Vísir - 27.11.1957, Blaðsíða 1

Vísir - 27.11.1957, Blaðsíða 1
12 síBur 47. árg. Miðvikudaginn 27. nóvember 1857 12 síður 279. íbl. Állt í évissu uii vegna veikinda Efsenhowers, ik var5 annar. Mikil verðbréfarýrnun í kanp- höllimii í New York. Forseímn laressafi ©g «s fótsim Á mynd þessari sést Sveinn Björnsson forseti íslands, þar sem hann er í opinberri heimsókn á Blönduósi á forsetaárum sínum. Svo sem getið er á öðrum stað í blaðinu eru endurminningar hans komnar út á þrenti á vegmn ísafoldarprentsmiðju h.f. Mikil bók og myndum skreytt. AkureyrarlögregSan finnur brugg. Þrir menn sennilega viðriðnir málið. Akureyri í morgun. Akureyrarilögreglan hefur orðið áskynja um brugg þar í Buiganin hótar Tyrkjum. Sendiherra Ráðstjórnarríkj - anna í Ankara hefur afhent þar bréf frá Búlganin til Mendatvs forsætis- og utanríkisráðheiTa. Er það svar við bréfi, þar sem Mendares kvað Tyrki ekkert hafa í huga gagnvart nágrönn- um sínum. Búlganin segir í bréfinu, að Tyrkland „sem aðili í Bagdad- bandalaginu“ komi fram sem fulltrúi Vesturveldanna í ná- lægum Austurlöndum og reki þar erindi þeirra. Hann segir, að ef Tyrkir hætti ekki að ybb- ast upp á Sýrlendinga, muni Rússar grípa til gagnráðstafar.a. bænum, og tekið bruggið í sína vörzlu, en rannsókn málsins er ennþá á byrjunarstigi. Það var á mánudaginn, sem lögreglan fann brugg í skúr- byggingu nokkurri í Akureyr- arkaupstað og var það talsvert magn. Lögreglan tók bruggið í vörzlu sína og sendi sýnishorn af því til rannsóknar. Um áfeng ismagnið er ekki vitað ennþá. Byrjunarrannsókn og yfir- heyrzlur hafa farið fram í mál- inu og virðist sýnt að þrír menn =;éu viðriðnir bruggið. Til eins þeirra hefir náðst en tveir eru rúmliggjandi í inflúenzu og het ir því ekki tekizt að yfirheyra bá ennþá. Elisabeth Bretadrottning og maki hennar Filuppus prins fara sjóleiðis til Hoilands, er þau fara þangað í opinbera her.msókn í mars n. k. Drottn- ingarsnékkjan Britannia flyt- ur þau þangað. Misjöfn veiði — síld veiddist í Grindarvikursjó. Bátarnlr drellifr um stórt svæif. Síldveiðin var misjöfn ; nótt, frétzt hefur af einstaka bátum með góðan afla, en lítill afii vav hjá flestum. 1 nótt fékk einn bátur, Merkúr, 100 tunnur ai' síld í Grindavíkursjó. Reknetabátarnir voru allir á sjó í nótt og voru dreifðari en verið hefur. sumir voru í Mið- nessjó, aðrir i Skerjadýpi og nokkrir í Grindavíkursjó. Til Akraness komu í gær 8 bátar með 655 tunnur, Reynir átti meira en þriðjung aflans. Hann kom að kl. 11 í gærkveldi og vi 1 með 240 tunnur. Sumir bál arnir komu ekki inn vegna þess að þeir höfðu engan afla fengið. Til Keflavíkur komu í gær 16 báiar með 1300 tunnur. Afla- hæsUir var Eimir frá Keflavík, sexn jék-k 215 iunnur. Afli bát- anna var mjög misjaín, og sum- ir fengu. enga stld. Nokkrir bát- ar voru með yfir 100 tunnur. SvæCakeppninni í Wagen-1 ingen Iauk i gær og urðu úrslit þau, að Szabo frá Ungverja- landi sigraði. Friðrik var í öðru sæti. Úrslit mótsins í vinningum urðu þessi: 1. ’ Szabo 13% vinningur. 2. Friðtrik 13 v. 3.—4. Domier og Larsen 12% v. 5. Uhlman 12 v. 6.—7. Stáhlberg og Trifuno- vic 11 v. 8. Teschner 9 v. 9. Ivkov 8 v. 10.—11. Trojanescu og Niep- haus 7% v. 12.—13. Alster og Kolaroiv 7 v. 14. Duckstein 6% v. 15 Clarke 5Vz v. 15. Clarke 5% v. 16.—17. Hanninen og Oi’baan 3% v. 18. Lindblom 2% v. Verði ekki orðið við beiðni hollenzka ^káksambandsins um, að 4 efstu menn keppninnar komizt í undanrásir heims- meistarakeppninnar, verða Donner og Larsen að heyja ein- vígi um það, hvor komist áfram í keppnina. Átti hkit ú um 30 umhrotunt. Rannsóknarlögreglan hefur nýlega upplýst allmörg innbrot og þjófnaði sem framin hafa verið hér í bænum á árinu. 