Vísir - 18.03.1958, Side 8

Vísir - 18.03.1958, Side 8
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. Látið hann færa yður fréttir og annað lestrarefni Leim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. í i l Sími 1-16-60. VÍ S1R Munið, að þeir, sem gerast áskrifeudur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Þriðjudaginn 18. marz 1958 V.-íslendingur skipaður „öldungur“ á Kanadaþing. Fyrsta skifti sem manni, íslenzkra ætta er sýnd slík sæmd. Forsætisráðlierra Kanada, John Diefenbaker, hefur nýlega skipað Vestur-lslending, Gunnar Sólmund Tliorvaldson seb „sena- tor“ á Kanadaþing, en slikur sónii hefur íslenzkum mamii ebki hlotnazt fyrr. ,.Lögberg“, segir frá þessu og er þar komizt m. a. að orði: „Nýlega skipaði forsætisráð- f’ herrann i Canada, Gunnar Sól- ' mund Thorvaldson lögfræðing, . sem þingmann, — Senator, í .efri málstofu hins canadiska þjóð- þings, og er hann fyrsti maður- inn af íslenzkri ætt í þessu landi, er orðið hefur slíkrar sæmdar aðnjótandi; er hann vel að slíkri mannvirðingu kominn sakir með fæddra og þroskaðra hæfileika sinna í þjónustu samferðasveit- arinnar. Hinn nýi Senator er fimmtíu og sjö ára að aldri, fæddur í bænum Riverton í Nýja íslandi; foreldrar hans, sem bæði eru lát- in, voru merkishjónin þau Sveinn Thorvaldson kaupmaður frú Dúki í Sæmundarhlið i Skagafirði og Margrét Sólmund-1 ardóttir frá Máfahlið í Borgar- fjarðarsýslu. „Solli“, eins og vin- Bílstjóranámskei5 á Akureyri. Akureyri í gær. Námskeið fyrir bifreiðastjóra 'til meira-prófs stendur yfir á Akureyri og eru þátttakendur 27 talsins, Námskeiðið hófst um s.l. mánaðarmót og búizt við að það standi út þennan mánuð. Snæ- björn Þorleifsson bifreiðaeftir- litsmaður veitir námskeiðinu for- stöðu en auk hans kennir Vil- hjálmur Jónsson vélaeftirlits- maður og Gísii Ólafsson varð- stjóri. ir hans venjulega nefna hann, lauk B.A. prófi við háskóla Sakatchewan-fylkis, en hóf því næst nám í lögvísi við Manitoba- háskólann, og lauk i bæði skipt- in prófi með fyrstu einkunn; hann hefur gefið sig við lög- mannsstörfum jafnan síðan hér í borg við góðan orstír og vax- andi vinsældir. Solli hefur tekið virkan þátt í opinberum mannfélagsmálum, setið á fylkisþingi í Manitoba fyrir hönd Winnipegborgar og varð þjóðkunnur maður, er hann var kjörinn forseti Viðskiptaráðs ins í Canada, The Canadian Chamber of Commerce, og nú er hann formaður lögfræðingafé- lagsins í Manitoba; má af þessu ráða, að eigi sé fleira talið, hvers trausts hinn nýskipaði Senator hvarvetna nýtur; hann er með- limur hins kunna lögmannafé- lags, sem gengur undir nafninu Thorvaldson, Eggertson, Bastin & Stringer. Hann er kvæntur Ednu Schwitzer, ágætri konu; þau eiga þrjár dætur.“ Áfenglsvarnanefnd kvenna rek- ur skólaheimili fyrir stúlkur. Þar eru 8 stúlkur á 10-14 ára aldri. í byrjun febrúar í vetur gekkst Áfengisvarnarnefnd kvenna í Reykjavík og Hafnar- firði fyrir því að stofnað var skólaheimili fyrir stúlkur á skólaaldri að Hlaðgerðarkoti í Mosfellssveit. Skólinn, sem starfræktur er aðeins yfir venjulegan skóla- göngutíma til vors, fékk afnot af húsnæði því, sem Mæðra- styrksnefnd hefur til starfsemi sinnar yfir sumarmánuðina. Kostnað við skólahaldið greiða ríkið og Reykjavíkurbær. Að því er einn af stjórnar- meðlimum Áfengisvarnar- nefndar kvenna tjáði Vísi í morgun, var mjög mikil þörf fyrir slíkt skólaheimili. Fjöldi stúlkna í Reykjavík, á aldrin- um 10 til 14 ára, fara af ýms- um ástæðum á mis við það uppeldi, sem skóli og heimili eiga að veita og er því skóla- heimili sem þetta tiltækileg- asta lausnin. Á skólaheimilinu eru nú 8 stúlkur á ofangreindum aldri. Er skólatíma þeirra skipt í bóknám, verklegt nám, svo sem matreiðslu o. fl. og til leikja. Forstöðukona heimilisins er frú Jónína Guðmundsdóttir. Áfengisvarnarnefnd kvenna í Reykjavík og Hafnarfirði hélt aðalfund sinn 11. marz. Stjórn- in var öll endurkjörin en hana skipa: Guðlaug Narfadóttir form., Fríður Guðmundsdóttir, Sesselja Konráðsdóttir og Sig- ríður Björnsdóttir. Tækið á myndinni er segulbandstæki, sem komið var fyrir í Könnuði II, er hegðaði sér þó ekki samkvæmt áætlun og eyddist í lofti. Var tæki þessu ætlað að gera athuganir á geimgeislun- um og senda tilkynningar um þær til jarðar. Ráða má stærð tækisins af hendinni, sem heldur um það. Bandarísku gervitungli skotið með Vanguard - eldfiaug. Kann að haldast á lofti í 5-10 ár. Bandarísku gervitungli var skotið