Vísir - 14.12.1957, Blaðsíða 12
Ekkert bla'ð er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
lestrarefni beirn — án fjrrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
Laugardaginn 14. desember 1957
Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-GO.
83 inilij. kröna greiðsEubaiii á
fjarlögum fyrir áril 1958.
Stjórnin vítt fyrir ónógan undir-
búning.
Fjárlagafrumvarp fyrir árið
1958 var tekið til annarar um-
ræðu í Sameinuðu þingi í gær.
Frumvarp þetta er fyrir ýmsar
sakir mjög merkilegt og þá sér-
staklega, þar sem það kemur
frá stjórninni með geysilegum
rekstrar'iialla og enn meiri
greiðsluhalla.
Fjárlög þessi voru lögð fram
í byrjun þingsins, svo sem
venja er til og vísað til fjár-
veitingarnefndar hinn 21. okt.
Karl Guðjónsson, framsögu-
maður meiri hluta fjárveiting-
arnefndar gerði grein fyrir
störfum nefndarinnar og kvað
frumvarpið hafa verið afgreitt
á skemmri tíma en nokkru
sinni fyrr. 7. des hefðu fyrst
verið teknir til athugunar ein-
stakir þættir þess og brtt. þann
9. Takmörkuð samstaða hefði
verið í nefndinni, en hún ber
samt fram saman brtt. á þskj.
145 og eru þær till. við hina
ýmsu þætti frumvarpsins. Ekki
var nema hluti breyingartill-
lagna kominn fram enn. Yfir-
leitt kom í ljós, að frv. eins og
það liggur fyrir með brtt. nú, j
gæfi litla hugmynd um hvernig
það að lokum yrði. Rakti Karl
síðan hinar ýmsu breytingar,
sem yfirleitt eru til hækkunar
frá því sem stjórnin lagði það
fram, enda er greiðsluhalli nú
rúml. 8 millj. og rekstrarhalli
rúm. 3 millj. Lét framsögu-
maður í það skína, að mikilla
breytinga væri að vænta til úr-
bóta á þessu.
Magnús Jónsson framsögum.
minni hl. talaði næstur og kvað
frumvarpið óhæft til efnis-
legrar umræðu. Væri undir-
búningur frv. einsdæmi og brot
á öllum í-eglum um slík mál.
Ekki bólaði neitt á sparnaði
stjórnarinnar nema ef ’vera
skyldi þær 13 millj. er skornar
væru af fé til opinbers rekstr-
ar. Kvað hann hraðann hafa
verið svo gífurlegan, að nefnd-
in hefði orðið að afgreiða frv.
til 2. umr. á 2 dögum. Hann
kvað ríkisstjórnina vera eins
Drottningarmðlir
í heimsfíugi.
og' mann, er hlypi niður brekku
og gæti ekki stöðvað sig hvað
eyðslusemi snerti.
heyrzt hefði orðasveimur um,
að fjárlögin ætti að laga á þann
hátt að taka upphæðir til nið-
urgreiðslu út úr frv. fram yfir
þæjarstjórnarkosningar.
Fjármálaráðh. gerði hvorki
Elisabet drottningarmóðir á
fyrir höndum hnattfiugferð.
Leggur af stað x næsta mán-
uði í heimsókn til Nýja Sjá-
lands og Ástralíu. Enginn í
Einnig að kcnungsfjölskyldunni hefur
áður flogið kringum hnöttinn.
Áformað er að leggja af stað
28. jan. Verður flogið til Mont-
real yfir Kanada og um Honu-
lulu til Aucklands í Nýja
Sjálandi, þaðan til Ástralíu og
að neita eða játa þessu síðasta!um Mauritius til Austur-
atriði, er hann reis upp og tók Afríku (Nairobi) og Moltu. —
til máls. Um undirbúningsleysi Ferðalagið mun taka 41 dag,
frv. sagði hann ekkert en hróp- Jýkur 10- marz’ Annað hvort
aði á Sjálfstæðismenn sér til verður notuð British Britannia
aðstoðar og kvað þá eiga að Nugvél eða bandaiísk DC-7
flugvél til Ástralíu, en á heim-
leið frá Ástralíu verður flogið
í ástralskri „Super Constell-
ation“ flugvél á vegum Quant-
as-félagsins.
