Vísir - 27.04.1957, Qupperneq 8
frttr, iem gerast kanpeadur VlSIS eftir
IV. hveri mánaSar fá blaJSið ókeypls til
mánaðamóta, — Sími 18W.
YlSIB eff ðéyrasta blaðiS 02 þó þaS fjðl-
breyttasia. — Hringið í sima ÍMV t
gerxst áskrifendnr.
Ungur listamaður opnar
málverkasýningu.
Guðmundur Cuðmundsson iinarssonar
frá Miðdal.
Ungur listamaður, Guð-
snundur Guðmundsson, sonur
Guðmundar frá Miðdal, opnar
málverkasýningu í dag í Lista-
mannaskálanum.
Sýningin verður opnuð kl. 2
fyrir boðsgesti og kl. 4 fyrir al-
menning. Sýningin verður opin
til 10. maí.
Er þetta fyrsta sýningin, sem
þessi ungi listamaður hefur hér
á landi, en hann hefur haft
þrjár sjálfstæðar sýningar á
'Ítalíu og átt myndir á fimm
samsýningum þar í landi,
Guðmundur Guðmundsson er
aðeins 24 ára gamall. Hóf hann
nám í Handíðaskálanum 17 ára
. gamall og var þar í þrjú ár. Þá
fór hann til Noregs og var þar
í tvö ár á Statens kunstakademi.
Því næst fór hann til Italíu og
var þar við nám i tvö ár.
Seinna árið, sem hann var á
Italíu, hafði hann þar þrjár
■sjálfstæðax sýningar. Fyrst nam
hann í mosaikskólanum í
Ravenna, en fór svo á Mynd-
listaháskólann í Florens. Sjálf-
.stæðu sýningamai- hafði hann í
Flórens, Milanó og Róm. Góð
aðsókn var að sýningum hans og
seldi hann margar myndir.
Á sýningurtni í Listamanna-
skálanum eru um 150 myndir,
þar af 40 mosaikmyndir, en sú
listgrein er ný hér á landi. Hitt
eru olíumálverk, teikningar og
svartlistarmyndir.
Á hausti komanda hefur
honum verið boðið að hafa
sjálfstæða sýningu á Obelisk
gallerí í London,
Innstæður í Sparisjófó Rvíkur
og nágrennis 66,7 miSlj. kr.
Hann hefir veitt 1400 veðlán á
síðustu 10 árum.
Sparisjóður Keykjávíkur og
nágrennis er 35 ára í dag.
Frumkvæðið að stofnun spari-
sjóðsins átti Sigurður Halldórs-
son, húsasmíðameistari, á aðal-
fundi Iðnaðarmannafélagsins í
Reykjavik, höldnum 27. febrúar
1930, var þá kosin nefnd til þess
aö athuga um stofnun spaii-
sjóðs. 1 nefndina voru kosnir
fimm menn, sem allir eru nú
látnir, en þeir voru Bjöm
Kristjánsson, alþingismaður, Jón
Þorláksson, fyrrv. ráðherra,
Knud Zimsen, borgarstjóri, Sig-
urður Halldðrsson, húsasmíða-
meistari og Jón Halldórsson,
húsgagnameistari,
Nefndin kaus sér formann
Björn Kristjánsson og Jón Þor-
láksson ritara.
í fyrstu stjórn sparisjóðsins
voru kosnir Jón Þorláksson,
fyrrv. ráðherra, Gústaf A.
Sveinsson, hæstaréttarlögmaður,
Jón Halldórsson, húsgagna-
smíðameistari, Guðmundur Ás-
björnsson, forseti bæjarstjórnar
og Helgi H. Eiríksson, skóla-
stjóri.
Jón Þorláksson var kjörinn
fyrsti formaður sjóðsins og var
það til dauðadags.
Á fyrsta aðalfundi sparisjóðs-
ins, sem haldin var 21. marz
1933, voru lagðir fram reikn-
ingar hans fyrir fyrstu átta
mánuði starfstímans og námu
þá innlög I Iiann 400 þúsund
' krönura. -
Nú nema sparisjí*ðsinnsíæ3ur
í honum 66 millj. og 700 þús.
krónum og varasjóðurinn er orð-
inn 3 millj. 893 þús. krónur.
Starísemi spai'isjóðsins hefir
svo að segja eingöngu beinst að
þ\i að veita lán, tryggð með
veði í fasteignum. Hefir spari-
sjóðurinn átt meiri þátt í upp-
byggingu höfuðborgarinnar en
nokkur önnur lánastofnun. Hann
hefir, svo dæmi séu nefnd, á
síðast liðnum tíu árum veitt yfir
1400 veðlán til langs tíma, sem
nema samtals 80 milljönum kr.
og á þann hátt orðið mörgum
ómetanlegur styrkur til athafna
og sjálfsbjargar. .
