllti sprautu með mor- fíni, og skipaði hjúkrunarkon- unni, að sprauta því í sjúkling- inn, sem lézt fjórum klst. síðar. 13. marz 1956 kom Adams í sjúkravitjun til Hulletts. Hjúkrunarkona sá hann taka upp meðalaglas með morfíni. í horni herbergisins, þar sem skugga bar á, sá hún hann fylla sprautu og sprauta mor- fíninu í vinstri handlegg sjúk- lingsins. Átta klst. síðar lézt Hullett. Saksóknari kvað fjárgræðgi ákærða hafa verið svo mikla, að hann gat ekki beðið eðlilegs dauða sjúklinganna, en hann vissi, að hann mundi hagnast á dauða þeirra. Lik frú Morrells og Hulletts voru brennd, en hann gat ekki leynt hinni sönnu dauðaorsök frú Hullett. Eins og fyrr hefur verið getið var Adams handtekinn og á- kærður fyrir að hafa myrt frú Morrell, á ,,því augnabliki, er honum hentaði“, en hún var allt af að breyta erfðaskrá sinni. Hvað er tekið af þei m, er nota fiður, hálfdiín? „Bjargráðin^ hækka þá nauð- synjavöru stórlega • Flestir munu hafa eitthvað ofan á sér, meðan þeir sofa og það eru ekki allir sem sofa undir dúnsængum. — Það munu helzt vera þeir, sem hafa harla lítil efni, sem verða að láta sér nægja fiður og hálfdún. Það er þess vegna fróðlegt að kynnast því, hversu mikið stjórn „vinnandi stétta“ ætlar að taka af þeim, sem notast verða við fiður og hálfdún í sængur sínar. Reiknað er skv. aug- lýsingu ríkistjórnarinnar í Lögbirtingablaðinu. 1956 1957 Kr. Kr. Innkaup 18.608,63 18.608,63 Flutningsgjald 293,60 293,60 Vátrygging 274,00 274,00 Cifverð 19.176,23 19.176,23 Vörumagnstollur 104,72 104,72 Verðtollur % 10.355,16 10.355,16 Tollstöðvargjald 104,60 Uppskipun 60,00 60,00 Akstur 60,00 60,00 Vörugjald 10,50 10,50 Lcyfisgjald Yfiríærslugjald . . 2977,38 Bankakostnaður 272,16 272,16 Geymlsa 4,00 4,00 Innfl.gj. 60,5 af kr. 32.613,49 19,731,16 Vextir 1% 300,53 528,56 Kostnaðarverð 30.343,20 53.384,47 i Söluskattur í tolli 5215,95 2281,98 Heildarupphæð 35.559,15 55.666,45 Ilækkun á kostnaðarverði 56,5%. Yfirheyrzlur enn í Hverageróismálinu. Enn bá er unnið £ Hv<?rage?ð- ismálinu og hafa yfirheyrzlur farið fram síðan sá hörmulegi atburffur skeði sem sagt 'Iiefir verið frá í blöðunum. Beinist rannsóknin aðallega að því að rekja dagleg atvik, því að staðreyndir lágu ljóslega fyrir. Hafa allmargir verið yfir- heyrðir, en eftir er að yfirheyra fáeinar aukapersónur enn svo og samræma framburði. Huiles lækkar seglin. Birt hefur verið í Washington tilkynning um yfirlýsingu John. Foster Dulles á fundi utan- ríkisnefnda fyrir nokkru, en áður hafði verið sagt, að þaffi mundi verða litið á það sem ofbeldisárás, ef sjálfboðaliðar væru sendir frá Rússlandi og Kína til nálægra Austurlanda. Samkvæmt tilkynningunni sagði Dulles, að ef slíkir sjálf- boðaliðar héldu kyrru fyrir í landi þeirra þjóðar, sem hefði boðið þeim að koma yrði ekki litið á það sem ofbeldisaðgerð, en hinsvegar, ef þeir færu út fyrir landamærin þessara landa. @ Vegna benzín-kreppunnar hraffa Frakkar sem mest þeir mega að liúka lagningut 1600 kílómetra olíuleiðslu- kerfis, sem nær yfir landið. NATO fær mikilvæg not af þessu kerfi. „Saxast ii o © © Bæjarfulltrúi segir sig úr SósíaEistaflokknuui. Petrína Jakobsson, einn af þremur bæjarfulltrúum Sósíal- istaflokksins stóð upp á bæjar- stjórnarfundi í gær og lýsti yfir því, að hún hefði sagt sig úr Sósíalistaflokknum og sæti því ekki í bæjarstjórn sem fulltrúi þess stjórnmálaflokks. Á fundinum gaf Petrína þá skýringu, að hún um langt skeð hefði ekki getað sætt sig við stefnu flokksins, sem hún sagði að væri stjórnað í einræðisanda af fáum forystumönnum, en starfaði ekki á þjóðlegum lýð- ræðislegum grundvelli. Þá sagði Petrína, að hún gæti ekki fylgt þeim flokki, sem gerðist talsmaður ofbeldisverka þeirra, sem Rússar og kommún- istar frömdu á ungversku þjóð- inni og benti á það að Þjóðvilj- inn hefur varið þessar svívirði- legu aðgerðir Rússa í Ungverja- landi. Það kom ekki alveg á óvart þótt einn af frammámönnum. kommúnista segði sig úr flokkn um, því það er á allra vitorði að fylgi kommúnista fer stórlega minnkandi, enda hafa atburð- irnir í Ungverjalandi opnað augu margra, sem ánetjast höfðu kommúnistum. f t

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.