í Ioft upp frá Canaveral- höfða á Floridaskaga í gær. Var til þess notuð þriggja þrepa Vanguard-eldflaug. Gervitunglið, sem er lítið, 16,2 sentimetrar í þvermál, var komið á braut sína 10 mínútum eftir að því var skotið upp í loftið, og fylgir seinasta þrep eldflaugarinnar því. — Gervi- tunglið vegur aðeins 1.6 kg.. Það kann að haldast á loft 5—10 ár. Eisenhower forseti gaf út til- kynninguna um, að gervi- tunglið væri komið á braut sína, en það var kl. 13.30 eftir íslenzkum tíma. í gervitungl- inu eru tvær sendistöðvar, og gengur önnur fyrir rafhlöðu, en hin er útbúin fótosellum, sem vinna orku úr sólarljósinu. Sendistöðvarnar gefa til kynna ýmislegt um geimgeisla, hitastig, raka o. s. frv. Madang á valdi sambandshersins. Madang á Norður-Súmötru er nú aftur á valdi liðs sam- bandsstjórnarinnar. Fregnir um þetta bárust í gærkvöldi eftir að ekki hafði heyrst í útvarpi uppreistar- manna þar í sólarhring. Ennfremur var hafnarborg Madang, Belawan, í 15 km. fjarlægð sögð á valdi sam- bandshersins. Annars segjast uppreistar- menn hafa ýms héruð og staði, sem sambandsstjórnin segist hafa tekið, og fregnir svo rugl- ingslegar, að ógerlegt er að segja með vissu hvað rétt er, þar sem allar fullyrðingar að kalla stangast. Fyrsta bandaríska gervi- tunglið var skotið á loft upp 31. janúar með Jupiter eld- flaug. Tvær tilraunir til að senda upp gervitungl með því að láta Vanguardskeyti flytja það, misheppnuðust. Hið nýja skeyti er nefnt eftir eldflauginni og nefnist Van- guard I. eða Framvörður I. — Heyrst hefur til gervitunglsins. Það fer kringum jörðina á 133 mínútum og er mesta fjarlægð frá jörðu 4080 km., en minnst 650 km. Frcgnir árdegis í dag herma, að heyrst hafi í gervi tunglinu víða um Iheim, og m. a. heyrðu vísindamenn í Woomera-tilraunastöðinni í Ástralíu til þess. Korfni pilturinn kominn fram. í gærkveldi var lýst eftir 18 ára pilti sem horfið hafði heimanað frá sér og þar eð hann var flogaveikur var tekið að óttast um hann þegar hann kom ekki Sieim til sín gær- kveldi. Var leitað til lögreglunnar um aðstoð og síðan lýst eftir piltinum í útvarpi. Bárust þá þær fréttir, að til piltsins hafi sést uppi í Mosfellssveit, en í morgun fréttist að pilturinn væri kominn fram. Hafði hann farið einn síns liðs og fótgang- andi upp að Úlfarsfelli og gist þar í nótt en þar mun hann hafa verið kunnugur frá fyrri tímum. Þegar fréttin barst um að pilturinn væri staddur á Úlf- arsfelli, fór lögreglan og sótti hann þangað í morgun. Bjargaði syni sínum frá drukknun. Ung kona, Guðríður Jóns- dóttir í Keflavík bjargaði á mánudag tveggja ára gömluin syni sínurn frá drukknun í gryfju, sem grafin hafði verið milli Aðalgötu og Hringbrautar þar í bæ. Það var um kl. 10 á mánu- dagsmorgun sl. að bræðurnir Gylfi 2ja ára og Þröstur 3ja ára fóru heiman að og voru báðir klæddir í gúmmíbuxur. Skömmu síðar komu börn heim til Guðríðar og sögðu henni að Gylfi hefði dottið í gryfjuna, sem var full af vatni. Er hún kom að gryfjunni sá hún hvar yngri drengurinn flaut á vatn- inu og héldu buxurnar honum uppi. Óð hún til drengsins og er hún náði honum, tók vatnið henni í Axlir. Drengurinn var meðvit- undarlaus. Móðirin hóf þegar lífgunartilraunir og hélt þeim áfram í hálfa klukkustund og kom drnegurinn þá til meðvit- undar.' Skömmu síðar féll annað barn í gryfju þessa og var bjargað af ^önnum sem voru að ræsa franiisgryfjuna. ---- a Gullfossi. Þegar Gullfoss lætur úr höfn næst, verður nýr skipstjóri við stjórn á honum. Lætur Jón Sigurðsson skip- stjóri nú af störfum vegna ald- urs, en hann hefur verið um 40 ár í þjónustu Eimskipafélagsins og stjórnað Gullfossi í 200 ferð- um milli Islands og Danmerkur. Hefur hann alla tíð vetið far- sæll skipstjóri og vinsæll af far- þegum og skipverjum. Hinn nýi skipstjóri Gullfoss lieitir Kristján Aðalsteinsson og á einnig að baki langan starís- feril hjá Eimskipafélaginu. Þrjú innbrot. Þrjú innbrot hafa verið frainin hér i Reykjavík síðustu næturn- ar, en hvergi verulegum verð- mætiun stolið. Um helgina var brotizt inn , Borgarþvottahúsið við Borgar- tún og stolið þaðan einhverju af fatnaði, samkvæmiskjól o. fl., en ekki neinum peningum. Þá var ennfremur brotizt inn í fyrirtæki eitt að Höfðatúni 10 og þar stolið 30—40 krónum í skiptimynt og einhverju af sæl- gæti. Þriðja innbrotið var framið i nótt og þá stolið 50 einnar krónu peningum en öðru ekki.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.