Vísir - 05.03.1957, Blaðsíða 8

Vísir - 05.03.1957, Blaðsíða 8
Þeir, sein gerast kaupendur VÍSIS eítir 10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. — Sími 1660. VÍSIR er ódýrasta blaðið og þó það fjöl- breyttasta. — Hringið í síma 1660 og gerist áskrifendur. Þriðjudaginn 5. marz 1957 Tregtir afii í Sandgerði þótt beitt sé loðnu. Tveir nýir bátar að liefja róðra þar. Frá fréttariíara Vísis. Sandgerði í morgun. Bátarnir afla lítið um þessar mundir, þó var afíinn í gær heldur skárri en í fyrradag. í gær fengu bátarnir frá 5% til 8I2 Icst og á fösludaginn var var aflinn aðeins frá 3 tii G lest- ir á bát. Beitt hefur verið loðnu en á hana veiðist ekki meira en síld- ina, enda var loðna sú, sem var beitt um 3 sólarhringa görnul, og er hún þá ekki betri beita en síld. í lok febrúar var Víðir með mestan afla, 271 lest, og Mummi með 241. Aðrir bátar höfðu mun minna. Víðir mun nú hafa feng- ið um 300 lestir alls. Alls var búið að leggja hér á land frá áramótum til febrú- arloka 3012 lestir og er það all miklu minna en á sama tíma í fyrra. Aflabrögðin voru langsam- lega bezt frá 1.—15. febrúar, þá var landað hér 1276,7 lestum eða rúmum þriðjungi alls þess afla sem hingað hefur borizt á tveimur mánuðum. í lok jan- úar var heildaraflinn um 920 lestir. All verulega dró úr afla- brögðum seinni hluta febrúar, en á því tímabili var afli bát- anna 815 lestir. Afli hefur ekk- ert aukizt að ráði enn, en menn gera sér vonir um að fiskur Áfhendír IPertúgais- forseta skiirífd. Hinn 1. marz s.l. afhenti Agnar Kl. .Jónsson forseta Portúgals Francisco Lopes hershöfðingja trúnaðarbréf eitt sem sendiherra íslands í Portú- gal með aðsetri í París. (Frá utanríkisráðney tinu). hljóti að fara að ganga á miðin því fram til þessa hefur ekki orðið vart við göngufisk. Tveir nýjir bátar. Tveir nýjir 50 lesta bátar hafa bsetzt í fiskiflota Sandgerð inga. Var þeim hleypt af stokkun- um fyrir skömmu og er verið að búa þá til veiða. Annar bát- urinn, Guðbjörg, eign Arnar h.f. í Sandgerði, var smíðaður í Keflavík. Félagið átti bát með sama nafni, en hann var seldur í Voga og verður gerður þar út í vetur. Hinn báturinn heitir Hrönn 2. byggður í Ýtri-Njarð- vík, eigendur Hrönn h.f. Eiga þeir annan bát Hrönn 1. sem einnig er gerður út frá Sand- gerði. Aætlunarferðir nor5ur falía niBur. Ofært er norður í land sök- um snjóalaga og falla áætlun- arferðir niður. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerð ríkisins í gær er illfært upp að Fornahvammi og vegurinn lokaðist um tíma í fyrrad. fyrir sunnan Hvítá, en opnðaist fljótlega aftur. Holtavörðöheiði er með öllu ófær bílum og síðan er nær ó- fært úr Hrútafirðinum norður á Blönduós. í gær var fyrsti hlýi dagurinn; sem komið hefur á Norðurlandi um langt skeið, víðast 2—3 st. hiti og er vonast til að hægt verði að laga vegina ef ekki snýst til snjókomu eða skaf- rennings að nýju. Vegir austur á Suðurlands- undirlendinu hafa ekki spillzt neitt og ágæt færð um Krýsu- vík. Hátíðahöld mikil. hefjast á morgun í Ghana, hinu nýja ríki svertingja í Afríku. M. a. verður þar þjóðleg danskeppni og sýnir myndin tvær dansmeyjanna á