Vísir


Vísir - 28.11.1957, Qupperneq 4

Vísir - 28.11.1957, Qupperneq 4
VlSIB s«rr Fimmtudaginn 28. nóvember 1957 WÍSIH DAGBLAÐ Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjérnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 11660 (fimm línur). Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kostar kr. 20,00 í áskrift á mánuði, kr. 1,50 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. Vanskilin til Færeyinga. Mörgum þykir nógu auðmýkj- andi, að nærri helmingur af J mannafla fiskiflotans skuli vera útlendingar, en þó tek- í ur í hnúkana, er landsmenn ■ þurfa að hlusta dag eftir dag j á fréttir í útvarpinu um það, ;■ að færeyskir sjómenn hafi ] gert samþykktir um, að ráða sig ekki á íslenzk skip nema bætt sé úr vanskilum ís- lendinga við þá. Ekki hefir verið frá því skýrt opinberlega hvort hér sé um I að ræða drátt á yfirfærslu eða hvort einstakir útgerð- armenn hafa ekki staðið í skilum með kaupgreiðslu til Færeyinga. En hvort heldur sem er, getur enginn mælt J því bót, að fátækir sjómenn, J sem hingað eru ráðnir, fái I ekki greitt umsamið kaup að J samningstíma loknum. Slík- ] ar vanefndir geta haft mikla erfiðleika í för með sér fyrir ] fjölskyldur sjómannanna. En ] auk þess er þetta til auð- ] mýkingar fyrir alla íslenzku þjóðina. Þótt samningar fari fram milli Færeyinga og einstaklinga !. eða félaga hér á landi, án ^ íhlutunar eða milligöngu ís- lenzkra stjórnarvalda, verð- ] ur varla við það unað, að j vanskil á kaupgreiðslum geti endurtekið sig frá ári til árs. Það er ekki í fyrsta sinn nú að Færeyingar kvarta undan vanskilum á kaup- greiðslum héðan. Kvisast hefir áður um vanskil eða ó- eðlilegan drátt á greiðslum. Til þess að hindra að slíkt geti endurtekið sig í fram- tíðinni og til þess að óreiðu- I orði verði ekki komið á út- vegsmenn almennt, ættu landssamtök þeirra að láta mál þetta til sín taka og tryggja það, að Færeyingjar þurfi ekki oftar að kvarta undan vanskilum héðan. Bezta lausnin á þessu leiðinda máli væri þó sú, að íslend- ingar fengjust sjálfir til að stunda fiskveiðar sínar í stað þess að gerast handlangarar í byggingariðnaði eða varn- arliðsvinnu. En báðar þessar atvinnugreinar munu greiða hærra kaup en útvegurinn yfirleitt og eru þar að auki auðveldari og léttari en sjó- ménnskan. Alþingi hefir í hendi sér að veita sjómönnum svo ríflegan frádrátt skatta að um muni. En til þessa hafa stjórnar- flokkarnir staðið gegn því að tillögur í þá átt næði fram að ganga. Því fást færri menn á sjóinn en ella. Örlagaríkar kosningar. Svo lítur út sem stjórnarliðið .telji bæjarstjórnarkosning- arnar í janúar næstkomandi ! mjög örlagaríkar fyrir vinstri ! - samvinnuna. Stjórnarflokk- 1 arnir óttast mest að kosn- ! ingarnar gangi á móti sér. Það mundi vera sönnun fyr- ir því, að þjóðin sé leið á kommúnista-stjórninni og muni reka hana af höndum ] sér strax og hún fær tæki- færi til. Hræðsla stjórnarflokkanna við kosningarnar er svo mögn- uð, að þeir þora ekkert að gera, sem nokkurt átak þarf til, fyrr en eftir kosn- 1 ingarnar. Til dæmis er nú ekki annað sjáanlegt en að J stjórnin ætli að fresta fjár- ! lagaafgreiðslu á Alþingi r þangað til eftir nýár, að af- stöðnum kosningum. Er sagt ’ að fjármálaráðherra þurfi ^ ! svo mikla skattahækkun til þess að koma saman fjárlög- um, að stjórnarflokkarnir þori elcki að bera hana fram að svo stöddu, af ótta við reiði almennings. Afgreiðslu fjárlaga verður því vafalaust frestað fram í febrúar. Af sömu ástæðu má búast við að samið verði við útvegs- menn um talsverða hækkun á styrk til útgerðarinnar án þcss að nýir skattar verði lagðir á samtímis eins og venja hefir verið við slík tækifæri. Hins vegar munu skattarnir lagðir á í febrúar þegar bæjarstjórnarkosning- arnar eru um garð gengnar. Þá eiga stjórnarflokkarnir ekki lengur