Vísir - 05.06.1957, Page 10
VÍSIR
Miðvikudaginn 5. júní 1957
10
• •
• •
• •
• •
í
AXnXEMARXm
, • EFTIR
ISUTH MOORG
• • •
*
Reykháfur virti hina nýkomnu vel fyrir sér. Svo ákvað
hann að eiga ekki neitt á hættu með að reyna við þá einsamall.
Hann hleypti af einu aðvörunarskoti og fór síðan inn í skóginn
til að útvega liðsauka hjá ættflokki sínum.
En gallinn var bara sá, að hann fann ekki ættflokk sinn.
Móðurfrændur hans voru ekki á neinum þeim stað, sem þeir
voru vanir að vera á sumrin, fram með ánni, þar sem þeir
stunduðu veiðar og átu kúfiska. Þetta var mjög einkennilegt.
Hann gekk langt inn í landið. Einar sextíu mílur, að hann hélt.
Þangað sem þeir höfðu vetursetu, upp við fjöllin. Þeir voru
ekki þar heldur. Reykháfur var undrandi. Hann hafði dvalizt
með ættflokki sínum um tíma á hverju sumri, og það hafði
aldrei verið erfitt að finna hann, ættflokkinn.
En skýringin var ofureinföld, þótt enginn hefði fengið hann
til að trúa henni. Ættflokkurinn var að reyna að forðast Reyk-
háf. Vildi ekki láta hann finna sig.
Augu hans tóku að leiftra og hann horfði á hana, þar sem
hún sat fyrir framan hann. Og þegar hann sá, að hún brosti,
fór hann að skellihlæja.
Lem Cantril, sem kallaður var Reykháfur, hafði snemma í
apríl mánuði, farið inn í skógana til að heimsækja ættflokk
sinn. Hinir nýkomnu voru of margir til þess að nokkur einn
maður gæti ráðið við þá, jafnvel ekki Reykháfur. Hann lét
ekki í ljós reiði sína. Hann hafði bara skotið þessu eina, skoti,
sem skaut Frank skelk í bringu. Síðan hafði hann horfið inn
í skóginn.
Hann var fokreiður vegna þess, að Rúfus frændi og Jón
frændi höfðu selt Somerset. Somerset og skógarnir þar í kring
voru hans eign. Allir Cantrilarnir vissu vilja Andrews gamla.
Satt var það að vísu, að það var ekki til einn skrifaður stafur
fyrir þessu. En Reykháfur, sem var Indíáni að hálfu, áleit lof-
orð manns hátíðlegra og meira bindandi en nokkurn samn-
ing. Hann byggði kröfu sina á orðum Andrews, sem voru töluð
fyrir löngu síðan.
— Þú ert ekki til nokkurs nýtur, skrattakollurinn þinn, hafði
gamli maðurinn sagt. — En þú ert elztur sonarsona minna, og
þú færð Somerset. Þú verður að læra að saga timbur, eða ég
brýt hvert bein í skroknum á þér.
Reykháfur var nú orðinn þrjátíu og fimm ára gamall. Hann
hafði ekki gert ærlegt handtak síðan hann flaugst á við afa
sinn, sællar minningar. Og hann hafði ekki hugsað sér að
vinna neitt eftirleiðis. Hann þurfti þess ekki. Hanr. átti Somer-
sét. Það mundi ganga vel, ef Jón frændi, Rúfus og Maynard
frændi ræku fyrirtækin og hefði það, sem hægt væri að hafa'
upp úr myllu Cantrilanna. Lífið í skógunum var skemmtileg
og þægilegt. Reykháfur kærði sig ekkert að setjast um kyrrt.
Og honum datt ekki annað í hug en að hann gæti ráðið við
þessa gömlu púðurhlunka og stjórnað þeim. Þeir voru með
annan fótinn í gröfinni, hvort eða var.
