Vísir - 29.08.1957, Síða 1

Vísir - 29.08.1957, Síða 1
7 17. ir*< Fimmtudaginn 29. ágúst 1957 ’02. tbl. Nettótekjur Reykvíkinga námu 1192,6 miflj. kr. árið 1955. Skuldlaus eign þeirra i árslok var 715,6 milljónir. í nýútkomnuni Kagtíðinduni má finna ýmsar athyglisverðar upplýsingar um tekjur eiiistakl- inga og félaga hérlendis árið 1955 og hvernig þær voru skatt- lagðar. • Xettétekjur, skuldlaus eign og skattar einstaklinga. Á fyrr greindu ári voru nettó- tekjur einstaklinga samtals 2 420,8 milljónir og höfðu hækk- að um 15,4% frá árinu áður, er þær voru 2 097,2 milljónir. — Tekjuskattur af fé þessu nam 100.8 millj. á móti 72,3 millj. ár- ið áður, og voru skattgjaldendur 60319 fyrir árið 1955, en höfðu verið 59 008 árið 1954. í árslok 1955 nam skuldlaus eign þeirra 28 627 einstakiinga, sem eignarskatt bar að greiða, 1472,7 millj. og hafði þá aukizt úr 1250,6 millj. og gjaldendum íjölgað úr 26 828 á einu ári. — Eignarskattur af þessum upp- hæðum nam 7,6 millj. og 6,0 milljónum króna. Skipting milli kaupstaða- búa og sveitamanna. Tekjur og eignir einstakling- anna skiptust þannig milli Reyk- víkinga, annarra kaupstaðabúa og þeirra, sem búa I sýslum landsins: Reykvikingar öfluðu á árinu 1955 1192,6 (1026,7) millj. og áttu 715,6 (567,8) millj. skuld- lausar í árslok. Aðrir kaupstaða búar öfluðu 610,3 (472,4) millj. og áttu 210,3 (150,8) millj. skuld- lausar í árslok. fbúar í sýsíunum öfluðu 617,9 (598,0) millj. og áttu 546.9 (532,0) millj. skuidlausar í árslok; í svigum eru tölur frá næsta ári á undan. Tekjur eignir og ska.tf.ir félaga. Um nettótekjur félaga á árinu ■ 1955 er það að segja, að þær ( námu 96,7 (87,7) millj. og greiddu 1365 Q350) skattgreið- endur af þeim samtals 25.8 (23,2) millj. i tekjuskatta. Skuldlaus eign félaganna í árslok var 227,5 (157,4) millj. og bar 1013 (951.) gjaldendum að greiða af þeirri upphæð eignarskatt, sem sam- tals nam 2,5 (1,5) millj. króna. Þjóðareignin. Þess er vert að geta, að heild- areign einstaklinga og félaga samkvæmt eignarframtölum gjaldenda eignarskatts er ekki nema brot af þjóðareigninni, vegna þess að hið úrelta fast- eignamat frá 1940 er enn í gildi. Þar við bætist, að eignir alira þeirra, sem ekki greiða eignar- skatt, eru ekki meðtaldar i þeim tölum, sem hér eru birtar, og sama máli gegnir um skatt- frjálst sparifé, fatnað. bækur o. fl. Loks eru svo eignir ríkis, sveitarfélaga og stofnana. Innbrotsþjófur tekinn á Akureyri. Frá fréttaritara Vísis. Akureyri í morgun. I nótt handsamaði lögreglan á Akureyri innbrotsþjóf, er jhann freistaði að brjótast inn í verzlun á næstu grösum við lögreglustöðina. Hafði þjófurinn brotizt inn í svokallaða Eiðsvallabúð, en fólk heyrði til hans og gerði lög- reglunni aðvart. Lögreglumenn fóru á staðinn og gripu þjófinn áður en hann komst á brott. Þarna var um unglingspilt að ræða, sem áður. hefir komizt undir hendur lögreglunnar. ■Jc Margrét Bretaprinsessa átti 27 ára afmæli'þann 21. ágúst. Mynd þessi, sem er frá Englandi, á að vera til skýringar á því hvernig flugvélar framtíðarinnar verða — þrýstiloftsknúðu farþegaflugvélarnar, sem innan fárra ára munu verða almennt notaðar í flugferðum heimsálfa rnilli. Þá er m. a. gert ráð fyrir, að flogið verði milli London og New York á 2 klst og 15 mín., cn flugvélarnar eiga að geta flutt 130 farþega. Flugvéíin er ( þannig gerð, að hún flýgur beint upp og niður, er hún hefur sig I til flugs eða lendir, en í láréttu flugi knýja hana áfram 12 i þrýstiloftshreyflar. Flestir reknetabátanna fyrir norian hættir. síldveiði b siótfc Vegna þess hve reknetaveiðin hefur gengið treglega fjrrir Norð urlandi, hættu langflestir bát- anna 5 gær, sem landað hafa afla síniBn á Siglufirði að undan- förnu. í fyrrinótt voru flestir eða all- ir bótar að veiðum en öfluðu