Núverandi stjórn sparisjóðs-
ins er skipuð þessum mönnum:
Einar Et'lendsson, húsameistari,
Sigmundur Halldórsson, arkitekt
og Ásgeir Bjarnason, skrifstofu-
stjóri, kosnir af ábyrgðarmönn-
um, og Bjarni Benediktsson,
frrv. ráðherra og Olafur H. Guð-
mundsson, húsgagnasmíðameist-
ari, kjömir af bæjarstjórn. Nú-
verandi formaður er Einar Er-
lendsson, en Guðmimdur heit-
inn Ásbjörnsson, forseti bæjar-
stjómar Reykjavíkur, hefir ver-
ið formaður sjóðsstjórnarinnar
lengst allra, eða í 17 ár. Núver-
andi endurskoðendur eru Ejöm
Steffensen og Sigurð.ir Sig-
mundsson, fulltrúi. Gjaldkerar
við sparisjóðinn hafa aðeins ver-
ið tveir frá byrjun, þeir Einar
Magnússon og Einar A. Jónsson.
Fyrstu 10 árin annaðist Ásgeir
Bjamason ■ framkvæmdastjórn
Lord Tedder fékk
74 þús. kr. sekt,
S.I. ntiðvikudag síðdegis kont
varðskipið Þór hingað til Rvík-
ur tneð brezka togarann Lord
Teddcr, sem það hafði tekið í
landhelgi á þriðjudagskvöíd.
Dómur var upp kveðinn í
gær og var skipstjórinn dærnd-
ur í 74 þús. króna sekt og afli
og veiðarfæri gert upptækt.
Skipstjóri áfrýjaði dóminum.
Togárinn er eign Tedder-fé-
lagsins í Hull. Hann hafði ver-
ið að veiðum hér við land í 10
daga. Hann var tekinn að veið-
um í Meðallandsbugt. — Skip-
herra á Þór er Eirikur Kristó-
fersson. — í þessari seinustu
eftirlitssiglingu varðskipsins
höfðu áður verið teknir tveir
brezkir togarar við Austurland,
eins og hefur verið getið í fregn
um.
Maður týnlst í Sand-
Aðfaranótt páskadags hvarf
ntaður að lieiman frá sér í Sand
gerði og hefur ekki fundizt síffi-
an.
Heitir hann Lárus Stefánaeon,
Tjarnargötu I, Sandgerði.
Lárus er 60 ára gamall, Eins
og áður er sagt fór hann að
heiman frá sér aðfaranótt
páskadags.. Var hann þá í ijós-
um rykfrakka, með hatt a
höfði og staf,
Hans hefur verið leitað víða,
en hvergi orðið vart við hann.
Var lýst eftir honum í útvarp
inu í gær, bæði t hádegi og í
gærkveldi,
___♦_________
Kveðjumót í frjálsum
íþróttafélag Reykjavíkur e-fm
if til móts í frjálsum íþróítram.
á íþróttavellinum á Melumum
n.k. mánudagskvöld.
Er þetta jafnframt kveðju-
mót fyrir þjálfarann þýzka, E.
Russmann, sem nú er á förum
af landi burt.
Keppt verður í 100 m, 400 m
og 2000 metra hlaupií kúlu-
varpi, kringlukasti, spjótkasti,
ptai^garstökki og langstökki.
Þátttaka verður að tilkynn-
ast í síðasta lagi á sunnudaginn
til Guðmundar Þórarinssonar.
Jórdanía...
Framb. af 1. síðu.
eiim af embættismöimiumram
í höll koíumgs hefffii sagt viffi
hann: „Viffi erram affi leita affi
honram."
Landamæraárekstur.
Norðan Galileuvaíns kom til
átaka milli Sýrlendinga Qg fsra-
elsmanna. Hvor aðili um sig
kennir hinum um upptökin. —
Skipzt var á skotum, en ekki er
getið um manntjón.
Eitt stærsta féiagsheimiii
landsms vígt í gær.
Var byggt að Laugelandi
• •;
b öngulsstaðahreppi.
Frá fréitaritara Vísis.
Akureyri í gærmorgran.
í gær var vígt eitt myudar-
legasla félagsheimili, sem enn
hefrar verið byggt í sveit á Is-
landi, em þaö var félagsheim-
d
synmgar-
ur á morgun.
Á morgun er síffiasti sýning-
ardagrar Baldurs Edvvins í feoga
sal þjóffiminjasafnsins.
Svo sem kunnugt er, var sýn
ingin framlengd, vegna mikill-
ar aðsóknar, frá s.l. fimmtudegi
til n.k, sunnudagskvölds.
í gær höfðu nokkuð á 14,
hundrað manns séð sýninguna
og 17 myndir höfðu selzt.
