Vísir - 29.01.1957, Blaðsíða 8
>
Þeir, «cm gerast kaupendur VlSIS eftlr
19. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til
mánaðamóta. — Sími 1660.
VÍSIB er ódýrasta blaðið og þó það f|öi-
breyttasta. — Hringið í síma 1660 eg
gerlst áskrifendur.
Þriðjudaginii 29. janúar 1957
r *
A 15 klst. milli Keflavíkur
o§ Reykjavtkur.
Tveir áætBunarbllar sátu fast-
• *
Er b
Tveir a£ áætlunarbílum
Steindórs á Kefiavíkuríeiðinni
komu hingað til Reykjavíkur
klukkan |)rjú í gxr og höfðu þá
verið rúma fimmtán klukku-
tíma á leiðinni frá Keflavík til
Reykjavíbur.
Vxsir náði í gær tali af öðr-
um bílstjóranum, Hákoni
Kristgeirssyni, og spurði hann
frétta af þessu ferðalagi.
— Við lögðum af stað klukk-
an fjórðapart fyrir tólf í fyrra-
kvöld, sagði Hákon. — Nokkrir
farþegar voru í vögnunum, en
við komumst ekki lengra en
inn í Voga. Þar sátum við fastir.
Eftir mikinn barning komst eg
að Hábæ í Vogum og náði þar
í síma. Klukkan hálf þrjú í
nótt náði eg svo sambandi við
Reykjavík og var þá brugðið
við og haft samband við Vega-
gerðina, og var sendur snjó-
plógur suður eftir.
— Hvenær kom svo plógur-
Inn?
— Plógurinn kom í Voga kl.
7 í morgun. en hélt þar áfram
með þá bíla, sem þurftu að
komast til Keflavíkur. Þangað
kom hann klukkan 9 í morgun
til Reykjavíkur. Voru þá margir
bílar á veginum, sem sátu fastir
og fylgdi öll halarofan á eftir
snjóplógnum. Þrír voru stórir
bílar og margir litlir.
— Hvernig ieið fólkinu, sem
varð að hýi-ast svona lengi í
bílunum.
— Því leið vel. Það var nógur
hiti, en auðvitað enginn matur,
svo að margir hafa verið orðnir
ínnatntómir, þegar við komumst
Soks til bæjarins klukkan þrjú
í gær_ eftir um 15V2 klst. útivist
á ekki lengri leið.
— Hvernig var veðrið?
— Veðrið var mjög slæmt,
einkum milli 3 og 6 um nótt-
ina. Þá var illfært milli bílanna.
Það er farið að tíðkast í öðr-
um löndum að hafa talstöðvar
í bílum, í örfáum bílum hér á
landi eru talstöðvar, en þyrfti
að vera í miklu fleiri bílum og
í sérleyfisbílum eru þær alveg
nauðsynlegar.
Heimdalíur:
StjórnmálaRámslceið
hefst í kvöðd.
Heimdallur félag ungra
Sjálfstæðismanna, byrjar stjórn
málanámskeið í kvöld kl. 20.30
í Valhöll, félags'heimili Sjálf-
stæðismanna, Suffurgötn 39.
Formaður Heimdallar, Pétur
Sæmundsen, mun setja nám-
skeiðið, en fyrsta erindið mun
Birgir Kjaran hagfræðingur
flytja og fjallar það um stefnu
og skipulag Sjálfstæðisflokks-
ins. Því næst verða umræður,
en að þeim Ioknum verður sýnd
kvikmynd.
Námskeið þetta mun verða
með svipuðu fyrirkomulagi og
stjói'nmálanámskeið þau, sem
Heimdallur hefir efnt til á
undanförnum árum. Fluttir
verða á námskeiðinu fyrirlestr-
ar um stjórnmál og fleira og
verða margir málfundir.
Heimdellingum er heimil ó-
keypis þátttaka og eru þeir, sem
hafa skráð sig, beðnir að mæta
stundvíslega í kvöld.
@egn vaxandi áhrifum
Þessi telpp er úr hinum stóra
hópi, sem flúið hefur Ung-
verjaland. Hún er sjö ára göm-
; uí. Faðir hennar hafði hætt sér
að heiman einu sinni, meðan á
. hardögusii stóð, og spurðist
aldrei til hans síðan. Nú eru
telpan og móðir hennar komn-
ar til Englands.
Efftir strand við Islancl:
Skipstjóri sviftur rétt-
indum í 12 mánuði.
Sjóréttur dæmír vegsia strands
Nothern Crown.