Báðar flugvélarnar eiga að
hafa stöðugt samband við
London. Úr þeim verða tekin
öll venjuleg sæti, og á aftur-
hluta þeirra gerð setustofa,
máluð í dökkgráum og bláum
litum.
og kvaö þá eiga
gera tillögur til úrbóta. Um
hallann á fjárlögum væri það
að segja, að það væri ósköp
vanalegt.
Bjarni Benediktsson svaraði
fjármálaráðherranum og hrakti
málflutning hans. Ef halli væri
á fjárlögunum samkv. venju,
væri það samkvæmt eigin venju
Eysteins, sem verið hefði fjár-
málaráðherra 7 undanfarin ár.
Þingheimur hefði enga vit-
neskju fengið um fyrirætlanir
stjórnarinnar í þessum efnum,
jafnvel ekki fjárveitinganefnd.
Oft og mikið hefði stjórnin
I talað um hin vanalegu bjarg-
ráð og nú væri víst eitthað á
döfinni, en ekki fyrr en eftir
áramót. Helzt mætti ætla, eftir
skrifum eins mesta fjármála-
spekings stjórnarinnar, að hér
væri um gengisfellingu að
ræða.
Umræðum var haldið áfram
kl. 5 og lauk þá Bjarni Bene-|taka að sér starf í skrifstofu
diktsson ræðu sinni og ræddi flokksstjórnarinnar.
um einstaka liði sem lagfær- j Shehu tók þá til sinna ráða,
ingar þyrftu við. Auk Bjarna sótti stúlkuna sjálfur í flokks-
tóku til máls 5 aðrir þingmenn skrifstofuna, og fékk henni
Shehu og Hoxha
keppa í ástum.
Fregnir frá Tirana, höfuð-
borg Albaníu, lierma að Shehu
og Enver Hoxha framkvæmd-
arstjóri kommúnistaflokksins,
! séu bálskotnir í sama kven-
manninum.
Stúlkan hafði starfað í tvö
ár í skrifstofu Shehu, er Hoxha
skipaði svo fyrir, að hún skyldi
Sjálfstæðismanna,
skrauthýsi til íbúðar.
Frakkar telja sér naulsyn al
fá eídflaugastölvar.
Ýmsar þjóðir fráhverfar þeim.
í fregnum frá París segir, að
það sé á allra vitorði, að franska
stjórnin telji nauðsynlegt að
Frakkland Ihafi stöfrvar fyrir
fjarstýrð skeyti af miðstærð til
varnar og hafi snúið sér til
Flytja Bandaríklsi her-
llð fra Bæiaralandl?
Samkvæmt fregn frá Bonn Bandaríkjamanna og rsett við
er orðrómur á kreiki um það, hana um þessi mál.
að Bandaríkin flytji 35.000 Hins vegar mun stjórn Gaill-
manna lið sitt frá Bæjaralandi, ards ekkert gera í málinu án
cn vestur-þýzkt herlið taki við samþykkta þingsins. Danmörk
af því. og fleiri lönd vilja ekki eld-
Sagt er, að sambandsstjórn-| flaugastöðvar, að því er leið-
in í Bonn hafi stungið upp á'togar þeirra hafa látið í ljós,
þessu. Ef af þessu yrði myndi eða kjarnorkubirgðir, og af-
sambandsstjórnin taka við staða Dana og Norðmanna er
mörgum nýjum húsum, skólum óbreytt um það, að þær vilja
og sjúkrahúsum, sem Banda-' ekki erlent herlið á friðartím-
ríkin hafa reist í Bajaralandi. um.
Fjölda margir bandarísku her-
mannanna, sem burt yrðu
fluttir, verði af þessu, eru fjöl-
Bréfaflóðið.
Brezk blöð ræða um bréfa-
flóðið frá Búlganin, en talið er,
skyldumenn, sem hafa konur að hann hafi skrifað öllum rík-
og böm í Bayern, og fyrir þau isstjórnum NA-landanna York- einnig, að sannreyna verðí frið
Voru skólarnir reistir. * shire Post, eitt kunnasta blað arvilja Rússa.