Síðasti sýningardagur er á
morgun og því síðasta tækifæri
til að skoða þessa einstæðu og
sérstæðu sýningu.
Eisenhower varar við
olíiiflufningi.
EisemJhower forseti hefur var-
affi viffi iskyggilega miklum hrá-
oliramitflutningi til Bandaríkj-
anna, og hefur boðaffi rannsókn.
Kvað hann það geta haft
háéttulegar afleiðingar fyrir
Bandaríkin, ef þetta leiddi til
þess, að dregið væri úr hagnýt-
ingu á olíuauðlindum Banda-
ríkjanna sjálfra.
ili þeirra Öngulsstaðahrepps*
búa við Laugaland í Eyjafirði.
Síra Benjamín Kristjáiisson.
sóknarprestur flutti vígsluræð-,
una og skýrði frá því að heim-
ilið hafi hlotið nafnið „Frey-
vangur" eftir tillögu Sigurpáls
Helgasonar símavarðar. Annars
hafði verið auglýst eftir tillög-
um um nöfn og mikill fjöldi
borizt.
Vígslustjóri var Árni Jóhann.
esson hreppstjóri að Þverá, en
framkvæmdarstjóri byggingar-
nefndar Garðar Halldórsson
oddviti að Rifkelsstöðum lýsti
byggingunni. Húsið er 445 fer-
metrar'að stærð og tvær hæðir.
Niðri er samkomusalur með1
leiksviði búningsherbergi,,
fundarstofa, eldhús, fataher-
bergi og snyrting, en á efri hæð
er íbúð húsvarðar.
Byrjað var að grafa fyrir
grunni hússins árið 1953 og síð-
an verið byggt í áföngum. Bygg
ingarvinnu er ekki að fullu lok-
ið ennþá, en hefur þó kostað
um hálfa aðra milljón króna.
Af því hefur hreppsfélagið og
félagasamtök innan hreppsins
greitt % hluta kostnaðar, en
félagsheimilasjóður % hluta.
Yfirsmiður var Þórður Frið-
bjarnarson.
Á fjórða hundrað manns, að-
allega hreppsbúar, var viðstatt
vígsluathöfnina. Var þar mann
fagnaður mikill og stóð fram á
nótt.
Ungir menn sé örvaðir
til sjósóknar.
Atska þarf þátttöku í framlelðslustörfusfi
til sjávar og sveita.
sjóðsins, en síðustu 15 árin Hörð-
ur Þórðarsson,
Þingsályktunartiillaga sjálf-j
stæðismanna um rekstur skóla-'
skips fyrir ung sjómannaefni ■
og frekari ráðstafanir til þess að'
örva unga menn til þátttöku í
sjómennsku og fiskveiðum kom
íil fyrri umræðu á fundi sam-
eittaffis þings s.l. miðvikudag.
Sigurður Bjamason fylgdi til
lögunni úr hlaði og ræddi um
þá fjölþættu erfiðleika, sem
við er að etja, vegna mikils
skorts á vinnuafli til reksturs
þýðingarmikilla atvinnutækja
Iandsmanna. Gerði hann síðan
áð umtalsefni nokkrar leiðir,
sem hugsanlegar kynnu að vera
til lausnar þessa vandamáls að
því er sjávarútveginn áhrærir. j
Benti Sigurður meðal annars
á það, að flestar mestu siglinga
þjóðir heims, þ. á m. Norðmenn,;
Danir, Bandaríkjamenn, Bret-j
ar, Þjóðverjar, Kanadamenn og1
Japanir, hefðu gert út skóla-
skip með góðum árangri, og;
tilraunir Reykjavíkurbæjar f'
3Ömu átt um nokkur undanfar* 1
in ár hefðu einnig gefizt ágæt-
lega. Gerður hefði verið út vél-
bátur að vorlagi mannaður ung-
um skólapiltum til fiskveiða
um stuttan tíma og hefðu dreng
irnir sýnt mikinn áhuga á starfi
sínu. Sumir þeirra hefðu síðan.
ráðið sig á fiskiskip og orðið
dugandi sjómenn.
Ræðumaður taldi óumflýjan-
legt að auka þátttöku íslend-
inga í framleiðslustörfum til
lands og sjávar, svo þýðingar-
mikið sem það atriði væri fyrir
framtíðarheill og velmegun
þjóðarinnar. Kjarni málsins
væri sá, að við gætum ekki
haldið áfram að búa við betri
lífskjör en flestar aðrar þjóðir
án þess að taka öflugan og al-
mennan þátt í sköpun þjóðar-
arðsins.
Kvað Sigurður það von flutn
ingsmanna tillögunnar, að fram.
kvæmd hennar gæti átt þátt í
að leysa þann vanda, sem nú
steðjaði að íslenzkum sjávarút-
vegi og þjóðinni í heild.