á hættu reiði kjósenda, að minnsta kosti ekki í svipinn. En rauðu flokkarnir geta verið vissir um að bráðum kemur að skuldadögunum. Vinstri samvinnan er þegar gjald- þrota. Verður reist heymjölsverksmiðja í Rangárvallasýslu, Mundi spara mikinn erlendan gjaldeyri. Á sameimiðu þingi í gær var lögð fram tillaga H1 þingsálykt- unar um heymjölsverksmiðju. Flutningsmaður er: Ingólfur Jónsson. Tillagan hljóðar svo: Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að láta fram fara at- hugun á því, hvort æskilegt er, að komið verði upp heymjöls- verksmiðju með. það fyrir aug- um að draga úr notkun á inn- fluttu kjarnfóðri. Einnig skal at- hugun sú, sem fram fer, leiða í ljós, hvar rekstrarskilyrði eru hagkvæmust fyrir verksmiðjuna. í greinargerð segir m.: a. Árlega er miklum gjaldeyri varið til kaupa á innfluttu kjarn- fóðri. Þótt rækta mætti fóður- korn í landinu, er vist, að það verður ekki almennt gert i ná- inni framtið. Landbúnaðurinn mun því framvegis nota erlent kjarnfóður, eftlr því sem föng eru á. Liklegt má telja, að með því að koma upp heymjölsverk- smiðju á heppilegum stað, mætti draga úr innflutningi á erlendu kjarnfóðri og spara á þann hátt gjaldeyri. 1 fóðurblöndu fyrir mjólkurkýr má nota allt að 1/3 heymjöl. Er talið, að slík blanda sé ekki verri en það fóður, sem venjulega er notað. Verksmiðjuna verður að byggja þar, sem landrými er mikið og þar sem grasrækt er auðveld og ódýr. Mál þetta hefur verið rætt við Pál Sveinsson sandgræðslu- stjóra, og hefur hann bent á, að hvergi væri betri aðstaða en á Rangársöndum, sem nú er verið að rækta upp. Það land, sem Sandgræðsla rikisins hefur til umráða á Rang- ársöndum, mun vera um 6000 hektara landflæmi. Ef gert er ráð fyrir, að 3 tn. af heymjöli fáist af ha., fengist alls af þessu landi 18 þúsund tonn. Fullyrða má, að kostnaður við slika verksmiðju mun nálgast hálft togaraverð. Nauðsynlegt er að gera nú þegar byrjunarráð- stafanir með því að fela sér- fróðum mönnum fullnaðarrann- sókn á þvi, hvort þær vonir, sem ýmisir tengja við heymjölsverk- smiðju hér á landi, hafi við rök að styðjast. Leiði rannsóknin í ljós, að svo er, ber að gera ráð- stafanir til þess, að framkvæmd- ir geti hafizt sem allra fyrst. Fyrsti sendiherra Kúbu á ísiandi. Hinn nýi sendiherra Kúbu á fslandi, Dr. Rafael Montoro y de la Torre, afhenti í gær (mið- vikudaginn 27. nóveber 1957) forseta íslands trúnaðarbréf sitt við hátíðlega athöfn að Bessastöðum, að viðstöddum utanríkisráðherra. Að lokinni athöfninni snæddi sendiherrann hádegisverð í boði forsetahjónanna, ásamt utanríkisráðherra og nokkrum öðrum gestum. Dr. Montoro er fyrsti sendi- herra Kúbu á íslandi. Hann er jafnfragit sendiherra lands síns í Hollandi og hefir aðset- ur í Haag. (Fréttatilkynning frá skrif- stofu forseta íslands). Leiðrétfing. í fréttatilkynningu af borg- arafundinum í Góðtemplara- húsinu, sem Visi barst frá Stór- stúku íslands og Þingstúku Reykjavíkur og birt var í blað- inu í gær, var bætt óviður- kvæmilegum málshætti. Var þetta hrekkur eins setjarans í prentsmiðjunni, Einars H. Guðmundssonar, en blaða- manni yfirsást að strika línuna út. Vísir og' Félagsprentsmiðjan biðja hlutaðeigandi velvirðing- ar á þessum mistökum. 9 Lundúnablöðin segja, að verð á tini til afltendingar eftir 3 máimði hafi fnllið nm 19 stpd. sniálestin. Fögur listaverkabók. Nú, um það leyti sem Reyk- víkingar eru að senda vinagjaf- ir til útlanda með síðustu skip- um fyrir jól og velja jólagjafir til vina og ættingja hérlendis, fer ekki illa á því að vekja at- hygli á einni fegurstu lista- verkabók íslenzks listamanns, sem út hefir verið gefin, en það er bókin um Einar Jónsson myndhöggvara, sem kom út fyrir þrem árum. Eiiiar Jónsson mun vera víð- | kunnastur íslenzkra myndlist- armana fram til þessa og' varla kemur sá