Reykháfur hafði komizt að raun um, að þáð var enginn
vandi fyrir stóran mann og sterkan að ráða við marga menn,
ef þeir voru ekki nógu djarfir. Le mhafði veitt afa sínum mikla _
athygli. Og hann fyrirleit hina Cantrilana, sem voru á þönumj
kringum gamla manninn í hvert skipti, sem hann rétti út litlaj
fingurinn. Það þurfti bara sterkan mann til að siga þeim. Þetta
virtist ofur einfalt.
Hann þurfti bara að hafa nóg af ræflum kringum sig, Og' því
fleiri, því betra. Það þurfti ekki annað en að haida þeim nógu
hræddum. Því næst þurfti að halda þeim til verka, en sitja
sjálfur á ,,hástóli“ sínum og segja fyrir verkum. Samkvæmt'
skoðun Reykháfs hafði afi hans farið skakkt að í einu atriði. j
Hann hafði þrælað alla ævi. Ef maður gat fengið nógu marga
heimskingja var hægt að láta þá þræla.
Hann ætlaði varla að trúa sínum eigin eyrum, þegar Jósúa
gamli, faðir hans, kom út í skóginn til hans og þar sem hann'
hafði tjaldbúðir ásamt nokkrum ffændum sínum, og tilkynntij
honum, að gömlu mennirnir væru að selja Somerset. Og frænd- j
ur hans fóru frá honum til að flytjast til Boston og setjast þar að.
Móðurættingjar hans höfðu sem sé líka fengið fréttir frá
Somerset, og höfðinginn, Charley Cantril, hafði kallað saman
ráðstefnu. Ungu mennirnir álitu, að Reykháfur mundi, fyrr
eða seinna, koma og ætlast til einhvers af þeim. Þeirra vegna
mátti Somerset sökkva í sæ. Þeirra vegna mátti hver sem vildi
kaupa Somerset. En þeir vissu, að Reykháfur vildi styrjöld.
Indíánakynþátturinn var ekki andvígur styrjöld, ef hún var
óhjákvæmileg, en Indíánarnir þurftu að hafa fullgilda ástæðu
til að heyja styrjöld. Og það var enginn ástæða til að heyja
styrjöld út af Somerset. jafnvel ekki þótt Reykháfur vildi eign-
ast þorpið. Þeir voru, hvort eð var, orðnir dauðleiðir á honum.
Hann kom til þeirra, hvenær, sem honum þóknaðist, og sneri
öllu upp í loft. Hann þóttist vera á við fimm þeirra, vildi bera
ægishjálm yfir þá og kúga þá. Og kvenfólkið hafði engan frið
fyrir honum. Þeir höfðu þolað hann til þessa vegna þess, að
hann var bezta skyttan meðal þeirra. Og þeir voru hagsýnir
menn og það var þó gott að hafa alltaf birgðir af kjöti veiði-
dýra, sem Reykháfur skaut. En Reykháfur var of líkur Andrew
Cantril, til þess að Indíánunum geðjaðist að honum.
Hann fór ekkert dult með það, að þegar hann væri orðinn
eigandi Somerset og allsráðandi þar, yrðu Indíánarnir að koma
fram úr skóginum og vinna fyrir hann. Og þó að þeir gerðu
gys að honum á bak, var það staðreynd, að enginn þeirra hafði
roð við honum í skotfimi, bardaga, né heldur að gáfum. Og það
var þetta sem minnti þá á Andrew Cantril.
Þessi vegna var það, að Charley, til þess að komast hjá vand-
ræðum, áður en ráðstefnan hefði tekið ákvörðun sína, hafði
farið með allan hópinn í smábátum til eyjar einnar í um níu
mílna fjarlægð frá ströndinni. Þar ætluðu Indíánarnir að hafa
sumardvöl. Þetta var stór og falleg eyja, og þangað höfðu
Indíánarnir aldrei farið fyrri, því að hún var svo langt frá
ströndinni. Þar var nóg af kúfiski og mergð af fiski. Þarna
settust Indíánarnir að og biðu rólegir þess, sem fram kynni að
vinda.
