Vísir - 27.11.1957, Blaðsíða 7

Vísir - 27.11.1957, Blaðsíða 7
Miðrikudaginn 27. nóvembei' 1957 Vf SIR / 7 Nir viru viií eigin útíðr Litíð yfir feril valdamanna Rússa frá andlátí Stalíns. Eitt af víðlestnustu blöðum Bandaríkjanna, Tlic Chicago T'ribunc, birtir grcin um frá- vikningu rússnesku leiðtoganua úr miðstjóm kommúnsitaflokks )ins. Er þetta ritstjórnargrein, sem nefnist „Þeirra eigin út- för“. Blað'ið minnist dagsins 9. marz 1953, er útför Stalins fór íram og hinir nánu starfsmenn hans, Malenkov, sem tók við forsætisráðherraembættinu, Beria, yfirmaður leynilögregl- unnar og varaforsætisráðherra hinna nýju stjónar og Molotov utanríiksráðherra fluttu ræður. Meðal líkmanna var Nikita Krúsév, framkvæmdastjóri kommúnistaflokksins, en hann var ekki til kvaddur að bera lof á hinn látna þjóðarleiðtoga. Það verður að ætla, segir í greininni, að hann hafi hlustað með athygli á.lof væntanlegra arftaka þess valds, sem Stalin haí'ði haft, og að hann hafi haft stoð í ýmsu sem þeir sögðu, til þess að skapa sér skoðun um i'ramtíðarfyrirætlanir sínar. Krúsév hefur ávallt verið maður framgjarn, og þegar slíkur maður verður að taka sér stöðu „til hliðar“ fer það vanalega svo, að hann fer að hugsa sitt ráð til að grafa und- an þeim, sem forystuna hafa, og laka hana sjálfur. Hjá öllum ræðumonnum kom fram tak- markalaus aðdáun á hæfileikum og afrekum Stalíns. Þetta kann að hafa vakið þá hugmynd með Krúsév, að öruggasta ráðið til þess að ná sér niðri á þeim, sem næstir stóðu að taka við völd- unum, að ráðast á hihri látna, sem þeir höfðu lofsungið. Þarna var að vísu langt gengið og djar'ft að ráðast í slikt sem betta, en hinn slægvitri Krú- sév miui hafa séð, að fara yrði hægt af stað, og stig af stigi, því að öll leiðtogaklíkan að honum sjálfum meðtöldum hafði verið þátttakandi í glæpa- starfsemi Stalins, og framast fyrir hans náð. Undirbúningur framkvæmdar þessar hug- myndar var að tefla þessum leiðtogum hverjum gegn öðr- um. Honum tókst að sannfæra Malenkov um, að Beria væri hættulegur maður, og Malen- kov hafði ekki skilning á <því, að með því að fella þann mann (Beria), sem næstur houm stóð, og notaði lögregluna til þess að uppræta fjandmenn sína og hans, var hann að koma Krú- sév áleiðis að marki hans, að fá öll völd sjálfur. Og aðeins fjór- um mánuðum eftir að Beria lofsöng Stalin var hann hand- tekinn sem svikari, kallaður leiguþý erlendra heimsveldis- siima, og sakaður um að hafa áformað, að hrifsa til sín völd- in, eyðdleggja flokkinn og koma á auðvaldsskipulagi. Og Beria var skotinn. Siðar varð Malen- kov að fara frá og játa á sig slæ- lega forystu, einkanlega á sviði landbúnaðarmála. B. og KL. Búlganin tók við — og Krú- sév var jafnan við hlið hans — og það var hann, sem vanalega hafði orðið. Malenkov var á- fram varaforsætisráðherra og varð raforkumálaráðherra, og sem Krúsév réðst fram, ræðst á Stalin látinn og staðfestir allt það, sem andkommúnistar frá upphafi höfðu sagt um hann og harðstjórn hans. í þessar ræðu sverti Krúsév alla keppinauta sína og tókst það án þess, að setja nokkurn blett á sjálfan sig. Molotov og Kaganovicli, en hinn síðarnefndi var mág' ur Stalins, var lýst sem aðal- mönnum hreinsunarinnar 1937 —38, er margir saklausir menn voru sökum borriir og upprætt- ir, Malenkov var lýst sem manninum, sem vann skítverk- in fyrir Stalin, og neitaði hetj- unni Krúsév um vopn, til þess að verja Ukrainu gegn innrás- arher nazista. Áður var búið að auðmýkja Molotov, sem varð opinberlega að játa, að honum hefðu orðið alvarleg mistök á. Og fjórum mánuðum eftir að Krúsév afneitaði Stalin var Molotov knúinn til þess að láta af embætti utanríkisráðherra. 