útlendingur til ís- lands, að hann skoði ekki lista- safn Einars og fari þaðan fullur aðdáunar út aftur. Það var því naumast unnt að heiðra minn- ingu listamannsins á annan hátt betur en með þessari eftir- minnilegu og fögru útgáfu, sem er einstæð í sinni röð á íslenzk- um bókamarkaði. í bókinni eru hátt á 2. hundr- að myndir af höggmyndum Einars, smáum og stórum og frá ýmsum tímum. Auk þess eru litprentanir af nokkrum málverkum hans. Inngangsoi’ð eru á fimm tungumálum, þ. e. íslénzku, ensku, frönsku, þýzku og dönsku. „Verk Einars Jónssonar verða ekki rakin til erlendrar nú- tímalistar/ sagði Guðmundur prófessor Finnbog'ason eitt sinn^ um list Einars, „því að þeim virðist ekki kippa í kyn til hennar. Þau risa ein sér eins og fjallaþyrping á sléttum öræf- um og bera fangamark ein- kennilegs anda, sem farið hefir sinna ferða‘“. Þessi bók um list Einars Jóns- sonar er sígild á bókamarkaði og sígild vinagjöf eins og list Einars er sígild. Verðandi. Vorið 1882 kom út í Kaup- mannahöfn ritið Verðandi. Að því stóðu fjórir ungir íslenzkir námsmenn, og kvöddu sér hljóðs á bókmenntavettvanginum, og þjóðin lagði við hlustirnar, því að engum duldistað þarna voru mikl ir efnismenn á ferð, á sviði Ijóða og skáldsagnagerðar, en umdeilí varð ritið. Þrír þessarra manna urðu þjóðkunn skáld og skáld- sagnahöfundar, Einar Hjörleifs- son Kvaran, Hannes Hafstein og Gestur Pálsson, en hinn fjórði var Bertel E. Ó. Þorleifsson. Ljóð hans í Verðandi sættu ómildum dómum, enda mun mönnum, eins og oft vill verða, hafa orðið star- sýnna á gallana en kostina, þeg- ar ung skáld koma fram á sjón- arsviðið í fyrsta sinn. Ævi þessa unga skálds varð skömm og enda lokin sorgleg. Og þótt margir kannist enn í dag við nafn hans, vegna Verðandi og þremenning- anna félaga hans, sem öll þjóðin væntanlega enn man og dáir, er Bertel, maðurinn, skáldið löngu flestum gleymdur. Hér er það enn minnisstætt, frá æsku- og unglingsárum, hve oft ég greip til rits þeirra fjórmenn- inganna, eftir að ég hafði fundið það í einni bókahillu föður mins, og mér fannst snemma einkenni- lega hljótt um Bertel, en það varð líka allt af svo margt til þess að minna á félaga hans. Bertel. Þetta rifjaðist allt upp fyrir mér,‘er mér fyrir skömmu barst í hendur dálítið kver um hið gleymda skáld, en það er Snæ- björn Jónss., sem tók það saman, og hefur unnið með því þarft og gott verk. Ber að virða vel alúð þá og ræktarsemi, sem hér liggur til grundvallar, og þann drengskap hans, að sýna minn- ingu þess verðugan sóma. Kem- ur hér og fram sem í öðru, sem Snæbjörn hefur skrifað um bók- menntaleg efni, mikil þekking og vandvirkni, og vissulega er mikils virði að kynna sér mat hans og skoðanir. Snæbjörn Jónsson bendir rétti lega á, að hrein skáldæð sé til í ljóðum Bertels, og segir m. a. „Og það er hrein tilfinning í þessum látlausu orðum: Eg átti fagurt föðurland með fjöll og ár, og alla daga söng við sand þar særinn blár En skip mig þaðan burtu bar — það byrgðu höf. — Nú á ég ekkert eftir þar nema’ eina gröf. Það er skáld, sem þannig yrk- ir. Einar Hjörleifsson Kvaran seg ir í minningargrein um Bertel: „Þjóð vor missti þar mann, sem að sönnu hafði ekki gefið henni neitt listaverk, en sem jafn- framt hafði sýnt að hann var liklegri til að gera það en marg- ir aðrir af námsmönnum henn- ar.“ En Sn. J. bendir á það, að Ein- ari Kvaran voru „ekki stóryrðin töm — og hann kunni þá list snillingsins, að gefa orðum sín- um kraft með því að láta þau segja minna en á bak við þau lá.“ Er mjög athyglisvert, sem Sn. J. hefur um hæfileika Bert- els að segja, en hann telur hann hafa verið snildarlega bragflm- an, og „augljóst, að hann hefði orðið afburða-þýðari, ef honum hefði orðið langra lifdaga auðið.“ Nefnir hann snildarþýðingu

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.