ncor ekkert. Margir með 1—3 tunnur og mest með 30 tunnur. Þykir þeim útgerðin ekki svara lenkur kostnaði og hættu ílestir í gær. Þeir sem ekki eru hættir íóru út í gærkveldi, en ætluðu að leita dýpra en áður og voru ókomnir að í morgun. Hér sunnanlands og vestan veiddist litið í nótt. Akranesbát- ar hreifðu sig ekki sökum livass- viðris og fór enginn á veiðar. Hinsvegar lögðu einhverjir bátar vestan af Snæfellsnðbi net sín í gærkveldi og létu relia í nótt, en öfluðu lítið, aðeins 10— 30 tunnur á bát að þvi er frézt hefui'. Líkur eru taldar á því að Síld- veiðin geti batnað um eða upp úr næstu helgi, því þessa dagana er mikill straumur. sem torveld- ar veiðina. Fyrstu mönnunutn af Pólarbirni bjargað um kl. 8 í gærkvöldi. Þá vnru .> mcnn fluffir unt bnrð á Teisácai. Laust eftir klukkan átta í gær — eftir ísl. tíma — tókst þyrilvængju að bjarga fyrstu mömmnum af Polarbjörn. Þyrilvængja þessi hafði verið flutt til Meistaravíkur úr risa- stórri flugvél af gerðinni C-124, og Skymaster-vél frá Keflavík hafði flutt þang'að eldsneyti fyrir þyrilvængjuna. Ætlunin var að varpa því niður á ísinn, svo að þyrilvængjan þyrfti ekld að sækja það lar.gt., en þær aðgerðir mistókust, og varð þyrilvængjan því að sækja benzín til danska eftirlitsskips- ins Teisten. Þetía tafði björgunarað- gerðir nokkuð, en í morgun bárust þær fregnir, að sjálf- ar aðferðirnar hefðu hafizt skömmu fyrir myrkur eða laust eftir klukkan átta, og var 'þá fyrsti hópurinn fluttur til Teisten. Frekari fregnir höfðu þá ekki borizt af björguninni, en sennilega hefur henni verið hætt vegna náttmyrkurs, til þess að auka ekkj á hætturnar. Annars vár veður ágætt í gær, bjartviðri og 65 km. skyggni, svo að menn af Polarbjörn sáu vel til lands, því að það var næst í 30 mílna fjarlægð til írorðurs. íslinn rak þá hægi suður á bóginn. [•fc Týrólskur bóndi, er varð 100 ára í s.I. viku, taldi það bezta ráð íil langiífis að vera jafnan óliæfur til herþjón- ustu! Slys við Sog í gær. Frá fréttariara Vísis. Selfossi í morgun. Það slys varð við Efra-Fall, Sogsvirkjunina nýjn, um miðjan dag i gær, er verið var að vinna þar að sprengingum, að Jósef Zóphðiiiásson verkamaður frá Steklcseyri varð fyrir steini og siasáðist. Kom steinninn úi' mikilli hæð og lenti á öxl Jósefs, sem marð- ist mikið og hefur sennilega brákazt á herðabiaði. Læknirinn í Hveragerði, Magnús Ágústsson, var kvaddur á vettvang, en síðan var Jósef fluttur í Landsspítal- ann i sjúkrabifreið, sem fengin var fi'á Selfossi. Þess má geta að verkfailsverð- ir. Mjölnis fluttu þegar til hindr- anir sínar og hleyptu bifreiðinni í gegn. ^kákniótíil: Þrjií jafntefli í gærkvöldi. Benkö efstur með 6 v. Sjöunda umferð skákmótsins í Hafnarfirði var tefld í gær- kvöidi. Fói'u leikar svo, að skákir Benkö og Friðriks, Árna og Jóns K., Kára og Inga R. urðu allar jafntefli, en hinar tvær, milli Jóns P. og Stígs, og Sig- urgeirs og Pilnik, fói’u í bið. — Er fyrri biðskákin talin mjög jöfn, en Pilnik hefur 4 peð á móti manni hjá Sigurgeiri. Eftir 7. umferð standa leikar svo: 1. Benkö . . . 6 2. Friðrik ... 5% 3. Ingi R. . . . 5 4. Pilnik ... 4% (bið) 5. Árni ... 4 6. Kári . . . 3 7. Sigui’geir . . . ...2 (bið) 8. J ón K ... 1% 9. Jón P . . . 1 (bið) 10. Stígur (bið) Áttunda umferð, sú næst síð- asta, verður tefld í kvöld og tefla þá sama Friðrik og Jón. K., Stígur og' Benkö, Ingi og Jón P., Sigurgeir og Kári, og Árni og Pilnik. Skipakcimur til Þessa dagana er mikil vinna í Akraneshöfn, enda þótt síld- veioi reknetabátanna sé enn treg. í gær lestaðl Dettifoss karfa til útílutnings cg í dag er er- lent fiskíökuskip að lésta síld til Tékkóslóvakíu. Þá er togar- inr. Akurey staddur á Akranesi í dag og iosar þar 320 smál. af karfa.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.