æfingu. Landsganga skíðamanna: Þátttakendur hér um 140 fyrsta daginn. Yngsti keppandinn var aBeins fimm ára. Oííiiskortur af verkfalíi. í nótt og í morgun var hríð og hörkuveður á sunnanverðu Snæfellsnesi^ og i'þar kingir jafnt og þétt niður snjó, en aftur á móti var gott veður í Stykkishólmi í morgun. Áætlað hafði verið að senda ýtur suður yfir Kerlingarskarð í því skyni að flytja mjólk á sleðum af suimanverðu Snæ- fellsnesi til Arnarstapa á Mýr- um en þangað komast bílar eins og sakir standa. En í morgun. var talið óvíst að af þessum ýtuflutningum gæti orðið a. m. k. svo nokkru nemi, sökum olíu. skorts. Vegna verkfallsins á kaupskiptaflotanum er orðið lítið um olíur þar vestra. í Borgarfirðinum var víðá kófhríð í nótt en batnandi veð- ur í morgun. Slarkfært er á að- alleiðum í héraðinu og eins og stendur komast bílar milli Reykjavíkur og Fornahvamms. Sfyðpð HMÍ á morgun. Mikiívæg starfsemi félagsins ver5sku!dar stuðning afmeimings. Öskutlagurinn hefir um langt skeið verið aðalfjáröflunardag- ur Bauða Kross fslands, og verð- lir svo á morgun eins og hingað til. Alls eru deildir félagsins nú 13 á öllu landinu, og fer fram merkjasala á vegum þeirra allra, en mest er starfsemin hér í Reykjavik, og krefst hún auk- ins fjár, enda er starfsemin í vexti. Eins og menn vita starf- rækir R. K. í. tvær sjúkrabif- reiðar hér í samvinnu við slökkviliðið, og fóru þær alls næstum 4000 ferðir á síðasta ári — um 11 á dag að jafnaði — og er nauðsynlegt, að unnt sé að endurnýja þessar nauðsynlegu bifreiðir annað hvert ár, því að svo mikil er notkun þeirra og nauðsynleg. Þá er það mikill og merkileg- ur þáttur í starfi félagsins, að það starfrækir þrjú sumardval- arheimili fyrir börn, en dvalar- kostnaði hefir verið mjög í hóf stillt, svo að mikill halli hefir verið á rekstri heimilanna. Voru 228 börn á vegum félagsins i fyrra. Loks er þess að geta, að fé- lagið safnar allskonar hjúkrun- argögnum, sem meðal annars eru lánuð heim handa sjúkum, og geta einnig komið að góðum þörfum, ef stórslys eða þvílíkan voða ber að höndum. Hér hefir ekki allt verið talið, sem snertir rekstur R. K. 1., en af því má þó ljóst vera, að fé- lagið verðskuldar og þarfnast styrk alls almennings. Hann get- ur hlaupið undir bagga með fé- laginu á morgun, með því að kaupa merki þess. Landsskíðagangan hófst i Reykjavík í fyrradag og tóku þá 138 manns í henni í fegursta veðri. Yngstu þáttvakendurnir voru 5—- 6 ára gamlir og luku þeir göngunni ekki síður en þeir sem eldri voru. Sézt bezt á þessu að engum er ofraun að ljúka göngunni, hvorki ungmenni né gömlum og ætti Reykvíkingum að vera það kappsmál að keppa fyrir bæjarfélagið sitt, því vitað er að kaupstaðirnir úti á landi leggja mikið kapp á að fá sem mesta þátttöku í skíðagöngunni. Gengið var á sunnudaginn frá Skíðaskálanum í Hveradölum suður að Meitli og þaðan til baka, en sú vegarlengd er eitt- hvað á 5. km. > Nú er hugmyndin að efna til skíðagöngu víðar og þ. á. m. einhversstaðar í nágrenni bæjar- ins svo að sem flestir gefist kostur á að keppa án þess að þurfa að takast langt ferðalag á hendur í því skyni. Verður það ákveðið og aug- lýst