1 en því hafði hann þá gegnt í 13 ár. I Framkvæmd lokið. j Og nú — með því að reka Malenkov, Molotov og Kagan- ovich úr miðstjórn flokksins og svipta þá vara-forsætisráðhex-ra embættunum, hefur Krúsév lokið framkvæmd þeirrar á- ætlunar, sem að líkindum hef- ur byrjað að mótast í huga hans, við útför Stalins. Mælskumenn- irnir hafa allir uppgötvað, að þeir voru — er þeir lofsungu Stalin við útför hans — við sína eigin „útför“. Glæsilegir tónleikar Sinfóníuhljómsveitsr íslands í Þjóöisikhúsinu. Sinfóníuhljómsveit íslands hélt 2. hljómleika sína í Þjóð- leikhúsinu þ. 26. þ.m. Stjói-n- andi var Wilhelm Schleuning. Einsöngvari: Guði'ún Á Sím- onai'. Fyi’st á efnisskránni var for- leikur að óperunni ,,Ðer Freischutz”. eftir Weber. Því næst söng' Guðrún Á. Símonar þi’jár aríur úr óperunni „Brúð- kaup Fígarós“ eftir Mozart. og sá segja að frammistaða hennar hafi verið mjög já- kvæð, enda er hún ein af glæsi- legustu söngkonum okkar. Að lokum lék hljómsveitin Sinfóníu No. 9 í C-dúr eftir Schubert. Flutningur þessa vei’ks má segja að hafi verið stórmerkur tónlistarviðburður og má tvímælalaust segja að þetta sé mesti sigur sem hljóm- sannar betur en flest annað til- vei’uxétt þessarar merku stofn- unar. Sýnir þetta jafnframt hvers hún er xnegnug þegar allir leggjast á eitt og rétt er á haldið'. Hver getur efast um frábæra hæfileika Wilhelm Schleuning, verkin tala. Það voru kaflar í Siníóníunni sem voru svo frábærelag vel gerðir að undirritaður minnist ekki áð hafa heyrt Sinfóníuhljóm- sveitina leika betur, bæði hvað snertir samleik svo og sam- ræmi. Og leyfi eg mér að efast um að hinar frægustu hljóm- sveitir hefðu skilað þessu bet- ur eð'a á áhrifaríkari hátt. — Þjóðleikhúsið var þéttskipað áheyrendunx sem liylltu liljóm- sveitina, stjórnandan og ein- söngvaran ákaft. MBJ. Minningabók Magnúsar á Staðarfelli komin út. Merkileg aldarfarslýsfng frá saisisii Imlá 19. aldar. Bókaútgáfa lílaðbúðar hefur gefið út miimingabók Magnús- ar Friðrikssonar á Staðarfelli, allnxikið rit, mjTidum prýtt og liið vandaðasta að frágangi. Magnús á Staðarfelli er al- þjóð kunnur fyrir dugnað sinn og fi’amlag til fx’amfai’a- og1 menningarmála í landinu. Fædd- ur er Magnús 1862 en lét sig þegar á unga aldri öll mál varða sem snertu framfarir í héraði sínu — Dalasýslu. Hann stofn- aði verzlunai’félg, gei’ði'st fi'amámaður í samgöngumálum héi’aðsins og vax aðalhvatamað- ur þess um 30 ára skeið. Má segja að Magnús hafi verið helzti forvígismaður Dalamanna í bún- aðarmálum um sina daga. Hann gengdi og ýmsum trúnaðarstörf- um fyi’ir sveitarfél. sitt og sýslu og íékkst talsvert við ritstörf. Meðal annars skrifaði hann bún- aðarsögu og verzlunarsögu þeiri’a Dalamanna um sína tíð, skráði örnefni og loks - skrifaði hann minningabók