Það var komið fram í miðjan september, þegar Reykháfur
gafst upp við að leita að móðurættingjum ,sínum í skóginum
og kom aftur niður að ströndinni. Síðast hafði hann gengið í
suðurátt, svo að hann kom ekki niður í Somerset, heldur við
mynni fljótsins um fimm mílum fyrir neðan þorpið. Þetta
hafði verið langt ferðalag og hann var þreyttur. Honum var
líka orðið ljóst, að ef Indíánarnir hefðu viljað láta hann finna
sig, hefðu þeir gert það. Reykháfur var enginn bjáni. Eini
staðurinn, þar sem hann hafði ekki leitað, voru eyjarnar. Það
var vita tilgangslaust að leita úti í eyjum. Þær skiptu hundruð-
um, og það var ómögulegt að segja á hverri þeirra Indíánax-nir
höfðu leitað hælis. En Charley mundi ekki komast hjá því að
flytja fólk sitt til strandar, þegar haustaði, og þá mundi Reyk-
háfur tala við þá. Hann var nú búinn að ákveða að taka að
stjórnina á Somerset, og ef Charley og' menn hans vildu ekki
hjálpa honum, skyldi hann taka þá líka og þrælka þá.
Jæja, þarna var þá þetta bannsetta Crookshankfljót. í viss-
um skilningi þótti’ honum gaman að sjá þa,ð. Hann gat þó að
minnsta kosti hrækt í það. Hann hataði þetta íljót. En hann
,
Jb
k»v*ö»l«i!*v*(j«k*y*n*n*f
Eldri kona, vii'ðuleg og vel
klædd steig inn í lyftuna og bað
um að verða fluttur á 7. hæð.
„Hvern ætlið þér að hitta’ á
7. hæð, frú?“ spurði lyftumað-
urinn.
„Hvað kemur yður það við,
ungi maður?“ spurði maddam-
an og reigði sig.
„Alls ekki neitt, frú mín góð,
en þetta hús er ekki nema 6
hæðir.h
★
Sú eina, sem hlustar á mál-
stað beggja aðila í deilu hjóna,
er konan í íbúðinni hinum meg-
in við þilið.
¥
„Rusl,“ sagði maðurinn, „er
það sem þú geymir í tíu ár, en
hendir svo burtu viku áður en
þú þarft á því að halda.“
*
Ferðalangur í Texas nam
staðar til að fá benzín á bif-
reið sína í afskekktu héraði, þar
sem þurrlcar höfðu nærri lagt
allan búskap í auðn. Hann gaf
sig á tal við gamlan landnema
og son hans. „Það er útlit fyrir
rigningu,“ sagði ferðalangurinn.
„Já, maður vonar það,“ sagði
öldungurinn, „og þá fyrst og
fi-emst vegna sonar míns, því eg
man eftir rigningu“.
-----+------
Frímci’kjjaörkiia
var ógötuð.
Frímerkjakaupmaður í Lon-
don græddi lieldur betur um
daginn.
Hafði hann fengið örk af frí-
mei'kjum frá A.-Þýzkalandi, og
reyndist hún ógötuð. Heimtar
kaupmaðurinn nú 40 pund fyrir
hvert frímerki.
• Maður að nafni Frank Smart
var dæmdur til lífláts í Bret-
landi fyi'ii' morð var það 5
febrúar s.l. I 18 • daga beið
liann rólegur aftökudagsins i
klefa hinna dauðadæmdu, en
dóminum var breytt í æyi-
langt fangeisi. Gerðist iiann
þá svo þunglyndur af tilhugs-
uninni um langa fangelsis-
vist, að liann framdi sjálfs-
morð í fangeisinu.
C £ ÆumugftJ
— TARZAIM —
2373
'il'Tú hafði rödd Ovars, borizt þeim
til 'eyrna og hún hafði,’ skipað þeim
■að yfirgefa land sitt, ef þéir áttu ekki
að deyja froðudauðanum. Rödd Ovars
dó út þegar Wesil fjarlægðist skor-
una í berginu. Nú skyldi Tarzan
hvérnig í þottinn var búið. Hinir
innfæddu voru sem þrumu lostnir
og trúðu, en Tarzan vissi að skoran
bergmálaði aðeins orð Wezils, alveg
eins. og röddin hefði kcmið úr fjall-
imi.