í. síðustu viku fjallaði sjó-
fféttur í Grimsby um strand
larezka togaras Northem Crown,
sem fórst skammt frá Eldey í
aktóber.
Komst rétturinn að þeirri
niðurstöðu, að skipstjóra væri
beinlínis um að kenna, að skipið
fórst. Hafði hánn ekki gengið
úr skugga um nákvæma stöðu
skipsins, þegar hann tók stefnu
á Vestmannaeyjar. Hann gætti
þess ekki heldur að gera ráð
fyrir breytingum, hvað misvís-
un áttavita snertir.
Ekki vildi x'étturinn heldur
leggja trúnað á það, að stýri-
maður hefði látið mæla dýpi svo
oft og hann hélt fram fyrir rétti,
en' þar við bættist að hann var
ekki staddur á stjórnpalli, þegar
skipið tók niðri, enda þótt hann
væri á verði. Skipverjar sáu
-einnig ljós, sem átti að vera
þeim ákveðin bending um það,
Jað skipið væri ekki statt þar,
Jsem gert var ráð fyrir, en þrátt
jfyrir það fór stýrimaður af
• stjórnpalli.
Þau urðu úrslit málsins að
skipstjórinn í þessari ferð, Co-
lin Newton, fær hvorki ao sigla
sem skipstjóri né stýrimaður
næstu tólf mánuði. Stýrimaðux/
var ekki sviptur réttindum,
enda þótt hann væri harðlega
gagnrýndur Þár við bætist, að
! vátryggingarfélag togara í
, Grimsby hefir ákveðið, að
tryggja ekki skip undir stjórn
Newtons.
Rússar gerðu Ungverja-
íand að nýlendu.
Anna Kethley, jafnaðar-
mannaleiðtoginn ungverski,
sem átti sæti í stjórn Nagys,
nxætti í gær ó fundi Ungverja-
landsnefndar Sameinuðu þjóð-
anna og kvað Rússa hafa gert
Ungverjaland að nýlendu, senx
hefðu búið við nýlendustjórn-
arfar af verstu tegund.
Hún kvað Kadarstjórnina
ekki vera rétta fulltrúa Sam-
einuðu þjóðanna og gerði til-
kall til þess, að hún fengi við-
urkenningu, sem fxxlltrúi Ung-
verjalands á vettvangi S. þj.
Hún skoi-aði á Sameinuðu þjóð-
irnar að taka röggsamlega und-
ir frelsiskröfur Ungverja og
framar öðru að krefjast þess,
að Rússar yrðu á burt með
herafla sinn úr landinu.
Harðnandi átök á
landamærum
Adens.
Bretar hafa mótmælt árásum
Yemenherliðs á fíugstöð í
Aden fyrir þremur dögum.
í árás þessari féllu um 30
menn af Yemenliðinu. Tekið er
fram, að reynt hafi verið eftir
megni. að valda.ekki maxxntjóni
í liðinu, er því var stökkt á
flótta.
Yemen hefur mótmælt loft-
árás, sem þeir segja, að Bretar
hafi gert á bæ í Yemen, og
hafi þar margir menn beðið
bana eða særst.
Frá umræðum á þingi um atvinnu-
leysistryggingar.
Fruinvax-p til laga um breyting
á lögnm um atvinnuleysistrygg-
ie.gíir (29/195G) vax- t':l 2. um-
ræðu i neðri deild í gær.
Gunnar Jóhannesson gei'ði
grein fyi'ir afstöðu meiri hluta
félagsmálanefndar til frumvai-ps-
ins, sem flutt er af rikisstjórn-
inni. Leggur m.hl. til að breyt-
ingin verði samþyklxt, en hún er
fólgin í því, ao .Aiþýðusamb.
Islands skuli framvegis eiga tvo
af sjö stjói-narmönnum atvinnu-
leysistryggingasjóðsins i stað
eins áður. Sameinað alþingi kjósi
4 í stað 5 áður, en Vinnuveitenda-
sanxband Islands tilnefni 1 sem
fyrir.
Ragnhildur Helgadóttir, fram-
sögumaður minni hluta nefndar-
innar, mælti gegn frumvarpinu.
Kvað hún Sjálfstæðismenn and-
víga þeirri stefnu núv. ríkis-
stjórnar, sem síðast hefði komið
skýrt fram við val formanns út-
flutningssjóðs fyrir nokkrum
dögum, — að færa út vald
kommúnista í þjóðfélaginu. Um-
rædd breyting, sem hefði þetta
eina takmax-k, væi-i auk 'þess
ótímabær, þar sem í sjálfum lög-
unum um atv. leysistryggingar
væri kveðið á um endurskoðun
þeirra eftir tvö ár frá setningu,
eða strax á næsta ári.