þá sem hér birtist í bókarformi. Árið 1921 gaf Magnús eignarjöi’ð sína, stór býlið Staðarfell, undir kvenna- skóla og varð fyxir það þjóð- kunnur maðui'. Sat Magnús í stjórn skólans á meðan hans naut við, en hann lézt fyrir i'étt- um áratug. Þoi’steinn Þorsteinsson fyrrum sýslumaður Dalamanna og gam- all granni og samstarfsmaður Magnúsar skrifar formála að bókinni og telur hana á mai’gan hátt vera merkilega viðbót á aldarfarslýsingum þeim, er áður hafa birzt, sérstaklega fjrír Breiðafjöro. Talsvert er af mynd um I bókinni, fyist og fremst mannamyndum af Magnúsi og fjölskyldu hans og samtíðar- mönnum. Þá eru birt nokkur fylgiskjöl og síðast nafnaskrá. N.A.-fundurinn - Frh. af 1. síðu. Vakti samúð um allaii hinn frjálsa heim. I Fullyrða má, segir í fregn- um í morgun, a'ð tilkynningin um veikindin hafi vakið samúð ; urn allan hinn frjálsa heim ■—• : og jafnframt nokkurn ugg og kvíða, vegna þess að Eisen- hower missir við a. m. k. að nokkru — á mjög viðsjárverð- um tímum, en það kemur mjög fram í blöðum vestan hafs Dg austan í morgun. Daily Mail í London segir í morgun, áð fregnin sé öllum hryggðai’efni, og í’æðir einnig hve mikið sé undir foi’ystu þess manns kom- ið, er sé forseti Bandaríkjanna. Daily Telegraph hvetur frjálsu þjóðii'nar til þess að snúa bök- j um saman og forðast stjórnar- ki’eppur, sökum þess hve horf- urnar í heiminum séu ískyggi- legar á þeirri stundu, er Eisen- , hower hafi veikst. — Daily Express segir fregnina hafa kornið sem i'eiðarslag og Eisen- hower eigi vísa samúð allra Breta og allra lxinna frjálsu þjóða. News Chronicle telur, að það< væri mjög misráðíð áð hætta við Natofundinn, sem hefjast á 16. des. Natofundurinn fyrirliugaði. Um hann er annars rætt mikið og koma fram ýms'ar uppástungur, að fresta fundi æðstu stjórnmálaleiðtoga, ca þess í stað komi utanríkisráð- herrar og landvai’naráðherrar N.A. varnarbandalagsins sam- an á fundi 16. des. og verði síðan haldinn forsætisi’áðherra- fundur Nato, að fundurinn ver'ði haldinn svo sem ráðgtírt var — og að enginn fundtxr vei’ði haldinn í næsta mánuði. Fastaráð N.A. varnarbandá- lagsins mun í’æ'ða málið á fundi sínum, e. t. v. þegar í dag. Fi’anska stjórnin héfiir i'asfc verðlag A borðvínum. „®iu gi’áðu“ borðvin, sein fyrir einu ái’i kostaoi 78 franka lítirinn, kostar mi 193 fr. 1. Stsfiraa S.A.-st]órnar Óss er foríalið, að bæði mynztur og snið sé „empire“ (hvað senx litir ei’U dökkrautt og hvítt — allt a svörtum grunni. Það er litir eru dökkráutt og hvítt — allt í svörtum grunni. Það er svlssneskur tízkukóngur, sexn hefir saumað kjól benna. j A11 s li e í'.i a í’þ i xig S. þj. hafa afgreitt tillögur varðandi S.- Afríku. í hinni fyrri er lýát von- brigðum yfir, að stjórnin hafi ekki breytt stefnu sinni í kyn- þáttamálinu, en í hinni siðarí er skorað á sambandsstjórnina að semja við ríkisstjórnir Ind- latids og Pakistan um meðfei’ð á indversku fólki í Suður- Afríku. Fyrri tillagan var samþykkt með 59 atkv. gegn 6 en 19 sátu hjá. — Bi’etar og Bandaríkja- menn greiddu atkvæði með L-ibanon á þeim forsendum, áð hér væri um innanríkismál S.- Afríku að ræða. LJQSMYNDASTOFAN AUSTURSTRÆTI 5- SIMI17707

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.