Bretlands, fyrr málgagn Ed-
ens, segir að það virðist vera
beygur vegna NA-fundarins,
sem komið hafi af stað þessu
flóði. En blaðið telur kvíða
Búlganins og annarra leiðtoga
í Kreml ástæðulausan. Daily
Mail og Daily Telegraph líta
svo á, að tilgangur Búlganins
sé að veikja samstarf Rússa, og
þessi blöð og fléiri segja, að
Rússar tali tungum tveim —
og allt öðru vísi heima fyrir en
út á við — og' úthrópi lýðræð-
isþjóðirnar þar og tali jafn-
framt um friðsamlega sambúð
þjóða í m'illi. En blöðin telja,
að þeim sé um að kenna hver
hún er, þeim beri að sanna, að
hugur fylgi máli, er þeir tala
um frið. Daily Herald, blað
jafnaðarmanna, sem hveíur
mjög til samkomulags, segir
Bréfunum rignir yfir
jólasveininn.
FerðtEskrifstofaan ogj 11
skótar svara heint.
Ferðaskrifstofu ríkisins hafa
nú borizt tugir þúsunda bréfa
frá börnum í öðrum löndum til
jólasveinsins á íslandi.
Starfsfólk Ferðaskrifstof-
unnar vinnur nú nótt með degi
að því, að skrifa utan á bréf til
barnanna, en auk þess hafa
ellefu skólar, mest gagnfræða-
skólar, tekið að sér að hjálpa
Ferðaskrifstofunni að skrifa
utan á bréfin og einnig ýmsir
einstaklingar úr skólum, sem
hafa komið til Ferðaskrifstof-
unnar og tekið bréf til utaná-
skriftar.
Kortin, sem börnunum eru
send, eru með myndum frá ís-
landi og þeim fylgir bréf á
ensku, þar sem veittar eru of-
urlitlar upplýsingar um ísland
og líf barnanna hér á íslandi.
Undir það er.ritað Santa Claus.
Er bréfið mjög vel við barna
hæfi.
Sum bréf hinna erlendu
barna eru mjög skemmtileg og
skrýtin og sýna vel, hvaða
hugmyndir börnin gera sér um
jólasveininn og ísland, þar sem
þau halda, að hann eigi heima.
Þá eru utanáskriftirnar margar
hinar skoplegustu og skemmti-
legustu og er hér eitt dæmi um
utanáskrift og bréf:
„Father Christmas
Iceland
Sputnik
Milky Way
, Mars.“
Og svo kemur bréfið:
„Dear Father christmas. I
hope you are weU.
I wold like a doll Please.
And a cowboy suty.
And tank you for the poscea
from last christmas. And may
name Chrarmaine Perice 28
Bean close Woodstock Oxford.
And I sell go to school I am 8
years old. My Twin is 8 years
old.
Love from chairmine
To Father christmas.“
Þetta bréf er svona á ís-
lenzku:
„Kæri jólasveinn.
Eg vona að þér líði vel. Mig
langar í dúkku, ef þú vilt gera
svo vel. Og kúrekaföt. Þakka
þér fyrir jólakortið um síðustu
jól. Eg heiti Charmaine Price,
28 Bean nærri Woodstock, Ox-
ford. Og eg á að fara í skóla.
Eg er átta ára. Tvíburi minn
er líka 8 ára. Ástarkveðjur frá
Charmaine til jólasveinsins.“
Charmaine litla hefur ætlað
að vera alveg örugg um, að
bréfið bærist í réttar hendur,
eins og utanáskriftin ber með
sér: Jólasveinninn, Sputnik,
Vetrarbrautin, Mars.
HaEDdfeknir í
baðinu.
Ungverska stjórnin hefur
bannað íbúum í Búdapest og
næstu borgum, sem nota sama
vatnsveitukerfi, að nota bað-
ker sín.
Ástæðan er sú, að vatns-
skortur er mikill í borginni,
meðal annars af því að enn
hefur ekki verið gert við
veitukerfið til fulls og kuldar
draga úr aðrennsli. Þeir, sem
stelast í bað, verða samstundis
handteknir!