Kjartan J. Jóhannson tók
einnig til máls og skýrði frá þvi,
að frá upphafi hefði rikt hin
bezta samvinna innan sjóðs-
stjórnarinnar, og hún verið ein-
huga um að vinna að því, að
lögin, sem væru flókin og marg-
þætt og nýmæli hérlendis, kæmu
til sem mestra nota.
Kjartan ræddi einnig um
nokkra annmarka, sem komið
hefðu í ljós nú þegar og bíða
mundu fyrirhugaðrar endurskoð-
unar í apríl 1958. Hann bað menn
minnast þess, að hlutverk sjóðs-
ins væri ekki einungis það,' að
bæta úr sáffust'u neyðinni, þegar,
atvinnuleysi væri skollið á,- —
heldur líka og fremur hitt, að
koma í veg fyrir að atvinnuleysi
skapaðist. Ræðumaður kvaðst
ekki telja ástæðu til að auka
áhrif kommúnista í stjórn sjóðs-
ins meira en fylgi þeii-ra í
Alþýðusambandinu og mqð þjóð-
inni réttlætti, — og legðisl hann
því gegn frumvarpinu.
Stúlka vQÚm úú
Klukkan hálf ellefu í gær-
morgun fann varnarliðsxnaður
á Keflavíkurflugvelli lík af
stúlku þar á vellinum.
Fann hann líkið við olíu-
geymi í Nicol-hverfinu, en það
er skammt fyrir ofan Ytri-
Njarðvík.
Líkið var flutt í sjúkrahúsið
í Keflavík til rannsóknar og'
reyndist vera af Nönnu Arin-
bjöi-nsdóttur, Laugavegi 46 A í
Reykjavík. Var hún 23 ára
gömul. Hafði hún áður unniS
þar á vellinum, en vann þar
ekki nú. Mál þetta er í rann-
sókn.
IHagga Dan
á hetiYiBeSð.
Leiðangursskipið Magga.
Dan lagði af stað heimleiðis frá
suðurskautslandinu í gær.
Skúta þessi flutti brezka
leiðangursmenn og bii'gðir
suður þangað og lenti í ísbreiðu
og nokkrum hrakningum, en
skilaði um síðir öllu heilu á á-
fangastað. Bretar leigðu skút-
una til faTarinnar og lét hún úr
höfn í Lundánurn.
Mikið tjón af eldi í fyrir-
tæki V.-íslendings.
Þai var í fataverksmíSjti Kristins Gu^na-
sonar í San Frandsco.
Fyrri hluta þessa mánaðar
varð Vestur-íslendingurt sem
mörgum er kunxxur hér heima,
fyrir miklu tjóni af völdum
eldsv-oða.
Snemnxa morguns þann 9.
þessa mánaðar kom upp eldur
í húsakynnum fyrirtækisins
„Alice of California“ í San
J Francisco í Bandarxkjunum, en
það hefir aðsetur sitt í mið-
borginni og framleiðir allskonar
! fatnað. Varð eldurinn brátt svo
, magnaður, að auðsynlegt var
að kalla á slökkvilið frá fjórum
slökkvistöðvum í borginni, og
alls börðust um 200 slökkviliðs-
^ menn með 30 dælur við eldinn
: 1 hálfa aðra ldukkustund, áður
j en þeim tókst áð kæfa hann. Er
‘ þess getið, að eldtungurnar hafi
staðið um 60 metra í loft upp
frá byggingunni, þegar eldur-
ixxn var sem magnaðastur, og
voru hús í grenndinni í mikilli
hættu, en þó tókst að verja þau
fyrir eldinunx.
Eigandi fyrirtækisins „Alice
of California“ er Kristinn
Guðnason, sem hér er mörgxxna
að góðu kunnur. Er hann bróðir
Jóns heitins Guðnasonar fisk-
sala, sem andaðist í vetur. Rek-
ur Kristinn fyrirtækið ásamt
sonum sínum og urðu þeir fyrir
tilfinnanlegu tjóni. Skermxxdir á
byggingunni eru metnar á nm
það bil 50,000 dollara, en tjón á
vörubirgðum vrað tífalt meira.
Hefir tjón þeirra því numið a.
m. k. 10 milljónum í ísl. krón-
um.