8 menn koma hér við sögu pg þá sérlega einn þeirra 22 ára gamall maður, sem í vor hlaut dóm en hefur ekki afplánað hann enn. 4 eru nýliðar og eiga áðeins hlut í einu máli hver en hinir þrír eru heldur fyrirferð- armeiri.; Fyrrnefndur 22ja ára maðu hefur einn framið 11 inn- brot og haft á brott með sér ýms verðmæti, þótt oft hefði hann lítið upp úr krafsinu. Við annan mann brauzt hann inn á 13 stöðum og 5 stöðum við þriðja mann. Fimm saman tóku þeir peningaskáp sem þeir fluttu suður í Hafnarfjörð, brutu upp og skildu eftir er þeir höfðu tekið úr honum 3000 krónur. Einnig eru nokkrir þessara pilta viðriðnir ávísanastuld að upp- hæð 20.000 kr. Náðu þeir að selja eitthvað af þeim, en þær urðu þeim að falli að lokum. Fregniii um, að Éisenhower forseti Bandaríkjamia hefði veikst og mundi verða að taka sér hvííd frá störfum ura nokk- urra vikna skeið, barst til New York 20 mínútum áður en kauphöllinni var Iokað og orsakaði verðbréfarýrnun, sem nam 5000 milljónum dollara. Nixon varaforseti var í for- sæti á stjórnarfundi, sem hald- inn var, eftir að birt hafði verið yfirlýsing lækna, og var tekið fram á fundinum, að engin á- kvörðun yrði tekin um neina breytingu á valdi forsetans, þ. e. varaforsetinn tekur ekki við störfum hans. Hitt er vitað, að Nixon mun létta undir með honum sem mest, en allar mikilvægar á- kyarðanir verða lagðar fyrir forsetann, og hann undirritar öll skjöl, sem að venju eru lögð fyrir forsetann. Lasleiki forsetans, sem kom m. a. þannig fram, að hann átti örðugt með að mæla um stund, stafar af truflun blóðrásar í einni grein aðalslagæðar heil- ans, vinstra megin. Sagt var ennfremur 1 tilkynningu lækn- anna, að ekki væri hægt að segja að svo stöddu, hvort þetta mundi líða hjá fljóílega, eða verða varanlegra. Tekið var fram, að Eisenhower hefði. hresst mjög í gær og veizt létt- ara að. tala, og loks var tekið fram, að hann væri á fótum. Framh. á 7. síðu. Macmillan komimt heim. Harold MacmiIIan er korninn heirn af Parísarfundiniim. Yfirleitt er talið heldur til bóta, að viðræðurnar fóru fram, en menn hafa áhyggjur af vax- andi tortryggni Frakka í garð Breta. Times segir augljóst, að ekk- ert traust samkomulag hafii náðst til frambúðarlausnar vopnasölumálsins. — Western Mail og Yorkshire Post — á- hrifamikil blöð úti á landi —< bera lof á Macmillan. Útgerðarmenn hóta að stöðva fiskiskipii. Fáist reksfrartialEinn ekkl bæffur. Á aðalfundi Landssambands ísl. útvegsmanna, sem lauk í fyrrinótt var samþykkt að stöðva fiskiflotann ef ekki næst sam- komulag við ríkisstjórnina um að bæta fyrirsjáanlegan halla á rekstri báta og togara á komandi ári. Höfuð viðfangsefni aðalfund- arins var að ræða afkomuhorf- ur sjávarútvegsins á komandi ári og lágu fyrir fundinum ræki- legar athuganir á rekstraraf- komu fiskiskipastólsins. Niðurstaða nefndarálits urp rekstursafkomu bátanna var sú að gera mætti ráð fyrir að mið- að við útgerðarkostnað eins og hann er nú og greiðslur útflutn- ingssjóðs yrði tap á meðalbát Heimskunmigt fyrirtæki, Na- tionál Cash Register, sem framleiðir peningakassa, hef- nr reist verksmiðju I Japan, fyrir 3 millj. d. Starfsmenn verða 500, allir japanskir, nema forstjórinn. 140 þúsund krónur að óbreyttu fiskverði. Miðað var við afla- magn síðustu þriggja ára. Varðandi afkomu togaranna var niðurstaðan sú, að við sömu aðstæður yrði rekstrarhalli tog- ara á aðra milljón króna á ári. Sambandsstjórninni var fallð að ræða við ríkisstjórnina um að útvegsmönnum yrði bættur þesei halli og var samþykkt áð stöðva skipin um áramót hafi ekki náðzt samkomulag fyrir þann tíma. Llbanan fær Malik utanrikisráðherra Lib- anon sagfá í gær, að Libanon gæti fengið alla þá aðstoð, sena óskað væri eftir í Bandaríkjun- um, og kvað vænta mega eld- flauga þaðan. Bandaríkin myndu aðstoða Libanon, ef á það væri ráðist, en Libanon væri ekki skuld- bundið til að aðstoða Banda- ríkin, væri á þau ráðist.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.