nánar síðar, en annars held- ur keppninn áfram næstu vikur þegar færð og veður leyfir og verður það jafnt frá skólum, félögum og af hálfu ófélags- bundinna einstaklinga. Þátttakendur í landsskiða- göngunni sem lokið hafa keppni öðlast rétt til að kaupa og bera sérstakt merki, sem eru lítil skíði úr málmi og ætluð til þess að festa i jakkahorn, peysur eða blússur og kosta 10 krónur. Hér í Reykjavík eru þau seld í verzl- un L. H. Mullers í Austursti'æti. Breyting hefur verið á skíða- ferðum skíðafélaganna í Reykja- vík, þannig að eftirleiðis verður lagt af stað frá Reykjavík kl. 2 og kl. 6 e. h. á laugardögum, en á sunnudögum kl. 9 og kl. 10 árdegis og kl. 1. e. h. Eisenhower tekur sér hvíld. Eisenhower Bandaríkjafor- seti hyggst taka sér hvíld fyrir Bermudaráðstcfnuna, sem verð ur haldin síðar í mánuðinum. Hyggst forsetinn dveljast í heitu og þurru ’oftslagi í nokkra daga í von um, að losna við þrálátt kvef og hósta, sem hefur bagað har.r. a? undanförnu. Bridge: Deildarkeppninni senn að ljúka. Sjötta og næst síðasta um- ferðin í deildarkeppninni í bridge var spiluð hér í bænum í gærkvöldi. Þar sigraði sveit Harðar Þórðarsonar sveit Rafns Sig- urðssonar, sveit Eggerts Benó- nýssonar vann sveit Sveins Helgasonar og sveit Árna M. Jónssonar vann sveit Ásbjarnar Jónssonar. Sveit Hjalta Elías- sonar sat yfir. Hörður hefur nú 12 stig, hefur unnið allar sveitimar og hefur sigrað með yfirburðum, en hann sitr.r yfir í síðustu um- ferð. Eggert er sem stendur næstur með 7 stig, Árni 6, Hjalti 5, Ásbjörn 4, en Rafn og Sveinn sitt stigið hvor. Ekki er enn ákveðið hvenær lokaumferöin verður spiluð. Happdrætfi ÐAS: Hafnfirðmgur fékk tbúðitta. Aknrnesingur bátinn. Dregið var £ gær í 11 flokki. í Happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanrta. . íbúðin, þriggja herbergja, full- gerð, í Bogahlíð 26., kom á miða I 55569. Eigandi miðans er Hafn- j firðingur, Helgi S. Guðmunds- son, bæjarfulltrúi, Suðurgötu 45. Var miðinn seldur í umboðí. í Hafnarfirði. Vélbáturinn, Snætindur, kom á miða nr. 23351. Var hann seld- ur í umboðinu á Akranesi. Eig- andi miðans er Jón Jónsson. netagerðarmaður. Bíllinn kom á miða nr. 22871. Var hann seldur í umboðinu i Austurstræti 1. Er eigandi hans Bragi BrynjóKsson, Laugavegi 11. Er það ungur verkamaður. Píanóið kom á miða nr. 6419. Var hann seldur í Austurstræti 1. Reyndist eigandi miðans 14 ára stúlka, Sigríður Erlends- dóttir, Efstahlíð 11. (Birt án ábyrgðar) Ecjeii orðinn hesll Eden iyarv. íorsætisráðherra, er nú hinn hressasti og er far- inn úr sjúkrahúsinu í Auck- land, Nýja Sjálandi, þar sem hann heíur dvalizt að undan- förnu scr ti’ hvOdar og til skoð- unar í iilkynningu lækna segir, að Mau Mau-mönnum fækkar óðum. Brezk stjórnarvöld í Kenya áætla, að Mau Mau-uppreistin sé nú á enda. Þó hefir ekki tekizt að upp- ræta alla Mau Mau-menn, en stjórnin telur, að ekki leiki lausum hala nema 3—400 menn. í mesta ’agi. Eru þcir flestir nærri landamærum Uganda. ! myrdir hafi leitt í ljós, að horf- 1 i.i s mrð öllu innvortis bólga, sem háfi valdið iasleika hans. X *

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.